Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 2
2 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MC/RGUNBLAÐIÐ
Sægur tölvubóka
SRS
ÞÓ ÞAÐ geti virst þversagnakennt
eru fáir háðari bókum en tölvu-
menn. Bæði er að fáar leiðir eru
vænlegri til að kynnast öllu því
nýjasta en á prenti og svo að forrit
eru svo flókin smíð að ekki verður
hjá því komist að leita fróðleiks hjá
þeim sem vita betur.
íslenskir tölvuáhugamenn njóta
góðs af því að hér á landi er starf-
rækt tölvubókaverslun, Bóksala
stúdenta, með óvenju miklu úrvali,
reyndar því mesta á Norðurlöndum
að sögn innkaupastjóra tölvubóka
hjá Bóksölunni, Reinharðs Rein-
harðssonar.
Reinharð segir að tölvudeild Bók-
sölu stúdenta hafi byrjað rekstur
um svipað leyti og byijað var að
kenna á tölvur í háskólanum. Fram-
an af var þetta ein hilla, en jókst
eftir því sem einkatölvur urðu út-
breiddari og líka vegna þeirra sem
úskrifuðust og óskuðu eftir því að
fá bækur til að fylgjast með,-
„Úrvalið er mikið, við erum einir
með markaðinn í dag, það var lítil-
ræði hjá Máli og menningu og Ey-
mundsson, en ég held að þeir hafí
gefíst upp á samkeppninni að
mestu, enda reynum við að vera
með allt það nýjasta hveiju sinni.
Mér er reyndar sagt að við séum
með mesta úrval á einum stað í
akademískri bókabúð á Norðurlönd-
unum,“ segir Reinharð.
Kostar vinnu að fylgjast með
Reinharð tekur undir að tölu-
verða vinnu kosti að fylgjast með.
„Við fáum alltaf tilkynningu um
það með þriggja til Ijögurra mánaða
fyrirvara hvað sé væntanlegt, því
erlendar útgáfur skipuleggja útgáfu
ár fram í tímann. Það hjálpar okkur
líka við að fylgjast með markaðnum
að langskólagengnir menn í tölvu-
fræðum koma hingað og eru þá að
spyija um hitt og þetta eða sér-
panta bækur um nýjungar í faginu.
Salan er mikil, en við liggjum
núna með um 1.000 titla og fáum
um 50 nýjar bækur í hverjum mán-
uði, en eitthvað dettur út í staðinn.
Það kemur fyrir að við sitjum uppi
með bækur um hugbúnað sem dott-
inn er út eða ný útgáfa komin í
staðinn, en svar okkar 'við því er
að skipta við stór fyrirtæki þar sem
við getum endursent úrelta útgáfu
innan árs frá því við keyptum hana.
Annars væru þetta gríðarlegar af-
skriftir. Við eigum núna um 100
bækur á útsölu sem fjalla um hug-
búnað sem er ekki lengur í notkun
og seljast ekki með 70% afslætti."
TÖLVUSKÓLI Reykjavík-
ur hefur lagt sitt af mörkum
við að mennta íslenska
tölvuáhugamenn með ýmis-
legum námskeiðum. Sem lið í
þeirri kennslu tók skólinn að
gefa út kennslubækur til eigin
nota við skólann fyrir nokkrum
árum en tók síðan að selja bæk-
urnar.
Guðmundur Amason, skóla-
stjóri Tölvuskólans, hefur um-
sjón með útgáfunni hjá Tölvu-
skólanum. Hann segir útgáfuna
hafa hafist haustið 1992 og voru
fyrstu bækurnar Windows 3.1
eftir hann, Word 2.0 fyrir
Windows og Excel 4.0 fyrir
Windows og Macintosh eftir
Brynjólf Þorvarðarson, tölvun-
arfræðing og menntaskóla-
kennara.
Fimmtán bækur komnar út
í dag hefur Tölvuskólinn gef-
ið út 15 bækur og væntanleg
er bók um alnetið og Windows
95. Þegar hafa komið út bæk-
umar Windows 3.1, PowerPoint
3.0 fyrir Windows, PowerPoint
4.0 fyrir Windows og Macint-
osh, Windows 3.11 for Workgro-
ups ásamt Mail og Schedule+
og WordPerfect 6.0 fyrir
Tölvugeisladiskar, svonefndir
CD-ROM diskar, sækja nú í sig
veðrið, enda handhæg upplýsinga-
lind. Reinharð segir að langt sé í
að þeir komi í stað bókanna nema
á mjög sérhæfðum sviðum. „Við
erum að þreifa fyrir okkur með inn-
flutning á CD-ROM diskum með
fræðiefni sem tengist námi í háskól-
anum, pakka í eðlisfræði, stærð-
fræði og líffræði, en annað höfum
við tekið frá íslenskum heildsölum.
Við vitum einfaldlega ekki hvort
háskólasamfélagið er tilbúið til að
taka við þessu,“ segir Reinharð.
Tískubylgjur
Tölvuheiminum svipar um margt
til poppheimsins; stjömurnar koma
og fara með leifturhraða; forrit eru
á allra vörum í dag, en á morgum
hafa önnur tekið við. Reinharð seg-
ir að Bóksala stúdenta fari ekki
varhluta af slíkum tískusveiflum;
til að mynda hafí bækur um alnetið
verið fáar fyrir tveimur áram, en
nú fylli þær heilan vegg.
„Við erum jafn fljótir að bregð-
ast við áhuganum og bókafyrirtæk-
in eru að senda frá sér bækumar,
enda emm við í beinu sambandi við
þá, sölumenn em reglulega í sam-
bandi við okkur. Fyrir tveimur ámm
vom kannski til hundrað bækur um
intemet, en nú era þær kannski
orðnar þúsund. Við keyptum allt
sem til var í upphafi, en nú verðum
við að velja úr. Síðasta æðið sem
ég man eftir var Windows 3.1 þar
sem hjólbömr af bókum fóm út,
en svo allt í einu var slökkt á því.
Þetta em notendabækur, 90% af
því sem við teljum tölvubækur em
handbækur til nota á ákveðnum
hugbúnaði og það fer bara eftir þvi
hversu vinsæll hann er. 10% af því
sem eftir er em fyrir forritara og
þá sem em í framleiðslu á hugbún-
aði og mest allt sérpantað. Það
koma hingað menn sem em að leita
eftir mjög sérhæfðum upplýsingum
og þá útvegum við það, en það er
ekkert sem við liggjum með, það
er ekki víst að það komi annar í
leit að því sama.
Það er alltaf töluverð hreyfíng á
sérpöntunum og er alltaf að aukasL
Fyrir rúmu ári fengum við geisladisk
með lista yfír allr bækur sem til em
á ensku, yfír tvær milljónir
titla, sem er
uppfærður
mánaðarlega,
þannig
REINHARÐ Reinharðsson
Morgu nblaðið/Þorkell
Bóksala stúdenta hefur gott úrval tölvu-
bóka; reyndar besta úrval á Norðurlönd-
um að sögn Reinharðs Reinharðs-
sonar innkaupastjóra tölvubóka.
að við emm fljót að leita að ákveðn-
um titlum. Við bjóðum fólki líka að
koma og leita sjálft ef það vill.
Bóksalan á alnetið
Reinharð segir að nokkuð sé um
liðið síðan bóksalan fór inn á alnet-
ið og það hafí gefið góða raun.
„Við emm komin með tölvubækum-
ar inn á netið og það hefur gengið
mjög vel. Við fómm inn á netið
með aðstoð Miðheima í janúar sl.
og ákváðum þá að hafa tölvubæk-
ur, á þeirri forsendu að það yrði
meira á áhugasviði þeirra sem
tengjast netinu á annað borð. Við
eram með ellefu hundmð bækur á
netinu og þar koma fram helstu
upplýsingar. Síðan höfum við sótt
út í heim frekari upplýsingar um
nýjustu bækumar, þannig að á 30
til 40 nýjustu bókunum er lýsing á
innihaldi bókarinnar og mynd af
kápunni. Fyrir þá sem vilja liggja
efnistengs! frá heimasíðunni okkar
til bókaforlaga úti um heim og þar
er komið nokkurt safn.
Við stefnum að því að koma fleiri
titlum inn á netið, en það tekur sinn
tíma að koma þeim inn, þvi þetta
þarf allt að gera í höndunum. Það
hefur staðið til í nokkur ár að tölvu-
væða lager og sölukerfi, en við
höfum ekki fundið kerfi sem söluað-
ilar hafa treyst sér til að setja upp
á nógu skömmum tíma, því við
höfum ekki nema stuttan tíma á
vorin til að koma því upp. Það skipt-
ir svo miklu fyrir nemenduma að
hér séu allar upplýsingar í lagi,“
segir Reinharð að lokum.
Slóðin á heimasíðu Bóksölu stúd-
enta er
http://www.centrum.is/unibo-
oks/
Tölvubækur
tölvuskólans
Windows, allar eftir Guðmund
Árnason. Almenn tölvufræði og
Windows, Word 2.0 fyrir
Windows, Word 6.0 fyrir
Windows og Macintosh, Excel
4.0 fyrir Windows og Macint-
osh, Excel 5.0 fyrir Windows
og Macintosh, Access 2.0 fyrir
Windows, Works 3.0 fyrir
Windows og Paradox fyrir
Windows, allar eftir Brynjólf
Þorvarðarson. PageMaker
5.0 fyrir Windows eftir
I.J___' Júlíusson tölvimar-
fræðing. íslenska Access
bókin fyrir byijendur eftir
Gísla Olaf Pétursscn mennta-
skólakeimara í MK.
Guðmundur segir að hvatinn
að bókaútgáfunni sé námskeið
skólans, „þær fylgja að sjálf-
sögðu með námskeiðum skólans
og stundum hafa námsgögnin
ráðið úrslitum þegar tilboð okk-
ar í námskeið eru metin,“ segir
hann. Hann segir að Tölvuskól-
inn hafí dreift bókunum til bók-
sala og fáist þær um land allt
og séu víða notaðar til kennslu,
til að mynda í MR, MH, MS,
MA, ML, MK, Fjölbrautaskóla
Suðurlands, Verkmenntaskól-
anum á Akureyri, Fjölbrauta-
skólanum í Vestmannaeyjum,
Fjölbrautaskóla Suðurlands,
Fiensborg og víðar.
„Ástæður þess hve margir
skólar nota bækurnar eru að
þær þy kja góðar, verðinu er
stillt í hóf og svo hefur skólunum
verið boðið að kaupa bækumar
I pörtum,“ segir Guðmundur,
þ.e. kaupa aðeins þá kafla bók-
anna sem farið er yfir.“
WINDOWS 95 er á allra vör-
um og ekki veitir af doðranti
til að kynna sér alla mögu-
leika.
OS/2 er vænlegur kostur á
móti Windows 3.x og 95 að
margra mati. Þetta er opin-
berlega viðurkennd útgáfa.
FYRSTA kennslubók Lauru
Lamay, Teach Yourself Web
Publishing in a Week, hefur
selst gríðarlega vel og ekki
seinna vænna að gefa út fram-
hald. í framhaldinu er meðal
annars kennt að búa til CGI
skipanaskrár, vinna með töfl-
ur og HTML 3.0 er kynnt í
kjölinn.
NETSCAPE Navigator er
helsta rápforrit veraldarvefs-
ins. Með þessari útgáfu fylgir
CD-ROM diskur með ýmislegu
dóti.
NÆSTA æði PC-manna verð-
ur án efa Linux, UNIX herm-
ir fyrir PC tölvur. Með þess-
ari bók er CD-ROM diskur
með Linux Kernel 1.2, X
Windows og mörgu fleiru.
LOTUS Notes er merkilegt
forrit og gefur gríðarlega
möguleika. Til að nýta það
þarf dijúga þekkingu og hæg-
ur leikur að afla hennar með
lestri bóka eins og þessarar.