Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 12
 12 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ EFTIR því sem tölvu- og mótalda- eign hefur orðið almennari hafa bankarnir brugðist við með því að bjóða upp á aukna þjónustu, sem felst í að hver geti sinnt hluta bankaviðskipta sinna heiman frá sér. Það sparar vinnu og umstang í bankanum og gefur fólki mögu- leika á að halda betur utan um fjárhaginn, fylgjast af meiri ná- kvæmni með honum og sinna bankastússi þegar notandanum sjálfum hentar. í sjálfu sér hefur það verið mögulegt í fjölmörg ár að tengjast banka, en slík tenging hefur yfir- leitt aðeins nýst fyrirtækjum og opinberum aðilum. í seinni tíð hefur mótöldum aftur á móti fjölg- að og samtímis hafa einkatölvur orðið öflugari og því einfaldara að tengjast öðrum tölvum, ekki síst fyrir tilstilli Windows. Ólíkar leiðir Leiðir banka og sparisjóða í tengingum eru ólíkar; þannig bjóða Landsbanki, íslandsbanki og Búnaðarbanki upp á beinlínuteng- ingu í upphringisambandi, það er tölva notandans tengist bankanum og með skjáhermi er sem notand- inn sé að vinna á tölvu bankans. Sparisjóðirnir fara aftur á móti þá leið að tölva notandans les inn á skjáinn skjámynd frá sparisjóðn- um sem á eru þeir möguleikar sem viðskiptavinurinn hefur aðgang að. Þeir sem þekkja alnetið ættu að kannast við slíka skipan, því hún er alsiða þar, að notandinn er með forrit sem birtir upplýs- ingar á skjá eftir því sem miðlarinn sem tengst er segir til um. Heimabanki íslandsbanka íslandsbanki kynnti fýrir stuttu svonefndan Heimabanka, sem er bein tölvutenging einstaklinga og heimila við bankann. I Heima- bankanum geta viðskiptavinir sinnt bankaviðskiptum sínum á tölvu, hvort sem er heima við eða á vinnustað. Heimabankaforritið er einfalt í uppsetningu og handbók fylgir með um hvemig eigi að nota Heimabankann sjálfan. Þegar not- andi fer inn í Heimabankann hringir tölva hans beint í Heima- bankatölvu íslandsbanka þannig að notendur em ávallt beintengdir bankanum á meðan á notkun stendur. í Heimabankanum hafa viðskiptavinir aðgang að öllum sínum reikningum hjá 'íslands- banka, en inn í hvem Heimabanka er hægt að setja fleiri en einn fjöl- skyldumeðlim til að ná betri heild- armynd af fjármálum heimilisins. í kynningu frá íslandsbanka segir að í Heimabankanum sé hægt að skoða allar færslur á tékka- og innlánsreikninga, prenta út eigin reikningsyfirlit, sjá á einni skjámynd stöður allra reikninga notanda, miliifæra á reikninga í hvaða banka sem er, greiða gíró- og greiðsluseðla, skuldabréf og víxla, sjá færslur strax og þær hafa verið gerðar, fylgjast með stöðunni á VISA og Eurocard kreditkortum, reikna út greiðslu- byrði lána og heildarkostnað við lántöku, fletta upp á heimilisfangi eða kennitölu í þjóðskrá og senda starfsfólki bankans tölvupóst. Tryggt öryggi Þar segir einnig að hægt sé að prenta út úr Heimabankanum yflr- íit yfir allar framkvæmdar aðgerð- Heimabankar, einkabankar og heimalínur EINK BANKI / . AN N A SPARISJ FjérmnlnhiiBbúnBðuf " heinilliiiiis BÚNAOARBANKI ÍSLANDS BRNKINN Bankar og sparisjóðir kynna nú af kappi ýmislega tölvuþjón- ustu sem þeir bjóða notendum aðtengj- ast með aðstoð einkatölvunnar, en hver hefursinn svip og sínar áherslur. ir og einnigi geti notendur sent kvittun til móttakanda greiðslu eða á sjálfan sig, til að mynda til að láta fólk vita af t.d. millifærslu framkvæmdri í Heimabanka eða til að minna sig á greiðslu sem hefur verið framkvæmd. Einnig fylgir með Heimabankanum stimpill sem hægt er að nota til að stimpla t.d. gíróseðla sem greiddir hafa verið í Heimabankan- um. Hver notandi hefur sitt eigið lykilorð sem hann getur breytt að vild, auk þess sem hvert eintak af Heimabankanum er sérstakt þannig að enginn getur unnið með aðra reikninga en sína eigin eða þá sem viðkomandi hefur umboð fýrir. Til að setja Heimabankann á PC tölvu þarf Windows 3.x eða Windows 95. Macintosh útgáfa Heimabankans þarf System 7 eða nýrri útgáfu. Mótaldið getur verið allt fré 2.400 baud upp í 28.800 baud, en 14.400 baud er ráðlegt til að tryggja góðan svartíma. Heimabanki sparisjóðanna Hjá Tölvumiðstöð sparisjóðanna hefur verið unnið að svonefndum Heimabanka sparisjóðanna frá því í vor, en þáð er að stofni til loka- verkefni þriggja nemenda í Tölvu- háskóla Verzlunarskólans. Þegar er búið að hanna forritð fýrir Windows og NT notendaskil og Macintosh-útgáfa er væntanlegt í haust. Heimabanki sparisjóðanna verður opnaður núna um mánaða- mótin. Sparisjóðirnir fóru aðra leið en íslandsbanki, sem er með bein- tengingu, en byggja upp biðl- ara/miðlara umhverfi og útfærðu þannig að viðmóti biðlara er stýrt frá miðlara; viðmótið er því alltaf sótt til hans. Þannig er á einfald- an hátt hægt að bæta við og/eða breyta þjónustum án breytinga á biðlarahluta og þannig sparast umtalsverð vinna í notendaþjón- ustu. Samskipti biðlara við miðl- ara fara fram með upphringisam- bandi sem ræðst af öryggissjón- armiðum því að mati sparisjóð- anna geta aðrir tengimöguleikar gætu leitt til misnotkunar. Kerfið skiptist í tvo hluta, ann- ars vegar stjórnhluta (miðlara) og hins vegar notandahluta (biðl- ara). Þessir tveir hlutar eiga sam- skipti yfir símalínu og er stjórn- hlutinn í vörslu sparisjóðanna, en notandahlutinn í höndum við- skiptavinarins. Engrar sérstakrar þekkingar er krafist, annarrar en að kunna að notfæra sér glugga- umhverfi, hvorki við uppsetningu né notkun. Þjónustuflokkar sendir til biðlara Miðlarinn heldur utan um við- skiptavini sem hafa fengið úthlut- aðan aðgang að kerfínu og þær þjónustur sem þeim standa til boða. Hver þjónusta er skilgreind af umsjónarmanni kerfisins og þjónustum hópað saman í þjón- ustuflokka til að einfalda úthlutun þeirra. Þessir þjónustuflokkar eru síðan sendir yfir til biðlara og birtast þar í valmynd. Fyrir hveija þjónustu er búið til viðmótsform, skjámynd, sem sent er yfir línuna frá miðlara til biðlara þegar beðið er um hana. Þegar aðgangi er úthlutað fær viðkomandi afhent forrit biðlar- ann sem gerir honum kleift að hringja inn og tengjast. Þá er aðgangur hans athugaður og hon- um sendar upplýsingar um þá þjónustuliði sem hann hefur að- gang að. Viðskiptavinur getur svo valið þá þjónustu sem honum hentar og er þá viðkomandi við- mótsform sótt til miðlara og birt á biðlaranum. Viðskiptavinur notar biðlarann eins og hvert annað forrit á tölvu sinni. Biðlari hringir og tengist við miðlara, túlkar og birtir við- mót á skjá, fyllir út form og send- ir beiðnir um þjónustu til miðlara, tekur við gögnum frá miðlara og setur á viðeigandi stað í forminu og leyfir notkun klemmuspjalds til flutnings gagna yfir í önnur Windows-forrit, til að mynda Exc- el eða Word. Miðlari svarar símtalinu og kemur á jambandi, framkvæmir þær aðgerðir sem biðlarinn óskar eftir, er milliliður í samtalinu við gögn stofnunarinnar og fylgist með að hver viðskiptavinur hafi einungis aðgang að þeim upplýs- ingum sem honum tilheyra. Hann geymir skilgreind viðmót og að- gerðir þjónustu fyrir biðlara, geymir upplýsingar um viðskipta- vini, stjórnar aðgangi viðskipta- vina, sendir viðmót yfir á biðlara, tekur við beiðnum um aðgerðir og framkvæmir þær, sendir gögn sem aðgerð skilar til baka á biðl- ara, gerir ráð fyrir fleiri en einni tengingu í einu, skráir upplýs- ingar um notkun og tryggir ör- yggi- Flestar aðgerðir mögulegar Að sögn Jón Ragnars forstöðu- manns Tölvumiðstöðvar spari- sjóðanna geta notendur séð stöðu reikninga og fengið yfirlit, milli- fært á milli eigin reikninga og greitt víxla og skuldabréf, fengið yfirlit yfir gengi og vexti spari- sjóðanna og vísitölur. Einnig bjóða sparisjóðirnir upp á sérstakt fréttabréf fyrir þá sem tengjast. Væntanlegt er fljótlega að not- endur geti séð stöðuna á greiðslu- kortareikningum og sent starf- mönnum bankans tölvupóst. Einnig er væntanlegt í sambandi við þjónustu bankanna við húsfé- lög að forsvarsmaður félagsins, eða gjaldkeri geti kannað stöðu reiknings þess og séð hvort fé skili sér inn jafnóðum. |Óþarfi aö gera veöur útaf færðinni! | 1 http://www. strengur. is/hafsjor/ RSKAR UPPL ÝStNGAR UM FÆRÐ OG VEÐUR | ALLAN SÓLARHRINGINN Á INTERNETINU HAF ■ UPPLYSlfJGAVriTA sjór m STRENGS HF. I i í I i i i i i i ( ( I ( I .1 I ( ( I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.