Morgunblaðið - 08.10.1995, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Bubbi á ferð
og flugi
BUBBI Morthens lauk fyrir
skemmstu upptökum á
væntaniegri breiðskífu sinni
þar sem hann syngur lög
Hauks Morthens. Ekki var
upptökum fyrr lokið en hann
hélt í tónleikaferð um landið
þvert og endilangt.
Fyrstu tónleikarnir voru
síðastliðinn miðviku-
dag. í kvöld leikur Bubbi á
Eskifirði og síðan sem hér
segir: 9. október á Seyðis-
firði, 10. á Egilsstöðum, 11.
í Neskaupstað, 12. á Vopna-
firði, 13. á Þórshöfn, 14. á
Húsavík, 15. í Hrísey, 17. á
Ólafsfirði, 18. á Siglufirði,
19. á Akureyri, 20. á Sauð-
árkróki, 21. á Akranesi og
22. október leikur Bubbi í
Borgamesi. Að þessu sinni
ferðast með honum Þorleifur
Guðjónsson bassaieikari,
sem hefur iðulega leikið með
Bubba áður.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Papar spila tón-
list fyrir alla
Morgunblaðið/Ásdís
Fjallkonur Breiðskífa í
vændum.
Fjall-
konu-
skífa
ÞÓ MIKIÐ verði um útgáfu
fyrir þessi jól, verður minna
um nýja tóna. Meðai þeirra
fáu sem senda frá sér safn
frumsaminna laga er Fjall-
konan, sem hefur hljóðritað
breiðskífu og hyggst gefa
út á næstunni.
Fjallkonan' er hljómsveit
Jóns Ólafssonar, Stef-
áns Hjörleifssonar, Jóhanns
Hjörleifssonar, Péturs Amar
Guðmundssonar og Róberts
Þórhallssonar og hefur verið
þannig skipuð frá því í mars
sl.
Þeir Pétur og Róbert segja
hafa staðið til frá upphafi
að gefa út plötu með frum-
saminni tónlist, en það hafi
ekki gefist tími til fyrr en
síðsumars. „Á plötunni eru
lög eftir okkur Fjallkonur,"
segja þeir félagar og kíma,
„en við eram búnir að starfa
saman ansi iengi og því
nokkuð til af lögum til að
velja úr, þó lítill tími hafi
verið til að semja,“ segja
þeir, en skömmu eftir stofn-
un var Fjallkonan fastráðin
til spilamennsku í Þjóðleik-
húskjallaranum. Það var hið
besta mál að mati Pjall-
manna, því fyrir vikið náði
sveitin vel saman á skömm-
um tíma, en ljóður að lítill
tími gafst fyrir lagasmíðar.
Við það bættist svo uppi-
stand vegna uppsetningar á
söngleiknum um Jesú í Borg-
arleikhúsinu þar sem þeir
Pétur og Jón hafa verið upp-
teknir meira og minna í allt
sumar.
mTÓNLEIKAR í minn-
ingu Fróða Finnssonar
verða haldnir í hátfðarsal
Menntaskólans við
Hamrahlíð nk. fimmtu-
dag, en Fróði lést fyrir
rúmu ári úr krabbameini.
Tónieikarnir eru haldnir
til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum, en á
þeim koma fram ýmsar
hljómsveitir sem Fróði
tengdist, þar á meðal
þtjár sem koma saman
aftur fyrir þessa tónleika,
Sororícide, SSSpan og
Ham. Aðrar sveitir eru
Blome, Pile, Texas Jes-
ús, Silverdrome, Maus,
Kolrassa krókríðandi
og Ólympía.
PAPAR hafa verið alllengi
að og gengið f gegnum ýms-
ar breytingar. Eitt sinn sendi
sveitin frá sér plötu sem
mjög var skotin írskri þjóð-
lagatónlist, en fæst núorðið
við ýmislega tónlist aðra, þó
þjóðlagablærinn sé aldrei
langt undan.
Papar hljóðrituðu í sumar
sína aðra breiðskífu, í
góðum sköpum, sem kom
út fyrir skemmstu. Þeir fé-
lagar segjast hafa gefíð sér
góðan tíma til að vinna plöt-
una og síðan ákveðið að
geyma hana
eilítið til að geta sinnt kynn-
ingunni af krafti.
Á plötunni er tónleika-
dagskrá sveitarinnar meira
og minna, einskonar eðlilegt
framhald af spilamennsk-
unni síðustu mánuði, utan
að þeir sneru textunum á
íslensku, utan einn sem er á
færeysku, móðurmáli söngv-
arans, James Olsons.
Þeir segjast leggja
áherslu á írska tónlist, eins
og heyra megi á disknum
nýja, en blöndunin sé
orðin öllu meiri; „þetta
er sama músíkin með
öðruvísi áherslum. Það
má segja að þetta sé tón-
list fyrir alla, þar á meðal
er diskó, en við tökum
Stál og hníf í diskóútgáfu,
við erum að leika
með hitt og
þetta.“
Daður Orri Harðarson.
Frægð
og frami
ORRI Harðason vakti all-
mikla athygli með breið-
skífu sinni Drögum að
heimkomu fyrir tveimur
árum. í síðustu viku kom
frá honum fyrsti vísir að
nýrri breiðskífu sem vænt-
anleg er á næstu vikum.
Orri segist hafa byijað á
plötunni í ágúst, en
hann vinnur hana með Sig-
urði Bjólu, en lögin eru allt
frá því Drög að heimkomu
kom út. Sú var mansöngva-
plata, en Orri segist fara
víðar á væntanlegri plötu,
allt frá daðri við Velvet
Underground og Pink Floyd
í lög sem eins hefðu getað
verið á fyrstu plötunni. í
textum veltir hann líka fyr-
ir sér öðru en forðum, því
nú er yrkisefnið frægð og
framabrölt. „Ég var reynd-
ar kominn af stað með plötu
á síðasta ári, en fannst of
mikið span á öllu og ákvað
að biða. Það var rétt
ákvörðun, því það bættust
við lög og platan varð sterk-
ari fyrir vikið.“
DÆGURTONLIST
Hvad erþessi house tónlist?
Spámentií
Tunglinu
HINGAÐ hefur legið straumur plötusnúða af öllum
gerðum og skemmst er að minnast Uxatónleikanna þar
sem ekki varð þverfótað fyrir breskum plötusnúðum
sem allir hétu DJ eitthvað. Þeir spiluð flestir harkalegt
dynjandi teehno og saknaði margur mýkri strauma og
afslappaðri. Úr því verður bætt, því væntanlegir eru
hingað til lands tveir helstu spámenn house tónlistar,
og hyggjast skemmta í Tunglinu á laugardaskvöld.
House tónlist er sprottin
úr danshúsum
Chicago og lagði grunninn
að nútíma danstónlist.
Breskir straumar eru yfir-
leitt öllu
harðari og
tækni-
væddari en
að vstaii,
og segja
má að
eftir Arno tvær
Motthíosson stefnur
beri hæst í danstónlistinni;
mýkri og jákvæðari house-
tónlist og hart vélrænt tec-
hno. Þeir félagar „Little"
Louis Vega og Kenny
„Dope“ Gonzales eru gjarn-
an nefndir með mikilii lotn-
ingu enda taldir með guð-
feðrum house-tónlistar og
sem Masters at Work hafa
þeir notið hylli sem hljóð-
blendlar og meðal annars
hrært í lögum Bjarkar, Ma-
donnu, Jackson-systkina,
Donnu Summer og St. Eti-
enne, svo eitthvað sé nefnt.
Þeir troða einnig upp undir
öðru nafni, Bucketheads, og
lag þeirra The Bomb naut
mikillar hylli hér á landi,
ekki síður en víða um heim.
Hingað koma þeir félagar
Spámenn „Little" Louis Vega og Kenny ,|Dope“ Gonzales.
A 1h
w«4
Vega og Gonzales til að
troða upp á afmælishátíð
útvarpsþáttarins Party
Zone í Tunglinu. Þeir Party
Zone liðar segja það hafa
tekið dtjúgan tíma að fá þá
félaga til landsins, því þegar
fyrst var lagt til atlögu
sögðu þeir klárt nei. I vor
var aftur annað hljóð komið
í strokkinn, enda mikil og
jákvæð stemmning fyrir Ís-
landi hjá breskum plötu-
snúðum, sem hefur skilað
sér til Vega og Gonzales.
Þeir létu því til leiðast og
lækkuðu sig meira að segja
töluvert i launum, enda ekki
ætlunin að hátíðin geri
meira en standa undir sér.
Þeir félagar slógu þó ekki
af kröfum um umbúnað tón-
leikanna, og víst að ekki
hafa öflugri plötusnúðatói
verið sett upp hér á landi
en verða í Tunglinu á laug-
ardag.