Morgunblaðið - 08.10.1995, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.10.1995, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Viltu peninff eða frí? Kaupmannahafnarbréf íslendingar eru vinnusamir og kippa sér ekki upp við langa vinnuviku. Sigrún Dav- íðsdóttir segir frá hvemig það færist í vöxt í Danmörku að fólk taki sér frí út á yfirvinnu. En hvers vegna er það eðlilegt á Islandi að vinna miklu lengri vinnudag en tíðkast nágrannalöndunum? ORÐIÐ „afspadsering“ er eitt af þessum dönsku orðum, sem vafðist fyrir mér að skilja í fyrstu. Fannst að það þýddi einhvers konar afplán- un, en þó ekki fyrir dæmda. Svo er reyndar í nokkrum skilningi, því hér er um að ræða að fólk afpláni yfirvinnu með fríi, en fái hana ekki borgaða. Fyrir íslenskan heila er þetta furðulegt fyrirbæri, en það venst vel og verður æ algengara meðal Dana. Ef mér bráðliggur á að ná i danska vini og kunningja að vinnudegi til, byija ég alltaf á því að hringja heim til þeirra og ekki í vinnuna. Það eru nefnilega töluverðar líkur að þetta annars mjög svo upptekna og vinnandi fólk sé heima við, önnum kafið við að sitja af sér yfirvinnuna. I upphafí stafaði frísóknin af áþján skatta- kerfísins, sem Danir eru sér mjög meðvitaðir um, einnig í spamaðar- skyni, en nú er áhuginn ekki síður vegna þess að fólk kann einfaldlega vel við að vera í fríi og ekki alltaf vinnandi. í fyrstu fannst mér þetta sérkennileg stefna, allt að því gmn- samleg, enda vön því frá íslandi að æðsta takmarkið í lífínu sé að verða sér úti um yfírvinnu, hvort sem hún er nú unnin eða óunnin. Og ég var eiginlega stolt af þessari íslensku vinnusemi. En núna er ekki laust við að ég sé farin að bila í trúnni á mann- og lífsbætandi áhrif yfír- og aukavinnu. Að afplána yfirvinnuna Þegar Ingvar Carlsson leiðtogi sænskra jafnaðarmanna og forsæt- isráðherra Svía tilkynnti fyrir skömmu að hann ætlaði að segja af sér embætti í vetrarlok var hann spurður hvort hann ætlaði bara að hætta að vinna sisona. Carlsson brosti og sagði að í anda mótmæl- endatrúar liti hann á vinnusemi sem dyggð og myndi örugglega halda áfram að vinna mikið eftir sem áður, en bara ekki sem leiðtogi og forsætisráðherra. Þessi afstaða til vinnunnar er einmitt gjarnan sögð gamalgróin dyggð í mótmælenda- trú og hefur löngum markað af- stöðu Norðurlandabúa og Norður- Þjóðveija til vinnu. Það er dyggð að vinna og meiri dyggð að vinna mikið og þannig hefur þetta verið jafnt hér og á Islandi. Svo er það auk þess svolítið fínt að vinna og vinna mikið, vera engin skræfa en bíta á jaxlinn, vinna og láta aðra vita að maður sé sko önnum kaf- inn. Vinnan gerir mann að manni með mönnum og konu með konum og meiri vinna virðist í hugum sumra gera mann að meiri manni með mönnum og meiri konu með konum. Á þessu er greinilega að verða breyting hér og það mjög víða. Mjög oft heyrist hinn og þessi segja frá þvi á opinberum vettvangi að hann eða hún láti fjölskylduna sitja í fyrirrúmi. Reyndar fínnst mér það hljóma ögn hjákátlega, rétt eins og viðkomandi sé að beija sér á bijóst og „Sjáið hvað ég er réttilega þenkj- andi,“ því einhvern veginn er svo sjálfsagt að láta fjölskylduna ganga fyrir að ekki ætti að þurfa að flagga því. Rithöfundar tala um þetta, fólk " í viðskiptalífinu, sem er með á nót- unum er líka fjölskyldufólk að eigin sögn og sama er með stjórnmála- menn. Hvort sem fjölskyldulífið nýtur góðs af eða ekki þá er ljóst að hug- takið „afspadsering" breiðist frem- ur út meðal Dana en ekki. Kunn- ingi minn sem er blaðamaður situr iðulega heima til að ná niður yfir- vinnutímunum. í fyrstu lét hann sig hafa það að vinna bara og vera ekkert að hirða um yfírvinnuna, sem safnaðist upp í gríð og erg. Svo fór hann að prófa að taka sér frídaga og sá að það var í raun harla gott. Þá vannst honum tími til að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar og skrifa annað en það sem stranglega var ætlast til. Ein vinkona mín er læknir og vinnur stundum á vöktum. í sparn- aðarskyni var hætt að borga fyrir yfírvinnu, en fólk þess í stað hvatt til að taka sér frí út á yfírvinnuna. Nú er búið að koma þessu í fast kerfí þannig að hún er einfaldlega með frí sjöttu hveiju viku og hún veit því langt fram í tímann hvenær hún er með fríviku. Hana notar hún til að fara á söfn, því hún er áhuga- söm um listir, en líka til að stúss- ast heima við, lesa og hvíla sig. Vitlaust gefið? Fyrir skömmu birtist í dagblað- inu „Politiken“ grein eftir kunna danskan útvarpsmann og íslands- áhugamann, Preben Dich, sem á sínum tíma skrifaði bók um Jörund Hundadagakonung. Dich hafði ver- ið á íslandi og þá meðal annars kynnt sér af hveiju íslendingar vildu ekki fallast á ESB-reglur um yfin/innu og barnavinnu. í grein Dichs er sagt frá fjöl- skyidu, þar sem fjölskyldufaðirinn vinnu fímmtíu tíma, kona hans vinnur í kjörbúð og hjálpar til á skrifstofu og „fímmtánáringurinn“ tekur til hendinni í kjörbúðinni eftir skóla, auk þess sem hann vann í físki í sumar. Venjuleg fjölskylda í áugum íslendinga ... en í augum dansks lesenda er þessi vinna alveg rosaleg, ekki síst af því að það sem þau bera úr býtum er dijúgt lægra en fyrir svipaða tegund vinnu hér, sem væri unnin á venjulegri 37 tíma vinnuviku. Að vinna fimmtíu tíma í venjulegri launavinnu þekkist varla og að hafa tvær vinnur er séríslenskt fyrirbæri, sem margir Danir er eitthvað vita um ísland hafa heyrt um og undrast. „Tíðkast enn að fólk hafí tvær eða þijár vinn- ur á íslandi?" er algeng spurning til íslendinga hér. Dich talaði bæði við sérfræðinga og launþega og komst að því sér til mikillar undrunar að íslendingar gætu kannski hugsað sér að stefna á ESB-hámarkið um 48 klst. vinnu, en 37 stunda vinnuvika eins og í Danmörku væri fjarri lagi. • En íslendingar geta spurt sig af hveiju það sé svo fjarri lagi. Um daginn hitti ég frammámann í dönsku atvinnulífí sem þekkir vel til á íslandi og hann stóð á því fastar en fótunum að framleiðnin á ísiandi væri í engu samræmi við alla þess vinnu, sem framkvæmd væri á pappímum. Og mér er spurn hvort öll þessi ógnar vinna, sem í byijun var kannski sprottin af nauðsyn annars vegar og síðan haldið við af mein- lætahugsunarhætti í anda mótmæl- enda, hefur ekki runnið sitt skeið. Hér hefur ein röksemd fyrir styttri vinnuviku verið að jafna ætti at- vinnu milli þeirra, sem hefðu vinnu og þeirra sem sætu hjá á vinnu- markaðnum. Áhöld eru reyndar um hvort slík skipting sé rétta leiðin í þá átt. En það virðist lika hafa skapast ein veigamikil ástæða fyrir ís- lenskri ofuráherslu á yfir- og eftir- vinnu og það er sá feluleikur og laumuspil, sem rekið er í kringum kjarasamninga. Samningarnir eru allir afstæðir, þannig að laun ein- stakra hópa eru miðuð við aðra og það er auðvitað ekki einstakt. En svo er miðað við dagvinnu, þó allir viti að sá taxti segir aðeins hálfa sögu. Líklega halda launþegafor- kólfarnir að þeir séu að styðja sína menn með því að semja um ein- hverja dagvinnutaxta, sem síðan sé hægt að möndla til með eftir- og yfirvinnu og fela þannig fyrir hinum hækkanir, sem ekki eigi að smitast út yfir allt kerfið. Og at- vinnurekendur sjá sér líka hag í kerfinu, þannig að úr verður ein gríðarleg langavitleysa, þar sem hvert spilið rekur annað ... eða var kannski bara vitlaust gefið í upp- hafí? Og þetta er kannski allt í lagi, meðan báðir aðilar og þeir sem þeir semja fyrir sjá sér hag í löngu- vitleysunni. En setjum svo að at- vinnurekendur og launþegaforkólf- arnir hafi bara dagað uppi við spilamennskuna og ekki gáð að sér að fólk vill heldur vinna skikkan- legan vinnutíma og svo eiga frí. Hvernig fer ef íslendingar missa áhugann á yfir- og eftirvinnunni og vilja gera eins og Danir og aðr- ar nágrannþjóðir, nefnilega að vinna dagvinnu og taka sér frí út á yfir- og eftirvinnu þegar þeir neyðast til að vinna hana? Þá er það ekki lengur sniðugt að hafa byggt upp kerfi, sem byggist á vinnunni eftir vinnutíma, þegar vinnan á eðlilegum vinnutíma er illa launuð. Það verður það eigin- lega bara Ijári ósniðugt og snúið. Einhveijir taka sig kannski til og leggja út í þá vandasömu aðgerð að stokka spilin upp á nýtt og byija með því að gefa rétt í skynsamlega spilamennsku. En aðrir bíða ekki eftir endurgjöfínni, heldur flytja bara út í 37 tíma vinnuviku fyrir þokkaleg laun og taka sér frí fyrir yfír- og eftirvinnuna. Og þegar svo er komið þá er spurning hvort þetta sem ég taldi vinnusemi og var stolt yfir er ekki bara sjúkdómseinkenni á snargölnu kerfi. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 10 = 1761098 = Sp. I.O.O.F. 3 = 1771098 = SP □ GIMLI 5995100919 I □ MÍMIR 5995100919 III 1 FRL. □ HELGAFELL 5996100919 VI 2 Hörgshlíð 12 Bænastund í kvöld kl. 20.00. Somhjólp Almenn samkoma í Þríbúöum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Mikill og fjölbreyttur söngur. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburöir. Barnagæsla. Ræðumenn: Björg Lárusdóttir og Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. \v--TJ KFUM V Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28 Samkoma í dag kl. 17.00. Ræöu- maöur Girma Arfaso frá Eþiópíu. Barnasamverur á sama tíma. Léttar veitingar seldar að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Kristniboðsfélag karla - Reykjavík Fundur veröur i kristniboðssaln- um, Háaleitisbraut 58-60, mánu- dagskvöldið 9. október kl. 20.30. Kjartan Jónsson, kristniboði sér um fundarefnið. Allir karlmenn velkomnir. Stjórnin. ZEN Þegar líkami, öndun og hugur eru samvirk kemur manngæsk- an í Ijós. Námskeið í Zen-hugleiðslu á vegum Islenska Zen hópsins hefst fimmtudaginn 12. okt. kl. 20.00. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 568 6516 eða 562 1295. §Hjálpræðis- herinn K irkjuslræti 2 Hjálpræöissamkoma kl. 20.00. Miriam Úskarsdóttir stjórnar. Elsabet Daníelsdóttir talar. Allir velkomnir. Mánudag kl. 16.00 heimilasam- band. Óskar Jónsson talar. Allar konur velkomnar. Kristið samfélag Samkoma í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7, Hafnarfirði, I dag kl. 16.30. Jón Þór predikar. Allir velkomnir. auglýsingar Samkoma í kvöld kl. 20.00 í Breiðholtskirkju. Prédikari er lan Peters frá YWAM í Skotlandi. Fyrirbænaþjónusta í lok sam- komu. Allir hjartanlega velkomnir. Nýja postulakirkjan, Ármúla 23, 108 Reykjavík. Guösþjónusta alla sunnudaga kl. 11.00. Karlheinz Schumacher postuli þjónar. Gestir hjartanlega velkomnir. Pýramídinn - ' andleg miðstöð Orkuskyggni Njáll Torfason verður hjá Pýr- amídanum vikuna 16.-21. októ- ber. Býður uppá heilun, hug- lækningar og orkuskyggni (röngtenskyggni). Tímapantanir í símum 588-1415 og 588-2526. Grensásvegi 8 Samkoma og sunnudagaskóli kl. 11.00. Mike Fitzgerald prédikar. Allir hjartanlega velkomnir. Sjónvarpsútsending á Omega kl. 16.30. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma kl. 16.30, lof- gjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Hafliði Kristinsson, for- stöðumaður talar og fyrirbæn í lok samkomunnar. Barnagæsla fyrir börn undir skólaaldri. Þú ert innilega velkominn! L'l ÓS Cj 'E 1S LI lAiyV’ Erum tekin aftur til starfa! Við munum bjóða upp á svipaða starfsemi og áður. Heilun, miðla, námskeið, bæna- og þróunarhringi. Ljósgeislinn, Suðurlandsbraut 10, sími 588-8530 KROSSINN Sunnudagur: Almenn samkoma kl. 16.30. Barnagæsla er meðan á samkomunni stendur. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Konunglegu her- sveitirnar kl. 18.00. Barnastarf fyrir 5-12 ára. Laugardagur: Unglingasmkoma kl. 20.30. Ath.: Við erum flutt í nýtt hús- næði í Hlíðasmára 5-7, Kópa- vogi. LIFSSÝN Samtok til sjálfsþekkingar Lífssýnarfélagar ath. Mánudagur 9. október kl. 18.15 orkustöðvajóga. Kl. 19.45 bæna- hringur. Kl. 20.30 námskeið Erlu „Að sjá öðruvísi". Stjórnin. ág* VEGURINN Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Kl. 11.00: Fjölskyldusamkoma Skipt í deildir eftir aldri, Guðni Þorvaldsson predikar. Kl. 20.00: Vakningarsamkoma Paula Shields, formaður Evrópu- stjórnar Aglow predikar. Lof- gjörð og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. Dagsferð sunnud. 8. októ- ber Kl. 20.00 kvöldganga á fullu tungli frá BS(, bensínsölu. Dagsferð sunnud. 15. októ- ber Kl. 10.30 forn frægðarsetur, 2. áfangi. Helgarferð 14.-15. október Kl. 8.00 Fimmvörðuháls. Ath. Stofnfundur jeppadeildar: Kl. 20 fimmtud. 12. október I stofu 101 (Oddavið Háskólann. Unglingadeild: Áttavitanám- skeið mánudaginn 9. október kl. 20 í Hinu húsinu. Útivist. Skyggnilýsingafundur Þórhallur Guðmundsson, miðill heldurskyggnilýsingafund þriðju- daginn 10. október kl. 20.30 í Akoges-salnum, Sigtúni 5. Húsið opnað kl. 19.30. Miðar seldir við innganginn. Allir velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Styttri ferðir Sunnudagur 8. október 1. Kl. 10.30 Skálafellsöxl - Skálafell - írafell. Góð fjall- ganga. Verð 1.200 kr. 2. KL. 13.00 Hvalfjörður - Brynjudalur. Fyrst farið í krækl- ingatínslu, en síðan skoðaðir haustlitir í Brynjudal. Tilvalin fjöl- skylduferð. Verð 1.000 kr. 3. Kl. 13.00 Sandfell - Vindás- hlfð. Fjallganga í Kjósinni. Verð kr. 1.000. Mánudagur 9. okt. kl. 20 Kvöldferð á vættaslóðir. Auðveld ganga í „tunglskininu". Ekki gefið upp fyrir fram hvert haldið er. Verð 500 kr., fritt í ferðirnar f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin (og Mörkinni 6). Miðvikudagur 11. okt. Myndakvöld í Mörkinni. Fyrsta myndakvöld vetrarins í nýjum og glæsilegum sal í Mörk- inni 6 (miðbyggingu) óg hefst það kl. 20.30. Myndefni úr vin- sælum sumarleyfisferðum o.fl. Fyrir hlé sýnir Ólafur Sigurgeirs- son myndir úr ferðinni Vest- fjarðastiklur og frá Laugum, Alftavatni og Sprengisandi. Eftir hlé sýnir Höskuldur Jónsson úr ferðinni Vestfirsku „alparnir". Góðar kaffiveitingar í hléi. Fjölmennið. Allir velkomnir. Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.