Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 1
88 SÍÐUR B/C/D
238. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bretland
Minna at-
vinnuleysi
London. Reuter.
ATVINNULEYSI í Bretlandi minnk-
aði allnokkuð í september og var þá
minna en það hefur verið í hálft
fimmta ár. Þykjatíðindin ánægjuleg,
ekki síst fyrir ríkisstjórn Ihalds-
flokksins, sem vonast til, að þau
bæti stöðu hennar meðal kjósenda.
Tala atvinnulausra lækkaði um
27.200 í september og var þá alls
2.265.100 eða sem svarar til 8,1%.
Var atvinnuleysið 8,2% í ágúst. Tals-
maður Verkamannaflokksins minnti
á, að enn væru meira en tvær millj-
ónir manna án atvinnu og þar af
ein milljón, sem ekki hefði verið á
vinnumarkaðinum árum saman.
Sumir óttast, að um árstíðar-
bundna sveiflu sé að ræða vegna
þess, að ungt fólk, sem lokið hefur
grunnnámi í háskóla, getur skráð
sig atvinnulaust í júlí og ágúst.
Margt af þessu fólki er nú að heíja
framhaldsnám og hverfur af at-
vinnuleysislistanum.
Reuter
Samið um
samstarfs-
skrifstofur
FORSETAR Serbíu og Bosníu
hafa samþykkt að stofna sam-
starfsskrifstofur í höfuðborgum
hvors annars, að sögn Richards
Holbrooke, sendimanns Banda-
ríkjastjórnar, sem lagði áherslu
á að þetta jafngilti ekki því að
ríkin tækju upp fullt stjórnmála-
samband. Warren Christopher,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær að fyrirhug-
aðar friðarviðræður forsetanna
tveggja og Franjos Tudjmans,
forseta Króatíu, færu fram í stöð
flughers Bandaríkjanna nálægt
Dayton í Ohio. Viðræðurnar hefj-
ast 31. þessa mánaðar.
íbúar Gorazde voru orðnir illa
haldnir af hvers kyns skorti og
tóku því vel á móti bílalest gæslu-
sveita Sameinuðu þjóðanna er
hún komst loks til borgarinnar,
svo sem myndin sýnir.
Engar áþreifanlegar
sannanir gegn Claes
Brussel. Reuter.
Gaddafi ætlar að
reka milljón burt
London. Daily Telegraph.
Reuter
SKIP með um 650 Palestínumenn frá Líbýu við strendur Kýpur.
SÉRSTÖK nefnd
belgíska þingsins
sendi í gær frá
sér skýrslu þar
sem fram kemur
að ekki séu nein-
ar áþreifanlegar
sannanir fyrir
því að Willy Cla-
es, framkvæmda-
stjóri Atlants-
hafsbandalags-
ins (NATO), hafi
til saka unnið
hneykslinu.
Claes hefur verið vændur um
spillingu þegar hann gegndi emb-
ætti fjármálaráðherra 1988-1989.
í skýrslunni sagði að ákæruvaldið
legði áherslu á að ósk þess um að
þingið svipti Claes þinghelgi til
þess að hægt væri að sækja hann
til saka væri aðeins byggð á „vís-
bendingum um sekt“.
Skýrslan er níu síður og verður
lögð til grundvallar þegar belgíska
þingið gengur til atkvæða um það
í dag hvort draga beri Claes fyrir
dóm. I skýrslunni segir að þegar
séu „nægar vísbendingar til að
réttlæta . . . að þingið ákveði að
lögsækja Willy Claes fyrir hæsta-
rétti [Belgíu] sem forsprakka, for-
sprakka með öðrum, eða vitorðs-
mann um spillingu og um falsanir
og svik“. Skýrslan er harðorð í
garð Claes og Guy Coeme, fyrrum
varnarmálaráðherra og segir að
ýmis atriði bendi til „glæpsamlegs
ásetnings" þeirra.
Claes mun veija sig fyrir þing-
inu í dag og að því loknu verða
greidd atkvæði um það hvort
hann skuli lögsóttur. Aðeins
hæstiréttur getur fjallað um mál
ráðherra og fyrrverandi ráð-
herra í Belgíu.
Talið er að hann muni segja af
sér embætti framkvæmdastjóra
NATO greiði þingheimur atkvæði
gegn honum. 150 þingmenn silja á
belgíska þinginu og Claes þarf að
telja 76 þeirra trú um sakleysi sitt
til að sleppa við málsókn.
AFRÍSKIR stjómarerindrekar í Tríp-
olí, höfuðborg Líbýu, óskuðu í gær
tafarlausra skýringa af hálfu líbýskra
stjómvalda á þeirri tilkynningu yfír-
valda, að fyrir dyrum stæði að vísa
rúmlega milljón Afríkumanna úr
landi. Stofnun, sem §allar um refsiað-
gerðir Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gegn
Líbýu vegna Lockerbie-málsins, hefur
hafnað beiðni stjómar Muammars
Gaddafis Líbýuleiðtoga um að fá að
flytja fólkið flugleiðis úr landi.
Líbýustjórn óskaði eftir heimild til
að fljúga „ólöglegum laumuseggjum"
úr landi. Alls var sótt um leyfi fyrir
2.500 flugferðum. Sú hótun fylgdi
beiðninni, að yrði henni hafnað skyldu
útlendingamir settir upp á vörubíls-
palla og ekið út fyrir landamærin.
Um helmingur útlendinganna, eða
hálf milljón, er Súdanir en afgangur-
inn er frá Chad, Mali og fleiri Afríku-
ríkjum.
Af hálfu stjórnarinnar í Trípolí er
því haldið fram, að vegna efnahags-
erfíðleika sé ekki lengur hægt að
framfleyta svo flölmennum hópi út-
lendinga í landinu.
Fulltrúar Frelsissamtaka Palest-
ínumanna (PLO) freista þess nú, að
telja Líbýumönnum hughvarf en fyrir
nokkmm vikum hófu Líbýumenn að
neyða Palestínumenn úr landi, \ mót-
mælaskyni við friðarsamninga ísraela
og PLO.
Rúmlega 600 Palestínumenn, sem
reknir vora um borð í skip í Trípolí
í síðustu viku, hafa verið strandaglóp-
ar við strendur Kýpur. Hluti þeirra
fær aðTara til Sýrlands.
Willy Claes
í Agusta-þyrlu-
Syórnarandstæðingar í Alsír
selja Frökkum úrslitakosti
París. Rcutcr.
HÓPUR alsírskra hermdarverka-
manna, GIA, sem gengist hefur við
sprengjutilræðum í Frakklandi und-
anfarna mánuði, hefur sett frönsku
stjórninni úrslitakosti. Þess er kraf-
ist að Jacques Chirac forseti hætti
við fund með forseta Alsírs, Liamine
Zeroual, í næstu viku, hætti öllum
stuðningi við stjórn Zerouals og for-
dæmi forsetakosningar sem boðaðar
hafa verið í Alsír í næsta mánuði,
ella verði aðgerðir enn hertar.
Tugþúsundir manna hafa fallið í
innanlandsátökum bókstafstrúar-
manna og stjórnvalda í Alsír síðustu
árin. Dagblað í Alsír, a 1 Ribat, sem
hlynnt er bókstafstrúarmönnum í
stjórnarandstöðu, varaði Frakka í
gær við því að taka afstöðu með því
að selja stjórninni hergögn.
„Enginn í Alsír vildi flytja átökin
út [til Frakklands] en það eru
franskir leiðtogar sem hafa tekið
afstöðu með öðrum aðilanum," sagði
blaðið.
Þessar viðvaranir birtust daginn
eftir enn eitt hryðjuverkið í Frakk-
landi en 29 farþegar í neðanjarðar-
lest í París særðust í tilræði á þriðju-
dag. Tilræðismenn hafa ekki fundist
en hermönnum og lögregluliði á göt-
um hefur enn verið fjölgað og aðrar
öryggisráðstafanir auknar. „Frakkar
era hræddir," sagði dagblaðið Le
Parísien í fyrirsögn á forsíðu.
Margir óttast að Frakkar séu að
dragast inn í borgarastríð í Alsír.
Lionel Jospin, nýkjörinn leiðtogi sós-
íalistaflokksins, sagði að fundur
Chiracs og Zerouals í New York í
næstu viku væri „óheppilegur". Je-
an-Marie Le Pen, leiðtogi hinnar
hægrisinnuðu Þjóðfylkingar, sagði
viðræðurnar í New York „bijálæðis-
lega“ hugmynd og nokkrir af liðs-
mönnum flokkabandalags Chiracs
töldu að ekki hefði átt að skýra frá
forsetafundinum opinberlega.
Rannsaka ásakanir
á hendur Gonzalez
Madríd. Reuter.
EFRI deild spænska þingsins
samþykkti í gærkvöldi, að hafin
skuli rannsókn á fullyrðingum
þess efnis, að stjórn Felipe Gonz-
alez forsætisráðherra hafi lagt á
ráðin varðandi hernað dauða-
sveita öryggissveita landsins á
hendur skæruliðum aðskilnaðar-
samtaka baska (ETA) í upphafi
níunda áratugarins.
Gonzalez hefur þráfaldlega
neitað að hafa nokkru sinni haft
einhverja vitneskju um aðgerðir
leynilegra sveita (GAL) sem tald-
ar eru bera ábyrgð á dauða 27
aðskilnaðarsinna á árunum
1983-87. Fyrr-
verandi sam-
starfsmenn
Gonzalez hafa
haldið sekt
hans fram. Efri
deildin sam-
þykkti rann-
sóknina með
128 atkvæðum
vinstri og
hægri flokka
stjórnarandstöðunnar gegn 127
atkvæðum sósíalista og fyrrver-
andi samstarfsflokks þeirra í
Katalóníu.
Gonz alez