Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Margir
vilja
fækka fé
ARI Teitsson, formaður
Bændasamtakanna, segir tals-
verðan áhuga hjá sauðíjár-
bændum að taka þeim tilboðum
sem sett eru fram í búvöru-
samningnum um uppkaup á
framleiðslu. Veruiegur áhugi sé
hjá mörgum að minnka fram-
leiðsluna þannig að hún fari
niður fyrir 0,7 markið, en það
tryggir að öll framleiðsla við-
komandi bænda fer á innan-
landsmarkað. „Menn eru ein-
faldlega ekki bjartsýnir á út-
flutning," sagði Ari.
Bændur hafa frest til 1. nóv-
ember að taka ákvörðun um
hvort þeir taka tilboðunum, sem
sett eru fram í búvörusamn-
ingnum. Búið er að senda samn-
ingseyðublöð til búnaðarsam-
banda. Bændur sem hætta geta
fengið óbreyttar beingreiðslur í
þrjú ár og 5.500 krónur í förg-
unarbætur fyrir hveija kind.
Þeir sem vilja minnka við sig
geta fengið 2.000 krónur í förg-
unarbætur fyrir hverja kind.
Mörg aðildarfélög Alþýðusambandsins hafa ályktað um uppsögn kjarasamninga
„Fólk vill losna und-
an þessum samningi“
ÝMIS aðildarfélög og svæðissam-
bönd Alþýðusambands íslands
hafa nú þegar ályktað um upp-
sögn kjarasamninganna, sem
gerðir voru í febrúar síðastliðn-
um. Enn hefur hins vegar aðeins
Baldur á ísafirði tilkynnt form-
lega um riftun kjarasamnings.
Samkvæmt upplýsingum frá Al-
þýðusambandi íslands hefur fram-
kvæmdastjóm Verkamannasam-
bands íslands ályktað að segja
verði samningum upp vegna þess
að forsendur þeirra séu brostnar.
Sama er að segja um Baldur á
ísafirði, Alþýðusamband Norður-
lands, Alþýðusamband Suðurlands,
Landssamband iðnverkafólks og
Verkalýðsfélag Vestmannaeyja. Þá
hefur Dagsbrún í Reykjavík álykt-
að að félagið líti svo á að kjara-
samningar séu nú lausir.
„Vilji launafólks er greinilega
alveg klár. Skilaboðin eru einhlít;
fólk vill losna undan þessum samn-
ingi,“ segir Ari Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
Islands.
Pétur Sigurðsson, formaður
Baldurs á ísafirði, segir í Morgun-
blaðinu í gær að fulltrúar ASÍ í
sameiginlegri launanefnd ASÍ og
Vinnuveitendasambandsins hljóti
að komast að þeirri niðurstöðu
að forsendur kjarasamninganna
séu brostnar, annars séu þeir að
vinna gegn samþykktum flestra
félaga innan sambandsins. Um
þetta segir Ari Skúlason að Al-
þýðusambandið sem slíkt sé ekki
aðili að samningunum, Jieldur
landssamböndin innan ASÍ.
Riftun í stað uppsagnar á
vettvangi launanefndar
„Hins vegar er gert ráð fyrir
því í samningnum að umræður
um endurskoðun eða uppsögn séu
sameiginlega í höndum launa-
nefndar. Það er þá sameiginlegt
verkefni landssambandanna að
nota launanefndina til þess,“ seg-
ir Ari. „Þó snúast umræðurnar
um brostnar forsendur ekki fyrst
og fremst um þær forsendur, sem
standa í samningnum. Fólk er
bara á því að þetta hafi allt sam-
an verið eitt stórt gabb. Öll um-
gerð samninganna og siðferðileg-
ur grunnur sé brostinn. Umræð-
urnar snúast því ekki um að segja
samningunum upp miðað við það,
sem menn koma sér saman um í
honum, heldur hreinlega að rifta
honum; að hvert og eitt félag eða
svæðissamband rifti samningnum
í stað þess að honum sé sagt upp
á vettvangi launanefndar.“ ■
Þing VMSÍ í í næstu viku
Ari segir að umræður um þessi
atriði séu ekki langt á veg komnar
innan Alþýðusambandsins. Þannig
hafi launanefnd ASÍ og VSÍ enn
ekki komið saman. Hins vegar
biði menn með nokkurri eftirvænt-
ingu þings Verkamannasam-
bandsins, sem hefst á þriðjudaginn
í næstu viku og þeirra umræðna,
sem þar muni fara fram.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
fíTTTl 1S
Málefni innan-
landsflugsins kruf-
in á flugþingi
FLUGÞING verður haldið í dag og
verður þar fluttur fjöldi erinda um
íslensk flugmál. Þingið, sem fram
fer á Hótel Loftleiðum, er helgað
innanlandsflugi. Flugmálastjórn ís-
lands gengst fyrir þinginu og er
ætlun stofnunarinnar, að það verði
haldið reglulega í framtíðinni.
Aðalmarkmiðið með flugþingi er
annars vegar að efla faglega umfjöll-
un um íslensk sem alþjóðleg flugmál
og hins vegar að skapa opinn og
virkan vettvang þar sem hinir ýmsu
aðilar geta skipst á skoðunum og
miðlað nýjustu straumum og stefn-
um í flugmálum.
í tilefni af vígslu nýrrar bygging-
ar fyrir flugstjórnarmiðstöðina í
Reykjavík og 50 ára afmælis al-
þjóðaflugmálstofnunarinnar gekkst
Flugmálastjórn í fyrra fyrir fjöl-
mennu alþjóðlegu málþingi um flug-
samgöngur og flugumferðarstjórn.
Nú á 50 ára afmælisári Flugmála-
stjórnar þykir við hæfi að þingið sé
helgað innanlandsfluginu, sakir mik-
ilvægis þess í samgöngumálum ís-
lands.
Flutt verða meðal annars erindi
um framtíðarhlutverk flugsam-
gangna á íslandi, framkvæmdir á
íslenskum flugvöllum, þróun búnað-
ar fyrir flugleiðsögu og flugumferð-
arstjórn á íslandi, fjármögnun flugá-
ætlunar. Þá mun drjúgur hluti þings-
ins fjalla um sjónarmið flugrekenda
og notenda, þ.e. afstöðu flugfélag-
anna til þróunar innanlandsflugsins
og afstoðu notenda til innanlands-
flugsins.
Meðal þeirra sem sitja þingið eru
ráðherrar, alþingismenn, borgar- og
sveitarstjórnamenn, æðstu embætt-
ismenn ráðuneyta, stjórnendur ís-
lenskra flugfélaga, stjórnendur
ferðaþjónustufyrirtækja og þjón-
ustufyrirtækja við flugið og fulltrúar
hagsmunafélaga flugsins.
Uppbygging
Skálholtsvegar
Syðra-Langholti. Motrgunblaðið.
\
UNNIÐ er að byggingu Skál-
holtsvegar frá Helgastöðum að
Brúará um 7 km en fyrir nokkr-
um árum var lagt bundið slitlag
á veginn um þéttbýlið í Lauga-
rási.
Það er Ræktunarsamband
Flúða o g Skeiða sem tók að sér
þessa framkvæmd eftir útboð og
miðar verkinu vel en gert er ráð
fyrir að vegurinn verði tilbúinn
með bundnu slitlagi næsta sum-
ar. Um 100.000 rúmmetrar af
uppfyllingarefni í veginn eru
teknir úr Þengilseyri sem er
sunnan við Hvítá.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá fram-
kvæmdastjóra Félags eggjafram-
leiðenda vegna fréttar Morgun-
blaðsins 18. okt. um viðbrögð eg-
gjaframleiðenda við útboði Ríkis-
spítala.
„Það er rangt sem fram kemur
í fréttinni að borist hafi tilboð sem
er 30-40% lægra en opinbert verð
sem verðlagsnefnd hefur ákveðið.
Opinbert heildsöluverð, ákvarðað
af Samkeppnisstofnun, er 291
kr./kg án vsk. fyrir 1. flokk.
Lægsta verðtilboð, sem Ríkisspít-
alar fengu, er að sögn Morgun-
blaðsins, 262 kr./kg (ótilgreint
hvort vsk. er innifalinn). Afsláttur
frá skráðu heildsöluverði er því
19% en ekki 30-40%. Það verð
sem Morgunblaðið, eða heimildar-
maður þess, gefur upp sem skráð
meðalverð, er smásöluverð. Það
verð er ekki hægt að bera saman
við heildsöluverð.
Sex manna nefnd ákvarðar hins
vegar svokallað grundvallarverð
og það verð er nú 268,31 kr./kg.
I nefndinni eru m.a. fulltrúar neyt-
enda, verkalýðshreyfingarinnar,
atvinnurekenda, ríkis og bænda.
Þegar sú nefnd hefur reiknað út
grundvallarverð, skv. gjöldum og
tekjum eggjabús, fjallar Sam-
keppnisstofnun um málið eins og
fyrr greinir.
Ríkisspítalarnir geta raunar
ekki kvartað undan skorti á sam-
keppini í eggjasölu því á undan-
förnum 3-4 árum hafa ekki færri
en fórir aðilar selt þangað egg.
Það sýnir að nógir hafa verið um
hituna og verðið hefur lækkað í
hverju útboði en þau fara fram
tvisvar á ári.
Þá segir og í fréttinni að bannað
sé að taka lægsta tilboði. Það er
vissulega rétt. En það er ekki ein-
ungis óheimilt að taka lægsta til-
boði, heldur hvaða tilboði sem er,
sem víkur frá opinberu verði. Þetta
er lög og eftir þeim ber að fara.
Hins vegar getur mönnum fundist
lögin vitlaus en það er allt annað
mál.
Ennfremur er haft eftir Ingólfi |
Þórissyni, framkvæmdastóra |
tæknisviðs Ríkisspítalanna, að það
hefði sparað þeim 600-700 þúsund »
króna á ári ef þeir hefðu fengið
að taka lægsta tilboði. Ég fagna
því ef þeir hafa ekki tekið því,
heldur farið að lögum. Hins vegar
er mér ekki kunnugt um að þeir
hafi gert það í þessu tilfelli.
Loks segir Ingólfur að leitað
verði álits Samkeppnisstofnunar á |
málinu. Það er hlálegt að Sam-
keppnisstofnun skuli þurfa að I
fjalla um vöruverð sem hún hefur |
sjálf ákvarðað.
Einstakt tilboð
Gullsmári 11, Kópavogi
- fyrir eldri borgara
Ný vönduð og fullbúin 56 fm íbúð á 7. hæð með fögru
útsýni. Fæst nú á vildarverði aðeins kr. 5,6 millj. ef
samið er strax.
rf= K
Félag Fasteignasala
Fasteignasalan
KJÖRBÝLI
NVBYIAVEGUR 14
r kop«v°ou» 1400