Morgunblaðið - 19.10.1995, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Chirac
og Juppé
óvinsælir
París. Reuter.
VERULEGA hefur dregið úr vin-
sældum Jacques Chirac, forseta
Frakklands, og Alain Juppé forsæt-
isráðherra samkvæmt skoðana-
könnun sem birt var í gær.
í könnuninni, sem framkvæmd
var af BVA-stofnuninni fyrir París-
Match, kemur fram að 36% kjós-
enda styðja Chirac en fylgi hans
var 44% í síðasta mánuði og 62%
skömmu eftir að hann náði kjöri í
maí.
56% aðspurðra sögðust vera á
móti Chirac en 47% í síðasta mán-
uði.
Þegar spurt var um forsætisráð-
herrann sögðust 29% kjósenda
styðja hann samanborið við 43% í
síðasta mánuði. 62% sögðust vera
á móti forsætisráðherranum en 44%
voru þeirrar skoðunar fyrir mánuði.
Einungis Edith Cresson, fyrrver-
andi forsætisráðherra í ríkisstjórn
sósíalista, hefur verið óvinsælli en
þegar hún hafði verið fimm mánuði
í embætti árið 1991 var stuðningur-
inn við hana 28%.
Þrír vinsælustu stjómmálamenn-
irnir samkvæmt könnuninni voru
Jacques Delors, fyrrverandi forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, og tveir fyrrverandi ráð-
herrar, Lionel Jospin og Jack Lang.
-----------♦ ♦ ♦----
Þjóðarat-
kvæðið nálg-
ast í Quebec
LOKASPRETTURINN er nú haf-
inn í baráttu aðskilnaðarsinna í
Quebec fyrir þjóðaratkvæðið 30.
október um hvort fylkið eigi að
verða fullvaldaríki og segja skil-
ið við Kanada. A myndinni hlýða
verkamenn í Montreal á ræðu
Lucien Bouchards, eins af vin-
sælustu leiðtogum aðskilnaðar-
sinna.
• • +
Ororkuhneyksli á Italíu
Reuter
NOKKUR þúsund öryrkja efndu til mótmæla í Róm í gær vegna fjárlagafrumvarps sljórnarinnar
sem þeir telja að skerði örorkubætur þeirra.
nir á bótum á
fölskum forsendum
Róm. Reuter.
RANNSÓKN, sem nú stendur yfir
á örorkugreiðslum á Ítalíu, hefur
leitt í ljós mikið og skipulegt mis-
ferli og eru dæmi um, að allt að
helmingur íbúa í sumum bæjarfé-
lögum, einkum í suðurhluta lands-
ins, sé á örorkustyrk. Italir eru
um 57 milljónir talsins, þar af fá
20 milljónir manna opinberan líf-
eyri og af þeim hópi eru sjö milljón-
ir á örorku. Starfsmenn ítalska
fjármálaráðuneytisins segja, að
unnt sé að spara gífurlegar fjár-
hæðir með því að hreinsa til í þessu
kerfi.
Örorkuhneykslið, sem svo er
kallað, hefur verið eitt helsta mál-
ið í ítölsku fjölmiðlunum að undan-
förnu og segja þeir daglega frá
dæmum um svikamylluna, til
dæmis ungu og fílhraustu fólki
um tvítugt, sem drýgir sér tekjurn-
ar með örorkubótum. Aðeins í
póstmálaráðuneytinu er verið að
kanna raunverulegt heilsufar 115
starfsmanna, sem þiggja bætur
án þess að bera merki um ein-
hveija örorku.
Skortur á þegnskap
Svikarannsóknadeild fjármála-
ráðuneytisins var stofnuð 1990 og
hefur starfsemi hennar aukist ár
frá ári. Hefur hún meðal annars
haft þau áhrif, að fjöldi örorkuum-
sókna, sem hefur yfirleitt aukist
um 10% á ári, jókst ekki nema
um 3,5% á þessu ári. ítalska efna-
hagsmálatímaritið II Mondo áætl-
aði nú í vikunni, að um tvær millj-
ónir manna að minnsta kosti
fengju örorkustyrk á fölskum for-
sendum og í dagblaðinu Corríere
della Sera sagði, að þetta hneyksli
sýndi því miður „átakanlegan
skort á heiðarleika og þegnskap“
meðal ítölsku þjóðarinnar. -
Hálfur bærinn
á örorku
Blaðið sagði, að stofnanir ríkis-
ins væru beinn aðili að svindlinu
enda hafa þær hver um sig heim-
ild til að samþykkja örorkuum-
sóknir. Það þýðir aftur, að stjórn-
málaflokkarnir hafa getað notað
sér aðstöðuna hjá einstökum
stofnunum til að útdeila örorku-
bótum sem pólitískum greiða.
Nefnt er sem dæmi lítill bær í
Messina-héraði á Sikiley. íbúarnir
eru 1.200 og þar af eru 500 á
örorkustyrk.
t.N.fc* *
• , ■
I h\m mu tu sNvirra t
it:i díni o mmn
v| : 5W0 T0R#D0 A\
tew ®oevo ??
\
aínmic i mmipiúyí
wo e m omwtöm
J/capDipo^
Reuler
Fjöldamorðin í Munchen 1972
Voru samtök Arafats að baki?
París. Reuter.
PALESTÍNSKI skæruliðinn Abu Daoud, sem á sæti í
svonefndu þjóðarráði Palestínumanna, hyggst gefa út
endurminningar sínar í Frakklandi næsta vor. Fullyrð-
ir hann þar að hreyfíng Palestínuleiðtogans Yassers
Arafats, Fatah, hafí staðið á bak við fjöldamorð á ísra-
elskum íþróttamönnum á Ólympíuleikunum í Múnchen
1972.
Titill bókarinnar verður „Að ári í Palestínu - 50
ára barátta fyrir draurni". Frelsishreyfing Palestínu-
manna, PLO, sem Fatah á aðild að, hefur ávallt neit-
að því að hafa átt hlut að morðum ísraelanna sem
voru 11. Hefur verið talið að Svarti september, ann-
ars óþekktur hópur er gekkst við tilræðinu, hafi verið
að verki.
Annar skæruliðaforingi úr röðum PLO, Abu Iyad,
sem myrtur var fyrir nokkrum árum, skýrði eitt sinn
frá því að Svarti september hefði aðeins verið dulnefni
á sérsveit Fatah.
„Abu Daoud segir núna að við verðum öll að horfast
í augu við það sem gert var og bókin er rituð í þess-
um anda,“ sagði talsmaður bókaforlagsins Editions
Anne Carriere í París sem gefur minningar Daouds út.
Kosið á
Alands-
eyjum
Maríehamn. Morgunblaðið.
KOSIÐ var til þings og sveitar-
stjórna á Álandseyjum um helgina
og hélt stjórnin meirihluta sínum
þótt hún tapaði einum manni.
Helstu kosningamálin voru heil-
brigðis- og menningarmál en lítið
tekist á um atvinnumálin enda er
atvinnuleysi næstum ekkert.
Yngri þingmenn
og fleiri konur
Þessar kosningar einkenndust
nokkuð af því, að margir vildu
breytingar breytinganna vegna, til
dæmis vildu ungir kjósendur ungt
fólk á þing og konurnar kvenfólk.
Gekk það eftir að nokkru leyti og
er nú enginn þingmanna eldri en
55 ára og af 30 þingmönnum eru
konurnar sjö.
Úrslitin í þingkosningunum
urðu þau, að Miðflokkurinn fékk
níu menn, tapaði einum; Hægri-
flokkurinn sex menn sem áður og
jafnaðarmenn héldu sínum fjórum.
Standa þessir þrír flokkar að
stjórninni. Fijálslyndi flokkurinn,
sem er í stjómarandstöðu, fékk
nú átta menn og bætti við sig ein-
um.
STUTT
Fortídar-
vandi í
Austurríki
JÖRG Haider, leiðtogi Frelsis-
flokksins í Austurríki, rak í
gær einn þingmanna flokks-
ins, John Gudenus, fyrir að
neita að viðurkenna helför
nasista á hendur gyðingum í
síðari heimsstyijöld. Flokkur
Haiders, sem oft hefur verið
sakaður um nasisma, stendur
nú jafnfætis stóru flokkunum,
jafnaðarmönnum og Þjóðar-
flokknum, í skoðanakönnun-
um og það er því ekki útilok-
að, að Haider verði kanslari
Austurríkis að loknum kosn-
ingunum 17. desember. Hon-
um er því í mun að þvo af
flokknum nasistastimpilinn.
Göng-unnar
löngu minnst
KÍNASTJÓRN ætlar að koma
upp garði í Peking til minning-
ar um Gönguna löngu, sem
varð skæruliðum kommúnista
til bjargar í stríðinu við þjóð-
ernissinna 1934. Verður hann
100 hektarar og þar verða
sýndir ýmsir meiriháttarat-
burðir, sem áttu sér stað með-
an á göngunni stóð, frá því í
október 1934 til október 1935.
Um 100.000 manns hófu hana
en aðeins 10% þeirra komust
alla leið.
Banatilræði í
Rússlandi
MÍKHAÍL Zhúravljov, banka-
stjóri Mosstrojbank í Moskvu,
var skotinn tvisvar í höfuðið á
götu í gær. Var hann á leið
frá heimili sínu til bankans,
sem er skammt frá, þegar ráð-
ist var á hann. Er hann nú á
gjörgæsludeild en læknar telja
líkur á, að hann haldi lífi. Tal-
ið er, að leigumorðingi hafi
verið að verki og er þetta ann-
að atvikið af þessu tagi á fáum
dögum. Á síðasta ári voru
banatilræði við rússneska
bankamenn 30 og 16 létust.
Talið er, að þetta sé liður í
tilraunum glæpasamtaka til
að ná undir sig bankakerfinu.
Bókhaldari
Stings
dæmdur
BÓKHALDARI breska söngv-
arans Stings, Keith Moore, var
dæmdur í fyrradag í sex ára
fangelsi fyrir að stela meira
en 600 milljónum kr. frá
vinnuveitanda sínum. Hafði
hann unnið fyrir hann í 15 ár
en féð, sem hann seildist til,
notaði hann til að greiða skatt-
skuldir og tap á misheppnuð-
um fjárfestingum. Moore var
þó eignamaður eins og sést á
því, að Sting hefur endurheimt
meirihluta fjárins.
Vextir hækka
í Frakklandi
NOKKRIR franskir viðskipta-
bankar ákváðu í gær að hækka
grunnvexti sína og eru það ill
tíðindi fyrir atvinnulífið og
frönsku ríkisstjórnina. í síð-
ustu viku hækkaði franski
seðlabankinn vexti til veija
gengi franskans og ótast er,
að vaxtahækkun annarra
banka nú geri vonir um aukinn
hagvöxt að engu.