Morgunblaðið - 19.10.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 23
Mál Wolfs
tekið upp
að nýju
ÞÝSKI sambandsdómstóllinn
hnekkti í gær úrskurði í máli
Markusar Wolfs, sem um ára-
bil var yfirmaður austur-þýsku
leyniþjónustunnar. Skipaði
dómstóllinn svo fyrir að taka
yrði mál hans upp að nýju.
Dómstóllinn vísaði til
hæstaréttarúrskurðar frá því
í maí þess efnis að ekki væri
hægt að sækja austur-þýska
njósnara til saka í sameinuðu
Þýskalandi fyrir glæpi sem
þeir frömdu á tímum kalda
stríðsins.
Dómsforsetinn Klaus Kutz-
er sagði að þetta ætti við um
meinta glæpi sem hefðu ein-
ungis verið framdir innan
landamæra Austur-Þýska-
lands sem var. Rök hæstarétt-
ar voru þau að fiest ríki stund-
uðu njósnir og óréttlátt væri
að dæma njósnara ef þeir yrðu
skyndilega fyrir tilstilli sög-
unnar ríkisborgarar helsta
óvinaríkisins.
Gagnrýna
vanhæfni
HÆGRISINNAR á Banda-
ríkjaþingi hafa gagnrýnt Sam-
einuðu þjóðirnar harkalega og
m.a. sagt að samtökin séu
þjökuð af skrifræði. Ný könn-
un meðal starfsmanna SÞ á
50 ára afmælinu bendir til að
þeir taki margir undir þessa
gagnrýni.
Aðferðir við ráðningu
starfsmanna sættu mikilli
gagnrýni - yfirleitt var tekið
undir með þeim sem segja að
frændhygli, pólitískur þrýst-
ingur og úthlutun starfa með
tilliti til óska allra aðildarríkja
valdi því að oft sé ráðið van-
hæft fólk. Tveir af hveijum
þremur sögðu að vinir á æðri
stöðum væru leyndarmálið að
baki stöðuhækkunum.
Aðeins 2,9% töldu að starf
samtakanna væri árangursríkt
en fjórðungurinn sagði að þau
stuðluðu að lýðræði í alþjóða-
samskiptum.
Ræddi við
utanríkis-
ráðherrann
í GREIN sl. sunnudag hér í
blaðinu um Home lávarð, fyrr-
verandi forsætisráðherra
Breta, sem lést fyrir skömmu,
er haft eftir honum að hann
hafi rætt við Ólaf Jóhannesson
forsætisráðherra og þeir leyst
viðkvæm ágreiningsatriði í
fiskveiðideilum með því að
ræðast við undir fjögur augu.
Ljóst er að Home hefur
misminnt eða hann mismælt
sig er hann ræddi við ljós-
myndara Morgunblaðsins árið
1989 enda lávarðurinn þá
kominn hátt á níræðisaldur. í
æviminningum Home, The
Way the Wind Blows, sem
komu út 1976, segir hann frá
því er hann ræddi einslega við
Guðmund I. Guðmundsson ut-
anríkisráðherra að loknuni
fundi utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsins árið
1962. Fundirnir voru tveir, í
Aþenu og París, ekki er ljóst
hvorn Home á við. Hafi ráð-
herrarnir leyst vanda sem virt-
ist vera að koma upp vegna
deilna um samninga ríkjanna
frá 1961 um landhelgismál.
ERLENT
Lög-
reglan
efld
P ALESTÍN SKIR lög-
reglumenn ganga
framhjá veggmynd af
Yasser Arafat, leið-
toga Frelsissamtaka
Palestinumanna, við
brautskráningarat-
höfn á Gaza-svæðinu.
Um 140 lögreglumenn
voru brautskráðir eft-
ir þriggja mánaða
þjálfun.
Erfiðleikar
í kolaiðnaði
Genf. Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR á vegum Sam-
einuðu þjóðanna sögðu í gær að
erfiðleikar væru framundan í kola-
iðnaði í Evrópu, en horfurnar væru
betri hjá framleiðendum í Asíu.
í skýrslu frá Efnahagsnefnd fyr-
ir Evrópu (ECE) kemur fram að
þótt kolaframleiðslan í Evrópu hafi
snarminnkað í fyrra aukist hún
stöðugt í Asíu. Kolaiðnaðurinn eigi
við mikla erfiðleika að stríða vegna
lokunar náma, aukins kostnaðar
vegna velferðarkerfis og umhverfis-
varna og aukinnar samkeppni frá
öðrum álfum og orkuverum.
mm
Sex tæki í einu
Það má segja að þú fáir sex tæki á verði eins tækis þegar þú kaupir Canon
B360 vélina. Smærri skrifstofur og einyrkjar eflast að mun fyrir vikið, því
faxtækið, síminn, tölvufaxið, Ijósritunarvélin og prentarinn eru komin í
einu og sömu vélina.
Þetta er útsjónarsemi.
Enda er þetta Canon.
Canon
Þú þekkir Canon - þú þekkir Nýherja
NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 • SIMI 569 7700