Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLAR
Þjóðveqar leyfa 100%
eignarhlut í útvarpi
DUsseldorf. Reuter.
FJOLMIÐLAEFTIRLITIÐ í Þýzka-
landi hefur samþykkt í aðalatriðum
að fella úr gildi lög, sem banna
meira en 50% eignarhlut í sjón-
varps- og hljóðvarpsfyrirtæki að
sögn embættismanna.
Að sögn Wolfgangs Clements,
efnahagsráðherra í Nordrhein-
Westfalen, hafa forsætisráðherrar
einstakra fylkja ákveðið að breyta
reglum um eignarhald og undirbúa
þar með víðtækari umbætur á regl-
um um fjölmiðla fyrir lok næsta árs.
Samkomulagið er fyrirboði mik-
illar breytingar á þýzkum fjölmiðla-
reglum, en með því er ekki orðið
við öllum kröfum um frjálslyndari
stjórnun fjölmiðlafyrirtækja á við
Bertelsmann AG og Kirch-sam-
steypuna.
Ekki lengur 50%
Samkvæmt núgildandi fjölmiðla-
reglum mega fyrirtæki eða einn
hluthafí eiga allt að því 50% í einu
útvarpsfyrirtæki (það er sjónvarpsr
og hljóðvarpsfyrirtæki) og 25% í
tveimur öðrum stöðvum, en ekki
má eiga 100% hlut í einu útvarps-
fyrirtæki.
Eftirlitsmenn fjölmiðla hafa stað-
ið gegn breytingu af ótta við of
mikil fj'ölmiðlavöld safnist í hendur
örfárra stórfyrirtækja.
Víðtækar breyting-
ar á þýzkum
fjolmiðlalögum
Forsætisráðherrar einstakra
fylkja Ieggja nú til að eignarreglun-
um verði breytt þannig að framveg-
is geti einn hluthafí átt 100% í einni
útvarpsstöð, allt að því 50% i ann-
arri og allt að því 25% í fleiri stöðv-
um. Ekkert eitt fjölmiðlafyrirtæki
og enginn einn hluthafi geti þó átt
meira en 30% hlut í þýzkum sjón-
varpsmarkaði.
Bertelsmann fagnar
Stjórnarformaður Bertelsmanns,
Mark Wössner, fagnaði fréttinni og
kallaði hana tímamót eftir margra
ára viðræður fjölmiðiaiðnaðarins og
þýzku fylkjanna, sem hafa á hendi
eftirlit með fjölmiðlum samkvæmt
þýzku stjórnarskránni.
„Fjölmiðlaiðnaðurinn telur miðl-
unarsamkomulagið viðunandi að
miklu leyti, þótt skiptar skoðanir
séu um einstök atriði,“ sagði
Wössner í yfirlýsingu.
Wössner sagði að rökréttara
hefði verið að reyna að hefta áhrif
einhvers eins fyrirtækis með því að
takmarka fjölda áhorfenda eða
áheyrenda þess.
Hann fagnaði því einnig að þýzku
fylkin virtust ekki hafa hug á að
banna að eiga bæði sjónvarpsstöð
og bókaútgáfu, en slíkt hefði alvar-
legar afleiðingar í för með sér- fyrir
Bertelsmann. Hann kvað slíkt fyrir-
komulag nauðsynlegt til að gela
keppt á alþjóðamarkaði.
Bertelsmann segir að ein ástæða
þess að iitlu hafi munað að Vox-
stöð fyrirtækisins yrði gjaldþrota
hafí verið sú að órói hafi ríkt í röð-
um hluthafa, sem fjölmiðlareglur
hafi bannað að eiga meiri hlut í
fyrirtækinu og bera meiri ábyrgð á
daglegum rekstri.
Time Warner í útistöðum
Bandarísku fjölmiðlafyrirtækin
Time Warner og Turner Broadcast-
ing hafa einnig lent í útistöðum við
þýzka fjölmiðlaeftirlitið, því að síð-
an þau sameinuðust hafa þau átt
meira en 50% í N-TV, þýzkri frétta-
rás sem sendir allan sólarhringinn.
Clement sagði að forsætisráð-
herrar fylkjanna tækju endanlega
ákvörðun um fjölmiðlaeign á fundi
14. desember og að lokið yrði við
róttækari endurskoðun á fjölmiðla-
Iögum, Rundfunkstaatsvertrag,
fyrir árslok 1996.
Sprangað um vefinn
Á HEIMASÍÐU Internets á íslandi
hf. er að finna áhugaverðar upplýs-
ingar um alnetstenginguna við út-
lönd. Á skýringarmyndum má sjá
umferðina um línuna til útlanda
yfír sólarhringinn, meðalálag eftir
klukkustundum og umferð til og
frá útlöndum aftur til 1993. Slóðin
er:
http://www.isnet.is/is/ISnet.html
Hið nýkrýnda nóbelskáld Sea-
mus Heaney er með heimasíðu á
veraldarvefnum. Þar má finna upp-
lýsingar um skáldið og verk þess
og heyra skáldið lesa eigin ljóð.
Slóðin til skáldsins er: http:Z/suns-
ite.unc.edu/dykki/poetry/heaney/
íþróttaunnendur eiga um margt
að velja á vefnum. Ástæða er til
að benda þeim á slóðina
http://www.sportsnetwork.com/
Ziff-Davis útgáfan, sem gefur
út mörg tölvutímarit, hefur nú opn-
að fyrstu ókeypis, en klæðskera-
sniðnu, fréttaþjónustuna á Verald-
arvefnum. Þessi þjónusta, ZD Net
Personal View, safnar fréttum um
hin ýmsu efni tengd tölvum að ósk
notandans. Væntanlegir notendur
geta skráð sig hjá
http://www.zdnet.com og beðið um
fréttir.
Gates kaupir
Bettmannsafnið
The Iceland
Reporter - nýtt blað
á gömlum grunni
THEICELAND Reporter er
heitið á mánaðarriti á ensku
frá Ieeland Review-útgáf-
unni. Blaðið kemur í stað
News from Iceland sem kom-
ið hefur út frá 1975. Grund-
vallarbreyting var gerð á
uppbyggingu blaðsins og út-
liti, því þótti tilhlýðilegt að
gefa því einnig nýtt nafn.
Með blaðinu fylgir Travel
sem er rit um ferðamál og
Business sem fjallar um við-
skipti og atvinnumál.
Ásgeir Friðgeirsson er rit-
stjóri The Iceland Reporter
ásamt Haraldi J. Hamar, sem
einnig er útgefandi. Ásgeir
sagði breytinguna viðbragð
við örri þróun í fjölmiðlun. í
vor hóf Ieeland Review út-
gáfu daglegra frétta frá Is-
landi á ensku á alnetinu, sjá
(h ttp://www. cen trum.is/ic-
erev/), og eru lesendur
þeirra nú fleiri en 10 þúsund
á mánuði. „Viðhorf okkar til
þessa nýja miðils, alnetsins
eða tölvusamskipta, er að
hann muni henta betur til
fréttaflutnings, á þeim al-
þjóðlega vettvangi sem við
höfum hasiað okkur völl á,
en mánaðarblað," sagði Ás-
geir. „Eftir sem áður teljum
við ástæðu til þess að halda
úti blaði sem fjallar um ís-
lensk málefni og samfélag."
I ljósi hinnar tíðu frétta-
miðlunar á alnetinu þótti
þeim hjá Iceland Review ekki
viðeigandi að halda úti
mánaðarblaði sem héti News
from Iceland eða Fréttir frá
Islandi. Önnur rök fyrir
breyttu nafni voru að höfða
frekar til erlendra ferða-
manna sem hingað koma en
nafnið News from Iceland
þótti gera. Því var biaðinu
gefið nýtt nafn - The Iceland
Reporter.
Breytt efnistök
Dagleg fréttaþjónusta á
alnetinu kallaði einnig á
breytt efnistök í prentmiðlin-
um. Minni áhersla er nú lögð
á beinar fréttir en meiri á
fréttaskýringar og úttektir
þar sem fjallað er um tiltekin
málefni og svið í þjóðfélag-
inu. The Iceland Reporter
hefur því fremur svipmót
helgarblaðsins en hins dag-
lega fréttablaðs.
Áskrifendur að The Ice-
land Reporter búa í um 100
löndum. Að sögn Ásgeirs
hafa viðbrögð þeirra við
breytingunum verið mjög já-
kvæð. Breytt útlit hefur
mælst vel fyrir og þykir blað-
ið læsilegra en áður. „Fólki
þykir athyglisvert að við
breytum um nafn á blaðinu,"
sagði Ásgeir. „Breytt efnis-
tök voru tímabær og blaðið
höfðar nú til breiðari les-
endahóps en áður.“
The Iceland Reporter er
að jafnaði 32 síður í dagblaðs-
broti. Aðstoðarritstjóri er
Steinunn Böðvarsdóttir, Guð-
jón Sveinbjörnsson hannaði
nýtt útlit blaðsins.
“Sagan seld hæstbjóðanda eða gerð
almenningi aðgengileg?“
Los Angeles. Reuter. Telegraph.
BILL GATES, forstjóri Microsofts,
hefur keypt Bettmann Archive,
stærsta safn heims af sögulegum
ljósmyndum, meðal annars frá
helztu atburðum þessarar aldar.
Kaupverðið er ekki gefið upp, en
mun nema „mörgum milljónum"
dollara.
Gates fær rétt á myndum, sem
notaðar eru í tölvusamskiptum, og
sérstakt gjald í hvert sinn sem ljós-
myndirnar eru notaðar í blöðum eða
tímaritum. Hann getur notað þær í
tölvualfræðisöfnum, á tölvugeislaa-
diskum og í upplýsingabönkum,
meðal annars á tölvunetinu Micro-
soft Online.
Safnið hefur að geyma 16 millj-
ónir ljósmyilda, margar heimsfræg-
ar. Þar á meðal eru myndir af Winst-
on Churchill gefa V-sigurmerkið í
síðari heimsstyijöld, Albert Einstein
reka út úr sér tunguna, Indíánahöfð-
ingjanum Sitjandi bola, Kennedy-
morðinu, mannaferðum á tungiinu
og kjarnorkusprengingum.
Gates keypti safnið fyrir milli-
göngu lítils fyrirtækis á hans veg-
um, Corbis Corp. Kaupin hafa vakið
spurningar um vaxandi áhrif Micro-
softs í hugbúnaðargeiranum og
vizku þess að einn maður ráði yfir
mörgum frægustu myndum heims.
Corbis hefur þegar tryggt sér rétt
á hálfri milljón mynda, þar á meðal
af málverkum þjóðarmyndlistasafns-
ins í Bretlandi, og hyggst semja um
rétt á myndum af verkum í Herm-
itage-safninu í St. Pétursborg.
Paul Saffo, forstöðumaður fram-
tíðarstofnunar Kaliforníu, sagði um
kaupin að spurningin væri: „Verður
sagan seld hæstbjóðanda eða gerð
almenningi aðgengilegri?"
Corbis hyggst meðal annars gefa
út alfræðisöfn fyrir tölvuskjái. Bett-
mann Archive hefur að geyma ljós-
myndir úr söfnum UPI-fréttastof-
unnar, Acme News Pictures, Pacifíc
og Atlantic Photos, International
News Photos og safni blaðsins New
York Daily Mirror, sem kemur ekki
út lengur.
Safnið er á Manhattan og stofn-
andi þess var dr. Otto Bettmann,
sem flúði frá Þýzkalandi nazista.
Gates stofnaði Corbis 1989 til að
tryggja sér rétt á myndum ogkoma
þeim í stafrænt form til tölvunotk-
unar.
Á næstu öld hyggst hann mark-
aðssetja myndirnar í tölvum og
bjóða þær einstaklingum og fyrir-
tækjum. Nemendum jafnt sem
kaupsýslumönnum verður gert
kleift að myndskreyta ritgerðir og
skýrslur og öll viðskiptin fara fram
um alnetið.
NOKKRAR sögufrægar myndir sem Gates ræður nú yfir, efst
til vinstri sýna Bandaríkjamenn flýja Saigon, þá Albert Einstein
bregða á leik, neðst til hægri Kennedy á örlagadegi í Dallas
og loks indíánahöfðingjann Sitting Bull.
Morgunblaðið/Ásdís
ÁSGEIR Friðgeirsson, annar ritstjóra The Iceland Reporter.