Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 31
Ný námsleeið að kefjast
-sniðin að mannleéum
Við vitum að það er ekki hægt að móta alla líkama
<og allra þarfir í eitt form. I meira en tuttugu og fimm
ár höfum við hjá Líkamsrækt JSB unnið með þúsundum
kvenna við að byggja upp hreysti og viðhalda góðri
heilsu og útliti. Til okkar leita konur með ýmsar
væntingar. Við gerum okkar besta til að hjálpa þeim,
en árangurinn byggist fyrst og fremst á þeim sjálfum.
Við gerum ekki kraftaverk - en þú getur það!
Athugið að Líkamsrækt JSB er flutt í
„JSB húsið“ í Lágmúla 9 í Reykjavík.
m
Kortakerfið
Græn kort:
Frjáls mæting
6 daga vikunnar fyrir
konur á öllum aldri.
Allir finna flokk við sitt
hæfi hjá J.S.B.
FRA TOPPI TIL TAAR
Námskeið sem hefur gefið ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum
sem berjast við aukakílóin.
Uppbyggilegt lokað námskeið.
Fimm tímar í viku, sjö vikur í senn.
Strangur megrunarkúr sem fylgt er eftir
daglega með andlegum stuðningi, einka-
viðtölum og fyrirlestrum um mataræði og
holiar lífsvenjur.
- Heilsufundir, þar sem farið er
yfir förðun, klæðnað, hvernig á að
bera líkamann og efla sjálfs-
traustið.
A jffBla
m korfsr* ,« .* °c. '
jgeyk)^' W
NYTT-NYTT
Framhalds TT
Nú bjóðum við upp á
framhaldsflokka fyrir TT konur.
3 fastir timar,
2 lausir tímar í hverri viku.
Fundir - aðhald - vigt - mæling
LAGMULA 9 SIMI 581 3730 / 581 3760
Innritun hafin alla daga í síma 581 3730
Barnapössun alla daga frá kl. 9-16.
Hringið og pantið kort eða
skráið ykkur í flokka.
FJÖLMIÐLAR
Áskriftarverð
Stöðvar 3 í byrj-
un mánaðarins
FYRSTU vikuna í nóvember verður
tilkynnt hvenær útsendingar hefj-
ast hjá Stöð 3, nýju sjónvarpsstöð
Islenska sjónvarpsins hf., en áætl-
að er að hefja útsendingarnar í
nóvember. Að sögn Úlfars Steind-
órssonar, framkvæmdastjóra ís-
lenska sjónvarpsins hf., verður þá
jafnframt tilkynnt hvað áskrift að
Stöð 3 kemur til með að kosta.
Stöð 3 hefur nú þegar tryggt
sér samninga um sýningu sjón-
varpsefnis frá Fox Television,
Warner Bros., Worldvision, CBS,
NBC, Multimedia, Channel 4, Tha-
mes, CTE og Beta Film, og auk
þess er verið að ganga frá samn-
ingum við aðra framleiðendur sjón-
varpsefnis. Þá hefur Stöð 3 náð
samningi við Polygram um sýning-
ar á þáttaröðinni The Thin Blue
Line, sem er grínþættir með Row-
an Atkinsson í aðalhlutverki, en
hann er sennilega þekktastur fyrir
þættina um Mr. Bean.
» ♦ ♦----
Sameiginleg
blaðaútgáfa
könnuð
FRAMKVÆMDASTJÓRN Al-
þýðubandalagsins var falið á lands-
fundi að^tanna grundvöll fyrir
sameiginlegri blaðaútgáfu vinstri
aflanna. „Verði ekki af samstarfi
er eðlilegt að aðskilja rekstur
flokks og blaðs,“ segir í tillögu
flokksstarfsnefndar sem samþykkt
var.
Skv. heimildum Morgunblaðsins
hafa þegar farið fram óformlegar
viðræður milli fulltrúa Vikublaðs-
ins, Alþýðublaðsins, Veru og Þjóð-
vaka um möguleika á sameigin-
legri blaðaútgáfu.
Fjölsýn
byrjar
á laugardag
SJÓNVARPSSTÖÐIN Fjölsýn í
Vestmannaeyjum verður formlega
opnuð næstkomandi laugardag,
21. október, klukkan 17. Stöðin
endurvarpar efni 5 erlendra sjón-
varpsstöðva og á sjöttu rásinni er
fyrirhugað að senda út kvikmyndir
með íslenskum texta, efni frá Vest-
mannaeyjum og skjáauglýsingar.
Frumraun í útsendingu eigin efnis
verður bein sending frá opnun
stoðvarinnar.
Fjölsýn sendir út á örbylgju og
nást sendingamar á Heimaey og
næstu miðum. Nötaður er mynd-
lyklabúnaður sem getur opnað út-
sendingar 32 rása í einu og er
þetta í fyrsta sinn sem slíkur bún-
aður er settur upp í Evrópu. Not-
endur geta horft á útsendingar
hinna ýmsu rása samtímis í jafn-
mörgum sjónvarpsviðtækjum, eða
horft á eina rás og tekið aðra upp
samtímis.
Áskrift að útsendingum Fjölsýn-
ar kostar 1790 krónur á mánuði.
Rupert Murdoch í útistöðum við einn helsta auglýsanda blaða sinna í Ástralíu
Ritskoðun eða
misnotkun
Canberra. Reuter.
RUPERT MURDOCH hefur hvatt
forstjóra umsvifamesta smásö.lufyr-
irtækis Ástralíu, Coles Myer Ltd,
til að segja af sér og deilur þeirra
hafa harðnað.
Coles Myer auglýsir meira en
flest önnur fyrirtæki í áströlskum
blöðum Murdochs og sum blöð hans
eru prentuð í prentsmiðju þess.
Deilurnar hófust á sunnudag
þegar Murdoch sakaði Solomon
Lew og fleiri úr stjórn Coles Myer
um „glæpamennsku“ og ótilhlýði-
legar tilraunir til að beita áhrifum
sínum í því skyni að ritskoða frétt-
ir blaðamanna Murdochs um mál
smásölufyrirtækisins.
„Ég stend við allt sem ég sagði,“
var haft eftir Murdoch í blaði hans
The Australian, daginn eftir að
hann skoraði á Lew að segja af sér.
Lew brást reiður við og sakaði
Murdoch um að „misnota áhrif sín
og blöð til að efla fjárhagslega og
pólitíska hagsmuni sína.“ Murdoch
hefur oft gagnrýnt stjórn Coles
Myers áður. Gamlir hluthafar fyrir-
tækisins og stofnendur hafa krafizt
þess að hreinsað verði til í stjórn-
inni, fyrst með því að láta Lew víkja.
Lew á 13,5% í fyrirtækinu og
lætur engan bilbug á sér finna.
Hann kveðst enn viss um stuðning
flestra hluthafa og starfsmanna.
Leynileg
viðskipti
Erfiðleikar Lews hófust þegar
skýrt var frá því í september að
áður leynileg hlutabréfaviðskipti
hefðu kostað Coles 18 milljónir
Ástralíudala og fyrirtæki tengt Lew
hefði grætt á þeim.
Viðskiptin komu í ljós þegar Col-
es Myer rak nýjan fjármálastjóra,
Philip Bowman, einn framkvæmda-
stjóra BSkyB gervihnattafyrirtækis
News Corp í Evrópu.
ROWAN Atkinsson
í hlutverki sínu.