Morgunblaðið - 19.10.1995, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 47
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Framkvæmdastjóri
Norrænu Atlantsnefndarinnar
Á skrifstofu Norrænu Atlantsnefndarinnar í
Færeyjum er laus til umsóknar staða fram-
kvæmdastjóra, með ráðningu frá 1. janúar
nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Verksvið framkvæmdastjóra
er í aðalatriðum eftirfarandi:
- Að hafa frumkvæði að verkefnum í sam-
ræmi við starfsáætlun nefndarinnar.
- Að taka þátt í mati á umsóknum um styrki,
sem nefndinni berast.
- Að hafa samskipti við verkefnisstjórnir
þeirra verkefna, sem nefndin styrkir.
- að fylgja eftir ákvörðunum nefndarinnar
- að vera ábyrgur fyrir starfsemi skrifstof-
unnar og fjárreiðum gagnvart nefndinni.
Gerðar eru kröfur um að
framkvæmdastjóri nefndarinnar búi yfir:
- Þekkingu á atvinnulífi og skilyrðum á því
svæði, sem starfsemin nær til, þ.e. í Fær-
eyjum, á íslandi, í Grænlandi og í strand-
héruðum Noregs.
- Reynslu af hliðstæðum verkefnum og
þeim sem hér um ræðir.
- Staðgóðri menntun, eigi auðvelt með að
starfa með öðru fólki, geti átt frumkvæði
í samskiptum og verið skapandi í starfi.
- Góðri kunnáttu í dönsku, norsku eða
sænsku.
Ráðningarskilmálar:
- Ráðningartímabil er allt að 4 ár.
- Kjör eru í samræmi við kjör opinberra
starfsmanna í starfslandinu, menntun,
reynslu og/eða samninga viðkomandi
stéttarfélags.
- Framkvæmdastjórinn skal vera búsettur í
Færeyjum, þar sem ákveðið hefur verið
að skrifstofa nefndarinnar verði staðsett
næstu 4 árin.
- Veittur er flutningsstyrkur.
Töluverð ferðalög fylgja starfinu.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1995.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, meðmælum eða öðru, sem
umsækjendur telja geta verið umsókn sinni
til framdfráttar, sendist til:
N ORDISK A TLANTSA MA R B EJDE,
Hoyvíksvegur 51,
Postbox 1287,
FR-110 Þórshöfn,
Færeyjum.
Nánari upplýsingar veitir Liz Hammer
á skrifstofu nefndarinnar í Færeyjum,
sími 00 298 140 28, fax 00 298 1 04 59.
Norræna Atlantsnefndin leysir af hólmi Samstarfsnefnd Vestur-Norð-
urlanda (Vestnordenkomitéen) og er ein níu nefnda, sem fást við-
svæðasamstarf (regionalt samarbejde) á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Starfssvæði nefndarinnar er Grænland, (sland, Færeyj-
ar og strandhéruð Noregs. Markmið samstarfsins er að styðja við
og efla samvinnu innan svæðisins, sér í lagi á sviði atvinnumála og
rannsókna.
Kennarar
Kennara vantar að Hvolsskóla, Hvolsvelli,
nú þegar. Kennslugreinar: Stærðfræði, eðlis-
fræði og/eða sérkennsla.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma
487 8408.
ílæ
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Meinatæknir
Staða meinatæknis við Rannsóknadeild
F.S.A. er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur um stöðuna er til 1. nóv.
Nánari upplýsingar veitir yfirmeinatæknir
í síma 463 0234.
Vélaverkfræðingur
Verkfræðistofa óskar eftir ungum vélaverk-
fræðingi til starfa úti á landi.
Verksviðið er fjölbreytt verkfræðivinna, þar
með talin þjónusta við sjávarútveg, ýmis
konar hönnunarvinna svo og áætlanagerð.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi upplýsingar um
menntun og fyrri störf til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Vél - 1170“.
Snjóathugunarmenn
á Patreksfirði og Bíldudal
Laust er starf athugunarmanns á Patreks-
firði samkvæmt reglugerð nr. 533/1995 um
eftirlit með hættu af snjóflóðum. Einnig er
laust starf aðstoðarmanns athugunarmanns
á Bíldudal, sem jafnframt þarf að hafa eftir-
lit með hættu af skriðuföllum.
Athugunarmenn starfa undir stjórn lögreglu-
stjóra en Veðurstofa íslands skilgreinir verk-
efni þeirra, setur þeim verklagsreglur og
annast kennslu og þjálfun þeirra áður en
þeir hefja störf.
Störf athugunarmanna eru árstíðabundin og
þeir verða að geta sinnt þeim fyrirvaralaust
hvenær sem er sólarhringsins á starfstímanum.
Laun athugunarmanna og aðstoðarmanna
þeirra miðast við kjarasamning ríkisins við
Starfsmannafélag ríkisstofnana, launaflokk 238.
Umsóknarfrestur um störfin er til 27. otkó-
ber 1995 og skal umsóknum skilað til undir-
ritaðs, sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar um störfin.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
17. október 1995.
Þórólfur Halldórsson.
•AUGL YSINGAR
Sjálfstæðismenn
í Garðabæ
Fundir verða haldnir í Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ
og Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar í Lyngási 12 í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 19. október, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Kjör fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins.
2. Önnur mál.
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ
og stjórn Sjálfstæðisfélags Garðabæjar.
TÍL SOLU
Er leyndarréttarfar hér?
Kjaradómur tregðast við að upplýsa um for-
sendur dóms síns um launahækkanir æðstu
embættismanna. Og bókin Skýrsla um sam-
félag upplýsir um forsendulaus leyndarbréf
Hæstaréttar, þögn og yfirhilmingu kerfisins.
Útg.
TIL SÖLU
Hús Bílaumboðsins hfv Krókhálsi 1
Húsið er 1.370 m2, byggt 1985-1987.
Á efri hæð eru skrifstofur, ca. 270 m2, með
vönduðum innréttingum og parketi á öllum
gólfum. Á jarðhæð að ofanverðu eru sýning-
arsalur og skrifstofur, ca. 270 m2, flísalagt
gólf. Á jaröhæð að neðanverðu er lager-
pláss/verkstæði/sýningarsalur, ca. 830 m2,
með mikilli lofthæð og stórum
innkeyrsludyrum.
Húsið er allt mjög vandað og snyrtilegt og
hentar fyrir ýmis konar rekstur t.d. stóra
heildsölu. Bílastæði eru malbikuð og lóð
frágengin.
© 55 10090
Fax 5629091
hÓIa
Skipholti 50B, 2. hæð t.v.
Prentvél
Til sölu AB - DICK, 350 pro prentvél
m/úðatæki, 16 valsakerfi (spír) og möguleiki
á aukalit. Arkarstærð 57,1x44,44 cm mest
og 9x12,7 minnst. Vélin er lítið notuð og vel
meðfarin. Hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 554 1739 (símsvari) og á
kvöldin í síma 564 1729.
Konur íframsókn
7. landsþing Landssambands
framsóknarkvenna verður
haldið í Auðbrekku 25, Kópa-
vogi, dagana 20.-22. októ-
ber.
Dagskrá:
20. október kl. 19.30:
Setning og afmælishátíð FFK
í Borgartúni 6, Reykjavík.
21. október f.h.:
Mannréttindi kvenna.
21. október e.h.:
Jafnréttisáætlun í flokksstarfi.
22. október:
Ályktanir þingsins - kosning stjórnar.
Landssamband framsóknarkenna.