Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 19.10.1995, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995 AFMÆLI MORGUNBLAÐIÐ BENJAMIN EIRÍKSSON HANN ólst upp við kröpp kjör á fátæku alþýðuheimili í upphafí aldarinnar. Ungur fór hann að vinna sér og fjölskyldu sinni hörðum höndum. Hann varð því snemma að beygja sig undir þann harða aga, sem lítil efni kenna at- gervisfólki. Hann braust til mennta í krafti yfirburða gáfna og námshæfíleika. Hann stundaði nám á annan áratug við fræg menntasetur gamla og nýja heimsins: í Berlín, Stokkhólmi og Moskvu á fjórða áratugnum og við Harvard og víðar í Bandaríkjun- um á fímmta áratugnum. Hann var hneigður til stærðfræði og vís- indastarfa, en heims- kreppan beindi honum að hagfræðinni. Það besta sem hann hefur skrifað um hagfræði og efnahagsmál er jafnframt það besta sem skrifað hefur verið um þau efni á íslensku. Okkur aðdáéndum hans fer fjölgandi, einnig meðal yngri kynslóðarinnar, því að við lesum megindrætti aldarfarsins af æviferli hans og verkum. Þess vegna sam- fögnum við honum í dag, hálfníræð- um og færum heillaóskir honum og fjölskyldu hans. Þessi maður, sem svo er lýst, er dr. Benjamín Eiríksson, hag- fræðingur. Hann varð ungur kommúnisti, í miðri heimskrepp- unni og hélt til Moskvu í leit að lausn á lífsháska öreiganna. Sam- tímamenn hans flestir hverjir, með- al íslenskra menntamanna, létu ýmist blekkjast af Sovéttrúboðinu eða þorðu ekki af hræðslugæðum að bera sannleikanum vitni. Benja- mín var ekki þeirrar gerðar. Hann skildi snemma hvert stefndi og þorði að skýra frá því einarðlega og undanbragðalaust, þótt það kostaði bannfæringu fyrri félaga. Hann gekk í gegnum hreinsunareld langt á undan sinni samtíð. Orð hans, í tíma töluð, reyndust áhríns- orð. Fáir hafa greint banamein kommúnismans sem pólitískra trú- arbragða af meiri skarpskyggni en Benjamín. Það geta þeir sannfærst um, sem lesa greinasöfn hans, ég er og hér og nú. Þegar leiðtogar lýðveldisins höfðu sólundað stríðsgróðanum og komið málum þjóðarinnar í óefni, leituðu þeir til Benjamíns um að vísa veginn út úr ógöngunum. Álits- gerð hans um endurreisn efnahags- lífsins er grundvallarrit í íslenskri hagfræði. Því miður höfðu stjórn- málaforingjar þeirrar tíðar hvorki vit né þrek til að hlíta þeirri leið- sögn. Enn var Benjamín of langt á undan sinni samtíð. Endurreisn efnahagslífsins á íslandi dróst því um heilan áratug. Um það má segja með skáldinu frá Fagraskógi, að fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá. Tuttugasta öldin, sem brátt er öll, er öld stórfenglegra andlegra afreka, sem lengi munu auðga líf komandi kynslóða. En hún er líka öld ægilegra mannlegra mistaka, sem eiga rætur að rekja til heimsku og óheiðarleika þeirra, sem buðust til að vísa veginn. Viti fírrtar öfgar hinna fláráðu hafa kostað mann- kynið líf og hamingju hundruða milljóna mennskra fórnarlamba. Benjamín Eiríksson hefur kennt meira til í stormum sinna tíða en flestir samtímamenn hans, íslensk- ir. En hann hefur staðið af sér manndrápsbylji og aldrei látið blekkjast af fagurgala falsspá- manna. Benjamín var nokkuð hniginn á efri ár, þegar kynni okkar tókust. Samt finn ég ekki á honum nein ellimörk. Það er sama hvort þú átt við hann orðastað eða lest téxta hans - áhrifin eru þau sömu. Grein- ing hans á málavöxtum er skýr af því að málið hefur verið þaulhugs- að. Hugsun hans er hnitmiðuð, af því að á bak við býr yfirburðaþekk- ing. Röksemdafærslan er sannfær- andi, af því að hún er knúin fram af ástríðufullri sannleiksleit. Þess vegna er efagjörnum uppörvun að hitta hann að máli. Megi dæmi öld- ungsins verða hvatning til dáða þeim sem senn leggja upp, ungir og óþreyttir, í örlagaleiðangur á vit nýrrar aldar. Til hamingju með daginn. Jón Baldvin Hannibalsson. Íslenskt-kínverskt viðskiptaráð Félag íslenskra stórkaupmanna gengst fyrir stofnun Íslensks-kínversks viðskiptaráðs föstu- daginn 27. október nk. kl. 17.00 í húsakynnum félagsins á 6. hæð í Húsi verslunarinnar. Tilgangur ráðsins verður sá, að efla og styrkja viðskipti milli þjóðanna, bæði í þágu inn- og útflytjenda. Þeir, sem áhuga hafa á að gerast stofnaðilar að ráðinu, eru beðnir að skrá sig á skrifstofu félagsins í síma 588 8910. Viðskiptaráðið er öllum opið. Sjómannafélag Reykjavíkur Aaðlfundur Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur verður haldinn á Lindargötu 9, 4. hæð, í dag, fimmtudaginn 19. október, kl. 18. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Sjómannafélag Reykjavíkur. TILBOÐ - UTBOÐ Húsnæðisnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir tilboðum Tilboðið tekur til málningar einnar 4ra her- bergja íbúðar, 106 fm að gólffleti í Miðholti 9. Litur hvítur. Helstu magntölur eru 269 m2. Málning og hraun í Miðholti 7. Litur hvítur. Helstu magntölur 10 m2. Dúklögn: Linolíumdúkur 2 mm í Miðholti 9. Setja skal gólflista úr beyki með nýjum dúki. Litur á dúk í samráði við verkkaupa. Helstu magntölur eru 34 m2. Dúklögn: Línolíumdúkur 2 mm á Dala- tanga 25. Setja skal gólflista úr beyki með nýjum dúki. Litur á dúk í samráði við verk- kaupa. Helstu magntölur eru 46 m2. Verkum skal lokið fyrir 10. nóvember nk. Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 14 í Þver- holt 3, 2. hæð, 24. október nk. Nánari uppiýsingar gefur húsnæðisfulltrúi í síma 566 8666. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. AUGL YSINGAR Samkeppni um merki fyrir Norrænu Atlantsnefndina Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar hefur verið sett á fót ný samstarfsnefnd, Norræna Atlantsnefndin, á sviði byggða- mála. Norræna Atlantsnefndin leysir af hólmi Samstarfsnefnd Vestur-Norðurlanda (Vest- nordenkomitéen). Starfssvæði nefndarinnar er Grænland, ísland, Færeyjar og strand- héruð Noregs. Megináherslan er lögð á eftirtalin svið: - Auðlindir og umhverfi sjávar. - Ferðaþjónustu og samgöngumál. - Landbúnað og umhverfismál. - Viðskipti og iðnað. Almennt markmið samstarfsins er að styðja við og efla samvinnu innan svæðisins, sér í lagi á sviði atvinnumála og rannsókna. Óskað er eftir tillögum að merki fyrir nefnd- ina og verða veitt verðlaun sem hér segir: 1. verðlaun eru DKK 15.000,- 2. verðlaun eru DKK 7.000,- 3. verðlaun eru DKK 5.000,- Tillögur óskast lagðar fram í A4 stærð, bæði í lit og svart/hvítu. Tillögur skulu auðkenndar með merki eða númeri og þeim skilað inn, ásamt lokuðu umslagi sem inniheldur um- rætt merki/númer og nafn og heimilisfang höfundar. Skilafrestur er til 1. desember 1995. Tillögurnar endist til NORDISK ATLANTSAMARBEJDE, Hoyvíksvegur 51, Postbox 1287, FR-110 Þórshöfn, Færeyjum. Nánari upþlýsingar veitir Liz Hammer á skrifstofu nefndarinnar í Færeyjum, sími 00 298 140 28, fax 00 298 1 04 59. fjOlbrautasxóunn BREIÐHOm Innritun í Fjölbrautaskólann Breiðholti, fyrir vorönn 1996, lýkur 1. nóvember nk. Umsóknir, ásamt einni svart/hvítri mynd af umsækjanda, sendist skrifstofu skólans, Austurbergi 5, 111 Reykjavík. Skólameistari. A TVINNUHUSNÆ Ðl -V 'liii s§ -i_ i I 1 —i ?i Atvinnuhúsnæði á Hellu Til sölu 21 o ferm. einangrað stálgrindarhús. Hentar vel fyrir margvíslega starfsemi. Upplýsingar veittar í síma 487 5028. Þrúðvangi 18 - 850 Hellu. auglýsingar I.O.O.F. 5 = 17710198 = F.R. Sp. Landsst. 5995101919 VIII I.O.O.F. 11 = 17710198V2 = SELFOSS. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudag 19. okt. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. Hallveigarstig 1 • simi 561 4330 Dagsferð sunnud. 22. okt. Kl. 10.30 Húshólmi á Reykja- nesi. Gengið verður niður í gömlu Krísuvík og skoðaðar sér- stæðar minjar um byggð í Ög- mundarhrauni. Ferð fyrir alla fjölskylduna. Verð 1700/1500 en frítt f. börn 15 ára og yngri í fylgd með fullorönum. Útivist. Kristið satnfélag Samkomur með Christopher Alam fimmtudag, föstudag, laug- ardag og sunnudag kl. 20.00 í húsnæði Vegarins, Smiðjuvegi 5. Samkoma sunnudag kl. 16.30 í Góðtemplarahúsinu, Suðurgötu 7, Hafnarfirði. Jón Þór predikar. Allir velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Tónlistarvaka Kaffihús með lifandi tónlist 35 manna sönghópur frá Dan- mörku sér um tónlistina. Húsið opnað kl. 20.00. Allir velkomnir. Aðalstöðvar KFUMog KFUK, Holtavegi 28 Haustátak 1995 „í þinni hendi“ Samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður: Sr. Kjartan Jónsson. Vitnisburð hefur Anna J. Guð- mundsdóttir. Söngur: Góðu Fréttirnar. Almennur söngur, lofgjörö og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. VEGURtNN Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Sameiginiegar samkomur: í kvöld kl. 20.00. Föstudag kl. 20.00. Laugardag kl. 20.00. Sunnudag kl. 20.00. Christopher Alam, lækninga- prédikari frá Pakistan, er gestur okkar. Lofgjörð og fyrirbænir. ÞJÓNUSTA Taxtabreyting á Kiropraktorstofu Tryggva Jón- assonar: Viðtal og skoðun kr. 1900 og meðferð hvert skipti kr. 1100.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.