Morgunblaðið - 19.10.1995, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Skerpir athygli - eykur þol
Virkar m.a. gegn:
Einbeitingarskorti, streitu, þreytu og
afkastarýrnun.
Einnig gott fyrir aldraða.
Ábendingar á mjólkurumbúðum, nr. / af 60.
Að heltast
úr lestinni
Gott er að auðga málfar sitt með góðum líkingum eða orðtökum.
Nokkurs
misskilnings gætir
um notkun sumra orðtaka.
Ef hestur í lest verður haltur
heltist hann úr lestinni
-en hellist ekki!
Sofnum ekki á verðinum!
,*»er
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrœðsla á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar of> Málrœktarsjóðs.
k
-kjarni málsins!
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
íslendingar
verða sér til
skammar í
Dublin
ÉG GET ekki látið hjá líða
að ræða um atvik sem ég
las um í DV fimmtudaginn
12. október sl. Hópur á
vegum Samvinnuferða-
Landsýnar var í Dublin á
írlandi og höfðu þeir með
sér afsláttarmiða frá ferða-
skrifstofunni hér. Þessir
miðar voru vist ansi líkir
írskum pundseðlum og
tóku elsku landarnir okkar
upp á því að reyna að
blekkja afgreiðslufólk í
verslunum og kaupa fyrir
þá. Komu þeir síðan heim
með stolinn vaming fyrir
millónir króna, eftir því
sem DV segir. Mér fínnst
að eitthvað þurfi að gera í
þessu máli og ættu Sam-
vinnuferðir-Landsýn að
hafa forgöngu í því. Auð-
vitað geyma verslanimar
„íslensku“ pundseðlana,
svo það eitt ætti að vera
vandalaust að fá uppgefíð
hve mikið hefur verið svik-
ið út. Það er þjóðarskömm
að láta saklaust fólk verða
fyrir svona tapi án þess að
reyna að bæta fyrir það.
Steinunn Magnúsdóttir.
Þekkir einhver
ljóðlínurnar?
GUÐNÝ Jóhannsdóttir
hringdi og óskaði eftir því
að þeir lesendur sem kann-
ast við eftirfarandi hendingu
hafí samband við sig.
Austurland í örmum fjalla þinna
Guðný er í síma
462-1122 og heimilisfang-
ið er Bakkahlíð 12, Akur-
eyri.
Forsetaefni
SONJA Schmidt hringdi og
vildi benda á Jón Baldvin
Hannibalsson sem forseta.
Bryndís Schram eiginkona
hans stendur manni sínum
fyllilega jaftifætis og yrði
líka glæsilegur fulltrúi lands-
ins.
Leðurjakki tapaðist
NÝLEGUR dökkbrúnn,
hálfsíður leðuijakki tapað-
ist í Duus-húsi sl. föstu-
dagskvöld. Jakkinn hefur
líklega verið tekinn í mis-
gripum og er hans sárt
saknað af eiganda.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 587-7701 á
kvöldin.
Úlpa
tapaðist
GRÆN dúnúlpa með hettu
tapaðist í Tunglinu sl.
laugardagskvöld. Upplýs-
ingar í 562-8983.
Úr tapaðist
DÖMUÚR með svartri
skífu og keðju, af gerðinni
Orient, tapaðist sl. laugar-
dagskvöld á Laugavegi,
Hverfisgötu, Lækjartorgi
eða þar í kring. Finnandi
vinsamlega hrigi í síma
567-8305.
Gæludýr
Trýna
er týnd
TRÝNA hvarf frá Vorsabæ
í Árbæ síðast í júní sl. Hún
er með svartan koll, svört
á baki, með hvítan kvið og
lappir. Hún er eymamerkt
5H028 og var með
rauðköflótta hálsól þegar
hún fór að heiman. Þeir,
sem kynnu að vita um ferð-
ir hennar eða endalok, era
vinsamlega beðnir að láta
vita í síma 587-2063.
Týndur köttur
Þrílit læða, hvít, gul og
svört, hvarf frá heimili
sínu, Vallarbraut 23, Sel-
tjamamesi, 15. október sl.
Er ekki með hálsband, en
eyrnamerkt. Þeir sem eitt-
hvað vita um kisu eru vin-
samlega beðnir að láta vita
í síma 561-5526.
Farsi
SKÁK
llmsjðn Margeir
l’étursson
HVÍTUR leikur og vinnur.
Staðan kom upp á heims-
meistaramóti unglinga 20
ára og yngri í Halle í Þýska-
landi í viðureign tveggja al-
þjóðlegra meistara. Oral
(2.410), Tékklandi, hafði
hvítt og átti leik gegn
Vescovi (2.465), Brasilíu.
Hvítur er tveimur ridduram
undir í liði, en hefur náð að
opna leið að svarta kóngnum:
18. Hh8+! (18. Dh5 dugði
hins vegar ekki vegna 18. —
Hf4) 18. - Bxh8 19. Dh5 -
Bxg6 20. Dxg6+ — Bg7 21.
Dh7+ - Kf7 22. Dh5+! -
Kf6 23. f4! og svartur gafst
upp, því mátið blasir við: 23.
— Rce5 24. fxe5-i—
Rxe5 25. Bg5 mát.
Sá sem tekur við
heimsmeistaratitlin-
um af Helga Áss
Grétarssyni er Roman
Slobodan, sem teflir
undir merkjum
Þýskalands, en er
fæddur í Úkraínu,
sonur hermanns sem
þjónaði Sovétríkj-
unum í Austur-þýska-
landi. Þegar faðirinn
var sendur heim varð
drengurinn eftir. Þar
með hafa Þjóðveijar í fyrsta
sinn eignast heimsmeistara í
þessum aldursflokki. Röð
efstu manna: 1. _ Slobodjan
10 v. 2. Onísjúk, Úkraínu 10
v. 3. Spangenberg, Argent-
ínu 9 'A v. 4. Vescovi, Brasil-
íu 9 v. 5-10. Fridman, Lett-
landi, Oral, Kaminski, Pól-
landi, Vydeslaver, Israel,
Nalbandjan, Armeníu og Ir-
sjanov, Kasakstan 8 'A v.
o.s.frv.
Víkveiji skrifar...
YÍKVERJI fékk fyrir skömmu
sendingti frá útlöndum, sem
var tollskyld. Sendingin var almenn
póstsending og sótti Víkveiji hana
í pósthúsið og greiddi, toll, virðis-
aukaskatt og gjald fyrir tollmeðferð
póstsendinga; upphæð, sem nam
43,1% af verðmæti vörunnar ásamt
sendingarkostnaði.
Hvað sem því líður, þá vildi Vík-
veiji greiða pósthúsinu með debet-
korti, en fékk þá þau svör að Póst-
ur & sími tæki ekki við kortum.
Viðskiptavinurinn yrði annaðhvort
að greiða í reiðufé eða með ávísun,
svo óhagkvæmt sem það nú er fyrir
viðskiptavininn.
Víkveiji lýsti vanþóknun sinni á
þessum viðskiptaháttum og kvað
Póst & síma afskaplega gamaldags
í viðskiptaháttum úr því að hann
tæki elcki við debet-kortum,
greiðslumáta nútímans, sem væri í
raun staðgreiðsla beint inn á reikn-
ing Pósts & síma. Afgreiðslustúlkan
tók strax upp vörn fyrir fyrirtæki
sitt og kvað ekki við Póst & síma
að sakast, heldur bankana, sem
vildu gera Pósti & síma að nota
posa, en fyrirtæki hennar vildi fá
beinlínutengingu, þannig að unnt
væri að millifæra beint. Slíkt hefðu
bankarnir ekki viljað fallast á og
því tæki Póstur & sími ekki við
deþet-kortum..
xxx
*
IÞESSU tilfelli var um debet-kort
frá Landsbanka íslands að ræða
og Póstur & sími er ríkisfyrirtæki
rétt eins og Landsbankinn er ríkis-
banki. Það kann að þykja óeðlilegur
stirðbusaháttur hjá tveimur ríkisfyr-
irtækjum að karpa út af slíku og
gera viðskiptavininum að skrifa út
rándýran tékka fyrir upphæð, að-
eins vegna þess að ríkisfyrirtækin
koma sér ekki saman um það á
hvern hátt menn millifæra fjármuni
sem krafizt er af viðskiptavinunum.
Hér þarf augljóslega að koma á ein-
hveiju samráði, svo að slíkt komi
ekki fyrir — eða eru þetta kannski
samantekin ráð, að hafa dýrari
greiðslumátann einvörðungu gagn-
vart viðskiptavininum, svo að unnt
sé að mjólka hann sem mest?
XXX
AÐ er ekki einleikið með vit-
leysurnar í símaskránni. Nú
nýlega þurfti Víkveiji að hringja í
valinkunnan lögmann hér í bæ og
fletti upp í símaskránni, nánar til-
tekið í fyrirtækjaskránni, þessari
gulu og þynnri. Lögmaðurinn er
karlkyns og þrátt fyrir það er hann
sagður dóttir föður síns. Hvað voru
prófarkalesarar símaskrárinnar að
gera, þegar þeir lásu prófarkir að
skránni?
Þetta rifjaðist upp fyrir Víkveija
nú i vikubyijun, er hann las í DV
frétt um að símanúmer Blönduós-
bæjar hefði fallið niður við útgáfu
skrárinnar. Símanúmerið er ekki í
atvinnuskránni, þótt vísað sé til
hennar í aðalskránni. Þá munu for-
svarsmenn Blönduósbæjar hafa ósk-
að eftir því við Póst & síma að leið-
rétting kæmi fram í svæðisskrá, sem
gefín var út mun síðar en aðalskrá-
in, en fengið neitun þar um. Vilji
menn hins vegar leita eftir síma-
númerinu hjá Blönduósbæ þurfa
menn að nota upplýsingasímann um
símanúmer, 118, en í hann kostar
að hringja kr. 28,25 fyrir hveija
mínútu. Spumingin er hvort and-
virðið renni til að greiða prófarkales-
urum símaskrárinnar laun?