Morgunblaðið - 29.10.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 5
MARIA nýfermd og brosandi
en veröld hennar í molum.
MARÍA og franskur vinur hennar, Dany, í hófi í St. Tropez: ,Hann
var fágaður verksmiðjueigandi og heiðursmaður en ég elskaði
hann ekki nóg til að giftast honum."
En hvað tók við? Ég átti fáa
vini sem ég gat trúað fyrir
hugsunum mínum og rætt við
um framtíðaráform mín. Flest-
ir þeirra voru búsettir um víða
veröld eða á eilífum þeytingi
og ferðalögum. Ég vildi ekki
íþyngja mömmu með áhyggj-
um mínum. Ég varð að taka
ákvörðun um líf mitt sjálf. Sem
þýddi að ég ýtti vandanum enn
á undan mér. Samtímis hlóðst
leiðinn og kvíðinn upp og varð
að tímasprengju.
Innst inni óttaðist ég venju-
legt starf. Mér hraus hugur við
að vinna frá níu til fimm á
föstum stað allt árið um kring,
kannski til dauðadags.
Ég velti fyrir mér að flytjast
heim til íslands. Segja lokið
þessum kafla í lífi mínu erlend-
is og koma heim. En ég ýtti
þeirri hugsun jafnóðum frá
mér. Mér fannst uppgjöf að
flytjast heim til Islands. Ég var
orðin svo vön lífinu erlendis,
háð fijálsræði og flakki. Þótt
ég elskaði ísland og liti á það
sem heimaland mitt, var það of
lítið fyrir mig, of þröngt. ísland
gæti aldrei boðið mér upp á sam-
bærilegt líf og ég hafði lifað er-
MARÍA þreytt á sál og líkama á íslandi
1986. Að baki erfið eftirköst árásar,
vist á geðdeild og framundan áfengis-
meðferð og barátta við að fóta sig sem
ljósmyndari í tískuheimi þar sem hún
var flestum gleymd.
lendis. Ég vildi heldur berjast
áfram í útlöndum, skipta um at-
vinnu og viðhalda ytri lífsgæðum.
Ég var þrátt fyrir allt ekki reiðu-
búin að stíga út úr drauma-
heiminum. Og rótleysið og
óþolinmæðin var enn í blóði
mínu. Ég varð að hafa frelsi
til að halda áfram. Halda
áfram - eitthvert.
Ég hafði svifið um í
draumaheimi. Og nú var
draumurinn að verða búinn.
Þorði ég að vakna?
Nei.
Ég var líka hrædd við að
enginn vildi ráða mig í vinnu.
Hvað gat ég? Án menntunar,
án almennrar verkkunnáttu og
starfsreynslu? Ég, sem kunni
bara að standa og sitja fyrir
framan myndavélar? Hver vill
ráða fyrrverandi ljósmynda-
fyrirsætu í starf? Hvernig átti
ég að skríða út úr göngunum
háifum öðrum áratug eftir að
ég fór inn í þau? Vinir nn'nir
og jafnaldrar höfðu lokið námi
fyrir löngu og komnir í fasta
vinnu. Giftir, búnir að stofna
heimili og eignast börn. Og
hér stóð ég - í sömu sporum
og fyrir fimmtán árum. Nema
fimmtán árum eldri.
- Velkomin til raunveruleikans
María, sagði ég við sjálfa mig.“
CRQUJn FC/FP
Framúrskarandi
hönnun með
þægindi
ökumanns í
fyrirrúmi.
Gámagengur
lyftari. I
2, 21A og 3 tonna
lyftigeta.
« c
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI 564 4711 • FAX 564 4725
- kjarni málsins!
30.10. - 04.11.
FJÖLDI GÓÐRA TILBOÐA
T.D.: PEYSUR
ÁÐUR 4.990 KR.
NÚ 2.990 KR
BUXUR (FLAUELSVSTRETCHÚ
ÁÐUR4.990 KR. NÚ 2.990 KR.
BOLIR
ÁÐUR 1.590 KR.
NU 990 KR.
GÚMMÍJAKKAR (FÓÐRAÐIR)
ÁÐUR 5.990 KR„ NÚ 2.990 KR
ALLARÚLPUR 15% AFSLÁTTUR
ALLAR BLÚSSUR 15% AFSLÁTTUR
Laugavegi 83