Morgunblaðið - 29.10.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 19
¦
FRETTIR
Ekkí fjallað um
lyfsöluumsóknir
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
fj'allar ekki um umsóknir um lyf-
söluleyfi samkvæmt nýjum lyfjalög-
um, þar sem lagakaflar, sem fjalla
um stofnun lyfjabúða og lyfsölu-
leyfi, hafa ekki tekið gildi.
Tveir lyfjafræðingar hafa lýst
yfir áformum um að opna apótek í
nóvember á grundvelli nýju lyfja-
laganna, en umræddir lagakaflar
eiga að taka gildi 1. nóvember. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráð-
herra hefur hins vegar lagt fram
frumvarp á Alþingi um að fresta
gildistöku lagakaflanna til 1. júlí á
næsta ári
Umsóknir éndursendar
Þegar ráðherra mælti fyrir frum-
varpinu fyrr í þessum mánuði sagði
hún að þeir sem hefðu hug á að
stofna lyfsölur samkvæmt lyfjalög-
unum þyrftu að sækja um leyfi til
heilbrigðisráðuneytisins, en frá því
hún hefði komið til starfa í ráðu-
neytinu síðastliðið vor hefði engin
slík umsókn borist.
Ingi Guðjónsson, annar lyfja-
fræðinga sem stendur að fyrirhug-
uðu apóteki, sagði við Morgunblað-
ið að fyrir um ári hefðu þeir fengið
þær upplýsingar frá heilbrigðis-
ráðuneytinu að umsóknir um lyf-
söluleyfi yrðu ekki teknar til af-
greiðslu fyrr én 1. nóvember og því
endursendar. Sömu svör hafi feng-
ist við samskonar fyrirspurn nú í
sumar.
„Samt hefur heilbrigðisráðherra
undrast að yið höfum ekki sótt um
starfsleyfi. Ég sendi því inn umsókn
12. október og hef nú fengið svar,
sem er staðfesting á fyrri svörum
ráðuneytisins," sagði Ingi.
í bréfi heilbrigðisráðuneytisins
frá 20. október segir, að samkvæmt
gildandi lögum um veitingu lyfsölu-
leyfis sé ráðuneytinu ekki unnt að
taka umsókn þessa til meðhöndlun-
ar. Þess er jafnframt getið, að fyr-
ir Alþingi Iiggi frumvarp um frek-
ari frestun gildistöku VII. kafla
lyfjalaga sem varði veitingu lyfsölu-
leyfis.
Nordisk institutt for kvinne- og kj0nnsforskning
Nýjar stöður
„Nordisk institutt for kvinne- og kj0nnsforskning" Rannsóknastofa í kvenna- og jafnréttis-
fræðum - er þverfagleg norræn rannsóknarstofa, fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni
og hefur aðsetur við Háskólann í Osló (Senter for kvinneforskning) samkvæmt samningi til
þriggjaára (1.9.1995 til 30.8.1998)
Stofnunin á að stuðla að og hvetja til rannsókna og skoðunar á stöðu kvenna, kynjamun og
jafnréttismálum á Norðurlöndunum. Hún á einnig að dreifa upplýsingum um kvenna- og
jafnréttisrannsóknir og styrkja norrænt samstarf á því sviði, og leggja grunn að alþjóðlegri
samvinnu. Við stofnunina eru þrjár stöður, forstöðumaður, rannsóknastjóri og upplýsinga-
fulltrúi.
Rannsóknastjóri
Rannsóknastjóri ber ábyrgð á að framfylgja og samhæfa faglega starfsemi rannsóknastof-
unnar, jafnframt því að sinna eigin rannsóknum. Hann á að hafa frumkvæði að samnorrænum
rannsóknum, samhæfa verkefni, sjá urri skipulagningu og námskeiðahald, faglegar ráðstefnur
og samræðufundi, jafnframt því að stuðla að alþjóðasamvinnu á sviði norrænna kvenna- og
jafnréttisrannsókna, samhliða almennum stjórnunarstörfum.
Krafist er mikillar hæfni í rannsóknarstörfum (senior) á sviði norrænna kvenna- og jafnréttis-
mála, þverfaglegrar þekkingar og reynslu af rannsóknastýringu, norrænu rannsóknasamstarfi
og alþjóðlegri samvinnu. Reynsla í stjórnun á rannsóknar- og /eða menntastofnun er mikils
metin, svo og reynsla af tölvunetum. Starfið krefst góðra samstarfshæfileika, hæfileika til að
hafa frumkvæði og hvetja samstarfsfólk.
Ráðning, með launum í samræmi við hæfni í rannsóknarstórfum er samkvæmt norskum
samningum ríkisstarfsmanna (NOK 269.000-313.400). Umsókn sendist í þríriti með stað- '
festu starfságripi og vottorðum, ásamt útgáfulista, lista með allt að 10 verkefnum sem mikil-
væg eru í sambandi við starfið ásamt lýsingu á þeim markmiðum sem umsækjandi vill leggja
áherslu á varðandi stöðuna.
Upprýsingafulltrúi
Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á heimildasöfnun og upplýsingastarfsemi stofnunarinnar.
Notkun og þróun á bæði rafrænni og hefðbundinni upplýsingaþjónustu, um og fyrir norrænar
kvenna- og jafnréttisrannsóknir, er meginverkefni starfsmannsins. Fulltrúinn ber einnig
ábyrgð á heimildasafni stofnunarinnar, nafnaskrám og skjalasafni, og tekur þátt í tölvunet-
vinnu og fleiri verkefnum.
Krafist er góðrar menntunar, á cand.mag/B.A. sviði eða sambærilegrar. Æskileg er fram-
¦ haldsmenntun í upplýsingafræðum. Reynsla í notkun á tölvugagnagrunnum, Interneti og
„World Wide Web" er líka mikilvæg. Þekking á norrænum kvenna- og jafnréttisrannsóknum
og reynsla af upplýsinga- og rannsóknastörfum er líka æskileg.
Starfið krefst sjálfstæðis, frumkvæðis, góðra hæfileika í að tjá sig í rituðu og mæltu máli,
þjónustulipurð og samstarfshæfileika.
Ráðning, með launum í samræmi við hæfni, samkvæmt norskum samningum ríkisstarfs-
manna (NOK 233.600- 279.800).
Umsókn sendist í þríriti með staðfestu starfságripi og afriti af vottorðum, svo og aðrar
viðeigandi upplýsingar í tvíriti.
Sameiginlegt báðum stöðunum
Lögð er áhersla á góða málakunnáttu, eitt skandinavískt tungumál og ensku. Kunnátta í
öðrum norrænum tungumálum er líka metin. Frekari málakunnátta er kostur.
Ráðning er út samningstímann. Ríkisstarfsmenn á Norðurlöndum eiga rétt á leyfi.
Búsetustyrkur, flutningsstyrkur, o.þ.h. er ekki veittur norskum starfsmönnum.
Umsóknir sendist Norsk institutt for kvinne- og kj0nnsforskning, postboks 1156 Blindern,
0317 Oslo, fyrir 1. desember 1995.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður stofnunarinnar,
Fride Eeg-Henriksen, sími OO 47 22 85 89 43.
M bjálfa ubfr vök
a ,.
a ummal
í Trimformi er hægt að þjálfa upp alla vöðva líkamans, auka vöðvaþol og vöðvamassann. Og þú þarft ekki
að gera neinar teygjuæfingar á eftir því tækið sér um að teygja á vöðvunum fyrír þig.
Nú bjóðum við einnig vatnsnudd, -alnudd-bólgulosandi.
Við veitum ókeypis prufutíma. Komið og prófið því þið finnið árangur strax. Einnig höfum
við náð mjög góðum árangri f grenningu, vöðvabólgu o.fl. Við erum lærðar f rafnuddi
Vatnsnudd, 10 tímar, kr. 2.000,-. Trimform 10 tfmar, kr. 6.900,-.
Hringið og fáið nánari upplýsingar um Trimform í síma 553 3818.
TRÍMFORM
Ath! Opið frá ki. 7.00-23.00 alla virka daga
og 9.00-16.00 laugardaga.
HMwanMi
Berglindar
Grensásvegi 50, sími 553 3818.
VUtu skuldbreyta
eða stækha 'vioþig?
Dæmi utn mánaðarlegar
afborganir af l.OOO.OOO kr.
Fasteignaláni Skandia*
•\fextir(%)5ár 10 ár 15 ár 25 ár
7,5 20.000 11.900 9.270 7.500
8,0 20.300 12.100 9.560 7.700
8,25 20.400 12.270 9.700 7.900
8,5 20.500 12.400 , 9.850 8.000
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk verðbóta
Sendu inn utnsókn eðafáðu
nánari upplýsingar hjá
ráðgjöfum Skandia.
Fyrir hverja eru
Fasteignalan Skandia?
Fasteignalán Skandia eru fyrir alla á stór-
Reykjavíkursvæðinu sem eru að kaupa
sér fasteign og:
• Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu.
• Þá sem vilja brej'ta óhagstæðum eldri eða
styttri lánum.
• Þá sem eiga lítið veðsettar, auðseljanlegar
eignir, en vilja lán til annarra fjárfestinga.
Kostir Fasteignalána Sliandia
• Lánstúni allt að 25 ár.
• Hagstæð vaxtakjör.
• Minni greiðslubyrði.
• Stuttur svartími á umsókn.
0
Skandia
LAUQAVEOI 170, 1QB REYKJAVlK
S(MI BB 1B 70D, FAX BB EO 177
Wagoneer Limited árg. '86,
ek. 122 þ. km, blá sans, sjálf-
sk., 5 dyra. Rafmagn í öllu.
Verð 1.050 þús.
Mercedes Benz 200T, árg. '88,
ek. 181 þ. km, bökkblár, sjálf-
sk„ 5 dyra, ABS, álfelgur, sam-
læsingar. Verð 1.580 þús.
MMC Lancer Gix 1,5, árg.
'88, ek. 78 þ. km, silfur-
grár, sjálfsk., 4ra dyra.
Verð 550 þús.
WM Transporter sendibíll,
árg. '92, ek. 92 þ. km, hvít-
ur, 5 gíra, 4ra dyra, með
gluggum. Verð 1.300 þús.
Mercedes Benz 190E, árg.
'86, ek. 162 þ. km, gull sans,
5 gíra, 4ra dyra, sóllúga,
álfelgur, spoiler, litað gler.
Verð 1.150 þús.
Volvo 740 GL, árg. '87, ek.
108 þ. km, vínrauður, sjálf-
sk., 4ra dyra. Verð 910 þús.