Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 19

Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 B 19 ______FRETTIR____ Ekki fjallað um lyfsöluumsóknir HEILBRIGÐISRAÐUNEYTIÐ fjallar ekki um umsóknir um lyf- söluleyfi samkvæmt nýjum lyfjalög- um, þar sem lagakaflar, sem fjalla um stofnun lyfjabúða og lyfsölu- leyfi, hafa ekki tekið gildi. Tveir lyfjafræðingar hafa lýst yfir áformum um að opna apótek í nóvember á grundvelli nýju lyfja- laganna, en umræddir lagakaflar eiga að taka gildi 1. nóvember. Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra hefur hins vegar lagt fram frumvarp á Alþingi um að fresta gildistöku lagakaflanna til 1. júlí á næsta ári Umsóknir endursendar Þegar ráðherra mælti fyrir frum- varpinu fyrr í þessum mánuði sagði hún að þeir sem hefðu hug á að stofna lyfsölur samkvæmt lyfjalög- unum þyrftu að sækja um leyfi til heilbrigðisráðuneytisins, en frá því hún hefði komið til starfa í ráðu- neytinu síðastliðið vor hefði engin slík umsókn borist. Ingi Guðjónsson, annar lyfja- fræðinga sem stendur að fýrirhug- uðu apóteki, sagði við Morgunblað- ið að fyrir um ári hefðu þeir fengið þær upplýsingar frá heilbrigðis- ráðuneytinu að umsóknir um lyf- söluleyfí yrðu ekki teknar til af- greiðslu fyrr en 1. nóvember og því endursendar. Sömu svör hafi feng- ist við samskonar fyrirspurn nú í sumar. „Samt hefur heilbrigðisráðherra undrast að við höfum ekki sótt um starfsleyfi. Ég sendi því inn umsókn 12. október og hef nú fengið svar, sem er staðfesting á fyrri svörum ráðuneytisins," sagði Ingi. í bréfi heilbrigðisráðuneytisins frá 20. október segir, að samkvæmt gildandi lögum um veitingu lyfsölu- leyfis sé ráðuneytinu ekki unnt að taka umsókn þessa til meðhöndlun- ar. Þess er jafnframt getið, að fyr- ir Alþingi liggi frumvarp um frek- ari frestun gildistöku VII. kafla lyfjalaga sem varði veitingu lyfsölu- leyfis. Nordisk institutt for kvinne- og kjdnnsforskning Nýjar stöður „Nordisk institutt for kvinne- og kjdnnsforskning" Rannsóknastofa í kvenna- og jafnréttis- fræðum - er þverfagleg norræn rannsóknarstofa, fjármögnuð af Norrænu ráðherranefndinni og hefur aðsetur við Háskólann í Osló (Senter for kvinneforskning) samkvæmt samningi til þriggja ára (1.9.1995 til 30.S. 199S) Stofnunin á að stuðla að og hvetja til rannsókna og skoðunar á stöðu kvenna, kynjamun og jafnréttismálum á Norðurlöndunum. Hún á einnig að dreifa upplýsingum um kvenna- og jafnréttisrannsóknir og styrkja norrænt samstarf á því sviði, og leggja grunn að alþjóðlegri samvinnu. Við stofnunina eru þrjár stöður, forstöðumaður, rannsóknastjóri og upplýsinga- fulltrúi. Rannsóknastjóri Rannsóknastjóri ber ábýrgð á að framfylgja og samhæfa faglega starfsemi rannsóknastof- unnar, jafnframt því að sinna eigin rannsóknum. Hann á að hafa frumkvæði að samnorrænum rannsóknum, samhæfa verkefni, sjá um skipulagningu og námskeiðahald, faglegar ráðstefnur og samræðufundi, jafnframt því að stuðia að alþjóðasamvinnu á sviði norrænna kvenna- og jafnréttisrannsókna, samhliða almennum stjórnunarstörfum. Kraftst er mikillar hæfni í rannsóknarstörfum (senior) á sviði norrænna kvenna- og jafnréttis- mála, þverfaglegrar þekkingar og reynslu af rannsóknastýringu, norrænu rannsóknasamstarfi og alþjóðlegri samvinnu. Reynsla í stjórnun á rannsóknar- og /eða menntastofnun er mikils metin, svo og reynsla af tölvunetum. Starfið krefst góðra samstarfshæftleika, hæftleika til að hafa frumkvæði og hvetja samstarfsfólk. Ráðning, með launum í samræmi við hæfni í rannsóknarstörfum er samkvæmt norskum samningum ríkisstarfsmanna (NOK 269.000-313.400). Umsókn sendist í þríriti með stað- festu starfságripi og vottorðum, ásamt útgáfulista, lista með allt að 10 verkefnum sem mikil- væg eru í sambandi við starfið ásamt lýsingu á þeim markmiðum sem umsækjandi vill leggja áherslu á varðandi stöðuna. Upplýsingafulltrúi Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á heimildasöfnun og upplýsingastarfsemi stofnunarinnar. Notkun og þróun á bæði rafrænni og hefðbundinni upplýsingaþjónustu, um og fyrir norrænar kvenna- og jafnréttisrannsóknir, er meginverkefni starfsmannsins. Fulltrúinn ber einnig ábyrgð á heimildasafni stofnunarinnar, nafnaskrám og skjalasafni, og tekur þátt í tölvunet- vinnu og fleiri verkefnum. Krafist er góðrar menntunar, á cand.mag/B.A. sviði eða sambærilegrar. Æskileg er fram- ■ haldsmenntun í upplýsingafræðum. Reynsla í notkun á tölvugagnagrunnum, Interneti og „World Wide Web" er líka mikilvæg. Þekking á norrænum kvenna- og jafnréttisrannsóknum og reynsla af upplýsinga- og rannsóknastörfum er líka æskileg. Starfið krefst sjálfstæðis, frumkvæðis, góðra hæfileika í að tjá sig i rituðu og mæltu máli, þjónustulipurð og samstarfshæfileika. Ráðning, með launum í samræmi við hæfni, samkvæmt norskum samningum ríkisstarfs- manna (NOK 233.600- 279.800). Umsókn sendist í þríriti með staðfestu starfságripi og afriti af vottorðum, svo og aðrar viðeigandi upplýsingar í tvíriti. Sameiginlegt báðum stöðunum Lögð er áhersla á góða málakunnáttu, eitt skandinavískt tungumál og ensku. Kunnátta í öðrum norrænum tungumálum er líka metin. Frekari málakunnátta er kostur. Ráðning er út samningstímann. Ríkisstarfsmenn á Norðurlöndum eiga rétt á leyfi. Búsetustyrkur, fiutningsstyrkur, o.þ.h. er ekki veittur norskum starfsmönnum. Umsóknir sendist Norsk institutt for kvinne- og kjpnnsforskning, postboks 1156 Blindern, 0317 Oslo, fyrir 1. desember 1995. Níínari upplýsingar gefur forstöOumaöur stofnunarinnar, Fride Eeg-Henriksen, sími 4)0 47 22 85 89 43. í Trimformi er hægt að þjálfa upp alla vöðva líkamans, auka vöðvaþol og vöðvamassann. Og þú þarft ekki að gera neinar teygjuæfingar á eftir því tækið sér um að teygja á vöðvunum fyrir þig. Nú bjóðum við einnig vatnsnudd, -alnudd-bólgulosandi. Við veitum ókeypis prufutíma. Komið og prófið því þið finnið árangur strax. Einnig höfum við náð mjög góðum árangri í grenningu, vöðvabólgu o.fi. Við erum lærðar í rafnuddi. Vatnsnudd, 10 tímar, kr. 2.000,-. Trimform 10 tímar, kr. 6.900,-. Hringið og fáið nánari upplýsingar um Trimform í síma 553 3818. Ath! Opið frá ki. 7.00-23.00 alla virka daga og 9.00-16.00 laugardaga. rt K TRIMFORM Berglindar Grensásvegi 50, sími 553 3818. Wagoneer Limited árg. '86, ek. 122 þ. km, blá sans, sjálf- sk., 5 dyra. Rafmagn í öllu. Verð 1.050 þús. Mercedes Benz 200T, árg. '88, ek. 181 þ. km, bökkblár, sjálf- sk., 5 dyra, ABS, álfelgur, sam- læsingar. Verð 1.580 þús. MMC Lancer Gix 1,5, árg. '88, ek. 78 þ. km, silfur- grár, sjálfsk., 4ra dyra. Verð 550 þús. WM Transporter sendibíll, árg. '92, ek. 92 þ. km, hvít- ur, 5 gíra, 4ra dyra, með gluggum. Verð 1.300 þús. Mercedes Benz 190E, árg. '86, ek. 162 þ. km, gull sans, 5 gíra, 4ra dyra, sóllúga, álfelgur, spoiler, litað gler. Verð 1.150 þús. Volvo 740 GL, árg. ‘87, ek. 108 þ. km, vinrauður, sjálf- sk., 4ra dyra. Verð 910 þús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.