Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 14
14 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Gísli Snær Erlingsson
Riddarar í Reykjavík
REGLA rauða drekans á götum Reykjavíkur. Andrés örn (Hjörleifur Björnsson), Benjamín dúfa (Sturla Sighvatsson), Róland dreki
(Gunnar Atli Cauthery) og Baldur hvíti (Sigfús Sturluson).
Regla rauða drekans
eftir Guðna Einorsson
KVIKMYNDIN Benjamín dúfa verð-
ur frumsýnd næstkomandi fimmtu-
dag, 9. nóvember. Myndin er gerð
eftir samnefndri verðlaunasögu
Friðriks Erlingssonar. Sagan segir
frá fjórum drengjum, 10-12 ára
gömlum, sem stofna Reglu rauða
drekans til að berjast gegn óréttlæt-
inu í hverfinu sínu. Þessi riddara-
regla notast við trésverð og heimatil-
búna skildi. Það koma brestir I
bræðralag reglunnar og einum ridd-
aranum er útskúfað. Hann fyllist
hefndarhug og stofnar riddararegl-
una Svörtu fjöðrina til að herja á
fyrrverandi reglubræður sína. Það
dregur til uppgjörs á milli riddara-
reglnanna og ævintýrið breytist í
martröð. Benjamín dúfa er þroska-
saga og á að höfða til áhorfenda á
öllum aldri. Friðrik Erlingsson skrif-
aði handrit myndarinnar, Gísli Snær
Erlingsson er leiksljóri og Baldur
Hrafnkell Jónsson framleiðandi.
AIMDRES ORINJ
„Ég
hlakka
til“
HJORLEIFUR
Björnsson leik-
ur riddarann
Andrés örn í
kvikmyndinni
um Benjamín
dúfu.
Morgunblaðið/Þorkell
HJÖRLEIFUR Björnsson fer með
hlutverk Andrésar amar. Hjörleifur
er 12 ára gamall og býr í Reykja-
vík. Hann hefur verið í leiklist í
Hvassaleitisskóla og tekið þar þátt
í skólaleikritum. Hjörleifur fór einn-
ig með lítið hlutverk í kvikmyndinni
Skýjahöllinni.
Hjörleifur segir leikferil sinn hafa
byrjað með því að félagar hans
drógu hann í leiklistartíma hjá Sig-
ríði Hannesdóttur í skólanum. Hann
var ekki mjög áhugasamur til að
byija með, en nú er leiklistin hans
helsta áhúgamál.
Tildrög þess að hann fékk hlut-
verk f Benjamín dúfu voru þau að
leiklistarkennarinn hans var spurð-
ur um drengi til að fara í prufutöku
vegna myndarinnar. Sigríður benti
meðal annars á Hjörleif. Hann var
síðan kallaður í prufutöku og valinn
í eitt af aðalhlutverkunum. Hjörleif-
ur segir að Sigríður hafi verið sér
mjög hjálpleg. Hún vann við töku
myndarinnar og var drengjunum
innan handar þegar tökur fóru
fram.
Gott hlutverk
„Eg hefði ekki getað ímyndað
mér betra hlutverk en að leika
Andrés örn,“ sagði Hjörleifur.
„Andrés er vænsti strákur en skipt-
ir um riddarareglu vegna smá
ágreinings við hina strákana. Andr-
és örn er tapsár og skapstór. Ef
hann vinnur ekki vill hann gjarnan
fara í fýlu,“ segir Hjörleifur. „Fjöl-
skylda hans er kannski ekkert ægi-
lega skemmtileg. Mér fannst erfitt
að túlka þessa persónu. Það sem
hjálpaði mér var að við erum svolít-
ið líkir."
- Ert þú tapsár?
„Já, frekar. En ég veit ekki hvort
ég er svo skapstór. Ég ver mig
þegar ég þarf þess, ég held að ég
sé ósköp venjulegur hvað skapið
varðar. Annars er annarra að dæma
um það.“
Það voru liðnir nærri þrír mánuð-
ir af skólanum þegar Hjörleifur
byrjaði í skólanum eftir að tökum
á kvikmyndinni lauk. Hann þurfti
því að leggja að sér við námið en
var ekki nema rúman mánuð að
ná upp því sem hann missti úr.
- Hlakkarðu til að sjá myndina?
„Já, ég hlakka ofboðslega til. Ég
er spenntur því ég hef aldrei leikið
aðalhlutverk í neinu. Það verður
gaman að sjá hvernig myndin kem-
ur út.“ Hjörleifur fékk að sjá hluta
úr myndinni á myndbandi sem sent
var erlendum aðstandendum henn-
ar. Honum þótti skrýtið að sjá sig
og heyra í sjónvarpi.
Mikill leiklistaráhugi
„Ég held að ieiklist sé eitt af
stærstu áhugamálum mínum. Mig
langar að verða leikari, en það fer
allt eftir myndunum og hvort menn
vilja mig.“ Önnur áhugamál Hjör-
leifs eru að fara á diskótek, hand-
bolti, fótbolti og körfubolti. Tvær
síðasttöldu greinarnar æfír hann
með_ Val.
„Ég held að lokaatriðið í Benjam-
ín dúfu sé eftirminnilegast. Það var
bæði skemmtilegt og kalt. Slökkvi-
liðið var látið sprauta yfír okkur
vatni sem átti að vera rigning.
Maður átti að vera að leika í því
og það var ekkert auðvelt.“ Annað
eftirminnilegt er lokahófið sem
haldið var þegar tökum var lokið.
ROLAND DREKI
„Gegn ranglætinu
með réttlæti“
GUNNAR Atli Cauthery fer með
hlutverk Rólands dreka í Benjam-
ín dúfu. Gunnar er 14 ára gamall
og hefur töluverða leikreynslu
þrátt fyrir ungan aldur. Frá þvi
að tökum á Benjamín dúfu lauk í
fyrrahaust hefur Gunnar leikið
aðalhlutverk í sex þátta sjónvarps-
mynd fyrir BBC, The Demon He-
admaster eða Skrattans skóla-
sljórinn, eftir sögu Gillian Cross.
Hann fór einnig með stórt hlut-
verk í einum þætti BBC úr þátta-
röðinni Just WiIIiam, eða Ja, hann
Villi'. eftir sögu Richmal Cromp-
ton. Nýlega voru teknir upp 24
þættir af Disney Club þar sem
Gunnar Atli er aðalkynnir. Þessir
þættir eru sýndir á sunnudags-
morgnum á ITV sjónvarpsstöð-
inni. Gunnar Atli hefur tekið þátt
í mörgum sviðsuppfærslum, bæði
leikritum og söngleikjum. Hann
hefur stundað nám í söng og
píanóleik og hlotið margar viður-
kenningar fyrir söng.
Gunnar Atli er fæddur og upp-
alinn í Englandi, sonur Bjargar
Arnadóttur og Andrews Caut-
hery. Móðurforeldrar hans eru
Árni heitinn Björnsson tónskáld
og Helga Þorsteinsdóttir. Gunnar
Atli á eldri bróður, Davíð Harald,
sem er 19 ára.
Gunnari Atla finnst hann jafn
mikill Islendingur og Englending-
ur. „Ég kem alltaf heim til Islands
á sumrin. Ég reyni að tala eins
mikla íslensku og hægt er heima.
Hún er að sjálfsögðu ekki rosalega
góð hjá mér,“ sagði Gunnar Atli
af mikilli hæversku þvi hann talar
ágæta íslensku. „Mér þykir alltaf
gott að koma hingað og líður eins
og ég hafi aldrei farið. Mér finnst
ég bæði eiga heima hér og í Eng-
landi.“
Varð meiriháttar glaður
Gunnar Atli segir leik sinn í
Benjamín dúfu þannig til kominn
að móðir hans sá í febrúar 1994
auglýst eftir leikurum í myndina.
Tökur áttu að hefjast í ágúst í
fyrra. Gunnar sendi inn umsókn
og umbeðið myndband þar sem
hann las texta og söng. Lengi vel
barst ekkert svar, en Gunnar Atli
gerði sér þó von um að fá auka-
hlutverk. „í ágúst var ég í Leeds
að leika. Þá hringdi mamma og
sagði að mér væri boðið eitt af
aðalhlutverkunum. Ég varð yfir
mig hissa og meiriháttar glaður,"
segir Gunnar Atli. Hann þurfti að
fá leyfi úr skóla í Englandi því
myndin var tekin frá því í septem-
ber og fram í nóvember í fyrra.
Þegar talið berst að glæsilegum
ferli þessa unga leikara segist
Gunnar Atli hafa verið mjög hepp-
inn. Hann langar að gera leiklist-
ina að ævistarfi þótt um sinn verði
hann að halda sig til hlés í þeim
efnum. Nú er Gunnar Atli að búa
sig undir að Ijúka því sem jafna