Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 24
14 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU ÝSINGAR
Flugfélagió Loftur
óskar eftir að ráða fólk í margvísleg störf,
atvinnulausir og skólafólk ganga fyrir.
Þeir sem hafa áhuga sendi upplýsingar í
pósthólf 8142, 128 Reykjavík.
Bókhald
Óskum eftir starfskrafti í 50% starf eftir
hádegi. Leitum eftir einstaklingi í almenn
skrifstofustörf, bókhaldsþekking ásamt
reynslu á tölvu nauðsynleg. Viðkomandi
verður að geta hafið störf fljótlega.
Umsókn sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 6. nóv-
ember merkt: „Bókhald - 15900“.
Framkvæmdastjóri
óskast!
Besta handknattleikslið landsins - Valur, leit-
ar að framkvæmdastjóra. Þarf að hefja störf
sem fyrst. Leitað er að áhugasömum, dug-
legum og hugmyndaríkum einstaklingi.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl., merktar
„Valur - 4180“ fyrir 7. nóv. nk.
1U1ISII
6BBI8IEI8.
161888181
Frá Háskóla Islands
Laus er til umsóknar prófessorsembætti í
lögfræði við lagadeild Háskóla íslands. Gert
er ráð fyrir að embættið verði með aðal-
kennslugrein á sviði fjármunaréttar.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum
sfnum rækilega skýrslu um vísindastörf þau
er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir,
svo og námsferil og störf. Með umsóknunum
skulu send eintök af vísindalegum ritum og
ritgerðum umsækjenda, prentuðum og
óprentuðum.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1995 og
skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs
Háskóla íslands, aðalbyggingu við Suður-
götu, 101 Reykjavík.
St. Franciskusspítali,
Stykkishólmi
Hjúkrunarforstjóri
óskast
Hjúkrunarforstjóri óskast til starfa við St.
Franciskusspítalann Stykkishólmi frá og með
1.2. 1996. Spítalinn er í eigu St. Franciskus-
reglunnar og er rekinn af reglunni. Upptöku-
svæði spítalans er Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýsla og Dalasýsla. íbúar á upptöku-
svæðinu telja liðlega 5.000 manns. Spítalinn
telur 42 sjúkrarúm og hefur 46 stöðuheimild-
ir. Starfsemin er mjög fjölbreytt.
í Stykkishólmi er góður leiksk.óli fyrir tveggja
til sex ára börn, einsetinn grunnskóli með
framhaldsdeildum (2 ár) auk kröftugs tónlist-
arskóla. Golfvöllur (9 holur) og ný íþróttamið-
stöð auk hreinnar og fallegrar náttúru, sem
bíður upp á holla og góða útivist.
Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri
(systir Lidwinu) eða framkvæmdastjóri
(Róbert) í síma 438-1128.
Viðskiptafræðingur
Endurskoðunarstofa óskar að ráða til starfa'
viðskiptafræðing af endurskoðunarkjörsviöi.
Til greina kemur að ráða háskólastúdent sem
lýkur námi á næstunni.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir nk.
miðvikudagskvöld merktar:
„Framtíð - 15903“.
Rafeindavirki
Óskum eftir vönum rafeindavirkja til starfa
hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.
Verksvið: Sjónvarps-, myndabands- og
hljómtækjaviðgerðir. Æskilegt er að viðkom-
andi geti hafið störf sem allra fyrst.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 1.
nóvember merktar: „M - 15902“.
Framleiðslustjóri
Óskum eftir að ráða framleiðslustjóra til
starfa hjá Afurðasölunni, Borgarnesi hf.
Starfssvið framleiðslustjóra:
Framleiðslustjóri hefur umsjón með innkaup-
um og birgðahaldi ásamt framleiðslustjórnun
auk starfsmannastjórnunar í framleiðsludeild.
Við leitum að manni með þekkingu og
reynslu á framleiðslusviði. Tæknimenntun
eða önnur framhaldsmenntun í kjötiðnaði
eða skyldum greinum nauðsynleg. Búseía í
Borgarnesi eða nágrenni æskileg.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Dalmann.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Framleiðslustjóri 389“ fyrir 7. nóvember nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
R^kjavík
Sími 581 3666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
Skattrannsóknir
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI
RÍKISINS
óskar að ráða starfsmenn til starfa við
rannsóknir á skattskilum einstaklinga og
fyrirtækja.
Leitað er að háskólamenntuðum einstakling-
um t.d. viðskiptafræðingum, hagfræðingum,
lögfræðingum eða löggiltum endurskoðend-
um. Viðkomandi þurfa að vera töluglöggir
og nákvæmir, geta unnið sjálfstætt og skipu-
lega og geta tjáð sig skipulega með skrifleg-
um hætti.
Laun taka mið af samningum BHMR.
Ritari/tímabundið
Nákvæmur og afkastamikill starfskraftur með
góða reynslu af tölvuskráningu óskast til
starfa tímabundið í 4 mánuði við tölvuinnslátt.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Guðna Jónssonar, Háteigs-
vegi 7. Umsóknarfrestur um störfin er til
10. nóvember.
Vantar þig ritara?
Ég er löggiltur læknaritari og óska eftir
50-70% starfi fyrri hluta dags.
Margt kemur til greina.
Vinsamlega sendið svör á afgreiðslu Mbl.,
merkt: „Ritari - 1173“.
Meðeigandi!
Fjársterkur aðili óskast að fyrirtæki er lítur
að líkams- og heilsurækt.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar á afgreiðslu
Mbl. fyrir 3. nóvember merktar: „L - 2“.
Móttökustarf
Spennandi og krefjandi starf í boði fyrir
ábyrga, duglega og áhugasama manneskju.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533-3355
Sölu/markaðsstarf
Sérhæft veitingahús í borginni óskar að
ráða kröftugan og útsjónarsaman einstakling
til að annast sölu- og markaðsmál.
Um er að ræða nýtt starf. Þekking á sölu-
og markaðsmálum ásamt áhuga á veitinga-
rekstri er æskileg.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 2. nóvember.
frUÐNÍ ÍÓNSSON
RÁDGIÖF & RÁÐNINGARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
VKS
VERK- OG KERFISFRÆÐISTOFAN HF
VKS hf. var stofnað árið 1979 og hefur ætíð verið í fremstu röð íslenskra
hugbúnaðarfyrirtækja.
Fyrirtækið hefur upp á að bjóða fjölbreytt og áhugaverð verkefni.
Sérstök áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð og unniö er að því að fá
vottun skv. ISO 9001 fyrir gæðakerfi fyrirtækisins. Alls starfa um 25
manns hjá fyrirtækinu að fjölbreyttum verkefnum á sviði upplýsingamála.
Hugbúnaðargerð
VKS óskar eftir að ráða vant hugbúnaðarfólk
til starfa.
Verkefni þau sem fyrir liggja eru af ýmsum
toga. Hæst ber þar nýsmíði kerfa fyrir stóra
viðskiptavini og aðlögun eldri kerfa að nýrri
tækni og nýjum aðferðum við hugbúnaðar-
gerð.
Leitað er að kerfis- eða tölvunarfræðingum
eða aðilum með sambærilega menntun.
Nauðsynlegt er að aðilar hafi þekkingu
og/eða reynslu á að forrita í Windows, Visu-
al Basic, Delphi eða C++.
í boði eru mjög fjölbreytt verkefni í góðu og
skemmtilegu starfsumhverfi hjá framsæknu
fyrirtæki.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Auður
Bjarnadóttir frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs
merktar: „VKS hf.“ fyrir 4. nóvember nk.
ÓIJÐNT ÍÓNSSON
RÁÐGfÖF & RÁDNJNGARÞÍÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
RÁÐGARÐURhf
SnrjÓRNUNAR OG REKSTRARRÁEGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK ®533 18(X)