Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
250. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fiskveiðistjórnun og fjárhagsvandi Færeyinga
Vilja að Danir greiði
S amningafundir
hafnir í Ohio
drjúgan hluta skuldanna
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FULLTRÚAR landsstjórnarinnar
í Færeyjum og dönsku ríkis-
stjórnarinnar munu ræða skuldir
Færeyinga og fiskveiðistjórnun
við eyjarnar í Kaupmannahöfn á
morgun, föstudag.
Niðurstöðu fundahaldanna er
nú beðið með eftirvæntingu í
Færeyjum. Edmund Joensen, lög-
maður Færeyja, hefur sagt að
hann og stjórn hans vilji að Dan-
ir taki við stórum hluta færeyska
skuldabaggans. Á hann þá við 2,7
milljarða danskra króna, um 27
milljarða ísl. kr., sem ríkissjóður
Færeyja fékk að láni hjá Dönum
til að bjarga Sjóvinnubankanum
og Færeyjabanka. Bendir Joensen
á að samkvæmt sambandslögun-
um heyri bankamál undir dönsku
stjórnina og því beri henni að
hlaupa undir bagga.
Marianne Jelved, efnahags-
málaráðherra Dana, sagði í gær
að ekki kæmi til mála að ræða
þessa hugmynd. „Það eru Færey-
ingar sem hafa safnað þessum
skuldum og þess vegna eiga þeir
Kínveijar efla föðurlandsást
Börn send í heim-
skautaleiðangur
Peking. Reuter.
KÍNVERJAR hafa ákveðið að
senda börn til að stunda rann-
sóknir á Suðurheimskautinu og
sögðu kínverskir embættis-
menn í gær að þetta væri
fyrsta rannsóknarverkefni
sinnar tegundar í heiminum.
Kínversk stjórnvöld hyggj-
ast senda fimm til fimmtán
börn á aldrinum 10 til 16 ára
til rannsóknarstöðvar sinnar.
Áður verða greind þeirra og
úthald rannsökuð og þau send
í æfingabúðir í norðurhluta
Heilongjiang-héraðs í viku til
að venjast kulda.
Ráðgert er að barnaleið-
angurinn standi í viku til tíu
daga og verði farinn í árslok
eða um mánaðamótin mars -
apríl á næsta ári.
Erfið skilyrði
„Þessar rannsóknir miða að
því að kenna ungum Kínveijum
að elska föðurlandið, elska vís-
indi og læra að búa og vinna
við erfíð skilyrði,“ hafði opin-
bera kínverska fréttastofan
Xinhua eftir ónefndum emb-
ættismanni samtakanna Ungir
frumheijar.
Kínveijar hófu rannsóknir
sínar á Suðurskautslandinu árið
1980 og hafa sent 11 rannsókn-
arleiðangra þangað.
auðvitað að greiða þær,“ sagði
ráðherrann.
Hafna kvótakerfi
Stjórnmálamenn og ráðamenn
í sjávarútvegi Færeyinga eru
sammála um að hafna kvótakerf-
inu sem k'omið var á í fiskveiðum
að kröfu Dana fyrir tveim árum.
Vilja Færeyingar að í staðinn
verði beitt ýmsum tæknilegum
aðferðum til að stjórna veiðunum
og koma í veg fyrir rányrkju.
FRIÐARVIÐRÆÐUR Alija Izet-
begovic Bosníuforseta, Slobo-
dans Milosevic Serbíuforseta og
Franjos Tudjmans Króatíufor-
seta hófust í gær í Ohio í Banda-
ríkjunum. Warren Christopher,
utanríkisráðhérra Bandaríkj-
anna, setti fundinn og hvatti
þátttakendur til að breyta blóð-
völlum Bosníu í land friðarins.
Hann sagði Bandarikin og
reyndar alla heimsbyggðina
viýa hjálpa þeim til að ná
árangri, „en þið einir getið
tryggt að þessar aðgerðir
heppnist og þið verðið að hefjast
handa í dag“.
Ráðherrann sagði að grund-
vallaratriði friðarsamkomulags
yrðu að vera sjálfstæð og sam-
einuð Bosnía, eining um sérstaka
stöðu höfuðborgarinnar
Sarajevo, að mannréttindi yrðu
tryggð og þeir sem framið hefðu
hryðjuverk yrðu sóttir til.saka
auk þess sem Króatia yrði að fá
aftur yfirráð í Austur-Slavoníu.
Christopher tókst að fá forset-
ana þtjá til að takast i hendur
er sest hafði verið við hringlaga
samningaborðið á hótelinu þar
sem fundirnir munu fara fram.
Hér heilsast Izetbegovic (t.v.) og
Milosevic, á milli þeirra sést
Tudjman.
■ Ferðafrelsi innan herstöðv-
arinnar/20
Reuter
Höfuðvígi Tamíla á Sri Lanka gæti fallið þá off þegar
Otti stjórnarhers við efna-
vopn tefur sókn að Jaffna
Colombo. Reuter.
Um eitt hundrað þúsund manns
hafa flúið heimili sín
Reuter
Hvelfing
Nefertari
STARFSMAÐUR fornleifastofn-
unar í Egyptalandi varpar ljósi á
veggskreytingar í grafhvelfingu
Nefertari drottningar sem uppi
var fyrir um það bil 3000 árum.
Hvelfingin, sem er í hinni fornu
borg Luxor, fannstárið 1904 en
í desember verður almenningi í
fyrsta sinn leyft að skoða hana.
STJÓRNARHERINN á Sri Lanka
var í gær rétt fyrir utan borgina
Jaffna, eitt helsta vígi skæruliða
Tamíla, og það eina sem tafði sókn
hans var ótti við fyrirsát og efna-
vopn, að sögn heimildarmanna í
hernum. Sagt var að Jaffna liti
nú út eins og draugabær.
Að sögn hjálparstarfsmanna er
Jaffna-borg nú auð og yfirgefin.
Um 100 þúsund manns, bæði
skæruliðar og óbreyttir borgarar,
hafa lagt á flótta.
Að minnsta kosti 21.000 stjórn-
arhermenn hafa sótt að Jaffna-
borg, nyrst á Sri Lanka, síðustu
tólf daga og stjórnarherinn hefur
beitt skriðdrekum, stórskotavopn-
um og herþotum í sókninni.
Hjálparstarfsmenn sögðu að
herinn gæti tekið Jaffna þá og
þegar vegna þess að hún væri eins
og „draugaborg“.
Gasgrímum dreift
„Þeir [uppreisnarmenn] gætu
hafa reynt að koma öllum brott
frá Jaffna'til þess að geta notað
efnavopn þegar menn okkar taka
borgina," sagði háttsettur foringi
úr stjórnarhernum. Uppreisnar-
menn notuðu klórgas í árásum á
herbúðir á Sri Lanka árið 1990.
Þá varð engum meint af, en yfir-
menn hersins kveðast nú vilja vera
við öllu búnir og hefur gasgrímum
verið dreift meðal hermanna.
Einnig ríkir ótti við að flugu-
menn Tamíla grípi til hefndarað-
gerða í höfuðborginni Colombo
og tilkynnt var í sjónvarpi í gær
að skólum þar yrði af þessum
ástæðum lokað í allt að mánuð.
Öryggissveitir eru með mikinn
viðbúnað til að afstýra hugsanleg-
um hefndarárásum skæruliða á
önnur mikilvæg mannvirki, svo
sem höfnina í Colombo og raf-
orkuver.
Stjórnarherinn segist ætla að
ná öllum Jaffna-skaga á sitt vald
og kveða niður uppreisn skærulið-
anna, sem beijast fyrir sjálfstæðu
ríki Tamíla á norðurhluta eyjar-
innar.
Mikið mannfall hefur orðið i
bardögunum. Herinn segir að 500
skæruliðar hafi beðið bana í sókn-
inni að Jaffna og að minnsta kosti
169 stjórnarhermenn. Átökin hóf-
ust árið 1983 og hafa kostað rúm-
lega 50.000 manns lífið.
Tamílar eru hindúar og auk
þeirra sem búa á Sri Lanka eru
um 50 milljónir Tamíla á Ind-
landi. Sinhalar, sem eru i meiri-
hluta á Sri Lanka, eru búddatrú-
ar.