Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Björgun muna úr snjóflóðinu á Flateyri er að ljúka
Morgunblaðið/Þorkell
UNNIÐ var að því í gær að leita að munum í rústum minjasafnsins á Flateyri.
Hreinsun hugsan-
lega geymd til vors
Björgun muna úr hús-
um, sem lentu í snjóflóð-
inu, er nú að ljúka á
Flateyri. Egill Ólafsson
hefur fylgst með hreins-
unar- og uppbyggingar-
starfí undanfama daga.
BÚIÐ er að ljúka hreinsun úr öllum
íbúðarhúsum sem eyðilögðust í snjó-
flóðinu sem féll á Flateyri. í gær
var unnið við að leita muna úr minja-
safninu, en munir úr því dreifðust
um allt. Hugsanlegt er að varpa
verði sett yfir flóðasvæðið og endan-
leg hreinsun þess látin bíða til vors.
Bergsveinn Alfonsson, varðstjóri
hjá Almannavömum á Flateyri,
sagði að hreinsunarstarfíð hefði
gengið vel. Fjöldi björgunarsveitar-
manna hefði unnið geysilega gott
starf við að bjarga persónulegum
eigum fólks úr snjónum. Hundruð
björgunarsveitarmanna hafa unnið
að hreinsun allt frá því að leit að
þeim sem fórust í snjóflóðinu lauk.
Bergsveinn sagði að enn væri
ekki byijað á að flytja brak af svæð-
inu. Hann sagði að fljótlega yrði
tekin ákvörðun um hvernig yrði
gengið frá svæðinu. Fjarlægja þyrfti
stóra húshluti og annað sem fok-
hætta stafaði af. Framhaldið myndi
m.a. ráðast af veðri. Ef yrði hláka,
eins og verið hefur síðustu daga,
yrði hreinsun líkast til haldið áfram,
en gerði frost væri líklegt að físki-
nót yrði varpað yfir svæðið og end-
anleg hreinsun látin bíða þartil snjóa
leysti í vor.
Muna úr minjasafninu leitað
Minjasafnið á Flateyri var á miðju
snjóflóðasvæðinu og barst megnið
af húsinu nokkur hundruð metra
með flóðinu. Munir úr því hafa
dreifst mjög víða, en skipulögð leit
að þeim hófst ekki fyrr en í gær.
Búið er að finna þó nokkuð af hlut-
um sem voru á safninu og eru marg-
ir skemmdir. Allt er þó hirt og verð-
ur síðar ákveðið hvernig með þá
verður farið.
Að sögn Gunnlaugs Finnssonar,
fyrrverandi alþingismanns frá Hvilt,
var margt merkra muna á safninu,
m.a. nokkrir mjög gamlir munir eins
og t.d. steinkola frá landnámsöld.
Hann sagði að steinkolan væri
óvenjulega heilleg, en fáar heillegar
steinkolur hafa varðveist hér á landi.
Gunnlaugur sagði að eftir að
minjasafnið var stofnað á Flateyri
hefði talsvert af munum verið fluttir
í það frá Ísafírði. í safninu hefði
m.a. verið 110 ára gömul óopnuð
vínflaska. Flaskan hefði um tíma
verið í húsi á Akureyri sem brann
1945.
Hún hefði verið eitt af fáum hlut-
um sem bjargaðist úr brunanum.
Hann sagði sagði fróðlegt að sjá
hvort flaskan hefði komist heil úr
flóðinu.
Kirkjan hefur veitt kerfisbundna
áfallahjálp á Vestfjörðum
Finn sterkt fyrir þörf
fólks fyrir huggun
GÍFURLEGT álag
hefur verið á presta
sem verið hafa að
störfum á Flateyri
undanfarna daga.
Séra Haraldur H.
Kristjánsson, prest-
ur í Vík í Mýrdal,
segir að mikil þörf
sé fyrir þjónustu
kirkjunnar. Kirkjan
hafi veitt syrgjend-
um og öðrum þeim
sem væru í neyð
áfallahjálp með
kerfisbundnum
hætti undanfarna
daga í samráði við
stjórn Almanna-
varna á svæðinu. Séra Haraldur
hefur starfað með áfallahóp
Slysavarnarfélagsins og var
upphaflega sendur til Flateyrar
til að vera björgunarmönnum
til aðstoðar. Hann sagðist fljót-
lega hafa farið í að aðstoða séra
Kristin Jens Sigurþórsson,
starfandi prest á Flateyri, en
álagið á hann og aðra presta á
svæðinu hefði verið gífurlegt.
„Ég kom á vettvang á föstu-
dagsmorgninum. Aðkoman var
hræðileg. Maður fylltist von-
leysi að sjá alla þessa sorg og
vonleysið hjá fólkinu. Það er
ekki hægt að lýsa með orðum
því áfalli sem fólkið hefur orðið
fyrir.
Þegar eðlilegt heilbrigt fólk
lendir í óeðlilegum aðstæðum
eins og þeim sem hér hafa skap-
ast myndast streituviðbrögð.
Starf okkar hefur m.a. gengið
út á að hjálpa fólki að skilja að
streituviðbrögðin eru eðlileg og
það þarf að fylgja sorgarferlinu
eftir.“
Haraldur sagði að sú aðstoð
sem kirkjan veitti í tengslum
við Flateyrarslysið væri mun
meiri og skipulagðari en hún
veitti eftir að snjóflóðið féll á
Súðavík. Prestarnir hefðu
skipulagt fundi á þéttbýlisstöð-
um á norðanverðum
Vestfjörðum í sam-
ráði við stjórn Al-
mannavarna á svæð-
inu.
Erfið lífsreynsla
Séra Haraldur og
séra Þorbjörn Hlyn-
ur Árnason tóku að
sér að sjá um kveðju-
athafnirnar á
sjúkrahúsinu á
Isafirði þar sem ætt-
ingjar hinna látnu
kvöddu þá í síðasta
sinn. Þeir sögðu báð-
ir að þetta hefði ver-
ið erfið lífsreynsla.
„Það var dásamlegt að geta
veitt syrgjendum huggun og
styrk þegar þeir þurftu á því
að halda; þegar þeir sáu sína
nánustu í síðasta sinn,“ sagði
séra Haraldur.
„Stemmningin hér á staðnum
er sá kraftur sem hefur drifið
mig áfram. Ég finn afar sterkt
fyrir því að mín er þörf og það
heldur mér gangandi. Hér er
mikil þrá eftir huggun. Það rík-
ir sorg um alla Vestfirði, ekki
bara á Flateyri og Súðavík held-
ur líka í Hnífsdal, Bolungarvík
og á ísafirði og alls staðar þar
sem ég hef komið.“
Haraldur sagði að mikið væri
búið að mæða á sóknarprestun-
um sem þjóna á svæðinu. Ein-
staklega gott samstarf hefði
tekist við þá. Ljóst væri að þeir
þyrftu áfram á mikilli aðstoð
að halda og eins þyrftu þeir að
eiga kost á hvíld.
Séra Haraldur sagði átaka-
legt að vita til þess að enginn
geðlæknir eða sálfræðingur
væri starfandi á Sjúkrahúsinu
á ísafirði. Þörfin fyrir aðstoð
þeirra væri mikil eftir allar þær
náttúruhamfarir sem yfir Vest-
firði hafa dunið síðustu misserin
og tryggja þyrfti að hún yrði
veitt.
SÉRA Haraldur
Kristjánsson
Snjóflóðavarnargarðar á Flateyri lengdir og hækkaðir í vetur
Óvíst hver húsnæðisþörfin á Flateyri er
Tilboð
opnuð á
mánudag
Flateyri. Morgunblaðið.
TILBOÐ í lengingu á snjóflóðavam-
argörðum á Flateyri verða opnuð nk.
mánudag. Verkið var boðið út í haust
og áformað var að vinna það í vet-
ur. Kristján Jóhannesson, sveit-
arstjori á Flateyri, segir að þeim
áformum verði ekki breytt.
Görðunum er ætlað að veija
byggðina fyrir snjóflóðum úr Innra
Bæjargili, en það er vestan við
Skollahvilft sem snjóflóð féll úr 26.
október. Þarna eru í dag tveir sex
metra háir garðar. Ætlun er að
Iengja garðana, tengja þá saman og
hækka þá upp í 11-12 metra.
Með því að lengja garðana er talið
að hægt sé að draga verulega úr lík-
um á því að snjóflóð falli að íþrótta-
húsinu, sundlauginni og grunnskól-
anum. Kristján sagði að sveitarstjórn
teldi ekki ráðlegt að hefja kennslu í
grunnskólánum við núverandi að-
stæður og þess vegna myndi kennsla
fara fram í bráðabirgðahúsnæði
næstu vikurnar.
Varnar-
garðar
Fyrir voru tveir aðskildir
varnargarðar, um 6 m háir
og keila á milli þeirra
Varnarkeilur
V. ;: Varnarkeilur
200 m
Akveðið hefur verið að tengja
garðana saman, hækka þá í
11 -12 m og lengja í báðar áttir,
en þó meira til austurs
FLATEYRI
Vinnubúðir frá
Blönduvirkiun
Flateyri, Morgunblaðið.
AKVEÐIÐ hefur verið að vinnubúð-
ir, sem eru í eigu Landsvirkjunar
og staðsettar við Blönduvirkjun,
verði fluttar til Flateyrar. Verið er
að kanna hvernig best er að flytja
þær frá Blöndu. Ekki er ljóst hvenær
þær koma til Flateyrar.
I vinnubúðunum eru íbúðir fyrir
um 30 manns. Fyrirhugað er að stað-
setja þær niðri á eyrinni, í grennd
við verbúðir sem þar eru.
Að sögn Kristjáns Jóhannessonar,
sveitarstjóra á Flateyri, er búið að
festa kaup á þremur sumarbústöð-
um. Horfur væru á að a.m.k. tveir
til viðbótar yrðu keyptir á næst-
unni. Viðgerð á gömlu húsnæði, sem
ekki hefur verið búið í, væri að hefj-
ast. Mjög fljótlega yrðu þijár þess-
ara íbúða tilbúnar.
Húsnæðisþörfin er óljós
Kristján sagði að mjög óljóst væri
hve þörfin fyrir húsnæði á Flateyri
yrði mikil í vetur. Mjög margir væru
í Reykjavík að fylgja til grafar þeim
sem fórust í snjóflóðinu. Margir
væru ekki í neinu ástandi til að taka
ákvarðanir um framtíðina. Ekki yrði
þrýst á þá um svör. Kristján sagðist
gera ráð fyrir að eftir helgina færi
að skýrast hve margir ætluðu sér
að búa áfram á Flateyri.
Kristján sagði að nokkrir hefðu
haft samband við sig og tilkynnt' að
þeir ætluðu ekki að búa á Flateyri í
vetur. Allt þetta fólk ætlaði sér að
setjast að á höfuðborgarsvæðinu, en
ekki í öðrum byggðarlögum á Vest-
fjörðum. Hann sagðist ekki vita hvort
þetta fólk myndi koma aftur þegar
voraði, enda efaðist hann um að end-
anleg ákvörðun lægi fyrir.
Sundlaugin á Flateyri verður opn-
uð í dag. Engin endanleg ákvörðun
hefur verið tekin um framtíð grunn-
skólans, en þó bendir allt til að skól-
inn verði fluttur í húsnæði sitt við
Tjarnargötu. Kristján sagði hins veg-
ar miklum erfiðleikum bundið að
leysa húsnæðismál leikskólans. Ekki
yrði hægt að starfrækja skólann til
langframa í því bráðabirgðahúsnæði
sem hann er í. Eins ætti eftir að leysa
húsnæðisvanda læknisins, en læknis-
bústaðurinn skemmdist í flóðinu.