Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Neyðarmatur hefur hækkað um 30% vegna GATT Söluaðil- inn borg- ar með matnum , SEGLAGERÐIN Ægir, sem m.a. selur búnað og matvöru fyrir ferðamenn og björgunar- sveitarmenn, veitir 50% afslátt af verði svokallaðra neyðar- máltíða. Oli Barðdal verslunarstjóri segir að afslátturinn sé veittur til þess eins að gera vöruna seljanlega. -Vörugjald hafi hækkað um 30% við gildistöku GATT-samningsins. Hann segir að Seglagerðin Ægir borgi með neyðarmáltíðunum sem hún sel- ur. „Ástæðan var ósköp einföld, máltíðín var orðin svo dýr. Það eru mjög háar álögur á þessa vöru,“ sagði Óli. Hann segir að þeir sem helst kaupi þessa vöru séu björgunar- sveitarmenn. Máltíðin er blanda af þurrkuðu grænmeti, pasta og kjöti en kjötið er þó aldrei meira en 20% af innihaldinu. Mikil þörf fyrir þessa vöru „Þetta er þurrkað, pakkað í loftþéttar umbúðir og mjög létt. 50 gramma skammtur kostar um 400-700 krónur með 50% afslætti. Án hans kostaði mál- tíðin allt að 1.400 kr. sem er alltof hátt verð því þetta er að- eins ein máltíð,“ sagði Óli. Óli sagði að mikil þörf væri fyrir þessa vöru og því myndi Seglagerðin halda áfram að selja matinn með 50% afslætti. „Við höfum ekkert upp úr þessu og það er alveg ljóst að við borgum með þessu. En við telj- um nauðsynlegt að geta boðið þessa vöru til þess að geta stað- ið undir því að bjóða allt til úti- vistar. Þessi vara er ekki til sölu í venjulegum matvöruversl- unum,“ sagði Óli. Reglur um und- irmáls fisk í endurskoðun Þingmenn fullyrða að reglurnar hvetji til úrkasts VERIÐ er að endurskoða reglur um löndun undinnálsfísks en slíkur fískur reiknast nú allur til aflamarks. Full- yrt var á Alþingi í gær að núgildandi reglur hvettu til þess að undirmáls- físki væri hent í sjóinn. Fjórir þingmenn Framsóknar- flokksins iögðu fram fyrirspurn til Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráð- herra hvort hann væri reiðubúinn til að beita sér fyrir endurskoðun á regl- um um löndun undirmálsfísks. Einn þeirra, Hjálmar Árnason, sagði mörg rök fyrir því að breyta reglunum. Hann nefndi þrennt. I fyrsta lagi að almælt væri meðal sjó- manna að miklu væri hent af undir- málsfiski vegna þessara reglna. í öðru lagi væri það einn af veikustu hlekkj- um fiskveiðistjómunarkerfísins að sjómenn með takmarkaðar aflaheim- ildir neyddust til þess að henda afla í sjóinn til að geta flutt verðmætari afla í land. í því sambandi hefðu heyrst tölur um að 50-60 tonnum væri hent. Ef 15 þúsund tonn af þess- um físki næðust á land væri þar um 2 milljarða verðmæti að ræða. Loks benti Hjáimar á að, að það hlyti að hafa áhrif á stofnmælingar Hafrannsóknastofnunar þegar afli skipa skilaði sér ekki allur á land. Misnotkun reglna Þorsteinn Pálsson sagði að 1984-86 hefði allur smáfískur verið utan afla- marks. Þá hefðu verið brögð að því að skip legðust í smáfísk. Ekki hafí verið hægt að búa við það og því ákveðið 1987 að allur smáfískur yrði talinn í kvóta. Þá hafí smáfískur sem barst á land minnkað verulega. Því hafí þótt ljóst, að reglur um smáfísk yrðu að vera þannig úr garði gerðar, að þær hvettu hvorki til úrkasts né sóknar í smáfísk. Niðurstaðan varð sú að heimila að 2/3 smáfísks yrðu ekki reiknaðir til aflamarks. Þetta gilti frá 1988 til febrúar á þessu ári og síðan hefur allur fískur reiknast til aflamarks. Þorsteinn sagði þessa ákvörðun hafa verið tekna á grundvelli tillögu frá sérstakri samstarfsnefnd sjó- manna, útvegsmanna, og ráðuneyt- isins sem fjallaði um umgengni um auðlindir sjávar. Rökstuðningur til- lögunnar var sá, að 2/3-reglan hefði verið misnotuð: athuganir hefðu sýnt að stór hluti af físki, sem landað var sem undirmálsfíski, stæðist mál, þ.e. stærð hans væri yfír viðmiðunarmörk- um um smáfisk , og því hefði í raun verið um sjálftöku á kvóta að ræða. Endurskoðun í gangi Þorsteinn sagðist hafa óskað eftir því í sumar, að nefndin tæki tillögur sínar til endurmats. Hann 'sagðist vænta þess að endurskoðun nefndar- innar á undirmálsreglunni lægi fyrir ekki síðar en um áramót. Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagðist telja að breytingin í vetur á undirmálsreglunni. væri mistök sem ykju freistinguna til að kasta físki í sjóinn. Ágúst Einarsson þingmaður Þjóð- vaka vakti athygli á tillögu frá flokki sínum um að undirmálsfískur kæmi að landi utan kvóta, yrði seldur á mörkuðum og andvirðið, að frádregn- um kostriaði útgerða og sjómanna, rynni til málefna sjávarútvegsins. Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðis- flokks tók undir þessa tillögu. Kröfu um upptöku ólög- ávinnings vísað frá Forsvarsmönnum peningakeðju refs- að með 150 þús. kr. sekt Vantar strax - ákveðnir kaupendur Einbýli/parhús, 12—18 millj. í Smáíbúðahverfi, Fossvogi, Gerðum, Leitum, Hlíðum, Kleppsholti eða nágr. Sérbýli 10—15 millj. í Vesturbæ, Miðbæ, Hlíðum, Leitum eða Smáíbúðahverfi. 2ja-3ja herb. 5—7 millj. fyrir fjársterk félagasamtök utan af landi. Valhöll, Mörkín 3, ^ 588-4477. mæts HÆSTIÉTTUR hefur vísað frá dómi kröfu ákæruvaldsins um að forsvarsmenn peningakeðjunnar Auðbjargar verði látnir sæta upp- töku ólöglegs ávinnings af starf- seminni. Héraðsdómur hafði dæmt mennina tvo til að sæta upptöku á 3 milljóna króna ólöglegum ávinn- ingi. Hins vegar staðfesti Hæsti- réttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu mannanna vegna starf- seminnar og dóm um að þeim verði gert að greiða 150 þúsund króna sekt fyrir brot á lögum um opinber- ar fjársafnanir. Samkvæmt lögum um opinberar fjársafnanir er fjársöfnun með keðjubréfum ólögleg. Héraðsdómur dæmdi í febrúar mennina fyrir að hafa gerst brotlegir við þau ákvæði. Starfsemi þeirra stóð frá janúar á síðasta ári og til 1. mars er RLR stöðvaði starfsemina við húsleit. Mennirnir höfðu skráð sérstakt félag, Landsmálafélagið, og hafist handa um ijársöfnun með keðju- bréfum í húsnæði sem tekið var á leigu undir félagið. Mennirnir settu eigin nöfn efst fjögurra nafna til viðtöku væntan- legra greiðslna og héldu síðan utan um starfsemina. Þeir kváðust hafa haft 30-60 þúsund króna hagnað af þátttöku í keðjunni, áem þeir sögðu hafa verið leik, auk þátttökugjaldanna. Héraðsdómur byggði á því að hagnaður þeirra hefði alls numið 3 millj. króna og gerði þeim að þola uþptöku á þeirri fjárhæð þar sem um ólögmætan ávinning væri að ræða. Við áfrýjun málsins gerði annar mannanna kröfu um að hafnað yrði kröfu um uppöku ólögmæts ávinnings. í dómi Hæstaréttar seg- ir að rannsókn málsins hafi meðal annars beinst að því að leiða í ljós hve mikið mennirnir hafi hagnast. Ekki verði talið að það hafi verið gert með viðhlítandi hætti í þeirri lögreglurannsókn sem fram fór í kjölfar þess að starfsemin var stöðvuð og ekki hafi tekist að varpa skýrara ljósi á þann þátt málsins við skýrslutökur fyrir dómi. Við framhaldsrannsókn málsins hafi ekki verið gætt ákvæðis laga um meðferð opinberra mála um að veijanda skuli gefið færi á að fylgj- ast með framvindu rannsóknar að svo miklu leyti sem kostur er. Af þeim sökum verði nýleg skýrsla RLR þar sem fram kemur hvernig niðurstaða um 3 milljóna króna hagnað af þátttökugjöldunum er fengin ekki lögð til grundvallar dómi um kröfu um upptöku ólög- mæts ávinnings. Því verði að teja þennan þátt málsins svo vanreifað- an að vísa beri upptökukröfunni frá dómi. Hagamelur - Rvík - 3ja Nýkomin í einkasölu mjög björt og falleg ca 85 fm lítið niðurgrafin endaíbúð í góðu húsi þessum vinsæla stað í vesturbænum. Sérinngangur. Mikið endurnýjuð eign. Verð 6,5 millj. Hringbraut - Hfj. - 3ja m. bflskúr Nýkomin í einkasölu 91 fm jarðhæð í góðu þríbýli auk 26 fm bílskúrs. Eignin að mestu í upphaflegu standi. Sérinngangur. Verð 6,5 millj. Upplýsingar gefur: Hraunhamar, fasteignasala, sími 565 4511. Sjálfræðisaldur hækki í 18 ár HVATT var til þess á Alþingi í gær að sjálfræðisaldur yrði hækkaður úr 16 í 18 ár. Guðný Guðbjörnsdóttir þingmaður Kvennalistans sagði þar að fyliilega tímabært væri að íslendingar miðuðu við 18 ár eins og aðrar þjóðir í kringum þá. Hún sagði að sjálfræðisaldur hefði ekki breyst hér á landi síðan 1281 þegar Jónsbók var lögtekin og þeim aldri hefði verið haldið þegar lög voru sett á þessari öld, síð- ast 1985. Á miðöldum hefði sjálfræðisaldur á Norðurlönd- unum verið hækkaður úr 12 í 25 ár en hefði síðan Iækk- að smátt og smátt og væri nú Í8 ár. Þá vitnaði Guðný í bamasáttmála Sameinuðu þjóð- anna, sem íslendingar hefðu fullgilt, en þar segði í 1. grein að böm væru allt'fólk innan 18 ára. Guðný sagði að þótt ungt fólk teldi að það missti rétt- indi við hækkun sjálfræðisaidurs mætti benda á, að um leið myndi réttur þess aukast, þar sem ábyrgð foreldra ykist. Hækkun forræðisaldurs væri viðurkenning á þjóðfé- íagsbreytingum og ábyrgð foreldra yrði skýrari. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra sagði að nefnd sem fjallað hefði um hvort hækka ætti sjálfræðisaldur hefði enn ekki mótað endanlega afstöðu sína til málsins en skiptar skoðanir hefðu verið innan nefndarinnar. Þor- steinn sagði að ákvörðun dómsmálaráðuneytisins í þessu máli biði þar til nefndin hefði kynnt niðurstöður sínar. Þorsteinn sagði að ýmsir þeir sem mæltu með hækkun lögræðisaldurs virtust byggja þá skoðun sína á vanda til- tölulega fárra einstaklinga. En frá sínum bæjardyrum séð yrði að horfa á málið út frá hagsmunum allra unglinga þegar afstaða yrði tekin. - í > I > i I I I I b I . I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.