Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.11.1995, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Engar upptökur og yfirheyrendur mundu ekki málsatvik Afi sýknaður vegna skorts á sönnunum HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur sýknað 63 ára mann af ákæru um kynferðislega misnotkun á dótt- urdóttur sinni. I niðurstöðu dómsins er vikið að rannsókn málsins og sagt, að eina haldbæra sönnunar- gagnið sé ítarleg lögregluskýrsla, sem tekin var af telpunni þegar hún kærði, um mitt ár 1993. Rannsókn- arlögreglumaður muni ekki eftir skýrslutöku, eða hvernig yfirheyrsl- an hafi gengið fyrir sig og það eigi einnig við um starfskonu Stíga- móta, sem var viðstödd skýrslutök- una. Ekki njóti við myndbandsupp- töku, þar sem sérfræðingur yfir- heyrir barnið strax í upphafi og reynir að komast að því hvað raun- verulega gerðist. Telpan kærði afa sinn fyrir kyn- ferðislega misnotkun, sem hún sagði hafa átt sér stað á árunum 1988-1991, þegar hún var 6-9 ára. í ákærunni voru tilgreind sjö skipti, þar sem maðurinn hefði haft kyn- ferðismök við dótturdóttur sína. Akæran var byggð á ítarlegri skýrslu, sem tekin var af telpunni hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins; þar sem hún lýsti hveiju tilviki. I skýrslunni kom meðal annars fram, að hún hefði viljað segja mömmu sinni frá, en ekki þorað það. Afi hennar hafði sagt henni að það sem hann hefði gert væri leyndarmál þeirra, en svona gerðu allir afar. Þegar telpan, sem nú er orðin 13 ára, kom fyrir dóminn, kvaðst hún hafa reynt að gleyma sem mestu af því sem gerðist og mundi atburði ekki jafnvel og frá var greint í lögregluskýrslu og gat ekki greint frá hveiju einstöku skipti. Atburðimir rynnu saman í minning- unni. í skýrslu sálfræðings kom fram, að ekkert hefði komið fram, sem benti til þess að stúlkan segði ósatt um áreitið eða að um ímyndun væri að ræða. Hins végar vann sálfræðingurinn út frá tilfinninga- legum erfiðleikum stúlkunnar, en ekki var gengið eftir hvað hefði nákvæmlega gerst. Rannsóknarlögreglumaður, sem skráði skýrslu telpunnar, mundi ekkert frá þeirri yfirheyrslu og sama er að segja um þroskaþjálfa, sem starfaði hjá Stígamótum og fór með telpuna í skýrsiutökuna. Trúverðugur framburður en ekki næg sönnunargögn í niðurstöðu Héraðsdóms segir að framburður stúlkunnar fyrir dómi sé nokkuð óljós og ónákvæm- ur, hún hafi ekki verið yfirheyrð af sérfræðingi strax og málið kom upp, myndbandsupptaka af slíkri yfirheyrslu sé ekki til og eina hald- bæra sönnunargagnið sé lögreglu- skýrslan. Yfirheyrandi muni hins vegar ekki eftir skýrslutökunni, né starfskona Stígamóta. Þó að fram- burður stúlkunnar sé nokkuð trú- verðugur og sálfræðingur telji hann réttan þyki ekki komin fram nægi- leg sönnun til sakfellingar, gegn eindreginni neitun ákærða. Beri því að sýkna hann. • • Onnur Hugvís-keppnin að hefjast í framhaldsskólum 18.000 Islendingnm stend- ur til boða að vera með ÍSLENSKUM framhaldsskólanem- um á aldrinum 15 til 20 ára stend- ur til boða að taka þátt í evrópskri samkeppni ungra vísindamanna, European Union Contest for Young Scientists, í annað sinn. Samkeppn- in er hluti af mannauðsáætlun Evr- ópusambandsins. íslendingar til- heyra áætluninni með samningnum um EES. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu er keppnin einn þáttur í vaxandi samvinnu skóla og atvinnu- lífs í Evrópu. Keppnin er kynnt í skólum þessa dagana. Alls geta 18.000 ungir íslendingar tekið þátt í henni. Miðað er við að í tillögunum felist nýjungar eða uppfinningar á sviði vísinda eð_a tækni. Keppnin á íslandi, Hugvísir - hugmyndasamkeppni ungs fólks í vísindum og tækni, er haldin af ÍSAGA hf., menntamálaráðuneyt- inu og Fræðsluskrifstofu Reykja- víkur í samvinnu við fagfélög á sviði vísinda og tækni. ÍSAGA hf. Hluti af mann- auðsáætlun Evr- ópusambandsins veitir þátttakendum styrk fyrir efn- iskostnaði og leggur fram 200.000 kr. í verðlaunafé. Menntamálaráðu- neyti styður keppnina einnig með fjárframlögum. Niðurstaða dóm- nefndarinnar verður kynnt í vor. Vestmannaeyingar í þriðja sæti í ár í keppninni í ár hlutu nemendur úr Framhaldsskólanum í Vest- mannaeyjum 1. og 2. verðlaun og nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík 3. verðlaun. Vestmanna- eyingarnir, sem fengu 1. verðlaun í innlendu samkeppninni, bættu svo um betur með því að hafna í 3. sæti í Evrópukeppninni í Newcastle á Englandi síðasta mánuði. Þá hefur vinningshafa úr Hugvísi verið boðin þátttaka í alþjóðlegri vísindakeppni í Bandaríkjunum og fara fulltrúar frá íslandi til Arizona í maí á næsta ári. Formaður dómnefndar er pró- fessor Sigmundur Guðbjarnarson, Vísindafélagi íslendinga. Aðrir dómnefndarmenn eru Geir Þórarinn Zoéga; tæknilegur framkvæmda- stjóri ISAGA hf., dr. Kristinn And- ersen, Verkfræðingafélagi íslands, dr. Grétar ívarsson, Jarðfræðifélagi íslands, Páll Theódórsson, Eðlis- fræðifélagi íslands, dr. Guðmundur Eggertsson, Samtökum líffræði- kennara, Ingólfur Örn Þorbjörns- son, Iðntæknistofnun, dr. Þorsteinn I. Sigfússon, HCM, Háskóla ís- lands, og Guðrún Þórisdóttir, Ný- sköpunarkeppni grunnskóla, sem nú er ritari dómnefndar. Umsjónarmenn keppninnar eru Björn Búi Jónsson, kennari í MR, og Páll Marvin Jónsson, forstöðu- maður Rannsóknasetursins í Vest- mannaeyjum. Samhugur Leggöu þilt af mörkum inn á bankarcikning nr. 1183-26-800 í Sparisjóði Önundarljarðar á Fiateyri. LANDSSÖFNUN Hacp cr að legj'ja íim á rcikninginn í ðllum hönkuni. sparisjóóum og póstiiiísuin á landinu. V t Ci N A NÁTTÚ RUHAMFARA AlJir fjölmiðlar huuisins, Póstur og sími, A FLATEYRI IJjálparstoínun kirkjunnar oi« Kauái kross íslands. Afkoma lífeyrissjóðanna 1991-94 Upplýsingar úr skýrslum Seðlabankans jí • Stærðar- , V röðun Lífeyrissjóður H ft # SÍÓða Meðaltal raunáv. m.v. I.vísit. 1991-94 Frádr. v. kostn. (meðalt. 1991-94) Meðaltal hreinnar * ávöxtunar 1991-94 Lífeyrissjóðurinn Hlíf 26. 8,72% -0,63% 8,09% Eftirl.sj. starfsm. Olíuv. ísl. 37. 8,32% -0,30% 8,02% Alm. lífeyrissj. iðnaðarmanna 27. 8,24% -0,28% 7,96% Lífeyrissjóður verkstjóra 21. . 8,17% -0,26% 7,91% Lífeyrissjóður matreiðslumanna 32. 8,07% -0,32% 7,75% Lífeyrissjóður sjómanna 2. 7,42% -0,22% 7,64% Lífeyrissjóður Sóknar 15. 7,86% -0,26% 7,60% Lífeyrissjóður K.E.A. 24. 7,68% -0,10% 7,58% Eftirl.sj. Fél. ísl. atvinnuflugm. 17. 7,68% -0,22% 7,46% Sameinaði lífeyrissjóðurinn 3. 7,62% -0,35% 7,27% Lífeyrissjóður lækna 14. 7,47% -0,21% 7,26% Eftirl.sj. slökkviliðsm. á Keflav.v. 34. 7,36% -0,11% 7,25% L. Dagsbrúnar og Framsóknar 4. 7,54% -0,35% 7,19% Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 19. 7,49% -0,30% 7,19% Lífeyrissjóður Norðurlands 6. 7,49% -0,30% 7,19% Lífeyrissjóður Vestfirðinga 10. 7,55% -0,37% 7,18% L. Flugvirkjafélags íslands 28. 7,60% -0,43% 7,17% Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 5. 7,31 % -0,20%. 7,11% Lífeyrissj. rafiðnaðarmanna 11. 7,40% -0,32% 7,08% Lífeyrissjóður Suðurnesja 12. 7,34% -0,38% 6,96% Lífeyrissj. framreiðslumanna 39. 7,69% -0,73% 6,96% Lífeyrissjóður blaðamanna 35. 7,20% -0,28% 6,92% Lífeyrissj. Vestmannaeyinga 13. 7,31% -0,42% 6,89% L. verkalýðsfélaga á Norðurl.v. 25. 7,34% -0,59% 6,75% Lífeyrissj. bókagerðarmanna 22. 7,14% -0,41% 6,73% Lífeyrissjóður múrara 31. 7,14% -0,44% 6,70% L. verkalýðsfélaga á Suðurlandi 23. 7,20% -0,50% 6,70% Lífeyrissjóður verslunarmanna 1. 6,84% -0,16% 6,68% Lífeyrissjóður bænda 8. 6,98% -0,31% 6,67% Lífeyrissjóður Vesturlands 18. 7,25% -0,63% 6,62% L. Hlífar og Framtíðarinnar 20. 6,86% -0,38% 6,48% L. Mjólkursamsölunnar 36. 6,94% -0,47% 6,47% Lífeyrissjóður Austurlands 9. 7,03% -0,70% 6,33% Lífeyrissjóður Bolungarvíkur 29. 6,95% -0,78% 6,17% L. F. starfsfólks í veitingah. 30. 6,95% -1,24% 5,71% Lífeyrissjóður Rangæinga 33. 6,32% -0,74% 5,58% Lífeyrissj. Félags garðyrkjumanna 40. 6,81% -1,25% 5,56% Samvinnulífeyrissjóðurinn 7. 5,79% -0,28% 5,51% L. byggingariðnaðarm. í Hafnarfirði 38. 6,07% -0,63% 5,44% Lífeyrissjóður Verkfræðifélag ísl. 16. 5,72% -0,54% 5,18% • Ávöxtun umfram lánskjaravísitölu MEÐALTAL; 7,30% -0,44% 6,86% Heimild: VSFÍ-FRÉWR, fréttablað Vélstjórafélags islands Lífeyrissjóðurinn Hlíf með besta raunávöxtun 1991-94 Tillaga um að helmingur eigna sjóðsins mætti vera í erlendum myntum var felld LÍFEYRISSJÓÐURINN Hlíf, sem er lífeyrissjóður sem vélstjórar, skipstjórar og stýrimenn eiga aðild að, náði bestum rekstrarárangri allra lífeyrissjóða á árabilinu 1991-94, að því er fram kemur í VSFÍ fréttum sem er fréttablað Vélstjórafélags íslands. Meðaltal hreinnar ávöxtunnar umfram láns- kjaravísitölu á fyrrgreindu árabili var 8,09%, en byggt er á upplýsing- um úr skýrsium bankaeftirlits Seðlabankans um lífeyrissjóði. Samkvæmt samantektinni er Eftirlaunasjóður OLÍS næstur í röðinni hvað hreina raunávöxtun, þ.e. ávöxtun þegar kostanður hefur verið dregin frá, varðar á þessu árabili, en ávöxtun þess sjóðs var að meðaltali 8,02%. Atta sjóðir eru með hreina ávöxtun yfir 7,50% að meðaltali á þessum árum, þeirra á meðal Lífeyrissjóður Sóknar, sem var með 7,60% í hreina ávöxtun. Sameinaði lífeyrissjóðurínn, sem er þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins er með 7,27% að meðaltali í hreina ávöxtun árin 1991-94 og er tíundi í þessari árangursröð, Lífeyrissjóð- ur Dagsbrúnar og Framsóknar er í 13. sæti með 7,19% í hreina ávöxt- un og Lífeyrissjóður verslunar- manna, sem er stærsti lífeyrissjóð- ur landsins er í 28. sæti með 6,68% í hreina ávöxtun að meðaltali árin 1991-94. Ávöxtun iífeyrissjóðsins Hlífar sundurliðast þannig eftir einstök- um árum að árið 1991 var raun- ávöxtun þegar rekstrarkostnaður hefur ekki verið dreginn frá 7,67%, 8,34% árið 1992, 8,95% árið 1993 og 9,93% árið 1994. Frádráttur vegna kostnaðar er 0,63%. Til sam- anburðar var ávöxtun Lífeyrisjóðs verslunarmanna árið 1991 6,28%, 7,20% árið 1992, 6,83% árið 1993 og 7,03% árið 1994. Frádráttur vegna reksturskostnaðar er 0,16%. I fréttabréfínu kemur fram að meginskýringin á góðri ávöxtun sjóðsins að undanförnu hafi verið söluhagnaður vegna sölu verðbréfa í kjölfar vaxtalækkunarinnar sem varð haustið 1993. Jafnframt hafi þótt hagkvæmt að fjárfesta í ís- lenskum ríkisskuldabréfum í er- lendum myntum og þegar árið 1994 hafi verið gert upp hafi hlut- fall eigna sjóðsins í erlendum mynt- um verið um 39%. Á aðalfundi sjóðsins sem haldinn var um síð- ustu mánaðamót, lá meðal annars fyrir tillaga um breytingar á fjár- festingarheimildum sjóðsins, þar sem óskað var eftir að allt að 50% af eignum sjóðsins mættu vera í erlendum myntum, þar af 25% í erlendum hlutabréfum. Á aðalfund- inum kom fram breytingartillaga við þessa tillögu stjórnar þess efnis að 30% af eignum mættu vera í erlendum myntum og 10% í erlend- um hlutabréfum og var breytingar- tillagan samþykkt. í grein Valdi- mars Tómassonar, framkvæmda- stjóra sjósðins í fréttabréfinu segir að þessi breytingartillaga skerði ávöxtunarmörguleika sjóðsins um 10-20 milljónir króna á ári og þessi mál þarfnist því greinilega frekari kynningar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.