Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ung list eins og
hún leggur sig
TONLIST
Langholtskirkja
KÓRSÖNGUR
Kórar framhaldsskólanna sungn
íslensk og erlend kórlög.
Laugardagurinn 28. október 1995.
ÞAÐ ER ekki ýkja langt síðan
að kórsöngur var almennt ekki á
dagskrá í starfsemi framhaldskól-
anna og jafnvel ekki í bamaskól-
unum og þessi merkilegi uppeldis-
þáttur jafnvel ekki viðurkenndur
til launa. Kórstarfsemi í skólum
hefur því að mestu orðið að styðj-
ast við velvild skólastjóranna og
ýmsar sögur eru af því, hvernig
tekist hefur að fínna launaða tíma
til að greiða kórstjórum eða að
reikna þessa starfsemi inn í
kennsluskyldu tónlistarkennara.
Við íslendingar búum að miklu
leyti við þá hugmyndafræði á sviði
tónlistarkennslu, að hún tilheyri
ekki venjulegu námi. Tónlist skal
kennd frá A-Ó í sérstökum tónlist-
arskólum, sem reknir eru af einka-
aðilum, félagasamtökum og í besta
falli af bæjarfélögum, er njóta eins
konar menningar-sníkju-styrkja
af ríkinu. Nýjasta dæmið um að
listmenntun tilheyrir ekki hinni
almennu menntun landsmanna er
hugmyndin að einkavæðingu lista-
háskólans og þá ekki síður sú
ákvörðun háskólaráðs Háskóla ís-
lands að hafna þeirri málaleitan,
að stofnuð yrði listadeild innan
HÍ, sem lýsir fáheyrðri skamm-
sýni. Það eru fáir háskólar erlend-
is, sem ekki státa af listnámi alls
konar og ef HÍ ætlar sér stóran
hlut við hlið erlendra menntastofn-
ana, hefði öflug listadeild hugsan-
lega orðið góð andlitslyfting fyrir
þessa annars listsnauðu stofnun.
Þrátt fyrir, vel að merkja, „þrátt
fyrir“ afturhaldssemi skólayfír-
valda hefur tónlistariðkun aukist
mjög mikið og nú þykir það fínt
að bjóða upp á góðan söng, svona
til hátíðabrigða. Einn þáttur
menntunar og mikilvægur er
starfsögun og góður kór byggist
á margþættri ögun. Söngur hefur
áhrif á taltækni manna og einnig
er fengist við bókmenntir og er-
lend 'tungumál. Þá er samvirk
hegðun, túlkun, skilningur á ýms-,
um stíltegundum og tilfinningaleg
upplifun í flutningi fagurra tón-
verka mikilvægir þættir í uppeldi,
en öll umfjöllun á list snertir auk
þess einn af merkari þáttum
mannkynssögunnar.
Þeir skólar sem stóðu að söng-
móti framhaldsskólanna í landinu,
undir yfirskriftinni „Ung list eins
og hún leggur sig“, voru 5
menntaskólar, 5 fjölbrautaskólar,
auk Kvennaskólans og Verslunar-
skóla íslands, svo og sönghópur
er kennir sig við Laufeyju Einars-
dóttur. Margur kórinn söng mjög
fallega. Selfyssingar sungu
skemmtilega raddsetningu Jónas-
ar Tómassonar á þjóðlaginu Ber-
höfðaður burt ég fer, undir stjórn
Jóns Inga Sigurmundssonar. Kór
Menntaskólans á Laugarvatni hóf
tónleikana með gömlu frönsku lagi
og söng auk þess Haustvísur til
Maríu eftir Atla Heimi Sveinsson,
undir stjórn Hilmars Arnar Agn-
arssonar.
Fjölbraut í Breiðholti og Suður-
nesjum stóðu saman að flutningi
á laginu Ég leitaði blárra blóma
eftir Gylfa Þ. Gíslason, en báðum
kórunum stýrði Guðfínna Dóra
Ólafsdóttir. Kvennaskólakórinn,
undir stjórn Sigurðar Bragasonar,
söng Hjá lyngri móðu og kór
Menntaskólans við Sund, undir
stjóm Áslaugar Bersteinsdóttur,
söng Við svala lind, madrígalann
fallega eftir Atla Heimi Sveinsson.
Kór Verzlunarskólans gerði mikla
„lukku“ með gamansömu lagi,
Bjamastaðabeljunum, í raddsetn-
ingu kórstjórans, Þorvaldar B.
Þorvaldssonar. Kór Menntaskól-
ans í Reykjavík ásamt sönghóp
Laufeyjar Einarsdóttur, undir
stjórn Marteins H. Friðrikssonar,
söng Come again, eftir John Dow-
land. Kór Menntaskólans í Hamra-
hlíð, undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur, flutti fjögur lög, Hald-
iðún Gróa, eftir Gunnar Reyni
Sveinsson; Sorg og gleði, fallega
þjóðlagaraddsetningu eftir Jór-
unni Viðar; Alta Trinita og víxl-
söngvaverkið Duo Seraphim eftir
Jakob Handl.
Það var fróðlegt að heyra kór-
ana, sem voru um margt mjög
ólíkir, bæði er varðar söngstíl,
fjölda söngvara og val viðfangs-
efna, er spönnuðu frá dægurlögum
til stærri tónverka, sem mörg hver
voru sérlega vel sungin. Tónleik-
amir hófust með samsöng allra
kóranna og var fyrsta viðfangs-
efnið Yfir vom ættarlandi eftir
Sigfús Einarsson, sem Þorgerður
Ingólfsdóttir stjórnáði. Jón Ingi
Sigurmundsson stjórnaði svo
Sumri hallar, íslensku þjóðlagi í
raddsetningu Róberts A. Ottósson-
ar. Tónleikarnir enduðu svo á sam-
söng allra og var fyrra lagið Hvert
örstutt spor eftir Jón Nordal, sem
Áslaug Bersteinsdóttir stjórnaði,
en einsöngvari var Magnea Gunn-
arsdóttir. Lokaviðfangsefni kór-
anna var Úr útsæ rísa íslandsfjöll
eftir Pál ísólfsson og stjórnaði
Hilmar Örn Agnarsson þessum
glæsilega söng unga söngfólksins
en undirleikari var Gróa Hreins-
dóttir.
Þetta vom um margt glæsilegir
tónleikar, söngfólkinu unga til
mikils sóma og órækur vitnisburð-
ur um að allt er á góðri leið á
sviði kórsöngs, þrátt fyrir allt...
Jón Ásgeirsson
Tónlistardagar Dómkirkjunnar hefjast á laugardag
DÓMKIRKJUKÓRINN flytur tvö verk eftir Joh. Seb.
Bach ásamt kammerhljómsveit og einsöngvurum.
Jórunni Viðar og
Bach ber hæst
Á UNDANFÖRNUM ámm hefur
tónlistarstarf Dómkirkjunnar náð
hámarki með Tónlistardögum sem
haldnir era á hveiju hausti. Hefur
verið boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá með tónlist frá ýmsum tímum
í flutningi innlendra sem erlendra
tónlistarmanna. í ár munu Tónlist-
ardagar standa frá 4. til 12.
nóvember. Fram kemur fjöldi lista-
manna en stærstu viðburðimir em
án efa framflutningur á kórverki
eftir Jórunni Viðar, tónskáld, og
kórtónleikar í Landakotskirkju
undir stjóm prófessors Hans-
Joachim Rotzsch frá Leipzig í
Þýskalandi þar sem flutt verða tvö
verk eftir Johann Sebastian Bach.
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
era nú haldnir í fjórtánda sinn en
á hveiju ári hefur Dómkórinn
fengið íslenskt eða erlent tónskáld
til að semja nýtt tónverk til frum-
flutnings á Tónlistardögum. Mar-
teinn H. Friðriksson, dómorgan-
isti, sagði í samtali við blaðamann
að með þessu hefði kórinn stuðlað
að nauðsynlegri nýsköpun á sviði
nútímatónlistar. „Þetta hefur verið
tónskáldum hvatning til að semja
Jórunn Hans-Joachim
Viðar Rotzsch
og höfum við til dæmis lagt nokk-
uð af mörkum til þróunar kirkju-
legrar tónlistar með því.“
Hið nýja verk Jórunnar Viðar
er samið við ljóð Halldórs Lax-
ness, Stóð ég við Öxará, og verður
það frumflutt við setningu Tón-
listardaganna, 4. nóvember. Jór-
unn Viðar er fædd í Reykjavík
árið 1918. Tónlistamám hóf hún
hjá móður sinni en lærði síðan hjá
Páli ísólfssyni í nokkur ár. Auk
þess að stunda nám við Tónlistar-
skólann stundaði hún framhalds-
nám í Berlín, New York og Vínar-
borg.
Laugardaginn 11. nóvember
flytur Dómkórinn tvö verk eftir
Johann Sebastian Bach, mótett-
una Jesú, meine Freude og Magn-
ificat. Stjómandi verður einn
kunnasti kórstjóri Evrópu, pró-
fessor Hans- Joachim Rotzsch, en
hann var áður stjórnandi Drengja-
kórs Tómasarkirkjunnar í Leipzig.
Flytjendur auk Dómkórsins verða
kammerhljómsveit undir stjórn
Rutar Ingólfsdóttur og einsöngv-
ararnir Marta G. Halldórsdóttir,
Signý Sæmundsdóttir, Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir, Þorgeir Andr-
ésson og Bergþór Pálsson.
Þriðjudaginn 7. nóvember verða
haldnir orgeltónleikar í Dómkirkj-
unni þar sem Tékkinn Pavel Man-
ásek, organleikari Háteigskirkju
leikur fjölbreytta dagskrá. Sunnu-
daginn 12. nóvember munu svo
húsvísku hjónin, Natalia Chow,
sem er kínverskur sópran, og Helgi
Pétursson, organleikari, halda tón-
leika í Dómkirkjunni þar sem á
efnisskránni verða meðal annars
verk eftir Johann Seb. Bach,
Hándel, Bizet og Sigvalda Kalda-
lóns.
Dansarar á
ferð og flugi
í EINU af fyrstu verkum dans-
höfundarins Pauls Taylors stóðu
tveir dansarar grafkyrrir á sviði
í fimm mínútur áður en annar
þeirra gekk út. Virtur gagnrýn-
andi varð svo reiður að hann
birti tóman dálk þar sem gagn-
rýnin átti að vera. En tímarnir
hafa breyst og gagnrýnendur
hafa skrifað heil ósköp um Tayl-
or sem er einn virtasti danshöf-
undur samtímans en hann starf-
aði m.a. með Merce Cunningham
og Mörthu Graham á sjötta og
sjöunda áratugnum. í verkum
sínum þykir hann flétta á ein-
stæðan hátt saman hina ljóð-
rænu hlið hefðbundins balletts
og styrk og kraft nútimadans.
Taylor og dansflokkur hans
hófu í vikunni um mánaðarlanga
ferð um Evrópu þar sem sýnd
verða verk sem samin eru í anda
sjöunda áratugarins og verk við
tónlist Offenbachs. Sýnt verður
í Edinborg, Chambéry, Nice,
Lyon, Lausanne, Annecy og
Sochaux.
Dans í
Tjarnarbíói
í KVÖLD kl. 21.00 verður haldin
danssýning í Tjarnarbíói. Sýningin
er liður á Unglist ’95, listahátíðar
ungs fólks, sem var frestað í síð-
ustu viku, vegna atburðanna á Flat-
eyri.
Hópar frá Danssmiðjunni, Fim-
leikadeild KR, Djassballettskóla
Báru, Kramhúsinu, Listdansflokki
æskunnar og Verkstæðinu taka
þátt í sýningunni.
AIls taka um 50 manns þátt í
sýningunni. Umsjón með henni hef-
ur Sveinbjörg Þórhallsdóttir, dans-
kennari og kynnir er Gottskálk
Dagur Sigurðsson.