Morgunblaðið - 02.11.1995, Page 34

Morgunblaðið - 02.11.1995, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MORGUN BLAÐIÐ STÖÐ 3 lætur áskrifendum í té örbylgju- loftnet og myndlykil af nýrri gerð. Fjölrása myndlykill MYNDLYKILL Stöðvar 3 er _ mjög frábrugðinn myndlykli Is- lenska útvarpsfélagsins (IU) sem notaður er við móttöku á Stöð 2 og Fjölvarpinu. Lykill Stöðvar 3 getur opnað allt að 32 sjónvarpsrásir samtímis en lykill ÍÚ aðeins eina í einu. Stöð 3 mun í fyrstu senda út fimm mismunandi dagskrár sem lyk- illinn opnar allar um Jeið. Að sögn Þórarins Agústsson- ar, tæknistjóra Stöðvar 3, er lykillinn framleiddur í Flórída og af gerðinni Ultracypher. Þessi lykill er af annarri kynslóð fjölrása lykla og er ísland fyrsta landið í Evrópu þar sem þessi lykill er notaður. Þórarinn segir að tækið sé mjög einfalt að sjá, einungis svartur kassi og tengi fyrir inn- og útgang. Því megi koma fyrir hvar sem er frá loft- neti að sjónvarpi og þarf því ekki að taka pláss í sjónvarps- skáp. Engir stillitakkar eru utan á tækinu eða fjarstýring. „Þessi lykill hleypir í gegnum sig öllum örbylgjurásum og opn- ar þær sem við höfum Iæst,“ sagði Þórarinn. „Hann hleypir víðóma hljóðrásum alla leið að sjónvarpinu um venjulegan loft- netskapal svo ekki þarf að nota svonefnt SCART-tengi í hvert sjónvarp á heimilinu." Að sögn Þórarins verða hinar fimm rásir Stöðvar 3 stilltar inn á móttak- ara hvers sjónvarpstækis og myndbandstækis, svo þegar áhorfandinn vill skipta um rás notar hann fjarstýringu viðkom- andi tækis. I lykli IÚ er sjálfstæður sjón- varpsmóttakari og opnar lykill- inn eina læsta rás í einu. Lykill- inn er tengdur við eina rás á hverju sjónvarpstæki og mynd- bandstæki. Þegar áhorfandinn vill skipta á milli læstra rása Fjölvarpsins og Stöðvar 2 skipt- ir hann um rás á myndlyklinum, en ekki sjónvarpstækinu. Þann- ig er ekki hægt að horfa á nema eina læsta dagskrá með hveijum lykli. Vilji áhorfandinn til dæmis horfa á knattspyrnuleik á Euro- sport og taka upp þátt á Stöð 2, þá er það ekki hægt. Áskrifendur Fjölvarpsins hafa sjálfir þurft að greiða fyrir örbylgjuloftnet og tíðnibreyti. Móttökubúnaðurinn og uppsetn- ing hefur kostað 20-30 þúsund krónur þar sem aðstæður krefj- ast ekki viðamikilla aðgerða. FJÖLMIÐLAR -----------------------{ Hundruð manna vildu 1 fá móttökubúnað STÖÐ 3 auglýsti í gær myndlykla, móttöku- búnað fyrir örbylgju- sendingar og uppsetn- ingu. Þessi búnaður verður afhentur áskrif- endum stöðvannnar án endurgjalds. Örbylgju- sendingar Stöðvar 3 munu ekki nást með þeim loftnetum sem hingað til hafa dugað til mótttöku á VHF eða UHF rásum Sjónvarps- ins, Stöðvar 2, Sýnar og Omega. Sendingar Stöðvar 3 munu nást í höfuðborginni og ná- grenni. Úlfar Steindórsson, sjónvarps- stjóri íslenska sjónvarpsins hf., sem er að opna Stöð 3, segir auglýsing- una í gær fyrst og fremst hafa ver- ið til að kynna þann búnað sem stöð- in ætlar að nota við útsendingar. Honum kom á óvart hve mikil við- brögð auglýsingin vakti og vildu margir fá búnaðinn strax, jafnt þótt ekki væri búið að gefa upp áskriftar- verð eða kynna fullmótaða dagskrá. Mörg hundruð nöfn I gærkvöldi var búið að skrá mörg hundruð nöfn. „Fólk trúir því og treystir að það sé að kaupa gott efni og að það verði ódýrara en hing- að til hefur boðist,“ sagði Úlfar. Örbylgjusviðið var fyrst notað til dreifmg- ar á sjónvarpsefni hér á landi þegar Fjölvarp IÚ var sett á stofn. Dagskrá Stöðvar 3 verður einnig einungis send út á örbylgju- sviði. Dagskrám Sjón- varpsins, Stöðvar 2 og Sýnar er einnig dreift á örbylgju þótt flestir taki við þeim á lægri tíðni (VHF/UHF). Á höfuðborgarsvæðinu dugar því örbylgjuloft- net til að taka við út- sendingum allra sjón- varpsstöðvanna nema Omega. Úlfar segir að Stöð 3 komi í upphafi til með að selja pakka með 5 rásum, endurvarpi íjögurra erlendra gervihnattarása og auk dagskrárrásar Stöðvar 3. Hann leggur áherslu á að myndlykill Stöðvar 3 opni allar þessar rásir samtímis þannig að íjöldi viðtækja í heimilinu ráði því hvað hægt er að njóta margra útsendinga í einu, en ekki myndlykillinn. Reiknað er með að útsendingar hefjist eftir miðjan þennan mánuð. Dagskráin á að byija kl. 17 á daginn og standa til miðnættis og stundum iengur. Úlfar reiknar með að Stöð 3 verði komin með 10 þúsund áskrifendur snemma á næsta ári. Hann segir hreinlega ekki hægt að afgreiða ( allan þennan fjölda á skemmri tíma. Áskriftarverð | auglýst síðar Þegar örbylgjuloftnet Stöðvar 3 eru sett upp er ekkert átt við VHF/UHF sjónvarpsloftnet sem fyrir eru. Úlfar segir það ekki skyn- samlegt, því móttökuskilyrði hinna ýmsu sjónvarpsstöðva séu breytileg á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að nota þau örbylgjuloftnet sem notuð i hafa verið fyrir Fjölvarpið fyrir Stöð 3. En er Stöð 3 ekki að greiða fyr- ir útbreiðslu Fjölvarpsins með því 1 að afhenda örbylgjuloftnetin frítt? „Við erum að bjóða dagskrárrás- ina okkar og svo gervihnattarásir sem eru því sem næst þær sömu og Stöð 2 er að bjóða,“ segir Úlfar. „Þetta auðveldar þeim að selja Fjöl- varpið, því þeim fjölgar sem geta náð því, en áfram verða þeir með myndlykil sem opnar bara eina rás í einu. Hver er tilgangurinn með að vera með margar rásir og tvö til þrjú sjónvörp, ef bara er hægt að horfa á eina rás?“ Úlfar vildi ekkert láta uppi um áskriftarverð og sagði það auglýst síðar. Hann sagði þó að það yrði lægra en áskriftarverð Stöðvar 2, eða innan við 3000 krónur. Þeir sem eiga örbylgjuloftnet fyrir munu ekki njóta afsláttar af áskriftargjaldi Stöðvar 3. Úlfar Steindórsson Fréttasljórar RÚY og deildarstjóri íþróttadeildar um sameiningu Ottast samþjöppun í fj ölmiðlaheiminum Kári Bogi Ingólfur Jónasson Ágústsson Hannesson RÍKISENDURSKOÐUN telur að tímabært sé að sameina fréttatofur hljóðvarps og sjónvarps og íþrótta- deild Ríkisútvarpsins, og beinast liggi við að_ flytja fréttastofu sjón- varpsins í Útvarpshúsið í Efstaleiti og sameina hana innan útvarps. Við það vinnist tvennt, rekstur fréttastof- anna verði hagkvæmari og gæði fréttanna verði að öllum líkindum meiri í ljósi þess að fréttamenn gætu betur en áður sérhæft sig í ákveðnum málaflokkum. Telur Ríkisendurskoðun að í ljósi utanaðkomandi samkeppni sýnist þau rök ekki lengur eiga við að nauð- synlegt sé að fréttastofur Ríkisút- varpsins veiti hvor annarri sam- keppni og aðhald. Þegar fram líða stundir verður að mati Ríkisendur- skoðunar nokkur sparnaður í manna- haldi vegna sameiningar fréttastof- anna, auk spamaðar á borð við síma- kostnað og ferðakostnað, en gera megi ráð fyrir að minnsta kosti 10 til 30 milljóna króna spamaði innan tiltölulega fárra ára. Veikar forsendur Kári Jónasson, fréttastjóri Út- varpsins, segir hugmyndir Ríkisend- urskoðunar ef til vill geta verið ein- hverskonar umræðugrundvöll, en í stjórnsýsluendurskoðuninni væru ákaflega veikar forsendur gefnar bæði peningalega og að öðru leyti. k „Við höfum ekki góða reynsiu af svona. íþróttadeildirnar voru samein- aðar fyrir nokkrum árum, og Útvarp- ið hefur ekki farið vel út úr því. Það er mjög slæmt varðandi það að það eru tveir framkvæmdastjórar yfir viðkomandi deild, þ.e. Útvarps og Sjónvarps, og í skýrslu Ríkisend- urskoðunar er gert ráð fyrir því að > þeir yrðu tveir yfir sameinuðum fréttastofunum. Það er alveg af og frá,“ sagði Kári. „Það sem ég vildi sjá væri fyrst og fremst það að Sjónvarp- ið flytti í Út- varpshúsið. Það er dagvaxandi samvinna hjá fréttastofum Út- varps og Sjón- varps, en við erum í þeirri ein- kennilegu stöðu að við þurfum bæði að vera í samkeppni og vinna saman. Það sem er í skýrslu Ríkisendurskoðunar er mjög lítið grundvallað, en kannski getur þetta orðið til þess að menn fari eitthvað að ræða um þetta. Grundvöllurinn er að Sjónvarpið flytji hingað í Efsta- leitið en það kostar milljarð. Síðan getum við farið að tala um hvernig haga á samvinnu fréttastofanna," sagði Kári. Hann sagðist telja að hér á landi þar sem fjölmiðlar hefðu sífellt verið að þjappast á færri og færri hendur, nú síðast þegar rætt væri um DV og Stöðvar 2 samsteypuna, Morgun- blaðið og aðra samsteypu, þá veitti ekkert af að hafa samkeppni á þessu sviði. „Ég sem gamall maður í faginu horfi aftur á bak, en þá var hérna virk samkeppni margra dagblaða á markaðnum. Nú er nánast engin samkeppni; það er eitt morgunblað sem eitthvað kveður að, og aðeins eitt eftirmiðdagsblað, og útvarps- fréttir á Bylgjunni eru búnar að vera. Okkur veitir ekkert af því að hafa fjölbreytileik, því það er þáttur í Iýð- ræðinu," sagði Kári. Bæði kostir og gallar Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjón- varpsins, segist fagna skýrslu Ríkis- endurskoðunar, sem hann telur geta orðið grundvöll skynsamlegrar um- ræðu um framtíð Ríkisútvarpsins og raunar skipulag og hlutverk fjöl- miðla. Hins vegar sé skýrslan ekki lokaorðið i þeirri umræðu. „Mér virðist stundum gleymast að samvinna Útvarps og Sjónvarps er nú þegar veruleg. Við höfum t.d. sameiginlega fréttaritara víða, sam- einumst um fréttamenn í Kaup- mannahöfn og Briissel, við höfum sameiginlega samninga við erlendar fréttastofur og notum sama tölvu- kerfið. Þá hefur í mörgum tilfellum einn fréttamaður sinnt fréttaöflun fyrir báðar fréttastofurnar, sérstak- lega erlendis. Ef af flutningi Sjón- varps í Útvarpshúsið verður er mögu- legt að auka þessa samvinnu enn með sam- nýtingu tækja og einhvers hluta starfs- fólks, án þess að um eiginlega sameiningu verði að ræða,“ segir Bogi. Hann segir að viðbótar- kostnaður við sameiningu í stað samvinnu verði því ef til vill ekki jafn mikill og menn gætu talið við fyrstu sýn nema að dregið verði úr þjónustu. „Höfuðgalli við sameiningu er að ég tel óráð að fækka sjálfstæðum ljósvakafréttastofum í landinu. Þær eru nú þijár, og fækki þeim tel ég lýðræðislega umræðu í landinu geta liðið fyrir. Nokkur samruni hefur þegar orðið; Stöð 2 og Bylgjan hafa runnið saman, Tíminn og DV eru í samkrulli og Þjóðviljinn er horfinn, þannig að ég held að ekki væri rétt að fækka sjálfstæðum ljósvaka- fréttastofum. Sá sparnaður sem þannig næðist væri of dýru verði keyptur. Svo má spyija þá sem hafa áhyggjur af völdum og áhrifum íjöl- miðla hvort þeir vilji að einn maður ráði svo gríðaröflugum fjölmiðli sem sameinaðar fréttastofur Ríkisút- varpsins yrðu,“ sagði Bogi. Hann segir starfsemi íþróttadeild- arinnar vera svo sértæka að þar sjái hann engan möguleika á sparnaði nema með því að draga úr þjónustu. Mjög góð samvinna væri bæði við fréttastofu Sjónvarps og Útvarps og vinna íþróttafréttamanna myndi vart breytast þó að þeir væru partur af sameinaðri fréttastofu. Ekki á móti umræðu um sameiningu íþróttadeild er sjálfstæð deild inn- an Ríkisútvarpsins og heyrir hún beint undir framkvæmdastjóra Sjón- varps og framkvæmdastjóra Hljóð- varps. Deildin þjónar fréttastofu með íþróttafréttum og Rás 1 og Rás 2 með íþróttalýsingum og þáttum, en það sama á við um starf deildarinnar hjá Sjónvarpi. Ingólfur Hannesson, deildarstjóri íþróttadeildar, segist alls ekkert hafa á móti umræðu um sameiningu fréttastofanna og íþróttadeildar. Deildin hefði ágæta dagskrárlega og tæknilega reynslu af því að vinna yfir landamæri Hljóðvarps og Sjón- varps, en það hamlaði að starfsemin væri á tveimur stöðum. „Hin faglega reynsla er mjög góð hvað varðar íþróttadeildina, og við vjnnum í dag mjög náið með bæði fréttastofu út- varps og fréttastofu Sjónvarps." Ingólfur sagðist telja það slæmt fyrir tjáningarfrelsið að steypa sam- an tveimur öflugustu fréttastofunum og setja íþróttadeildina þar með í eina ritstjórn, og auka þar með á þá samþjöppun sem nú væri að eiga sér stað í íslensku þjóðfélagi hvað varðar frétta- og upplýsingaflæði. „Ég held að það sé ekki sérstak- lega hollt vegna lýðræðisins. Þetta er mín grundvallarskoðun í þessu máli hvað varðar fréttastofurnar, en íþróttadeildin vinnur mjög náið með báðum aðilum og gæti vel hugsað sér að fínna einhvern nýjan flöt á því, og þá með því skilyrði að aðrar breytingar sem Ríkisendurskoðun leggur til myndu fylgja i kjölfarið. Þar á ég við það sem varðar fjárhags- legan grundvöll þessarar stofnunar, stöðu hennar og markmiðssetningar. Ef markmiðið ér hins vegar einvörð- ungu hagræðing þá er ég ekki sann- færður um að hún sé svo mikil," sagði Ingólfur. Hann segir að hjá sjónvarpsstöðv- um á Norðurlöndunum hafi verið reynt að sameina íþróttir, fréttir og dægurmálaefni, en mjög skiptar skoðanir hafi verið um það hvernig til hafi tekist. „Það er spurning hvemig hver efnisflokkur kemur sínu á framfæri í svona stærri deild held- ur en hér er um að ræða.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.