Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 35
.
_______FJÖLMIÐLAR_______
Jafet S. Ólafsson, útvarþsstjóri ÍÚ
Mætum sam-
keppni af krafti
JAFET S. Ólafsson,
útvarpsstjóri íslenska
útvarpsfélagsins hf.,
1 segir að Stöð 2 muni
taka þátt í samkeppni
við Stöð 3 af fullum
krafti, þegar hún
hefst. Það verði ekki
fyrr en dagskrá nýju
stöðvarinnar liggi fyr-
ir.
Ií auglýsingu Stöðv-
ar 3 í gær er nýja fjöl-
rása myndlyklinum
augljóslega teflt gegn
myndlykli Stöðvar 2.
Jafet taldi það ekki
hafa verið vandamál
hjá áhorfendum Stöðv-
ar 2 að myndlykill þeirra opnar
aðeins eina rás í einu. Áskrifendur
Fjölvarpsins séu innan við eitt þús-
und og því ekki deilt um rásirnar
| á mörgum heimilum. Hann bendir
á að myndlykill Stöðvar 3 sé sá
fyrsti sinnar tegundar í heiminum.
„Myndlyklar þurfa að vera full-
komnir. Við íslendingar eigum góða
tæknimenn sem geta brotið upp
lykla, ef þeir eru ekki nógu góðir,"
sagði Jafet.
Dagskrá og þjónusta
NBC Super Channel rásin er nú
ólæst á Fjölvarpinu og því aðgengi-
leg þeim sem fá örbylgjuloftnet hjá
Stöð 3. Jafet sagði
ekki neina ákvörðun
liggja fyrir um hvenær
henni verður læst. Nú
fjölgar þeim um leið
sem fá búnað til að
taka við Fjölvarpinu.
Stendur til aukin
markaðssókn af því
tilefni?
„Við höfum öll tæki
og aðstöðu til þess,“
sagði Jafet. „En það
sem samkeppnin
stendur um og við-
skiptavinurinn spyr
fyrst og fremst um er
hvaða dagskrá og
þjónustu hann er að
kaupa og fyrir hvaða verð. Stöð 2
hefur skapað sér ágætt orð fyrir
góða dagskrá á sanngjömu verði.
Við munum leggja áherslu á að
vera með góða dagskrá."
Jafet sagði að 97% landsmanna
næðu Stöð 2 í dag en örbylgjusend-
ingarnar næðu aðeins til höfuð-
borgarsvæðisins þar sem byggju
60% landsmanna. Á því svæði væru
ein 10 skuggasvæði þar sem ör-
bylgjusendingar næðust ekki og
yfir 15 þúsund manns byggju. Það
væri nokkuð kostnaðarsamt og
tæki tíma að útrýma þessum
skuggasvæðumþví þétt örbylgju-
dreifinet þyrfti til.
I-----------------------------------
4 Pétur Guðfinnsson, Sjónvarpinu
Jafet S. Ólafsson
CKotce cr^j Ckarrtplotvó®
„loose fit“
hettupeysur
LITIR:
Dökkblátt
Vínrautt
Grátt
Dökkgrænt
Þykk og mjúk bómull
kr. 2.980
CKoícc CkampiorvA*
joggingbuxur
kr. 2.650
5% staðgreiðsluafsláttur
af póstkröfum greiddum
innan7 daga.
UTILIF
GLÆSIBÆ . SÍMI 581 2922
H
F
Í
í
í
í
i
i
i
i
I
i
i
i
i
i
Skýrslan verður
vandlega skoðuð
PÉTUR Guðfinnsson,
framkvæmdastjóri
Sjónvarps og stað-
gengill útvarpsstjóra í
fjarveru hans, segir að
stjórnsýsluendurskoð-
un Ríkisendurskoðun-
ar hjá Ríkisútvarpinu
verði tekin til mjög
vandlegrar skoðunar.
Hann segist ekki telja
að úttekt Ríkisendur-
skoðunar á reksti RÚV
sýni að eitthvað hafi
hallað á verri veg eða
farið öðruvísi en æski-
legt hefði verið.
„Eins og viðbúið var
minnkaði hlutur aug-
lýsinga verulega eftir að einkafyrir-
tæki hófu rekstur í ljósvakageiran-
um, og hlutur afnotagjalda hefur
orðið stærri að sama skapi. Þetta
hefur auðvitað orðið til þess að Rík-
isútvarpið hefur ekki lagt eins mikla
peninga í Framkvæmdasjóð eins og
til var ætlast, en hins vegar hefur
það staðið í miklum afskriftum. Það
var til þess ætlast þegar þessi út-
varpslög voru samþykkt að aðflutn-
ingsgjöld af útvarps- og sjónvarps-
tækjum rynnu til Ríkisútvarpsins,
en það hefur ekki gerst utan eitt
ár. Þetta hefur því brugðist, en er
hlutur sem við erum að venja okkur
við. En það sem ég tel vera aðal-
atriði í þessari skýrslu er það að
ekki er lagt til að lögbundin afnota-
gjöld verði aflögð, og ekki er lagt
til að Ríkisútvarpið verði selt eða
gert að hlutafélagi, en þetta eru
þær stærstu breytingar sem komið
hafa upp í pólitískri umræðu. Það
virðist vera að það sé ekki þeirra
skoðun að það beri að stefna að
því,“ sagði Pétur.
Útboð sértækra verkefna
Pétur segist telja að hugmyndir
Ríkisendurskoðunar um að útvarps-
stjóri ráði fram-
kvæmdastjóra Ríkis-
útvarpsins að fengnu
samþykki útvarpsráðs
ætti að styrkja stöðu
útvarpsstjóra gagn-
vart menntamálaráðu-
neytinu.
„Hjá Sjónvarpinu
eru þeir í sjálfu sér
ekki að leggja til mikl-
ar breytingar. Þeir eru
að tala um að bjóða
út sértæk verkefni á
vegum Sjónvarpsins,
en það er stefna sem
menn hafa verið að
fara meira inn á hér á
seinni árum. Einkafyr-
irtækjum í þessum geira hefur ver-
ið að vaxa fískur um hrygg og þetta
fínnst mér koma ágætlega heim og
saman við það sem við höfum verið
að fara í. Útboð allra sértækra verk-
.efna þýðir að þörf okkar fyrir stóra
upptökusali með stórum leikmynda-
smiðjum sem bíða fokheldar í Efsta-
leiti minnkar að sama skapi,“ sagði
hann.
Kemur til kasta Alþingis
Pétur sagðist telja margt áhuga-
vert í skýrslu Ríkisendurskoðunar
og ýmsar góðar hugmyndir þar að
fínna, en sumar þeirra kölluðu á
miklu nánari athugun en Ríkisend-
urskoðun hefði getað gert. Sem
dæmi um góðar hugmyndir sagði
hann hugmyndina um að breyta
fyrirkomulagi afnotagjalda í nef-
skatt eða íbúðaskatt, og einnig
hugmynd um að undanþágur frá
greiðslu afnotagjalda yrðu hluti af
félagskerfi landsins en ekki sett á
sem sérstakur skattur á Ríkisút-
varpið. „Þetta kemur til kasta Al-
þingis, en margt í þessari skýrslu
er mjög góður grundvöllur fyrir
nýja útvarpslaganefnd til að taka
upp og hugleiða,“ sagði hann.
Pétur Guðfinnsson
Laugavegi 13 • Sími 562 5870 • Opnunartími: Mán-Fös 10-18. Lau 10-14.