Morgunblaðið - 02.11.1995, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 02.11.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 43 SIGURÐUR SVEINSSON Sigurður Sveinsson fædd- ist á Eyrarbakka 29. júlí 1914, en ólst upp í Reykjavík, þar sem starfsferill hans var síðan. Hann lést í Reykja- vík 23. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Elín Sig- urðardóttir og Sveinn Asmundsson Eldon. Sigurður var kvæntur Þuríði Stefánsdóttur og áttu þau tvö börn tvö, Elínu og Sigurð. Þá ólst upp hjá þeim sonur Þuríðar, Haraldur Stef- ánsson. Útför Sveins fór fram í kyrr- Þey. HANN tók ekki ofan fyrir neinum og sumum fannst hann óvæginn; jafnvel óbilgjarn og gerður af ís. Vist var gríman á stundum héluð, en það var stutt í kvikuna; undir niðri ólgaði tilfinningahiti meiri en flestir hefðu trúað, er ekki þekktu hann náið - og hann gat miðlað slíkri hlýju þeim sem hann hleypti sér nær, að ekki gleymdist. En vissulega var Sigurður Sveinsson þversögn í sjálfum sér. Það mun ekki hafa verið heiglum hent að alast upp utan hjónabands í höfuðstaðnum á fyrstu áratugum aldarinnar. Sigurður var brímabarn, sem kom fyrir þá eina tilviljun lífs- ins og tilverunnar að faðir hans skrapp til Reykjavíkur sunnan úr Hafnarfirði - og siðan á sömu slóð- ir ei meir. Bróðir hans, samfeðra, sagði mér söguna sjötíu árum siðar og ég sá æviferil vinar míns í nýju ljósi; staðreyndin hafði markað líf hans allt. Þeir sem telja einstæðar mæður nútímans verst settu mæður heims- sögunnar, ættu að fletta upp að- stæðum formæðranna fyrir daga almenna tryggingakerfisins og hömlur samtíðarinnar og EES á barnavinnu. Að duga eða drepast, hafði þá hrollsannari merkingu en nú - og börnin voru ekki há í loft- inu er þau urðu að taka til hendi við lífsbaráttuna. Hér var Sigurður Sveinsson engin undantekning. Hann þurfti snemma að beijast við umhverfið - og það að vinna sér inn nokkra aura til að leggja með sér á borð varð bara eðlilegt fram- hald þess að sanna sig sjálfum sér og öðrum. Það mun hafa verið á seinni hluta þessara sokkabandsára Sigurðar, þegar hann var að nálgast fermingu, að faðir minn tók eftir piltinum. Honum varð tíðkvæmt á athafna- svæði fyrirtækis hans, ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson, við Nj álsgötu/Frakkastíg, að selja tómar flöskur er honum höfðu áskotnast. Það kostaði mikla árvekni og kapp í harðri samkeppni við aðra stráka bæjarins, að finna þær fáu flösk- ur sem slompaðir landadrykkjumenn þessara bannára fleygðu frá sér; á tímum þá fæstu var hent sem nokkuð verðmæti var í. Skilagjald er ekki eitthvað upp- fundið af nútíma umhverfisvernd- arsinnum og Endurvinnslunni, held- ur hefur verið í landinu síðan ís- lenskir hófu að tappa drykkjarvör- um á flöskur, eða jafnvel fyrr - og Sigurður varð fljótlega duglegri öðrum strákum að snapa uppi þessa mögulegu auðlind ungmenna, með- an hver aur hafði gildi. Forlagatrúarfólk myndi segja, að hér hefði krókurinn beygst að því sem verða vildi, en það var nú samt bíladella unglingsins sem leiddi þá föður minn saman - og slitnaði síð- an eigi meðan báðir lifðu. Eitt kvöldið drap Sigurður dyra hjá föð- ur mínum, bauðst borginmannlega til að þvo bifreið hans fyrir nokk- urra aura umbun - og fékk starfið til reynslu. Pabbi sagði mér síðar, að hann hefði haft gaman af fram- hleypni stráksins og aldrei séð eftir því, enda ekið á hreinustu bílum í Reykjavík næstu árin. Dugnaðurinn og þrautseigja stráksins duldist ekki föður mínum. Sjálfur ólst hann upp föðurlaus frá því hann var tæpra tveggja ára; reyndar íjarri móður sinni hjá vandalausum, strax eftir að hann var talinn hafa þrek til að vera matvinnungur - og vissi því hvað til þurfti til sjálfsbjargar. Sagðist hafa séð eitthvað af eigin þijósku í augum sveinstaulans, þar sem hann stóð á tröppunum forðum og vildi þvo bíla fyrir aur. Árið 1930, þá sextán ára, lét pilturinn af verktakastarfi sínu í bílaþvotti. Vegna breyttra mark- aðsaðstæðna ákvað faðir minn að bæta gosdrykkjagerð við fram- leiðslu fyrirtækisins, sem fram að þessu hafði sérhæft sig í ölgerð - og Sigurður var ráðinn til sýróps- blöndunar í hinni nýju deild. Ráðn- ing unglingsins reyndist fyrirtæk- inu gæfuspor og ekki leið á löngu t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR S. ERLENDSSON bifreiðastjóri, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 26. október sl., verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudag- inn 7. nóvember kl. 13.30. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Hinrik Einarsson, Helga H. Magnúsdóttir, Grétar Einarsson, Guðný Stefánsdóttir, Eygló Einarsdóttir, Haukur Reynisson, Bára Einarsdóttir, Gunnar Bjarnason, Erlendur S. Einarsson, Haraldur Einarsson, Gerður Kristjánsdóttir, Jóhanna Einarsdóttir, Ársæll Ársælsson og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfda 4 - sími 587 1960 áður en honum var trúað fyrir öllu innan veggja gosdrykkjagerðarinn- ar. Vöxtur þessarar framleiðslu var fremur hægur í fyrstu, enda kreppa í landinu, en neysluaukningunni í stríðsbyrjun má líkja við spreng- ingu; stærð markaðarins margfald- aðist við komu herliðsins - og pen- ingar urðu'í vetfangi allra. Fyrir- tækið nýtti þessa aðstöðu til að byggja yfir gosdrykkjagerðina á lóðum sínum við Þverholt - og þar var Sigurður síðan í forsvari næstu íjörutíu árin. Ekki er öllum gefið að blanda gosdrykkjasýróp svo úr verði drykk- ur sem þjóð líki. Sigurður Sveinsson virtist hafa þetta í blóðinu. Þeir faðir. minn unnu fyrst við þetta í sameiningu, en fljótlega virðist unga manninum einum hafa verið trúað fyrir framkvæmdinni, enda vel verður traustsins. Með árunum virtist hann hafa smekk þjóðarinnar á tungunni - og nákvæma tilfinn-. ingu fyrir því hvaða bragð hlyti náð hennar. Þó af ýmsu sé að taka á fimmtíu og sjö ára starfsferli Sigurðar við gosdrykkjargerðina, ber langhæst eina tegund sem hann var höfundur að - og halda mun nafni hans á lofti innan starfsgreinarinnar um ókomin ár. Egils appelsínið hans hefir staðið af sér allar tískubylgjur í meir en íjörutíu ár og er orðið svo óaðskiljanlegt þjóðarsálinni, að menn láta senda sér það til út- landa, með hangikjötinu og harð- fiskinum, þá góða veislu gjöra skal upp á íslensku. Karlinn sem fann upp appelsínið, kölluðu þau hann krakkarnir í nágrenni hans við Bergstaðastrætið - og það sagði hann mér seinna að hefði verið dýrmætasta viðurkenning sem sér hefði hlotnast um dagana. í einkalífi sínu var Sigurður ham- ingjumaður, kvæntur afbragðs- konu, Þuríði Stefánsdóttur, sem stóð klettur við hlið hans í gegnum árin - og þau áttu myndarbörn. Áhugamálin voru mörg og hann hlakkaði til rólegs ævikvölds; að sinna íjölskyldu, ferðalögum og veiðiskap. En þá reið áfallið yfir. Átta ár var hann fangi eigin líkama eftir heiftarlegt heilablóðfall, horf- inn veröldinni og veröldin honum. Ég á minningu þessa vinar míns mikið að þakka. Kynni okkar hóf- ust þá ég var barn að aldri að snigl- ast um fyrirtækið og þvælast fyrir starfsmönnum föður míns; eflaust ekki mjög vinsæll. Seinna. urðum við nánir samstarfsmenn og vinir - og alltaf stóð hann með mér, þó svo ég þræddi veraldarvegi nokkuð ótæpilega á stundum. Það gerðu ekki allir. Hugur okkar Þórunnar dvelur hjá Þuru þessa dagana. Hennar er missirinn mestur. Tómas Agnar Tómasson. + Kristján Odds- son var fæddur í Reykjavík 3. des. 1910. Hann lést á Grensásdeild Borg- arspítalans hinn 24. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Oddur J. Bjarnason, ættaður frá Hömrum í Reykholtsdal, og Andrea Guðlaug Kristjánsdóttir, frá Skúmstöðum á Eyr- arbakka. Systkini hans Bjarni, látinn, Anna, látin, Ingibjörg og Stein- grímur. Fyrri kona Kristjáns var Ingunn Olafsdóttir Blöndal. Barn þeirra er Ólafur Krist- jánsson. Seinni kona Kristjáns var Ingunn Runólfsdóttir, f. 7. sept. 1921, d. 1990. Útför Kristjáns fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. NÚ ERT þú farinn, elsku frændi. Já, allir eiga frændur og sumir marga og svo er um mig en samt varst þú sá eini sem ég kallaði aldr- ei neitt annað en bara frænda. Það er skrítið til þess að vita að ég eigi ekki eftir að hitta þig framar í þessu lífi. Já, frændi minn, ég mun sakna þess að hitta þig þótt ekki væri nema til að heyra hjá þér skrítnar útskýringar á því hvers vegna þú getir ekki komið til okkar á Máva- brautina í mat. Já, stundum var erfitt við þig að eiga og vildum við hafa fengið þig oftar til okkar held- ur en raun var á en svona varst þú, þér fannst best að vera heima. I þau skipti sem þú komst var ætíð gaman að hafa þig og svo virtist sem þú hefðir bara gaman af því að koma t.d. á jólum og í barnaaf- mæli því að þá mættir þú. Elsku frændi, ég er viss um að þú myndir ekki vilja að ég væri að skrifa um þig neina langloku og ætla ég að virða það. Þar sem ég kveð þig hinstu kveðju þá veit ég að þú hefur hitt hana frænku sem þú hefur sakn- að svo mikið og veit ég að það hafa orðið fagnaðarfundir með ykkur. Já, frændi minn, þar sem þið hafið nú náð saman á ný þá bið ég góðan guð að geyma ykkur og færi ykkur kveðju frá Ingu, Einari Orra og Sunnu Dís. Einar H. Aðalbjörnsson. í örfáum orðum langar mig að minnast nafna míns, Kristjáns Oddssonar, sem er látinn. Nafni var giftur móðursystur minni, Ingunni Run- ólfsdóttur, er lést árið 1990. Fyrstu búsetuár þeirra voru í merku húsi við Túngötuna, sem ávallt hefur verið kallað Klappinborg. Hjá þeim nafna og frænku ól móðir mín mig, og var ég skírður í höfuðið á þeim báð- um. Skömmu eftir þetta fluttu þau nafni og frænka að Ásabraut 11, þar sem þau bjuggu í langan tíma. Móðir mín leigði hjá þeim fyrstu árin, og má segja að þau hafi reynst mér mjög vel frá bernskuárum. Þau frænka og nafni tóku í fóstur eins árs gamlan frænda minn og bróður- son frænku, Eirík Sverri, en hann lést langt um aldur fram, og varð • það þeim mikið áfall er þau komust seint yfir. Á þessum árum vann nafni sem rennismiður í slippnum í Keflavík og var hann landsþekktur sem listamaður í þeirri grein. Marg- ar sögurnar heyrði maður um snilli hans, og mikið var gaman fyrir lít- inn nafna hans að koma í heimsókn í smiðjuna og horfa á hann hand- leika rennibekkinn. Nafni fór einnig nokkuð í siglingar á þessum árum, og gaman var að heyra hjá honum sögurnar af Dísarfellinu, skipinu er hann sigldi sem mest með, og heim- sóknunum til hinna ýmsu landa, en hann sagði skemmtilega frá og þreyttist aldrei á því. Er líða tók á ævina fluttu þau að Sunnubraut 48, en þar bjó nafni til síðasta dags. Frænka veiktist alvarlega og nafni helgaði henni allan sinn tíma, en hún var rúmföst á sjúkrahúsi til dauðadags. Eftir að nafni varð einn fór hann að stunda sundlaugina af miklum krafti, og má segja að hann hafi ekki misst úr dag undanfarin fimm ár. Þá fór hann einnig að stunda púttið fræga, og hafði mikla ánægju af því, og þá ekki síst félagsskapn- um sem þar er. Það má segja að dagleg dagskrá hjá nafna og félög- um hafi varið sund, hádegisstund í Samkaupum og síðan púttið, enda sagði hann oft að það væri óskap- lega mikið að gerahjá sér, og kímdi þá gjarnan. Með þessum orðum kveð ég þig, nafni minn. Ég veit að þú ert kom- inn í faðm frænku, sem þú saknað- ir alltaf. Ég votta eftirlifandi syni nafna, Ólafi Kristjánssyni, og fjölskyldu samúð mína. Krislján Ingi Helgason. KRISTJAN ODDSSON t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORGEIR ÓSKAR KARLSSON, Kirkjuvegi 1, Keflavik, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 4. nóvember kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Islands. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 562 0200 Sóley Sigurjónsdóttir, Margeir Þorgeirsson, Ástríður L. Guðjónsdóttir, Katrín Ósk Þorgeirsdóttir, Guðmundur G. Þórisson, Ingibergur Þorgeirsson, Málfríður Baldvinsdóttir, Gunnar Karl Þorgeirsson, Margrét Böðvarsdóttir, Vilberg K. Þorgeirsson, Guðrún Jóhannesdóttir, Sigurður Þorgeirsson, RutOlsen, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og úför GUÐMUNDAR GUÐBJÖRNSSONAR, Merkigerði 6, Akranesi. Steinunn Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLEllílR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.