Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 44

Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ 4- Áslaug Björns- ■ dóttir Kemp fæddist 22. júní 1922. Hún lést 20. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Björn Guðmundsson og Dýrólína Jónsdótt- ir á Fagranesi á Reykjaströnd í Skagafirði og ólst Áslaug þar upp með systur sinni Ingibjörgu. Hinn 4. nóvember 1944 giftist Áslaug eftir- lifandi eiginmanni sínum, Stef- áni Kemp. Þau eignuðust fjór- ar dætur, Elísabetu Kemp, Helgu Kemp, Kristbjörgu Kemp og Birnu Kemp. Barna- börnin eru níu og barnabarna- börnin tvö. Útför Áslaugar var gerð frá Sauðárkrókskirkju 28. október síðastliðinn. LAUGARDAGINN 28. október sl. fór jarðarför elskulegrar tengda- móður minnar fram frá Sauðár- krókskirkju og langar mig að minnast hennar með þakklæti og virðingu. Áslaug Björnsdóttir Kemp fæddist 22. júní 1922 og ólst upp hjá foreldrum sínum þeim Birni Guðmundssyni og Dýrólínu Jónsdótt- ur á Fagranesi á Reykjaströnd í Skaga- firði ásamt systur sinni Ingibjörgu kenn- ara í Reykjavík. For- eldrar hennar hófu búskap á Fagranesi rétt fyrir heimsstyij- öldina fyrri. Um Björn segir m.a. í Skagfirskum ævi- skrám: „Sveitungar Björns völdu hann í ýmis trúnaðarstörf,- svo sem hreppsnefnd, fræðslunefnd, sátta- nefnd o.fl. Þessi störf sem önnur vann hann af trúmennsku og heið- arleika. Hann var vel greindur maður, en laus við alla framgirni og sóttist ekki eftir vegtyllum . .. en laus við alla undirhýggju, vand- aður til orðs og æðis.“ Um Dýrólínu segir Kristmundur Bjarnason í Safnamálum 1990: „Hún orti ljóð, og þeir, sem vel máttu um dæma, töldu vel að verki staðið ... Dýrólína hefur trúlega orðið fyrst skagfirzkra kvenna til þess að birta skáldskap, ljóð og sögur, eftir sig á prenti." Dýrólína var barnakennari um nokkurra ára skeið, bókelsk og fróðleiksfús og veitti dætrum sínum tilsögn í mörgum greinum. Eftir hana er þessi staka: Meðan sólin svölu hjá sævarbóli tefur litla fjólan lokar brá leggst í skjól og sefur. Áslaug missti móður sína 17 ára gömul og hélt heimili með föður sínum þar til Björn hætti búskap á Fagranesi eftir þriggja áratuga búskap þar árið 1943. Áslaug giftist Stefáni Kemp 4. nóvember 1944 og hófu þau bú- skap á Sauðárkróki stuttu síðar. Flutti Björn til þeirra og bjó hjá þeim til æviloka. Milli þeirra feðg- ina var mikil hjartahlýja og er augljóst að Áslaug hefur tileinkað sér gildismat foreldra sinna beggja. Áslaug bjó lengstan hluta ævi sinnar á Sauðárkróki með eft- irlifandi eiginmanni sínum og eign- uðust þau fjórar dætur, Elísabetu Kemp, hjúkrunarfræðing á Sauð- árkróki, Helgu Kemp, meinatækni í Sviss, Kristbjörgu Kemp, kennara á Sauðárkróki, og Birnu Kemp sem búsett er í Danmörku. Barnabörnin eru níu talsins og barnabarnabörn- in orðin tvö. Áslaug starfaði um margra ára skeið við Fiskiðju Sauðárkróks auk heimilisstarfanna. Hún naut góðr- ar heilsu allt undir það síðastá og kom fráfall hennar okkur fjöl- skyldu hennar í opna skjöldu. Hún var atorkusöm og hélt heimili sitt af sérstökum myndarskap. Sam- heldni þeirra hjónanna og gagn- kvæm tillitssemi var eftirtektar- verð og ber fögru mannlífi vitni. Áslaug var gestrisin, glaðvær og barngóð. Hún átti ekki langt að sækja áhuga sinn á ljóðlistinni þar sem móðir hennar naut velvildar skáldskapargyðjunnar. Hún var ræktarsöm við afkomendur sína, t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALHEIÐUR KLEMENSDÓTTIR, Holtsgötu 31, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Klemens Guðmundsson, Astri Guðmundsson, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Jón Helgason, Hrefna Guðmundsdóttir, Óli Már Guðmundsson, Kristján Guðmundsson, Elsa Baldursdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Geoffrey Brabin, barnabörn og barnabarnabörn. ÁSLAUG BJÖRNS- DÓTTIR KEMP vini og fjölskyldu og lét hvergi sitt eftir liggja þegar á þurfti að halda. Hún var blíðlind, hreinskiptin og hispurslaus og laus við alla tilgerð. Ástúð hennar og umhyggja varpa ljóma á minningu hennar. Hún var elskuð sem eiginkona, móðir og amma. Það er bjart yfir minningu hennar. Jón F. Hjartarson. LA UFEY MARTEINSDÓTTIR -4- Laufey Marteinsdóttir I fæddist á Blönduósi 28. jan- úar 1960. Hún lést af slysför- um 22. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Blönduósskirkju 28. október. ELSKU systir mín Laufey er látin, svo snöggt að mig setur hljóða. Sorgin er mikil en seinna víkur sársaukinn fyrir ljúfum minning- um. Ég á ótal minningar um mína elskulegu systur, svo margar að ekki er hægt að koma þeim öllum á blað. Þannig að fátækleg verða orð mín, en allar skipa minningarn- ar stóran sess í huga mínum. Laufey var í senn besta systir og jafnframt mjög góður vinur. Hún var vinur vina sinna og alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Litli-Auðunn Ágúst var hennar sólargeisli og var hún búin að festa kaup á eigin íbúð og búa þeim mæðginum sérlega fallegt og hlý- legt heimili. Ég vil þakka minni elskulegu móðursystur Kristjönu Indriðadóttur hve hún reyndist Laufeyju vel eftir fráfall móður okkur. Elsku Laufey mín, ég þakka þér af alhug allar okkar góðu stundir. Ég mun alltaf geyma minninguna um þig í hjarta mínu. Elsku Auðunn minn, pabbi, syst- kini mín, og allir þeir sem um sárt eiga að binda. Guð gefi ykkur styrk. Kristín Indíana Marteinsdóttir. RÖGNVALDUR ÞORLÁKSSON + Rögnvaldur Þorláksson fæddist í Reykjavík 26. apríl 1916. Hann lést á Landa- kotsspítala 18. október síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Vídalínskirkju 27. október. Kveðja frá Nordmannslaget, félagi Norðmanna á íslandi Þegar Rögnvaldur var ungur námsmaður lá leið hans til Noregs þar sem hann nam verkfræði við Tækniháskóla Noregs í Þránd- heimi. í Þrándheimi kynntist hann líka Thora sem síðan varð konan hans. Eftir að þau fluttu heim til íslands gengu þau í Nordmanns- laget, Félag Norðmanna á íslandi. Rögnvaldur var alla tíð tryggur félagi og tók virkan þátt í starfsemi félagsins. Hann var varaformaður þess 1963-64 og formaður 1964-65. í nokkur ár var hann líka endurskoðandi félagsins. 1967 var hann gerður að heiðursfélaga fyrir störf sín í þágu Nordmannslaget. Við minnumst þessa félaga okk- ar með söknuði og virðingu og sendum frú Thora og fjölskyldu samúðarkveðjur. Nordmannslaget. ATVIN N MMAUGL YSINGAR Reykjavík Hjúkrunarfræðingar Starfsfólk til aðhlynningar Hjúkrunarfræðingur óskast í 100% starf nú þegar á heilsugæslu. Um er að ræða tíma- bundna stöðu. Starfsfólk óskast til aðhlynningar í hluta- störf, m.a. kl. 8-12 og 16-21. Möguleiki er á leikskólaplássi. Upplýsingar veitir ída Atladóttir, hjúkrunar- forstjóri, í síma 553 5262 og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 5689500. Landsst. 5995110219 VIII Mh. I.O.O.F. 5 = 1771128 = XXX F.R. I.O.O.F. 11 = 17711028V? = F. EMB. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudag 2. nóv. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. Dagsferð sunnud. 5. nóv. Kl. 10.30 Lónakot - Þorbjarnar- staðír. Myndakvöld fim. 2. nóv. kl. 20.30 í Fóstbræðraheimilinu. Myndir úr ferð Útivistar yfir endi- langan Vatnajökul, auk mynda af Reykjanesstíg, nýrri gönguleið sem stikuð verður naesta sumar. Borgarspítalinn - Landakot Sjúkrahús Reykjavíkur H j ú kru na rf ræði ngar Spennandi verkefni á endurhæfingar- og taugadeild Laus er staða stoðhjúkrunarfræðings á end- urhæfingar- og taugadeildum EN61, EN62 og EN63. í starfinu felst m.a. skipulagning, stjórnun og umsjón með þróunarverkefnum og hjúkrun. Leitað er eftir hjúkrunarfræðingi með stjórnun- arreynslu og samskiptahæfni til að takast á við skapandi verkefni, vinna að skipulagsbreyt- ingum og styðja starfsfólk á breytingartíma. Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jens- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 569 6358. SmO auglýsingar Gómsaetar kaffiveitingar. Ársrit Útivistar er komið út. Það verður sent þeim félags- mönnum, sem greitt hafa ár- gjaldið. Útivist. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Ertu forvitinn um andleg mál- efni? Komdu þá á samkomu í kvöld og heyrðu um Jesú Krist, sem er vegurinn, samleíkurinn og lífið. Samkoman hefst kl. 20.30 og þú ert innilega velkominn. \ \ 77 KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Trú og fjölmiðlar. Efni í umsjá sr. Halldórs Reynis- sonar. Hugleiðing: Friðrik Hilm- arsson. Upphafsorð: Jóhannes Tómasson. Allir karlmenn velkomnir. íslenskt, já takk - skreytiefni Skreytiefni (veggspjöld, breiðir fánaborðar og hillumerkingar) til að nota í tilefni af íslenskri viku (9.-15. nóvember nk.) fást á skrifstofu Samtaka iðnaðarins, Hallveigar- stíg 1, Reykjavík, og á Skrifstofu atvinnulífs- ins, Strandgötu 29, Akureyri. SAMTÖK IÐNAÐARINS Hjálpræóis- herinn Kirkjustræti 2 Kl. 20.30: Kvöldvaka í umsjé bræðranna. Óskar Jónsson stjórnar. Guðmundur Guðjóns- son talar. Happdrætti og veiting- ar. Allir velkomnir. AGLOW, kristið kvennastarf Konur athugið! Nóvemberfund- urinn er í kvöld kl. 20.00 í kristni- boðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. Ræðufólk kvöldsins verða hjónin Edda og Ed Swan. bessi fundur er opinn öllum, bæði körlum og konum. Verið hjartanlega velkomin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.