Morgunblaðið - 02.11.1995, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995 57
I
nrpozvjfiíL
punkt áoffn
„Þetta er svi
ég væri að
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
TOM HANKS
KEVIN BAtON
oru
Cíl
SELFtTtD
ÚJ.O
nn
HX
þannig að eina starfið
onum býðst nú er að
tóp vandræða drengja
■r gamanmynd um
Major Payne.
^öamlutverk
Way»« (The Last Boy
Scout).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5
HX
SPECIES SPECIES SPECIES
LIÐSMENN Stingandi stráa
eru fjórir talsins, allir af
höfuðborgarsvæðinu og
' hafa starfað saman um tveggja
ára skeið. Sævar segir að erfitt
sé að skilgreina tónlist sveitarinn-
ar. „Við lokum ekki fyrir neinar
tónlistarstefnur eða -strauma og
semjum öll lög í hópvinnu. Við
bönnum algjör-
lega að menn
komi með full-
mótuð lög á æf-
1 ingar. Lögin okk-
i ar verða alltaf til
úr djanimi," segir
Sævar. Hann
segir að útsetn-
ingar laganna
hafi verið gerðar
með það í huga
að hægt væri að
spila þau óbreytt
á tónleikum. „Við
í vildum ekki
' drekkja þeim í
útsetningum sem
við gætum svo
ekki staðið við á
tónleikum.
Reyndar voru
lögin orðin nokk-
uð mótuð þegar
upptökur fóru
fram og við gát-
um tekið þau upp
nokkurn veginn
beint,“ segir
hann og bætir við
að með því hafi
fengist meiri
kraftur í tónlist-
ina.
Upptökur fóru
fram síðastliðinn vetur og í sum-
ar og hluti þeirra fór fram erlend-
is. Hljómsveitin hefur reynt fyrir
sér í útlöndum og fór í þriggja
’ mánaða tónleikaferð síðastliðinn
vetur, til Danmerkur, Svíþjóðar,
Noregs, Frakklands og Þýska-
iands. „Við fengum alveg ljóm-
andi undirtektir í Frakklandi og
Þýskalandi og viljum endilega
nýta þær til hins ýtrasta. Stefnan
hefur verið sett á að halda aftur
utan í febrúar. Plötunni verður
dreift í Frakklandi og líklega í
Þýskalandi," segir hann.
I Félagarnir lentu í miklum
' hremmingum í fyrrnefndri för um
Nýjar hljómplötur
Yaxandi
strá
Sævar Finnbogason er
einn liðsmanna hljóm-
sveitarínnar Stingandi
strá, sem í dag gefur
út geisladiskinn Um-
hverfísóður. I samtali
við Morgunblaðið segir
hann meðal annars frá
Þýskalandsævintýrí
hljómsveitarinnar.
Þýskaland. „Þegar við höfðum
spilað á síðustu tónleikum okkar
í Frakklandi höfðum við 35 tíma
til að keyra til Berlínar í Þýska-
landi, eða alls 1.600 kílómetra.
Bíllinn okkar komst ekki hraðar
en 80 kílómetra á klukkustund.
Við skiptumst á að sofa og keyra.
Svo þegar við vorum komnir rétt
framhjá hinum
pínulitla og
óþekkta bæ
Wutzbach, stöðv-
aði þýska lögregl-
an okkur og upp-
hófst þá mikill
darraðardans. Þeir
vildu meina að bill-
inn væri á ólögleg-
um númerum og
að ég hefði ekki
ökuréttindi, sem
var nú hvort
tveggja misskiln-
ingur. Það tók
töluverðan tíma að
leiðrétta þetta og
við máttum dúsa í
vörslu Wiitzbach
Polizei í þtjá sólar-
hringa. Þar með
misstum við af
þremur hljóðvers-
dögum og hefðum
misst af tónleikum
okkar í Berlín ef
okkur hefði ekki
tekist að fá þeim
frestað. Það var
mjög neyðarlegt
að þurfa að hringja
í tónleikastaðinn
og þurfa að segja:
„Hi, this is Sting-
andi strá. I am calling you from
the jail in Wiitzbach. I’m afraid
we will be a little bit late.“ En
þeir virtust ekki kippa sér mikið
upp við það á hinum enda línunn-
ar. Popparar eru víst alltaf í stein-
inum.“
Liðsmenn Stingandi stráa
hyggjast spila af fullum krafti á
næstunni og kynna nýju plötuna.
„Utgáfutónleikarnir verða í
Tjarnarbíói á laugardaginn kem-
ur. Öllu verður tjaldað til að gera
þá sem veglegasta. Meðal annars
kemur Englakórirín fram með
okkur, auk þess sem Guðni
Fransson spilar með okkur.
Morgnnblaðið/RAX
SÆVAR Finnbogason er í hljómsveitinni Stingandi strá.
TOMMY Dorsey-stórhlj ómsveitin.
Björgvin fetar í
fótspor Sinatra
Reuter
HÉR sést Björgvin á sviðinu í
Dublin, þar sem hann tók þátt í
Evrópusöngvakeppninni í maí.
EIN FRÆGASTA stór-
hljómsveit heims, Stór-
hljómsveit Tommy
Dorsey, er á leiðinni hingað til
lands og spilar á Hótel Islandi
24. og 25. nóvember. Sjálfur
Frank Sinatra hóf feril sinn
með sveitinni og söng með
henni þegar hún var hvað vin-
sælust. Núverandi stjórnandi
sveitarinnar er básúnuleikarinn
Buddy Morrow, en söngvari
með henni er Walt Andrus. Á
fyrmefndum tónleikum hljóm-
sveitarinnar mun Björgvin
Halldórsson koma fram sem
gestur og syngja nokkur lög.
Hann segir að óneitanlega
verði gaman að fást við eitt-
hvað af þessari gerðinni. „Ég
hef séð hljómsveitina á mynd-
bandi sem tekið var á tónleik-
um í fyrra. Þeir vora í fínu
formi og margir af gömlu með-
limunum eru enn í bandinu,"
segir hann. Hann segist hafa feng-
ist eilítið við slíka tónlist. „Reyndar
er ég með smá syrpu í sýningunni
minni, Þó líði ár og öld, sem bygg-
ist á þessum eldri perlum,“ segir
Björgvin.
Er þetta það sem koma skal hjá
Björgvini Halldórssyni? Er hann
arftaki Franks Sinatra? „Hvorki ég
né Sigtryggur Baldursson erum
arftakar Franks. Það kemur enginn
í stað hans. Hvað ég geri í tónlist-
inni í framtíðinríi er óráðið. Ég hef
að vísu verið með hljómplötu í smíð-
um í nokkur ár sem gæti tengst
þessum tíma í tónlist.“
Eru stórhljómsveitir að verða vin-
sælar á ný? „Erlendis þykir það flott
að fara á tónleika og dansleiki þar
sem stórhljómsveitir á borð við
Tommy Dorsey Orchestra, Glenn
Miller Band eða Count Basie Orch-
estra leika. Það jafnast ekkert á
við að dubba sig upp og fara með
elskunni sinni á dansleik með stór-
hljómsveit og svífa um gólfið á
vængjum tónlistarinnar sem vin-
sælust var á stríðsárunum."