Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 1
136 SÍÐUR B/C/D/E/F 286. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Styðja andófs- manninn Wei BARÁTTUMENN fyrir lýðræðis- umbótum í Kína hrópuðu slagorð til stuðnings andófsmanninum Wei Jingsheng fyrir framan skrif- stofu fulltrúa kínversku stjórnar- innar í Hong Kong í gær. Skömmu áður hafði verið tilkynnt að Wei hefði verið dæmdur í 14 ára fang- elsi í Peking fyrir að kynda undir áróðri gegn kínverskum yfirvöld- um. Stjórnvöld og þing í Banda- ríkjunum fordæmdu niðurstöð- una, hið sama gerðu mannrétt- indasamtökin Amnesty Internati- onai sem sögðu að með dóminum væri réttlætið svívirt. ■ Wei dæmdur /24 Undirritun samninganna um frið í Bosníu í París í dag Stj órnmálateng'sl Króa- tíu og Serbíu í vændum París, Sarajevo, Washington. Reuter. Reuter ALLT að því metraþykkur, jafnfallinn snjór var í Sarajevo í gær og var lýst yfir neyðarástandi, flugvöllurinn var lokaður. Ófært var víða um landið en þjóðvegir þess liggja sums staðar um þröng fjallaskörð; liðsflutningar NATO töfðust mjög vegna þessa. FORSETAR Bosníu, Króatíu, Serbíu, Rússlands og Vesturveldanna munu í dag staðfesta samningana um frið í Bosníu sem gerðir voru í Dayton í Bandaríkjunum 21. nóvember. Búist var við því í gærkvöldi að öldunga- deild Bandaríkjaþings myndi sam- þykkja að 20.000 manna bandarískt herlið tæki þátt í friðargæslu í Bos- níu ásamt um 40.000 manns frá rúmlega 20 öðrum ríkjum. Fulltrúa- deildin lýsti sig andvíga þátttökunni. Gestgjafinn, Jacques Chirac Frakklandsforseti, mun stjórna at- höfninni í forsetahöllinni í París í dag. Auk hans og leiðtoga deiluaðila í Bosníu verða Bill Clinton Banda- ríkjaforseti, John Major, forsætisráð- herra Bretlands, Helmut Kohl Þýska- landskanslari og íulltrúar tuga ann- arra ríkja og samtaka viðstaddir. Frakkar sögðu í gær að samning- ur milli ríkja Júgóslavíu sem var, þ. á m. Serbíu og Króatíu, um gagn- kvæma viðurkenningu væri tilbúinn en ekki væri þó w'st að hann yrði undirritaður einnig í dag. Slíkur samningur yrði mikil álitsauki fyrir Frakka og talinn myndu treysta frið- inn enn betur. Deilur um skiptingu sameiginlegra eigna gömlu Júgó- slavíu munu einkum hafa gert málið torleyst. 250.000 fallnirí Júgóslavíu sem var Efna ber tii kosninga í Bosníu í síðasta lagi níu mánuðum eftir und- irritunina og mun Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu, OSE, fylgjast með framkvæmdinni. Sameinuðu þjóðirnar og fleiri alþjóðastofnanir munu hafa eftirlit með afvopnun og að mannréttindi séu ekki brotin auk þess sem reynt verður að rétta hlut flóttafólks. Carl Bildt, fyrrverandi forsætis- ráðherra Svíþjóðar, mun stjórna nefnd sem annast á uppbyggingu landsins er kosta mun milljarða Bandaríkjadollara. Um 250.000 manns hafa fallið í átökunum sem hófust við upplausn Júgóslavíu 1991 og þijár milljónir manna verið flæmdar af heimilum sínum. Tekið er fram í friðarsamningun- um að stríðsglæpamenn megi ekki bjóða sig fram í kosningunum en alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn í Haag hefur þegar ákært tvo helstu leiðtoga Bosníu-Serba, Radovan Karadzic og Ratko Mladic. Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rúss- lands, reyndi á sunnudag að fá aðal- saksóknara dómstólsins, Richard Goldstone, til að láta ákærurnar niður falla en því var umsvifalaust hafnað. Akvörðun þings Evrópusambandsins Verkföllin í Frakklandi Tollabandalag við Tyrkland samþykkt Strassborg. Reuter. EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær samning Evrópusambandsins, ESB, og Tyrklands um tollabandalag og er ekkert lengur því til fyrirstöðu að hann taki gildi. Þingmenn létu þó greinilega í ljós að þeir væru ekki sáttir við stöðu mála í Tyrklandi. Tyrkir eru sakaðir um að bijóta mannréttindi kúrdíska þjóðarbrotsins og rúmlega þijú hundruð Kúrdar komu í gær saman fyrir utan bæki- stöðvar þingsins í Strassborg til að mótmæla samþykktinni. Alls greiddu 343 Evrópuþingmenn atkvæði með samningnum, 149 á móti og 36 sátu hjá. Fyrir atkvæða- greiðsluna sögðu nokkrir þingmenn að þeir hefðu einungis fallist á samn- inginn þar sem þeir óttuðust að yrði hann ekki samþykktur myndu tyrk- nesk stjómvöld taka skref aftur á bak í mannréttinda- og lýðræðismálum. „Að Grikklandi og Ísrael undan- skildum er Tyrkland eina lýðræðis- ríkið fyrir botni Miðjarðarhafs. Tyrk- ir eru bandamenn okkar í NATO, þar er markaðshagkerfí við lýði og hefðir eru lausar við trúarbrögð í þessum óstöðuga heimshluta," sagði Gijs de Vries, leiðtogi fijálslyndra á þinginu, fyrir atkvæðagreiðsluna. Fjölmargir treystu sér þó ekki til að greiða atkvæði með samningnum og sagði franski sósíalistinn, Jack Lang, að samviska hans leyfði honum Reuter TANSU Ciller var á fjölmennum kosningafundi í Istanbul er hún fékk tíðindin í gegnum farsíma og tilkynnt.i þau þegar í stað. Hún sést hér í hópi fagnandi stuðningsmanna. það ekki. „Ég tel að Evrópa mann- réttinda eigi ekki að gera viðskipta- samninga við stjórn er byggist á kúgun og afturhaldi," sagði Lang. I samkomulaginu felst að ESB og Tyrkland fella niður tolla á iðnað- arvörum. Með samningnum öðlast Tyrkir, sem eru um 60 milljónir, ein- hver nánustu tengsl sem nokkurt ríki utan ESB hefur við sambandið. Samningurinn tekur gildi 1. jan- úar. Tansu Ciller, forsætisráðherra Tyrklands, fagnaði í gær samþykkt þingsins og sagði þetta vera fyrsta skref Tyrkja í átt að fullri aðild. í skólum i höfuðborginni Ankara var efnt til hátíðahalda vegna samþykkt- arinnar en margir Tyrkir telja að með þessu hafi evrópsk arfleifð þeirra verið viðurkennd. Heittrúaðir múslimar eru hins vegar andvígir tollabandalaginu. Juppé gefur eilítið eftir París. Reuter. ALAIN Juppé, forsætisráðherra Frakklands, gaf nokkuð eftir fyrir kröfum opinberra starfsmanna í gær og hét að breyta engu um eftirlaunaaldur þeirra né hvernig eftirlaun væru reiknuð út. Verk- fallsaðgerðir hafa nú staðið í 20 daga en ýmis smærri verkalýðsfé- lög eru farin að hvetja fólk til að mæta í vinnu. I tillögum stjórnarinnar um breytingar á velferðarkerfinu var gert ráð fyrir, að opinberir starfs- menn yrðu að vinna í 40 ár til að fá full eftirlaun eða jafn lengi og launþegar á almennum vinnu- markaði. Nú fá opinberir starfs- menn full eftirlaun eftir 37 og hálft ár í starfi. Þrátt fyrir eftirgjöfma ítrekaði Juppé, að staðið yrði við boðaðan niðurskurð í meginatriðum og Jacques Chirac, forseti Frakk- lands, lýsti yfir stuðningi sínum við hann. Vísaði hann einnig á bug gagnrýni á fyrirhugað mynt- bandalag Evrópusambandsríkj- anna og sagði, að mikill fjárlaga- halli í Frakklandi væri ekki þeim áformum að kenna. Verkfallsaðgerðum var haldið áfram víða um Frakkland í gær þótt heldur hefði dregið úr þeim. Á laugardag hafa verkalýðsfélögin síðan boðað til útifunda og mót- mælagangna. ■ Óendanlegur léttleiki/26 45 farast í flugslysi Hrapaði í flugtaki Verona. Reuter. RÚMENSK fárþegavél af gerðinni DC-9 fórst í flugtaki á vellinum í Verona á Ítalíu í gær og fórust allir um borð, 45 manns. Óljóst var í gærkvöldi hvað olli slysinu en hvasst var og snjókoma. Flugvélin hrapaði skyndi- lega, hún skall á flugbrautinni og kviknaði þegar í henni. Vélin var í eigu félagsins Pan- atair og á leið til Búkarest. Farþegar voru 41, þar af 33 ítalir en hinir flestir rúmensk- ir, að sögn yfirvalda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.