Morgunblaðið - 14.12.1995, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hæstiréttur dæmiri máli tannlækna og tannsmiðs
Svona komdu þér nú út Bryndís...
Bæjarstjórn Hornafjarðar
Þriggja ára rekstrar-
og framkvæmdaáætlun
BÆJARSTJÓRN Hornaf|árðar hef-
ur samþykkt rekstrar- og fram-
kvæmdaáætlun til þriggja ára. Þar
er gert ráð fyrir 220 milljóna króna
rekstrarafgangi. Verður 60 milljón-
um varið til greiðslu langtímalána,
140 milljónum til framkvæmda og
fjárfestinga en 20 milljónum er
óráðstafað.
Bætt peningaleg staða
í frétt frá bæjarstjóra kemur
fram að helstu markmið áætlunar-
innar eru að bæta peningalega
stöðu bæjarsjóðs, halda rekstrar-
gjöldum niðri þannig að rekstraraf-
gangur verði að minnsta kosti 30%
af tekjum og loks að tryggja að
veltufjárhlutfall verði ávallt að
minnsta kosti 1,5. Skatttekjur eru
áætlaðar 731 millj. en rekstrargjöld
ásamt vöxtum 511 millj. og rekstr-
Rekstrarafgang-
ur verði220
milljónir
arafgangur er áætlaður 220 millj.
í forsendum áætlunarinnar er
reiknað með núverandi fyrirkomu-
lagi í skólamálum, en gert er ráð
fyrir að tekjur aukist með sama
hætti og útgjöld þegar grunnskól-
inn færist yfír til sveitarfélagsins.
Stærstu málaflokkar eru fræðslu-
mál en til þeirra er áætlað að veija
128 millj. sem er 17,5% af rekstri
og til félagsþjónustu 92 millj. eða
12,6% af rekstri.
Skólahúsnæði endurbætt
Meðal helstu framkvæmda eru
endurbætur á skólahúsnæði og
stækkun en kostnaður er áætlaður
36 millj., ný slökkvistöð og er
kostnaður áætlaður 16 millj., til
frárennslismála er áætlað að veija
35 millj. og til gatnagerðar, gang-
stétta og frágangs er gert ráð fyr-
ir 57 millj. Til útivistarsvæða, frá-
gangs og göngustíga er gert ráð
fyrir 12 millj. Þá er stefnt að sölu
húseigna og hiutabréfa á næstu
árum fyrir um 80 millj.
Fram kemur að auk þessara
framkvæmda séu húsnæðismál
stofnana bæjarins til sérstakrar
skoðunar á næstunni.
Sem dæmi er nefnd félagsmið-
stöð unglinga og tónskóli. Auk
þess hafi bæjarstjórn lýst yfir vilja
til að byggt verði nýtt húsnæði
fyrir Framhaldsskóla Austur-
Skaftafellssýslu.
50 vaxlitf r
64 vaxlitir',|° kr.
yddari fy'9'; 174 kr.
5gSSS*» ’74k'
Sími m/tali og hljóði, rafhlöður
fylgja, 496 kr.
Baðbækur m/hljóði, 395 kr.
Verkfaerasett m/bor, 550 kr.
Lögreglubílf, sjálftrektur, 745 kr.
Torfærubíll, sjálftrektur, 995 kr.
Jeppi og kappakstursbíll, sjálftrektir, 1.130 kr.
Þetta er aðeins sýnishorn af okkar glæsilega leikfangaúrvali.
Komdu við hjá okkur áður en þú ferð annað.
ÓTRÚLEGT ÚRVAL - ÓTRÚLEGT VERÐ.
Dúkkur,
ÞJÓNAR ÞÉR
Með annan fótinn á Islandi, hinn á Italíu
Söngvari er
lítils virði án
áheyrenda
ELSA Waage
kontraaltsöngkona
er í hópi þeirra
íslendinga sem reynt
hafa fyrir sér í sönglist-
inni á erlendri grundu.
Starfar hún mikið á Ítalíu
en hefúr þó verið með
annan fótinn á íslandi á
liðnum misserum. Elsa
er sérstakur gestur á
Aðventutónleikum
Kvennakórs Reykjavíkur
en lokatónleikarnir verða
í kvöld.
„Ég er búsett á íslandi
enda hef ég verið að
starfa heilmikið heima
undanfarið. Ég dvelst
hins vegár mikið á Italíu
enda vil ég starfa þar og
er að vinna að því að fá meira
að gera. Það má eiginlega segja
að ég sé með annan fótinn heima
en hinn á Ítalíu,“ segir Elsa.
— Hvaða verkefni hefur þú
verið að fást við ytra síðasta
kastið?
„Ég hef starfað mikið með
píanóleikara við Scala-óperuna í
Mílanó en við erum að leggja
drög að tónleikahaldi í nánustu
framtíð. Síðan hef ég sungið svo-
lítið með óperukórnum á Scala.
Hann vantar alltaf góðar altradd-
ir og hefur nokkrum sinnum leit-
að til mín. Að líkindum mun ég
fara með kórnum í tónleikaferð
til Madrídar næsta vor.“
— Er ekki mikil upplifun að
starfa við Scala-óperuna?
„Jú, auðvitað er það stórkost-
leg upplifun að vinna með Ric-
ardo Muti og öllu þessu frábæra
listafólki."
— En hvað með einsöngstón-
leika?
„Ég hef heilmikið verið að
færa mig inn á tónleikasviðið.
Það er á hinn bóginn að mörgu
leyti erfiðara og meira krefjandi
en að syngja í óperu. Ljóðatónlist
er sungin frá eigin bijósti, þann-
ig að maður stendur alveg einn
og að vissu leyti nakinn, þar sem
maður hefur hvorki búning,
hljómsveitarstjóra, kór né hlut-
verk að fela sig á bak við. Tón-
leikahald mitt hefur hins vegar
gengið mjög vel og hef ég fengið
góða dóma, bæði á Ítalíu og í
Þýskalandi.“
— Sagt er að samkeppnin
meðal söngvara sé umtalsverð á
Ítalíu. Hvernig er hún íþínu fagi?
„Ég hef ekki fundið mjög mik-
ið fyrir samkeppninni ennþá enda
er ég eiginlega að byija að ota
mínum tota á Ítalíu.
Kontraalt raddir eru
líka fremur sjaldgæfar
og slík hlutverk eru fá
í óperubókmenntun-
um. Þar að auki eru
flestar kontraalt radd-
ir léttari en mín, sem er bæði
djúp og sterk. Ég hef því tölu-
Elsa Waage
► Elsa Waage fæddist árið 1959
í Reykjavík. Hún lagði stund á
söngnám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og sótti einkatíma í
söng í Hollandi. BM-prófi í söng
lauk hún frá Catholic Univers-
ity í Washington í Bandaríkjun-
um og sótti að því loknu söng-
tíma hjá Michael Trimble i óper-
ustúdíói í New York. Elsa hefur
á liðnum misserum starfað sem
söngvari í Bandaríkjunum,
Þýskalandi, íslandi og Ítalíu.
Ljóðatónlist
er sungin frá
eigin brjósti
ast að í Bayreuth. “
— Hvernig líst þér á tónlistar-
lífið hér heima um þessar mund-
ir?
„Mér finnst alveg stórkostlegt
hvað það er ríkt. Það er ótrúlegt
hvað þessi 260 þúsund manna
þjóð á mikið af góðum söngvur-
um og listamönnum sem eru jafn
duglegir að flytja ólíkar tegundir
tónlistar. íslendingar eru, að
mínu mati, mun hugrakkari við
að flytja ólíkar tegundir tónlistar
en ítalir. Síðan virðist áhuginn
vera alveg ótrúlega mikill — það
er fullt í öllum kirkjum og öllum
sölum þegar tónleikar eru haldn-
ir. Það er mjög mikilvægt enda
er söngvari lítils virði án áheyr-
enda og öfujgt."
— Eiga Islendingar þá mikið
af frambærilegum söngvurum á
alþjóðlegan mælikvarða?
„Tvímælalaust og miklu meira
en það. Menntun er orðin mjög
víðtæk og það er ánægjulegt að
tónlist skuli vera kennd af jafn
miklum krafti í barnaskólum. Þá
á Sinfóníuhljómsveit íslands lof
skilið fyrir sitt kynningarstarf.
Það vantar bara tónleikahúsið
sem íslenskir tónlistarmenn hafa
margsannað að þeir
eiga' skilið. Það er
kannski við hæfi að
nota þetta tækifæri og
leggja til að íslenskir
_____ tónlistarmenn efni til
styrktartónleika í
þessu skyni á listahátíð næsta
sumar.“
verða sérstöðu og mun væntan-
lega geta nýtt mér hana meira
í tónleikahaldi."
— Áttu þér draumahlutverk
eða -viðfangsefni í tónlistinni?
„Mér þykir Wagner alveg frá-
bær og þar að auki er röddin
mín alveg sniðin fyrir tónlistina
hans. Um þessar mundir er ég
að undirbúa Wagner-tónleika á
Ítalíu og vonast til að geta sung-
ið hann hér heima fljótlega,
kánnski strax næsta sumar. En
draumurinn er auðvitað að kom-
— Hvað er framundan hjá þér?
„Það er aðallega tónleikahald
og undirbúningur fyrir „fyrir-
söng“. Með vorinu verð ég með
tónleika á vegum Scala-safnsins
í tilefni af dánarafmæli Schu-
manns. Þá stefni ég að því að
fara fljótlega til Þýskalands en
mér var mjög vel tekið þar síð-
ast. Annars er ég óttalegur sí-
gauni — finnst gaman að ferðast,
takast á við ólík verkefni og kynn-
ast ólíkum kröfum og listamönn-
um. Þannig getur maður vaxið.“