Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 22

Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Hvarf Tupolev-vélar í Síberíu Deilt um hvort flakið sé fundið Moskvu. Reuter. TVENNUM sögum fer af því hvort að flak rússnesku Tuplev-farþega- vélarinnar sem hvarf af ratsjá í síð- ustu viku sé fundið. í gærmorgun hafði Itar-Tass fréttastofan það eft- ir talsmanni rússneska hersins að flak vélarinnar hefði fundist á kafí í snjó og að allir hefðu farist sem um borð voru. Um klukkustund síðar neituðu talsmenn í ráðuneyti al- mannavama í austurhluta landsins að vélin hefði fundist og sögðu að hennar væri enn leitað. Vélin hvarf af ratsjám sl. fimmtu- dag er hún var á leið frá Shakalín- eyju til Khabarovsk og voru 97 manns um borð. Leitin að vélinni hefur gengið illa þar sem veður hef- ur verið vont á leitarsvæðinu. Að sögn talsmanns hersins hefur vélin verið hálfnuð á leið sinni er hún fórst. Segir hann flak vélarinnar illa brunnið, það hafi brotnað í tvennt og að um 120 m séu á milli vélar- hlutanna. Allir sem um borð voru hafi farist og að flakið sé á kafi í snjó. /nferfax-fréttastofan hafði eftir starfsmönnum ráðuneytis almanna- varna að leitinni væri haldið áfram. Flogið hefði verið yfir staðinn þar sem mönnum hefði sýnt flak vélar- innar vera og að líklega væri um kletta eða hæðadrög að ræða. Tékknesku fjárlögin Hallalaus í fjórða sinn Prag. Reuter. TÉKKNESKA þingið afgreiddi fjár- lög ríkisins í fyrradag og eru þau hallalaus eins og í fyrri þijú skiptin eftir að Tékkóslóvakía klofnaði í Tékkland og Slóvakíu 1993. Fjárlagaafgreiðslan er mikill sigur fyrir Vaclav Klaus, forsætisráðherra Tékklands, en hann segir, að halla- laus fjárlög séu kjarninn í stjómar- stefnunni. Raunar er búist við, að tekjuafgangur ríkisins verði um 22 milljarðar ísl. kr. á þessu ári. Samstaða á þingi Fjárlögin voru samþykkt með 114 atkvæðum gegn 57 en þingmenn eru alls 200. Voru flestar breytingartil- lögur felldar en vegna þeirra fáu, sem vom samþykktar, voru gerðar nauðsynlegar breytingar á tekju- eða útgjaldahlið fjárlaganna til að niður- staðan yrði sú sama. Varð góð sam- staða um þessa afgreiðslu á þingi strax við fyrstu umræðu um fjárlög- in í nóvember. Niðurstaða fjárlaganna svarar til 43% af vergri þjóðarframleiðslu en gert er ráð fyrir, að hagvöxtur verði 4,8%. Almennar þingkosningar verða í Tékklandi í júní en að stjórninni standa nú fjórir flokkar. Vinskapur í hættu vegna smástirnis London. The Daily Telegraph. MAÐURINN sem fann nýtt smá- stirni fyrir skömmu, hefur viður- kennt að hann hafi ekki uppgötvað það fyrstur. Smástirnið hlaut nafn sitt eftir George Sallit og honum hefur verið boðið til Bandaríkjanna til að koma fram í spjallþáttum í kjölfarið. Góður kunningi Sallits, Adrian Catterall, er dálítið sár vegna þessa, enda rak hann fyrstur augun í smástirnið. Sallit og Catterell hafa verið | áhugamenn um stjörnuskoðun í tvo j áratugi og skiptast iðulega á upp_- lýsingum og góðum ráðum. A þriðjudag setti Sallit mynd af stjörnuþokunni NGC 772 í Hrúts- merkinu inn á alnetið og er Catte- rell fór að skoða hana, rak hann augun í stjörnu sem ekki var á öðrum myndum af stjörnuþokunni. Hann hafði samband við Sallit, sagði honum að þetta kynni að vera ' smástirni og sú var raunin. „Mér I er svo sem sama þó að George sé j einum hampað en ég var dálítið sár að mín skyldi hvergi vera getið,“ segir- Catterell. „Með réttu ætti stjarnan að heita Sallit-Catterell." Sallit kvaðst hafa sagt sumum fréttamannanna sem ræddu við hann, að Catterell, sem er eðlis- fræðingur, hefði aðstoðað sig en hefur nú beðist afsökunar á því að , hafa ekki gert nóg úr hlut vinar síns. Báðir eru þeir sammála um I málið muni ekki eyðileggja vinskap | þeirra en móðir Catterells mun hins vegar vera æf vegna málsins. Hermenn kjósa ATKVÆÐAGREIÐSLA utan kjörstaða er hafin í Rússlandi vegna þingkosninganna næstkom- andi sunnudag. Hermenn, sem verða við öryggisgæslu á kjördag, fengu að kjósa í gær. Myndin var tekin er rússneskir hermenn í borginni Khankala, sem er skammt frá Grozní í Tsjetsjníju, neyttu atkvæðaréttar síns. Krínglunni, s. 568 9980 Laugavegi, s. 552 6860. Pelsarnir komnir aftur Litur: Svartur Verð kr. 8.900 Pantanir óskast sóttar Gæðavín með geislavirkni Osaka. Reuter. JAPANSKIR vísindamenn telja sig hafa þróað aðferð til að breyta illa bragðandi víni í gæða- drykk. Með því að nota sterka geislávirkni breytist bragð víns- ins. „Þetta er mjög sniðugt," segir Hiroshi Watanabe, yfirmaður rannsóknadeildar Japanska kjarnorkufyrirtækisins (JAPC) í Takasaki norður af Tókýó. „Ef gott vín eða viský verður fyrir geislun bragðast það hræðilega á eftir. Ef gammageislum er hins vegar beint á lélegt vín eða ódýrt viský bragðast þau mun betur.“ Ástæðuna telur Watanabe vera að lélegt vín sé illa gert og ódýrt viský illa blandað. „Hvað viský varðar ýtir geislunin undir blöndunarferlið og tekur út eftir- bragðið. Vínið aftur á móti upp- Iitast örlítið en með því að ýta undir gerjun er hægt að losa sig við hið bitra eftirbragð sem ein- kennir léleg vín og það verður mun mýkra.“ Vísindamennirnir hafa notað 2.000 joule af gammageislum en einungis þarf átta joule til að drepa mann. Watanabe hefur rannsakað geislun matvæla í tuttugu ár og segir niðurstöðuna vera að hún sé fullkomlega hættulaus. Telur hann Hklegt að notkun geislunar í matvælaframleiðslu muni auk- ast verulega upp úr aldamótum. Frakkar gramir grönnum \ París. Reuter FRAKKAR sendu bandamönnum sínum í Evrópusambandinu (ESB) tóninn í gær fyrir að greiða ályktunartillögu um tafarlaust bann við kjarnorkutilraunum at- kvæði. í atkvæðagreiðslunni í allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna í fyrra- kvöld gengu Bretar í lið með Frökk- um og greiddu atkvæði gegn tillög- unni. Þjóðveijar, Grikkir og Spán- veijar sátu hjá. Önnur ESB ríki studdu hins vegar tillöguna. Hvorki Frakkar né Kínveijar voru nefndir á nafn í tillögunni en engum hefur dulist að henni var beint gegn þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.