Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
erumfíntfyrirjólin
Gjafakort frá Persíu eru tilvalin jólagjöf
w á austurlenskum teppum
frá Pakistan, stofuboröastærð
verð frá kr. 19.800
frá Kína, stofuborðastærð
verð frá kr. 21.800
TS l CL Sérverslun með stök teppi og mottur
Suðurlandsbraut 46 - Sími: 568 6999
Onih alla <uinniirl»na fram ah inlnm
fyrir ferðamanninn
veiðimanninn
þingmanninn
könnuðinn
leikmanninn
fjallaklífrarann
sjómanninn
húsmóðurina
föndrarann
þjóninn
lístamannínn..
werðfFá
610.-
mÆMimiimm
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík S. 51 I 2200
„Hátíð fer að
höndum ein“
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur jólatónleika sína í 22.
sinn í Áskirkju sunnudaginn 17.
desember kl. 17. Á efnisskránni
eru verk eftir A. Vivaldi, A.
Marcello og J.S. Bach.
„í starfi Kammersveitarinnar
skapaðist strax sú venja að á
jólaföstu væri boðið tií jólatón-
leika, þar sem leikin væru verk
þessa tímabils tónlistarsögunn-
ar. Þótt verkin sjálf séu sjaldan
samin sérstaklega með flutning
á aðventu eða um jól í huga,
vekur þessi tónlist bæði eftir-
væntingu og gleði í huga okk-
ar,“ segir í kynningu.
Á jólatónleikunum koma fram
eftirtaldir hljóðfæraleikarar:
Eiríkur Orn Pálsson og Einar
St. Jónsson á trompeta, Bryndís
Halla Gylfadóttir og Inga Rós
Ingólfsdóttir á selló, Daði Kol-
beinsson á óbó, Bernharður
Wilkinson á flautu, Sigurlaug
Eðvaldsdóttir á fiðlu og Charles
Harrison á sembal.
Miðasala verður við inngang-
inn og á tónleikunum verður
geisladiskur Kammersveitar-
innar, „Jólatónleikar", til sölu á
tilboðsverði.
Hringadrottinssaga
Tolkiens (Lord of the
Rings) er nú öll komin
út á íslensku í þýðingu
Þorsteins Thorarens-
ens. 3. bindið, sem
Fjölvaútgáfan er nú
að senda frá sér, 'nefn-
ist Hilmir snýr heim,
en með því er átt við
áð útlaginn Stígur eða
Aragorn kemur til rík-
is í Gondor.
Nú er liðinn meira
en áratugur síðan Þor-
steinn hóf þýðingu
þessa mikla verks,
sem í heild er nærri
1.200 bls. Eftir að hann var tilbú-
inn með verkið, hafa bindin komið
út reglulega þrjú ár í röð. Fyrri
bindin nefndust Föruneyti Hrings-
ins og Tveggja turna tal.
„Hringadróttinssaga er viður-
kennt sígilt bókmenntaverk og
nýtur óhemju vinsælda um víða
veröld. Tolkien var nokkuð sérvitur
prófessor í Oxford og
skapaði sér í ritum
heila ævintýraveröld.
Gekk honum í fyrstu
illa að koma þessu
verki fyrir almenn-
ingssjónir, útgefendur
höfðu ekki trú á því,
en svo sló það óvænt
algjörlega í gegn.
Þessum heimi og ferð-
um um hann er lýst
svo ýtarlega, að les-
endum finnst hann
raunverulegur og lifa
sig inn í hann,“ segir
í tilkynningu.
Meginþráður sög-
unnar spinnst um Hringinn eina
sem býr yfir ógnarvaldi. Komist
hann í hendur Myrkrahöfðingjans
er öll heimsbyggðin í voða.
Hringadróttinssaga er prentuð í
Prentstofu G.Ben-Eddu. Bókin er
um 400 síður með viðauka og er
verð henmir 3.860 kr.
Nýjar bækur
Hringadróttins-
saga öll á íslensku
Tolkien
á kynningarverði!
með 6 földu míkrófílterkerfí.
Kynnlngarveri kr. 14.700
eba kr. 13.965 stgr.
PREMIER 1300W
_______________ með 5 földu míkrófilterkerfí.
Glæsilegor ryksugur x Kynningarverbkr. 9.900
eða kr- 9-405 stgr.
Vib bjóbum nú þessar glæsilegu og vönduðu ryksugur
frá einum stærsta og virtasta framleibanda Þýskalands
á sérstöku kynningarverbi.
EIO ryksugvmar eru
tæknilega fullkomnar,
lágværar, meö
slillanlegum sogkraftí
og míkrófilterkerfi,
sem hreinsar burt
smæstu rykagnir.
Soghausinn er á hjólum, svo
þab er leikandi létt ab
ryksugal
I
Einar Farestveit & Co hf,
Borgartúni 28 -zr 562 2901 og 562 2900
Jólatónleikar
Landsbanka-
kórsins
LANDSBANKAKÓRINN heldur
sína árlegu jólatónleika í Seltjarn-
arnarneskirkju fimmtudaginn 14.
desember kl. 20.30.
Sungin verða ýmis jólalög eftir
innlenda og erlenda höfunda. Söng-
stjóri er Guðlaugur Viktorsson. Ein-
söngvari með kórnum er Svava Ing-
ólfsdóttir og undirleik annast Pavel
Smid og strengjakvartett.
Aðgangur er ókeypis.
----» « 4---
Fræðslufundur
Minja og sögu
NÆSTI fræðslufundur Minja og
sögu verður haldinn í Norræna hús-
inu í dag, fimmtudag, kl. 17.15.
Þór Whitehead fjallar um nýút-
komna bók sína, Milli vonar og ótta,
og nefnir spjall sitt: Smáríki teflir
við stórveldin, sjálfstæðis- og lífs-
barátta Islendinga í upphafi síðari
heimsstyijaldar. Að því loknu svar-
ar Þór fyrirspurnum fundarmanna.
Blab allra landsmanna!
2Mwj0tmMafotib
- kjarni málsins!