Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 31
STOFNFUNDUR Richard Wagner
félagsins á íslandi var haldinn að
viðstöddu fjölmenni á Hótel Holti
í Reykjavík á þriðjudagskvöld.
Kjörin var stjórn, lög samþykkt og
drög að starfsáætlun lögð fram.
Stofnfélagar eru þegar orðnir á
annað hundrað talsins en stofnfél-
agaskránni verður lokað 1. mars
1996.
Samkvæmt lögum félagsins er
tilgangur þess að kynna íslending-
um tónlist Richards Wagners og
önnur verk hans, að kynna íslend-
ingum sérstaklega þá þætti ævi-
starfs hans sem varða íslenska
menningu og stuðla að rarvnsókn-
um á þeim, að auka íslenskum tón-
listarmönnum áhuga og þekkingu
á verkum hans og stuðla að flutn-
ingi þeirra á íslandi, að koma af
stað umræðu á alþjóðavettvangi
um tengsl Wagners við íslenska
meftningu og að taka þátt í alþjóð-
legu starfi til kynningar, flutnings
og rannsókna á verkum Richards
Wagners, ekki síst því er tengist
hátíðinni í Bayreuth.
Sérstaða Richard Wagner fé-
lagsins á Íslandi, meðal sambæri-
legra félaga, felst án efa í áhuga
þess á rannsóknum á tengslum
tónskáldsins við íslenska menn-
ingu. „Ég leyfi mér að fullyrða að
Niflungahringurinn er dýrasti toll-
ur sem Evrópa hefur goldið íslensk-
um menningararfi," sagði Jóhann-
es Jónasson, sem kjörinn var í
stjórn, á fundinum og bætti við að
Richard Wagner væri eðlilegt við-
fangsefni í íslenskum fræðum.
Hann hefði til að mynda- komist
nær íslenskum bókmenntum en
flestir aðrir, sem þó hefðu farið
fræðilegu leiðina.
Hefði hrist höfuðið
Undirbúningsfundur að stofnun
Richard Wagner félags á íslandi
var haldinn í Bayreuth í Þýska-
landi í ágúst síðastliðnum, þar sem
Loðvík 2. Bæjarakonungur lét
reisa Wagner-leikhús. Eru verk
hans færð þar upp á áriegri tónlist-
arhátíð. Hópur íslendinga sótti
hátíðina að þessu sinni og sam-
þykkti hann að unnið skyldi að
stofnun félagsins á þessu ári. Var
fimm manna undirbúningsnefnd,
undir forystu Selmu Guðmunds-
dóttur, skipuð í því skyni.
Selma ávarpaði stofnfundinn og
sagði meðal annars að ef einhver
hefði sagt henni fyrir fimmtán
árum að hún ætti eftir að hafa
Richard Wagner félagið á Islandi sett á laggirnar
Eðlilegt viðfangsefni
í íslenskum fræðum
Morgunblaðið/Kristinn
UNDIRBÚNINGSNEFNDIN sem lagði drög að stofnun Richard Wagner félagsins á Islandi: Árni
Björnsson, Jóhann J. Ólafsson, Grétar ívarsson, Selma Guðmundsdóttir og Jóhannes Jónasson.
Selma var kjörin formaður félagsins á fundinum og þeir Jóhann og Jóhannes í stjórn ásamt Barða
Árnasyni og Sólrúnu Jensdóttur. Árni og Grétar voru kjörnir í varastjórn ásamt Árna Tómasi
Ragnarssyni.
STEINGRÍMUR Hermannsson seðlabankastjóri er meðal stofn-
félaga Richard Wagner félagsins á íslandi.
forgöngu um stofnun Richard
Wagner félags á íslandi, hefði hún
hrist höfuðið. „Wagner kom tiltölu-
lega seint til sögunnar hvað mig
varðar." Kvaðst hún hafa kynnst
verkum tónskáldsins á námsárum
sínum í Svíþjóð og Þýskalandi og
fljótlega heillast af þeim.
Selma átti drúgan þátt í því að
Niflungahringurinn í styttri út-
gáfu, var færður upp, fyrst ópera
Wagners, hér á landi í Þjóðleikhús-
inu á liðnu ári. Kvaðst hún sann-
færð um að íslenskum aðdáendum
Wagners hefði fjölgað til muna í
kjölfar þeirrar uppfærslu og kynn-
ingarinnar á tónskáldinu sem henni
fylgdi. Sagðist Selma vona að
framhald yrði á sýningum á óper-
um Wagners hér á landi, þótt smæð
leikhúsanna, einkum hljómsveitar-
gryfjanna, setti þeim skorður. Var
fundurinn henni sammála um að
brýnt væri að gera ráð fyrir góðri
aðstöðu fyrir tónlistarmenn þegar
næsta leikhús verður reist á Is-
landi.
Þegar röðin kom að formanns-
kjöri stakk Árni Björnsson fundar-
stjóri, fyrir hönd undirbúnings-
nefndar, upp á Selmu Guðmunds-
dóttur og var hún kjörin með dynj-
andi lófataki. Sólrún Jensdóttir,
Barði Árnason, Jóhannes Jónasson
og Jóhann J. Ólafsson voru jafn-
framt kjörin í stjórn.
Sótt um aðild
Nokkur umræða spannst um
nafn félagsins á fundinum en undir-
búningsnefndin hafði stungið upp á
nafninu Wagnerfélagið á íslandi.
Þessu andmælti einn fundarmanna,
Þorsteinn Hannesson, og lagði til
að félagið yrði kennt sérstaklega
við Richard Wagner, til að fyrir-
byggja misskilning. Árni Björnsson
upplýsti þá að undirbúningsnefndin
hefði upphaflega verið einhuga um
nafnið Richard Wagner félagið á
íslandi en íslensk málstöð hefði á
hinn bóginn hreyft mótmælum, þar
sem það félli illa að íslensku máli
að skilja orðin Wagner og félag í
sundur. Var tillaga Þorsteins engu
að síður borin undir atkvæði og
samþykkt — nær samhljóða.
Af öðrum málum sem samþykkt
voru á fundinum má nefna að stjórn
félagsins var falið að sækja um
aðild að alþjóðlegu Wagnersamtök-
unum sem innihalda um eitt hundað
félög og 23.000 félaga um heim
allan.
Þá samþykkti fundurinn að skora
á Ríkisútvarpið-sjónvarp að taka
sem fyrst til sýninga myndbands-
upptöku sem það gerði á sýningum
á Niflungahringnum í Þjóðleikhús-
inu.
Bayreuth-hátíðin var, sem von
er, ofarlega á baugi á fundinum og
sagði Jóhannes Jónasson að stjórn
félagsins myndi kosta kapps um að
útvega meðlimum þess miða á há-
tíðina en eftirspurn eftir þeim er
gríðarleg. Sagði Jóhannes að menn
geti ekki verið öruggir um að fá
miða fyrr en í áttunda skipti sem
þeir sækja um. „Vonandi tekst okk-
ur að fá einhveija fyrirgreiðslu í
nafni félagsins."
Hinu nýja félagi bárust heilla-
óskaskeyti frá Wolfgang Wagner,
sonarsyni Richards, og eiginkonu
hans og forseta alþjóðlegu Wagner-
samtakanna. Lýstu þau yfir ánægju
sinni og fögnuðu þessum liðsauka.
Jólasýning í Gallerí Fold
NÚ stendur yfir
í baksal Gallerís
Foldar við
Rauðarárstíg
árleg jólasýn-
ing. Þar eru til
sýnis og sölu
verk nokkurra
þeirra lista-
manna sem
Gallerí Fold sel-
ur fyrir.
Meðal þeirra
sem eiga verk á
sýningunni eru
Hringur Jó-
hannesson,
Kjartan Guðjónsson, Bragi Ásgeirs-
son, Sossa, Jóhannes Geir og Karó-
lína Lárusdóttir.
í kynningarhorni Foldar sýnir nú
kínverskur listmálari olíumyndir.
Hann heitir Shen Jo og er útskrifað-
ur úr myndlistarháskólanum í Pek-
SHEN Ji við eitt verka sinna
ing. Hann hefur dvalist hérlendis
undanfarið og málað íslenskt lands-
lag og myndir úr Reykjavík.
Þá stendur yfir sölusýning á gler-
og keramikverkum eftir þekkt lista-
fólk.
Sýningunum lýkur 7. janúar.
Nýjar hljómplötur
• ÚT er kominn hljómdiskur með
leik Sigurðar Halldórssonar selló-
leikara og Daníels Þorsteinssonar
píanóleikara.
Diskurinn hefur að geyma úrval
verka frá þessari öld sem þeir félag-
ar hafa flutt á tónleikum víðsvegar
á undanförnum árum. Á efnis-
skránni eru verk eftir Claude ,De-
bussy, Paul Hindemith, Svein Lúð-
vík Björnsson, Dmitri Shostakovich
og Alfred Schnittke.
Hljómdiskurinn er hljóðrtaður í
Fella- ogHóIakirkju síðastliðið
sumar. Hann prýða myndireftir
Grétar Reynisson unnar úr píanó-
og sellóstrengjum. hann ergefinn
út á vegum Skrefs, íslenskra tónlist-
armanna ogkostarkr. 890. Japis
dreifír.
JÓIATILB
hefst í ckffj*
30-60% afslátft|ij!
Dæmi um verð
AðuF
Bómullarpeysa 3.790
Bómullarpeysa 4.890
Silkipeysa 4.790
Hvít dömuskyrta 2.490
Silkiskyrta 3.990
Pils + jakkapeysa 6.490
Kjóll 3.690
Buxur 3.990
Leggings 990
Herrabuxur 3.990
Pils 3.990
Eróbikksokkar 290
Bómullarbolur 1.890
Nú
2.650
1.990
3.350
1.690
2.790
3.890
2.650
2.790
690
2.790
1.990
190
1990
Síðumúla 13,108 Reykjavík,
sími 568-2870.
Opið kl. 10.00-18.30.