Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 33
LISTIR
,'WB FÍNNÍÐ ORyiKiRNAR. I LÆjl.SUM
AROSRi NÚflMAU9T4H4HMA. I UNDÍRr
FÖRULUMSKRlfUM HEÍMSPER.ÍNAANNA. <
IjARMRVÆUIM 10NSKÁLDANNA OtKlASTR.1
ARVÍTEKTANnA. NEÐ AER-BUM Sl’NUM
í*AfA VEin. UNDAvJ EÐULE6RÍ SlALFj'
IMVNO OKKAR: WD VAR. HEÍMEPEKÍNtUR.
DEMPANN upp LUOlEVEio. NUTÍMAUSrA-
MAÐUR.SEM AFSVRfilAD! MANNELÍKAMAnM
oí NirtiMAAKmEKr SEM turNAö teiNAtL
MAWNíJANDSAMLttA 'StWuV.UMEALDA Ul
[ VESSlR. RAUNVERULEOl.tUÍPAMEAIN ERu
ULTAR ( SAUeAötRO, Wl EÍNSOL SANNl'„MANN-
YÍNIR‘*WlOASl„VEÍRV6f!A AÐAOÐíA LlpiD 0£
„AKiUREINA STOBU MANNsÍNS I NthtMANUM. ■
ÍRAUN OL VEWI ERU i’tip. EiNUNOiS AD UTHROPA
EtlÍÐ SAURSVAKIHOL Ot W£> SlSmR 06
qrA-RRAR MED HVERRÍ UULMNO 9v0 EAÐ
BERtMAlAP-i INNANHÍMUM HAOLUNUM LeirW.I
ÞORRI Hringsson: Bob Mórall (hluti). 1994.
Bob Mórall
MYNPLIST
Gallcrí Grcip /
Viö Ilamarinn —
Ilafnarfiröi
MYNDASÖGUR/
MÁLVERK O.FL.
Samsýningar. Opið kl. 14-18 alla
daga nema mánudaga til 17. des.
Aðgangur ókeypis.
HÉR á landi hefur öflugur hóp-
ur ungra listamanna tekið ást-
fóstri við myndasöguna sem list-
form, og óhikað haldið því fram á
vettvangi myndlistarinnar, bæði
með sýningahaldi og útgáfu tíma-
ritsins Gisp!, sem kemur nú út í
sjöunda skipti. Þessi útgáfa er í
tilefni tveggja sýninga, sem íjalla
annars vegar um nýjar myndasög-
ur og hins vegar um tengsl mynd-
listar og myndasagna í verkum
íslenskra listamanna.
Nýjar myndasögur
í Galleríi Greip eru á veggjum
ýmsar þær myndasögur, sem
prýða einnig 7. tölublað Gisp!, sem
og meira efni frá hendi Ijölmargra
listamanna. Er fróðlegt áð sjá á
þessum vettvangi mismunandi stíl
og þau ijölbreyttu viðfangsefni,
sem listafólkið tekur fyrir, sem
skiljanlega hljóta að höfða mis-
jafnlega til gesta.
Af nýju efni sem hér er að finna
(og ekki er í blaðinu) má m.a.
benda sérstaklega á „Nettröllin“
eftir Bjarna Hinriksson, sem er
afar smellin og nútímaleg ömmu-
saga, þar sem teiknistíll Bjarna
nýtur sín vel.
Þeir Halldór Baldursson og Ól-
afur Árni takast hér á við hið
þekkta form x myndasyrpunnar,
eins og hún birtist í dagblöðum;
væri full ástæða fyrir íslensk dag-
blöð að sýna meiri metnað á þessu
sviði í stað þess að endurbirta sí-
fellt andlausar og kauðalegar er-
lendar syrpur. Pólitísk skot Hall-
dórs eru meinfyndin, en lesendur
Viðskiptablaðsins hafa um skeið
getað notið verka hans á þessu
sviði. Ólafur Árni vinnur á enn
þrengra sviði með „Sögum af prik-
inu“, en þar væri eflaust einnig
kjörinn vettvangur fyrir samtíma-
spjall á hveijum tíma.
Þessar nýju sögur sýna glögg-
lega að það er gróska í þessu
knappa listformi hér á landi, sem
væri vert að koma betur á fram-
færi.
Við Hamarinn hefur verið kom-
ið upp sýningu á verkum ýmissa
landsþekktra listamanna, sem
hafa leitað fanga í myndasögunni
í list sinni. Þetta hefur lengst af
verið helsta einkenni listar Errós,
en hér koma einnig á óvænt verk
eftir Hring Jóhannesson; kímni
popp-listarinnar hefur þannig rat-
að hingað á sínum tíma, þótt með
takmörkuðum hætti væri.
Myndasögur í myndlist
Einkum er þó að fínna hér verk
listamanna af yngri kynslóðum,
eins og vænta mátti (en hér virð-
ist myndasagan eingöngu hafa
höfðað til karlmanna, sem mun
einnig áberandi í ýmsum öðrum
löndum). í þessum hópi má nefna
listmálara eins og Helga Þorgils
Friðjónsson, Daða Guðbjörnsson,
Kristin G. Harðarson, Hallgrím
Helgason og Þorvaid Þorsteinsson,
sem ýmist eiga hér sjálfstæðar
myndsögur eða verk sem greini-
lega eru dregin af hetjum teikni-
myndasagnanna, líkt og styttur
Þórs Vigfússonar.
Tengsl einstakra listamanna við
myndasögurnar eru misjafnlega
augljós, og væri áhugavert að
kanna þau á fræðilegan hátt. Hið
sama má ekki síður segja um það
hráefni sem Erró vinnur úr, sem
og myndstíl hans, en þessar hliðar
á listsköpun hans hafa enn lítt
verið athugaðar; þar er mikið verk
óunnið.
7. tölublað Gisp! er fulit af
myndasögum, eins og vera ber,
sem að þessu sinni eiga það marg-
ar sammerkt að vera eins konar
samræða við söguna; Bob Mórall
(eftir Þorra Hringsson) birtir
þannig beinskeytt skilaboð til les-
enda um hvernig taka skuli kenn-
ingaflóði myndlistanna. í blaðinu
er einnig að finna vandaða hug-
leiðingu Þorra um menningu,
myndlist og myndasögur, þar sem
þessir þættir eru tengdir saman á
fræðilegan og hugmyndaríkan
hátt; þetta er lesning sem áhuga-
fólk um listasögu ætti ekki að láta
fram hjá sér fara.
Báðar þessar sýningar bera vott
um mikla grósku á þessu sviði
myndlistarinnar hér á landi, sem
ekki hefur notið þeirrar athygli
sem vert væri. Er rétt að hvetja
fólk til að skoðar báðar sýningarn-
ar vel, þar sem efni þeirra á vænt-
anlega eftir að koma nokkuð við
sögu í íslenskri myndlistarumræðu
á komandi árum; Bob Mórall er
ekki einn á báti. . .
Eiríkur Þorláksson
Mögnuð verðlaunasaga
BOKMENNTIR
Unglingabók
MAGNAÐAR MINJAR
Höfundun Gary Crew. Guðui Kol-
beinsson sneri á íslensku. Utgefandi:
Lindin, Reykjavík, 1995
EKKI er hægt annað en að
hryggjast yfir því hvað þýddum
verðlaunabókum fyrir unglinga
hefur verið lítill gaumur gefinn
fyrir jólin. Þó erlendu bækurnar
skari oft fram úr íslensku bókun-
um virðist minna lagt í markaðs-
setningu þeirra með þeim afleið-
ingum að þær fá minni umræðu
og færri fá að kynnast þeim en
hinum. Sú staðreynd er miður og
full ástæða til að hvetja vini og
ættingja yngri lesenda til að kynna
sér úrvalið af þýddum verðlauna-
sögum fyrir unglinga.
Lindin hefur sérhæft sig í út-
gáfu þýddra verðlaunabóka og gaf
út þrjár verðlaunabækur 'í bóka-
röðinni Erlendar verðlaunabækur
fyrir jólin í fyrra. Þó aðalsöguhetj-
urnar séu unglingar fer því fjarri
að bækurnar höfði aðeins til ungl-
inga enda eru þær fyrst og fremst
frábær bókmenntaverk. Magnaðar
minjar, fjórða bókin í bókaröðinni,
gefur hinum fyrri ekkert eftir.
Hins vegar sker hún sig úr að því
leyti að varla er hægt að mæla
með henni fyrir mjög
viðkvæmar sálir. Þeim
mun eftirsóknarverð-
ari er hún hins vegar
fyrir þá sem sækjast
eftir spennu og magn-
aðri atburðarás.
Atburðarásin hefst
á því að Stefán Skírn-
is, 16 ára skólapiltur,
finnur af tilviljun dag-
bók, skorpna manns-
hönd og svokallaðan
mannætupott frá 17.
öld á skólaferðalagi á
vesturströnd Ástralíu.
Stefán heldur fjórða
hlutnum eftir og verður fyrir
kynngimagnaðri reynslu, að því
er virðist, af hans völdum. Hann
skrifar dagbók með yfirskriftinni
Miðleið og lætur hana tengja sam-
an bréf, blaðagreinar og úrklipp-
ur, sem hann safnar saman um
fundinn. Þegar svo Stefán týnist
eru gögnin, Stefánsskjölin, einu
heimildirnar um lífsreynslu hans.
Aðaleinkenni sögunnar er, að
ef frá eru taldir formálí og eftir-
máli eftir dr. Osk Michaels, for-
stöðumann Vestur-áströlsku
sjávarminjastofnunarinnar, bygg-
ist hún ekki á öðru en Stefáns-
skjölunum. Með því móti getur
höfundurinn skammtað takmark-
aðar og misábyggilegar upplýs-
ingar til lesandans. Hans er svo
að raða brotunum
saman og komast að
niðurstöðu. Höfund-
urinn lætur heldur
ekki hanka sig á ein-
faldri lausn. Sögulok-
in eru í stíl við at-
burðarásina, dularfull
og vekja mun fleiri
spurningar en svör.
Magnaðar minjar
er mögnuð verðlauna-
saga fyrir, spennufíkla
á öllum aldri. Hjálpast
þar allt að. Höfundur-
inn veldur vel frum-
legri frásagnaraðferð
sinni. Persónurnar standa lesand-
anum ljóslifandi fyrir hugskots-
sjónum og natni er lögð við lýsing-
ar á umhverfi og aðstæðum. Ekki
síst er hér átt við frásögr, skip-
brotsmannsins Vilhjálms Loos af
samskiptum hans við hinn illa inn-
rætta Janus Pelgrom og frum-
byggja Ástralíu.
Sagan er gefin út með styrk
úr þýðingarsjóði og er lipurlega
þýdd af Guðna Kolbeinssyni. Ef
frá eru taldar tvær meinlegar
prentviilur er útgáfan til fyrir-
myndar.
Magnaðar minjar fékk Austral-
ian Book of the Year-verðlaunin
fyrir eldri lesendur árið 1991.
Anna G. Ólafsdóttir
Gary Crew
LISTMÖNAUPPBOD
Á HÓTEL SÖGU í KVÖLD KL. 20.30.
GLÆSILEG VERK GÖMLU MEISTARANNA.
EKTA PERSNESK HANDUNNIN TEPPI.
VERKIN SÝND í DAG KL. 10-18.
IÓLBSÝN1NG
HEFST LAUGARDAGINN 16. DESEMBER.
M.A. VERK EFTIR KARÓLÍNU LÁRUSDÓTTUR
OG SIGURBJÖRN JÓNSSON.
JÓLAGLÖGG FRÁ KL. 16.00.
SÍÐASTA SÝNING í PÓSTHÚSSTRÆTINU,
GALLERÍIÐ FLYTUR 1. JANÚAR 1996.
ANTINVERSLDNIN
í FAXAFENI 5 ER TROÐFULL AF
GLÆSILEGUM HÚSGÖGNUM OG SMÁHLUTUM.
STÓR SENDING VÆNTANLEG FYRIR JÓL.
ÞESS VEGNA ERU MARGAR VÖRUR Á TILBOÐI.
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10.00-18.00.
HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI.
BORG
við Austurvöll
Sími 552 4211