Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 35
AÐSENDAR GREINAR
Eflum þróunarstarfið
enn frekar
í SÍÐUSTU viku
gerði ég að umtalsefni
í blaðagrein að megin-
umræðan um grunn-
skólann síðustu mánuði
hafi einskorðast við
fjárhagsleg sjónarmið.
Slíkt er ekki óeðlilegt
þegar tekið er tillit til
erfiðrar fjárhagsstöðu
sveitarfélaganna og
ótta við að auknar kröf-
ur þýði aukin útgjöld
sem verði ekki mætt í
tekjustofnum.
Þessi umræða má þó
engan veginn draga úr
fijórri umræðu um
Árni Sigfússon
öflugra þróunarstarf, ekki síst vegna heilsdagsskólans
þess að í því verður að felast að góð
meðferð fjár _er hluti af vönduðu
skólastarfi. Áhersla á árangurs-
stjórnun getur skilað betri menntun,
hagkvæmari byggingum og hag-
kvæmari rekstri. Eg er sannfærður
um að metnaður fyrir innra starfi
skólans er vísastur til að leysa kröf-
ur um byggingar, vinnutíma og laun
kennara á skynsamlegastan hátt.
Án metnaðar fyrir fræðslustarfinu
sjálfu, þar sem stefnt er á að veita
bestu grunnskólamenntun í heimi,
verður umræða um byggingar og
launakjör allsráðandi, en skilar
hvorki kennurum né nemendum
fram á veg.
merkir áfangar í fyrra
og sjálfstæðismenn
munu leggja áherslu á
að áfram verði haldið á
þeirri braut.
Nú nýta um 2.300
börn sérþjónustu Heils-
dagsskóla. Verkefninu
sem hafið var 1993 er
ætlað að veita þeim
börnum aukið félags-
legt öryggi, heilbrigt
umhverfi og skynsam-
leg not á tíma. Þetta
verkefni getur einnig
kennt okkur ýmislegt
um skynsamlega nýt-
ingu fjár. Forverar
voru skóladag-
heimilin. Þau veittu vandaða þjón-
ustu, en kostnaður var afar mikill.
Fyrir tilkomu heilsdagsskólaþjón-
Efla þarf hugsjóna-
starf, segir Arni
Sigfússon, fyrir
betri grimnmenntun.
Mikilvæg skref í átt
til framtíðar
Á undanförnum árum hefur skóla-
starf í Reykjavík þróast ört fram á
við. Þetta starf hefur verið undir
forystu sjálfstæðismanna. Mikilvæg
skref hafa varðað veginn til framtíð-
ar. Þar má nefna átak í tölvuvæð-
ingu grunnskólanna sem hófst árið
1992. Nú eru á 6. hundrað tölvur í
grunnskólunum. Hér má ekki láta
staðar numið. Framundan er að efla
sérþekkingu kennara og styrkja not
þessa búnaðar í þágu hinna ýmsu
námsgreina.
Þróunarsjóði sem stofnaður var
af Reykjavíkurborg fyrir þremur
árum er ætlað að efla nýjungar sem
gætu leitt til betra skólastarfs. Við
sjálfstæðismenn töldum mikilvægt
að þessum sjóði yrði beint í átt að
vísindakennslunni og gæðamati á
skólastarfi. í báðum tilvikum náðust
ustu voru 350 börn á skóladagheim-
ilum, sem kostaði borgarsjóð um 116
milljónir króna á ári. Þótt fjöldi
barna T' þjónustu heilsdagsskólans
sé orðinn sexfaldur miðað við fjöld-
ann á skóladagheimilunum er kostn-
aður borgarsjóðs aðeins um 69% af
því sem skóladagheimilin kostuðu,
eða um 80 milljónir króna. Fyrir
hluta þeirra barna sem nýttu skóla-
dagheimilin er þjónustan ekki eins
víðtæk og áður var en fyrir þúsund-
ir barna hefur verið skapað öryggi
og fræðsla, sem alls ekki var til stað-
ar.
Verkefnið Tilveran hefur nú verið
boðið af Reykjavíkurborg til allra
12 og 13 ára barna í grunnskólum
borgarinnar s.l. 3 ár. Verkefninu er
ætlað að efla sjálfstæð viðhorf ungl-
ingsins og heilbrigða lífssýn. Skóla-
búðir að Ulfljótsvatni hafa verið sett-
ar upp m.a. til að styrkja þetta verk-
efni.
Hér eru talin helstu verkefnin, auk
einsetningaráforma, sem við sjálf-
stæðismenn höfum viljað vinna að.
Einnig mætti telja stuðning við ný-
í sumar upplifði ég
martröð fyrri tíma,
afturhvarf til fortíðar,
segir Lárus Helgason
og bendir á að nú sé
enn talað um skerðingu
fjár til Landspítala
og því væntanlega um
leið til geðdeilda.
til þess að þeir fái bestu meðferð
er völ er á og valdi ekki truflun á
meðan. í sumar varð að loka ann-
arri móttökudeildinni. Og margir
sjúklingar með oflæti eða sturlun
voru því lagðir inn á hina móttöku-
deildina til þess að unnt væri að
viðhalda nauðsynlegu meðferðar-
umhverfi. Sjúklingum leið illa og
aðstandendum, sem voru að koma
með sjúklinga til innlagnar eða
komu í heimsókn, féllust hendur.
Mikið álag hvíldi á starfsfólki og
stóð það sig með ágætum í því að
bjarga því sem bjargað varð. Sum-
arorlof voru skert. Nú þegar komið
er fram í desember kemur í ljós við
uppgjör skrifstofunnar að ijöldi
starfsmanna, ekki síst lækna, á
meira eða minna óúttekið orlof sem
verður að taka út nú í vetur eða
tvöfalt orlof næsta sumar.
sköpun og listkynningu í skólum.
Önnur verkefni sem við höfum sinnt
varða t.d. aukið sjálfstæði grunn-
skóla borgarinnar. Sérstakir skóla-
sjóðir voru lagðir til skólanna fyrst
árið 1992 til frjálsrar ráðstöfunar.
Þá tókum við þá stefnu að skólarnir ^
hefðu frjálsari hendur með not þeirra
framlaga sem til þeirra fóru. Sam-
hliða þróun mats á skólastarfi eru
hér lykilverkefni til aukinnar hag-
kvæmni í rekstri og aukinna gæða
í skólastarfi.
Tilgangur þessa greinarkorns er
að hvetja foreldra og skólamenn til
áframhaldandi hugsjónastarfs fyrir
betri grunnmenntun. Aðeins þannig
verður „fjöregg þjóðarinnar" flutt
óbrotið á milli ríkis og sveitarfélaga.
Höfundur er oddviti sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn.
Fyrst á starfsferli mínum sem
geðlæknir eða fyrir u.þ.b. 30 árum
var meðferð skammt á veg komin.
Lyf gáfu takmarkaðan árangur og
oft reyndist erfitt að hindra fram-
gang alvarlegra geðsjúkdóma.
Sjúklingar skertust og sumir urðu
ósjálfbjarga, aðrir öryrkjar. Ástand
þeirra hafði áhrif á viðhorf almenn-
ings til geðsjúkdóma. Á starfsferli
mínum hefi ég notið byltingar á
þessu sviði. Nú fá allir einhvern
bata, margir fullan bata. í sumar
upplifði ég hins vegar martröð fyrri
tíma, nokkurs konar „afturhvarf til
fortíðar". Síinnlagningum fjölgaði,
þjáningar sjúklinga lengdust og sum-
ir skertust verulega. Margir aðstand-
endur urðu fyrir miklu álagi og sár-
um vonbrigðum. Við sem störfum
við geðdeild Landspítalans viljum
ekki takast aftur á við þær hörmung-
ar er áttu sér stað síðastliðið sumar.
Við viljum fá að veita þá þjónustu
sem við getum verið stolt af.
Nú heyrist talað um enn frekari
skerðingu fjár Landspítalans og þá
væntanlega um leið til rekstrar geð-
deilda. Afleiðing þess verður enn
meiri skaði af sjúkdómnum. Fyrir
utan þjáningár lengist fjarvera frá
störfum og meira verður um varan-
legan skaða. Þetta mun leiða til
meiri hörmungar og kostnaðar fyrir
sjúklinga jafnt sem aðstandendur
og einnig fyrir Tryggingastofnun
ríkisins.
Höfundur er yfirlæknir við skor
1, geðdcild Landspítalans.
°j
i£
sejrn sinaa.
EGGERT feldskeri
Sími5511121
Heilandi og þroskandi
jóiagjafir
HUGLEIÐSLUSNÆLDUR
OG STAÐFESTINGARSPJÖLD
GUÐRÚNAR BERGMANN
NYKOMNAR SNÆLDUR
Elskaðu líkamann
Á hliö A er ein hugieiösla sem
hjálpar þér aö senda kærleik til
líkamans. Hugsunin er eitt
sterkasta afl sem þú átt og meö
henni getur þú haft áhrif á starf-
semi líkamans. Með því aö nota
f myndunaraflið getur þú breytt
orkuflæðinu og losað burtu
neikvæöa orku.
Á hliö B eru jákvæöar staöfest-
ingar sem tengjast líkamanum.
Þú getur hlustað á þær heima, í bílnum eöa hvar sem
er. Þær hjálpa þér aö skynja líkamann á nýjan máta og
að ELSKA LÍKAMANN - alltaf.
,jj ; | Heilun jarðarinnar
Hliö A: Jöröin sem
heimili þitt.
Hliö B: Kærleikur og friöur
til jaröar.
Með því aö senda kærleiks-
ríkar hugsanir og jafnvægisstil-
landi orku til jarðarinnar, þá
getur þú stutt hana í þeim
umbreytingum, sem hún er aö
fara í gegnum. Um leið og þú
heilar jörðina og breytir viðhorfi
þínu til hennar, þá heilar þú sjálfan þig, því líkami þinn
er af jörðinni. Hvert og eitt okkar leggur heiluninni lið,
hvort sem við vinnum ein eða mörg saman að því.
Jih Éf Witi hfifítilí (titt
Kterteitiur tJg p-iðttr tíljurBminatrr
.tíuðnm <L líi-iginann
EINNIG ÞESSAR SIGILDU SNÆLDUR
Tré lífsins
Tenging viö sálarljósiö kennir
okkur að skynja og efla Ijós
sálarinnar sem býr í hjartanu.
Við lærum líka að tengja það við
hug- og tilfinningalíkamann.
Rósin hjálþar okkur að skynja
kærleikann og að allir hlutir eru
angar af sömu heild.
Tré lífsins sýnir okkur að við
erum eins og tré, sem þarf að
hafa sterkar rætur, styrkan stofn
og breiða laufkrónu til aö halda
jafnvægi í jarðvistinni. Lögun trésins sýnir okkur hvar við
þurfum að bæta jafnvægiö.
Til móts viö meistarann hjálpar okkur áleiðis á
þroskabraut okkar og virkar eins og hvatning til aukins
andlegs þroska.
Eiskaðu Ifkamann
Markmiðiömeðþessum
staðfesfmgum eraðhjál-
Paþerað elska líkama
Pinn eins og hann er. f
gegnum líkamann uppli-
'r Þu allt í þessu lífj
°9 Þugeturbætt tengsl
nn, Vk hann með Því að
nofa þessar staöfestin-
9ar daglega.
Hin
geysivinsælu Kærleikskon
komin aftur:
Þessi frábæru staöfestingarspjöld eru
ætluö þér til hjálpar til aö staöfesta þær
breytingar sem þú vilt aö veröi á eigin
lífi í kærleika, Ijósi og friö.
Slökun
Þeir, sem eiga erfitt með svefn
geta notað slökun. Það er í
lagi að sofna út frá henni, því
undirmeðvitundin skynjar skila-
boðin. Þeir sem vilja stunda
slökun til að draga úr daglegri
spennu, ættu að hlusta á
slökunarsnælduna á
morgnana áður en þeir fara að .
vinna. Þannig hefja þeir
daginn betur undirbúnir og
eiga auðveldar með að kalla
fram minninguna um slökunina ef þeir finna til spennu.
Slökun krefst æfinga og því er ráðlegt að hlusta á
þessa snældu 40 daga í röð ef ná á
varanlegum árangri.
Efling orkustöðvanna
Megin orkustöðvar líkamans eru
sjö. Þær eru staðsettar með-
fram hryggsúlunni og tengjast
helstu innkirtlum líkamans,
Orkustöðvarnar sjá um orkuflæði
til ákveðinna líffæra og sam-
einaðar vinna þær að heildar-
jafnvægi í líkamanum. Ef þetta
heildarjafnvægi fer úr skorðum
leiðir það til heilsuleysis í líkam-
anum. Hver orkustöö á sér
samsvörunarlit og með því að
hugsa sér aö viðkomandi litur sé settur í orkustöðina
eflist kraftur hennar. Og með því að hugmynda spírala
út frá hverri orkustöð (þannig hreyfist orkan) þá byggj-
um við huglægt upp örvun í starfsemi hennar
og eflum lifskraft okkar.
Veitum persónulega ráðgjöf og þjónustu
Póstsendum
Greiðslukortaþjónusta
bGUR^P.l[T er 'ótCu**
BorgarkringHinni^^^- œtfajcí
Kringlunni 4, sími 581 1380