Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 42

Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Hugleiðing um slysatölur Endurskoðunar er þörf á stjórnskipulagi flugmála Meðaltalstölur um slys villa mönnum gjarnan sýn. Því miður. Sá raunveruleiki sem við okkur íslendmgum blasir er sá að síðustu hundrað árin hafa á að giska um 3.000 íslend- ingar farist af slysför- um á íslandi og á milli 30 og 40.000 hafa slas- ast alvarlega. Það get- ur enginn neitað því að þetta eru býsna háar tölur. Samt er það svo að almenningur verður þess oft ekki var hvað slys eru tíð. Hvers vegna? Það er vegna þess að þau eru ákaflega margskon- ar og dreifast á mörg svið. MeðaJ- talstölur á hveiju sviði verða þá ekki áberandi háar. Við skulum nefna dæmi: Inn í tölunni um 3.000 dauðaslys eru hugs- antega um 200 manns sem hafa far- ist í sundlaugum. Af þessu leiðir að banaslys í hverri sundlaug hafa að Alvarlegt slys er ham- ingjutjón, segir Ingi Hans Jónsson. Það veldur hópi ættingja og vina miklum harmi. meðaltali orði^ á u.þ.b. 50 ára fresti. Eftir hvert slys eru vamir gegn slík- um slysum efldar í viðkomandi laug, en þegar næsta slys á sér stað eru þær gleymdar eða jafnvel úreltar. Nefnum annað dæmi: Inni í tölunni „30 til 40.000 alvarlega slas- aðir“ eru kannski um 3.000 alvarleg- ir slysaáverkar á gömlu fólki þar sem slysin eiga sér stað á og við heimili þess. Dreifing þessara slysa er með þeim hætti að erfitt er að koma auga á að um sérstakt vandamál sé að ræða. Engu að síður er það stað- reynd að slík slys eru með stærri heilbrigðisvandamálum hérlendis. Á sama hátt má taka hvem slysa- flokk á fætur öðrum og komast að þeirri niðurstöðu að meðaltalið sé ekki tiltakanlega slæmt. Látum því ekki meðaltalstölur glepja okkur sýn. Markmiðin gerð skýrari Það voru skelfilega tíð sjóslys sem í upphafi vom meginhvatinn að stofnun Slysavamafé- lags íslands. Með nýju lífsmunstri hafa ýmsar hættur aukist og þrátt fyrir að félagar í Slysa- vamafélaginu hafi á starfstíma félagsins bjargað þúsundum manna úr háska hefur þörfin fyrir starfsemi félagsins í rauninni aldrei verið meiri en í hinum tækni- vædda heimi samtímans. Því þarf þjóðin nú sem fyrr að þjappa sér um félagið og taka þátt í baráttu þess. Slysavamafélagið hefur að und- anfömu endurskoðað starfsemi síng og skipulag. Þessi endurskoðun hef- ur miðað að því að stækka hópinn, virkja fleiri til starfa og gefa nýjum hugmyndum og baráttuaðferðum svigrúm. Hamingjutjón Hvert einstakt slys er harmleikur. Slys þýðir ekki aðeins orkumissi eða jafnvel dauða þess einstaklings sem í því Iendir. Alvarlegt slys er ham- ingjutjón sem veldur hópi ættingja og vina miklum harmi. Ef við nú höldum okkur við þær tölur sem nefndar vom hér í byijun, og gerum ráð fyrir því að slys snerti a.m.k. tí- faldan þann hóp sem þar er talinn, er víst að hvert okkar mun verða fyrir slíku hamingjutjóni með einum eða öðrum hætti einhvem tíma á ævinni. Lokaorð Baráttan er fyrst og fremst þjóð- arinnar allrar og þar má enginn láta sig vanta. Aðeins með víðtækri sam- stöðu landsmanna næst árangur í þeirri baráttu sem dugar til að fækka slysum. Höfundur býr i Grundarfirði og er stjómarmaður í Slysavarnafé- Iagi íslands. Á UNDANFÖRN- UM ámm hafa ijöl- margar ríkisstjómir í Evrópu gert sér ljóst að kostnaður vegna framkvæmda á flug- völlum og við flugum- ferðarstjórn myndu kosta skattborgarana ótölulegar fjárhæðir í náinni framtíð - nema að þessi rekstur verði skilinn frá ríkissjóðum viðkomandi landa. Raunin hefur nefni- lega verið sú að tekju- öflun flugvalla hefur að jafnaði verið lægri en efni standa til og geta þeirra til að afla hagstæðra kjara á fjármagnsmörkuðum van- metin. Þetta hefur komið berlega í ljós þegar flugvellirnir hafa þurft að standa á eigin fótum, öflug markaðssetning, breyttur hugsun- arháttur og markvissari gjaldskrár hafa þá skotið upp kollinum. Flug- vellirnir hafa skilgreint sig breiðar en áður var með því að leggja meiri áherslu á þjónustu við al- menning áður en farið er í gegnum vegabréfseftirlit (landmegin) með verslunum og veitingastöðum, gert hagstæðari samninga við leigjend- ur, nýtt verslunaraðstöðu betur og uppgötvað ýmsar aðrar tekjuleiðir. Fyrir marga sjálfstæða flugvelli er sífellt stærri hluti teknanna á sviði verslunar og þjónustu við flugrekendur. Þetta hefur gert það að verkum að hlutdeild lendingar- gjalda minnkar sífellt sem hlutfall af heildartekjum. Flugvellir hafa margir hveijir sett upp sín eigin fyrirtæki sem sjá um afgreiðslu flugvéla og þá oft í samkeppni við önnur samskonar fyrirtæki. Veru- legar tekjur renna til flugvalla með slíku fyrirkomulagi, tekjur sem eru í mörgum tilvikum hærri en téð lendingargjöld. Þetta má auðveld- lega útfæra á íslenskum flugvöll- um, sérstaklega ef flutningar auk- ast með aukinni samkeppni og fjöldi flugrekenda eykst. Vegna smæðar landsins má reikna með að ekki borgi sig að einka- væða einstaka flug- velli hér á landi. Flug- málastjórn má hins- vegar einkavæða svo framarlega sem slíkt fyrirtæki tæki alfarið yfir rekstur flug- stöðvanna á Keflavík- urflugvelli og á Reykj avíkurflugvelli. Tekjumyndun á þess- um flugstöðvum getur orðið mun meiri en nú er og þær því nauð- synlegar ásamt öðr- um tekjuleiðum til að fjármagna taprekstur flugvalla úti á landi. í ljósi breytts skipulags heimsmála ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að einka- rekið fyrirtæki starfræki Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Keflavíkur- flugvöll í heild þegar þar að kem- ur. Til að styrkja stöðu Fiugmála- stjómar sem einkafyrirtækis enn frekar væri brýnt að byggja nýja flugstöð á Reykjavíkuflugvelli, ef flugvöllurinn á að vera þar áfram, flugstöð sem gæti boðið upp á margháttaða tekjumöguleika sem ekki hafa áður þekkst hér á landi. í því sambandi þyrfti að skoða samtengingu BSÍ og slíkrar stöðv- ar enda nægt landsvæði fyrir hendi á því svæði. Heppilegasta leiðin til að einka- væða Flugmálastjórn væri sam- bland af þeim leiðum sem farnar voru hjá Vínarflugvelli og hjá sænsku flugmálastjórninni. I síðarnefnda tilfellinu var stofnað fyrirtæki í kringum flugmála- stjórnina sem er að vísu að fullu í eigu sænska ríkisins, en þarf engu að síður að standa sig eins og um hvert annað fyrirtæki væri að ræða. Vínarflugvöllur var hins- vegar einkavæddur á þann hátt að töluverð eignarhlutdeild var seld einkaaðilum til þess að fá fjármagn til framkvæmda. í Ijósi þess að Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur verið töluvert til umræðu vegna hárra lána sem eru baggi á rekstrinum og vegna þeirrar ákvörðunar fjármálaráðuneytisins að nota hluta þeirra tekjustofna sem markaðir voru til fram- kvæmda samkvæmt flugmála- áætlun til rekstrar Flugmála- stjórnar. Má ætla að fjármagn af sölu hlutabréfa á almennum markaði í slíku fyrirtæki væri kærkomin leið til að rétta rekstur- inn við um leið og viðkomandi sveitarfélög og ríkið tryggja sína hagsmuni með hlutabréfaeign. Eðlilegt væri að tryggja sjálfstæð- an rekstur slíks fyrirtækis og hagsmuni flugfarþega til hins ýtr- asta með því að útiloka flugfélög frá eignaraðild. Sú leið hefur með- al annars verið farin í Bretlandi. Skjótra breytinga er þörf á fyrirkomulagi flugmála á íslandi, seg- ir, Sveinn Yiðar Guð- mundsson, ef við eigum ekki að verða eftirbátar annarra ríkja í Evrópu. Ljóst má vera að þörf er á gagn- gerri endurskoðun á stjórnskipu- lagi flugmála á Islandi. Einkavæð- ing Flugmálastjórnar er vissulega einn vænlegasti kosturinn í þessari stöðu ekki bara til þess að auka arðsemi flugvalla og flugumferðar- þjónustu, heldur einnig til að auka þjónustu við flugfarþega og koma í veg fyrir að skattborgarar beri kostnaðinn af þeim miklu endur- bótum sem nauðsynlegar eru á Reykjavíkurflugvelli eða flutningi hans, rekstri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og hugsanlegri yfir- töku íslendinga á rekstri Keflavík- urflugvallar í heild. Höfundur er flugrekstrar- fræðingur. Ingi Hans Jónsson Sveinn Viðar Guðmundsson Opið bréf til ráðherra og þingmanna stjórnarflokkanna FYRIR tæplega þremur árum, þegar dóttir mín var nýlega orðin 16 ára, varð hún fyrir þeirri bitru reynslu, sem allir foreldrar biðja góðan guð að forða bömunum sín- um frá, að verða fórnarlamb hrotta- fengins nauðgara. Eg er viss um að flest venjulegt fólk áttar sig illá á afleiðingum slíkrar reynslu. Hræðsla við að fara úr húsi þó um hábjartan dag sé, brotin sjálfsmynd, ofsahræðslu- köst, sektarkennd og martraðir á hverri einustu nóttu - mánuðum saman. Þurfa að sofa í rúminu hjá mömmu sinni til að geta haldið í höndina á einhveijum sem þú treystir, meðan maður sér ekki með eigin augum hvað er að ger- ast í kringum mann. Detta út úr skóla og tónlistarnámi og treysta sér varla til eins eða neins. Þetta er í fáum orðum sagt mín reynsla af því sem gerðist. Lítum nú á framhaldið. Atburð- urinn var kærður, skýrslur teknar og ekkert nema gott eitt um það stig málsins að segja. Að fímm eða sex mánuðum liðn- um var hringt frá embætti saksókn- ara ríkisins og okkur mæðgunum tilkynnt að við ættum að mæta í Héraðsdómi Reykja- víkur sem vitni í málinu og jafnframt tilkynnt, án tilefnis, að viðurlög lægju við því að mæta ekki. Saksóknari, eða ein- hver fulltrúi hans, rak málið, ég veit ekki hvort var - því við vorum aldrei kynntár fyrir honum né reyndi hann að hafa tal af okkúr. Hann hefur að líkindum orðið sér úti um rannsóknarskýrsl- ur og sótt málið útfrá þeim, sem hann gerði í sjalfu sér vel. Ég hafði talað við lögfræðing sem ráðlagði dóttur minní að fara fram á miskabætur og tók síðan að sér að framfylgja því máli. Þeg- ar komið var í réttinn var ekki auð- sótt mál fyrir lögfræðinginn að fá að fylgja henni inn í réttarsalinn, en tókst þó. Lögfræðingurinn hafði þó eingöngu áheyrnarrétt og mátti ekki taka til máls, þó að bótakrafan væri frá honum komin. Þetta gekk víst allt fyrir sig eins- og lögin gera ráð fyrir. Telpan fór inn á undan mér og bar vitni. Þegar því var lok- ið spurði hún hvenær dóms væri að vænta, og dómarinn svaraði góðlátlega orðrétt: „Þú sérð hann í dagblöðun- um þegar þar að kem- ur.“ Þetta sagði hún mér um leið og hún kom fram. Næst var ég kölluð inn, en fékk engar upplýsingar um hvor af tveimur mönn- um sem þar sátu var sækjandi og hvor veij- andi. Þó reiknaði ég með að sá geðprúði sem sat mér á vinstri hönd væri frá ríkissaksóknara, en sá ógeð- felldi á hægri hönd væri lögmaður eða veijandi sakbomings (það reyndist rétt vera). Til að gera langt mál stutt sagði dómarinn satt. Fórnarlambið las fréttina í DV þar sem dómsorð og málavextir voru raktir ítarlega, og var ekkert dregið undan. Tilkynn- ing um dómsorð barst í pósti rúmum mánuði seinna. Dómurinn hljóðaði upp á 4 ára fangelsi og 500.000 krónur í miskabætur. Sextán ára bamið átti að sjá um að innheimta sektina sjálft hjá stór- hættulegum síbrota- manni, segir Bergljót Gunnarsdóttir, og spyr hvers konar réttarkerfi við búum við. Eftir þessa birtingu hafði ég samband við lögfræðing okkar og þá kom hinn bitri sannleikur í ljós. 16 ára barnið átti að sjá um að innheimta sektina sjálft og það hjá stórhættulegum síbrotamanni. Hverskonar réttarkerfi er þetta eiginlega? Spyr sá sem ekki veit. Það veit guð, virðulegu þingmenn - þó þið virðist ekki vita það, að þetta mál er ekkert einsdæmi og örugglega ekki það versta, þó slæmt sé. Saklaust fólk sem verður fyrir hrottafengnum árásum glæpa- manna - í þessu landi, sem hefur Bergljót Gunnarsdóttir dómskerfí sem kemur fórnarlömb- unum ekkert við og dæmir þeim bætur sem vitað er fyrirfram að þau fá aldrei greiddar, er algerlega réttlaust. Því kom það eins og ljós í myrkri óréttlætisins þegar Alþingi setti lög um greiðslu skaðabóta til fórnar- lamba glæpamanna, o'g skyldu þau taka gildi um áramótin 1995-96. Ljós í myrkri, segi ég, því það að sjá réttlætinu fullnægt, með augum þess sem hefur þolað órétt, er ótrúlega hvetjandi. Svo hvetjandi að ég hefði aldrei trúað því, hefði ég ekki séð það með eigin augum. Það er farið að skipuleggja nýja framtíð, nám o.fl., vitandi um að verða borgunarmaður fyrir því - i þessu tilviki eftir langt atvinnu- leysi. Og síðast en ekki síst að fá viðurkenningu yfirvalda á sjálf- sögðum mannréttindum. Nú ætlar þessi ríkisstjórn, sem komst á þing vegna fallegra lof- orða um bætt kjör þeirra sem minna mega sín og fegurra mann- líf í landinu, að sýna það snautlega atferli að fresta bótagreiðslum og ýmist að afnema þær eða lækka um helming. Þó sat rúmlega helm- ingur ykkar í þeirri stjórn sem samþykkti lögin, rétt fyrir síðustu kosningar. Ég spyr ykkur, virðulegu alþing- ismenn: Getið þið virkilega horfst I augu við sjálfa ykkur og samfélag- ið? Ef svo er, hvar erum við hin þá stödd? Spyr sá sem ekki veit. Höfundur er glerlistarmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.