Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 14.12.1995, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR + Stefanía Stef- ánsdóttir fædd- ist 12. október 1931 í Garðshomi í Norðfirði og and- aðist í Landspítal- anum 6. desember sl. Foreldrar henn- ar vom Stefán Thorarensen, lög- regluþjónn (1902- 1969) og Þorgerður Pétursdóttir (1913) Stefanía ólst upp hjá móður sinni og fósturföður, Björg- vini ívarssyni (1904-1988). Systkini Stefaníu sammæðra era Anna Margrét Björgvinsdóttir, f. 12.2. 1934, d. 14.3. 1951, Haukur Björg- vinsson, f. 9.4. 1935, Fjóla Björgvinsdóttir, f. 15.2. 1937, Ragna Björgvinsdóttir, f. 10.7. 1938, Berta Björgvinsdóttir, f. 1.10. 1939, ívar Björgvinsson, f. 30.1. 1941, Björk Björgvins- dóttir, f. 29.9. 1942, Pétur Björgvinsson, f. 24.4. 1944, óskirð stúlka, f. 13.10. 1945, d. 13.10. 1945, Hrafnhildur Björg- vinsdóttir, f. 9.8. 1947, Pálmar Björgvinsson, f. 29.6. 1949 og Anna Margrét Björgvinsdóttir, f. 18.3. 1951. Bróðir Stefaníu FRÁ ÞVí ég man fyrst eftir mér hefur Stebba frænka verið nálæg. Hún var elst systkina móður minnar og því held ég að við sem yngri vorum höfum alltaf litið upp til hennar. Þegar við urðum eldri kynntumst Stebbu betur óx samfeðra er Sigfús Thorarensen, f. 25.6. 1937. Stefanía giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Gunnari Árnasyni, framkvæmda- sljóra, þann 8. sept- ember 1951. For- eldrar hans eru Árni S. Böðvarsson, útgerðarmaður, og Maria Wilhelmína Heilmann Ey- vindardóttir, sem bæði eru látin. Börn Stefaníu og Gunn- ars em: Kjartan, rekstrarhag- fræðingur, f. 23.10. 1951, kvæntur Hrefnu Sölvadóttur, viðskiptafræðingi, og eiga þau fjögur böm, Klöm Rún, Stefán Má, Kára Hrafn og Elsu Björk. Þorgerður, geðhjúkrunarfræð- ingur, f. 7.6. 1955, gift Ásgeiri Grétari Sigurðssyni, fulltrúa, og eiga þau þijú böm, Gunnar Jörva, Atla Þór og Ástu Rún. Anna María, f. 3.9. 1962, gift Niels Moller-Jensen, bygginga- tæknifræðingi, og eiga þau þijú böm, Nínu, Emil og Jakob. Útför Stefaníu fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. virðingin og álit okkar á henni. Stebba var svo heppin að eiga góðan mann og börn. Á leið í gegn- um lífíð með þeim steytti hún stund- um á skeri en varð jafnan meiri manneskja á eftir en ekki minni. Þungt var áfallið þegar veikindi hennar komu fyrst í ljós fyrir nokkr- um árum. Stebba lét þau ekki buga sig en varð samt að lokum að lúta í lægra haldi. í ágústmánuði 1993 hittist fjöl- skyldan á Djúpavogi til þess að halda upp á 80 ára afmæli ömmu. Ég vil fá að muna Stebbu eins og hún var kvöld eitt þegar við fórum á þorpskrána. Þá var Stebba hrókur alls fagnaðar; fallegasta og skemmtilegasta konan á staðnum þótt hún væri fárveik og sárþjáð af krabbameini. Þannig verður hún ógleymanleg enda varð hún þetta kvöld hluti af viðstöddum sem aldrei verður við- skila. Ég veit að Stebba er enn á með- al okkar í móður sinni, manni, börn- um, barnabörnum og systkinum. Þau eru lánsöm að njóta þeirrar nærveru. ívar Pétur Guðnason. í dag verður til moldar borin heiðurskonan Stefanía Stefánsdótt- ir. Þrátt fyrir löng og erfið veikindi kom andlát hennar á óvart. Stefanía hafði margt til brunns að bera. Hún var hlý og elskuleg kona og hafði mikla listræna hæfi- leika. Hún var höfðingi heim að sækja og glæsilegt heimili hennar og manns hennar, Gunnars, stóð alltaf opið þeim fjölda ættingja sem hafa átt athvarf hjá þeim hjónum til lengri og skemmri tíma gegnum árin. Nú er þessi góða og glæsilega kona horfin af sjónarsviðinu alltof snemma. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem ég átti með henni á lífsleiðinni sem raunar voru alltof fáar nú seinni ár. Ég votta fjölskyldu hennar mína einlægustu samúð. Hugrún Jóhannesdóttir. Þegar lífshlaupi vina og vanda- manna er lokið, þá vakna í huga manns minningar liðinna tíma. Ég man fyrstu kynni mín af Stef- aníu mágkonu. Gunni bróðir kom með hana heim til pabba og mömmu á Klöpp á Seltjarnarnesi. Þau voru nýtrúlofuð og hamingjan brosti við þeim. Þau eignuðust þijú yndisleg böm og níu bamabörn, sem sakna nú ömmu Stebbu. Oft dáðist ég að hve vel hún hugsaði um heimilið sitt, allt skín- andi hreint og fágað. Hún var vel virk hvort sem hún eldaði mat, saumaði eða pijónaði. Allt lék í höndunum á henni. Mikið var gaman að heimsækja æskuheimilið hennar að Miðhúsum á Djúpavogi. Við fórum þangað í september sl., þá var Stebba orðin mikið veik en harkan og dugnaður- inn drifu hana áfram. Þorgerður móðir hennar tók okkur svo vel og dekraði við okkur. Nú er skarð fyr- ir skildi og höggvið stórt, að missa elsta barnið sitt. Nú stöndum við hnípin og hnugg- in og lifum á góðum minningum. Við emm þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með henni. Ég votta hennar stóm, góðu fjöl- skyldu mína innilegustu samúð. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Erna Árnadóttir. Elskulega vinkona, nú ert þú farin til æðri heimkynna og eftir sit ég með söknuðinn, en einnig með minningamar um allar okkar góðu samvemstundir. Ég kynntist Stefaníu árið 1970 STEFANIA UNA STEFÁNSDÓTTIR Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR iítel limtieu OLAFIA AGUSTA JONSDOTTIR Föðurnafn Ólafíu Ágústu Jóns- dóttur misritaðist í fyrirsögn í Morgunblaðinu í gær. Birtist það hér með leiðrétt ásamt æviágripi og biður Morgunblað- ið hlutaðeigandi afsökunar á mistökunum. Crfisdrykkjur A VcMngohú/ið GMH-mn Sl'ml 555-4477 ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 562 0200 + Ólafía Ágústa Jónsdóttir fæddist 24. ágúst 1916 að Holtaseli á Mýrum, Austur- Skaftafellssýslu. Hún andaðist á Hrafnistu í Reykja- vík 30. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar vora Pálína Erlends- dóttir frá Rauða- bergi í A.-Skaft. og Jón Þórðarson bóndi í Holtaseli. Þau eignuðust fimm börn og var Ólafía þeirra yngst, bræður hennar voru Þórður og Elías, búsettir á Höfn í Homafirði, báðir látnir, Karl og Ingvar, báðir búsettir í Reykjavík. Pálína var ættuð úr Öræfum, en Jón úr Suðursveit. Eftirlifandi eig- inmaður Ólafíu er Guðlaugur Stefáns- son, fyrrverandi verslunarmaður og kaupmaður, á Bóndastöðum, Hjaltastaðaþinghá í Múlasýslu, f. 22.1. 1905. Þau eignuð- ust þijá syni. Þeir eru: Stefán Ragnar sjómaður, f. 13.7. 1939, fórst af slys- förum 25.4. 1975, hæstaréttarlögmaður, 1946, og Bragi vegg- fóðrarameistari, f. 31.3. 1950. Útför Ólafíu hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Baldur f. 8.12, I okkar sameiginlegu sjúkrahúsvist og við löðuðumst hvor að annarri svo úr varð góður vinskapur, sem hélst fram á þennan dag. Við reynd- um að hittast vikulega og þá kynnt- ist ég hennar elskulega eigin- manni, Gunnari Árnasyni og börn- um þeirra og þeirri umhyggju og hlýju, sem þar ríkti. Stefanía eyddi öllum sínum lífs- krafti og umhyggju til að hlúa að manni sínum og bömum og einnig var hún ávallt mikil hjálparstoð sín- um foreldrum og systkinum og fjöl- skyldu Gunnars. Hún bjó yfir ótrú- legum lífskrafti og elju í öllum sín- um störfum og kom það berlega í ljós i öllum hennar veikindum og ekki síst nú síðustu árin í barátt- unni við mesta ógnvaldinn, krabba- meinið. Á síðasta sumri var sem hana grunaði, að nú færi að styttast í síðasta áfangann. En hugurinn og hinn óþijótandi vilji knúði hana áfram til að framkvæma það sem hana langaði að ná áður en hún kveddi, og hún náði því þó sárþjáð væri, að komast til dótturinnar og bamabarnanna í Danmörku, og síð- an til aldraðrar móður á Djúpavogi og systranna á Norðurlandi. Eitt sinn sagði hún við mig: „Gulla, við þurfum endilega að fara saman niður Laugaveginn og fá okkur kaffi, eins og við gerðum stundum," en við vissum báðar, að það gat ekki ræst. Ég þakka þér, kæra vinkona, fýrir allar okkar samverustundir, þar sem við gátum talað saman um öll okkar hjartans mál og alltaf kom ég glaðari og ánægðari frá okkar fundum. Einnig vil ég senda Gunnari og bömunum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi Guð gefa þeim styrk í þeirra miklu sorg. Megi vegir þínir í nýjum heim- kynnum verða bjartir og blómum stráðir. Hafðu þökk fyrir allt. Þín vinkona, Guðlaug Hróbjartsdóttir. í dag verður til moldar borin mág- kona mín, Stefanía Una Stefáns- dóttir, Digranesheiði 11, Kópavogi. Stefanía hafði um margra ára skeið átt við margs konar veikindi að stríða uns hún varð að lúta lægra haldi fyrir hinum skæða vágesti, krabbameini. Stefanía var einstök manneskja. Þrátt fyrir langvarandi og margs konar veikindi var hún alltaf glað- vær og indæl í viðmóti og hafði fremur áhyggjur af einhveijum öðr- um er áttu við erfiðleika að glima. Frá henni stafaði innileiki, hlýja og sálarstyrkur. Stefanía var fædd elst af tólf systkinum og fluttist hún ung að aldri til Kópavogs og stofn- aði heimili með eiginmanni sínum, Gunnari Árnasyni. Fyrsta heimili þeirra nefndist Hlíðarendi. í byijun var það lítið hús, en fyrir atorku eiginmannsins og einstaka smekk- Leikur nr. 28 í Lengjunni Tindastóll - Breiðablik
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.