Morgunblaðið - 14.12.1995, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
v/Miklatorg sími 551 7171
Subaru station GL 4wd árg. '88, ek.
130.000 km, grár.
Kr. 540.000 staðgreiðsluverð.
MMC Colt GLXi árg. '93,
ek. 56.000 km, rauður, m/öllu.
Kr. 950.000 afborgunarverð.
MMC Lancer GLXi árg. '91,
ek. 78.000 km, grásans, 5 gira.
Kr. 750.000 staðgreiðsluverð.
Nissan Patrol GR diesel turbo árg.
'95, óekinn, hvítur, álfelgur o.fl.
Kr. 3.950.000 afborgunarverð.
Óskum eftir Toyota Touring árg. '94—'96 gegn stgr. strax.
Eigum von á nokkrum Mercedes Benz bílum frá Þýskalandi,
bensín og diesel.
Nýjar húsgagnasendingar
Mikið úrval afsófasettum í leður- og tauáklæðum
frá de angeli Hagstætt verð
Tegund Raisa 3+1+1 leður og tau.
V/SA
□□□□□□
HUSGAGNAVERSLUN
24 mán. Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 36 mán.
Ábendingcir á nijólkurumbúðum, nr. 49 af 60.
Eitt, tvö, þrjú
og það varst þú!
Það er oft gagnlegt að rifja upp merkingu orða og leita skýringa
á uppruna þeirra.
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrttðsla ú mjólkurumbúðum er samslurfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrxktarsjóðs.
I DAG
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
SUMIR voru glaðir, aðrir
sárir, en allir undrandi þeg-
ar þeir fengu skormiðann
í hendur með úrslitum
spilsins hér að neðan. Það
kom upp hjá BR í siðustu
viku. Þótt alslemma sé nán-
ast borðleggjandi í tveimur
litum í NS, gaf geimið
meðalskor!
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ -
¥ D107643
♦ 6543
♦ Á76
Vestur
♦ D9743
¥ 952
♦ G
♦ 10853
Austur
♦ ÁK105
¥ G8
♦ 1087
+ DG94
Suður
♦ G862
¥ ÁK
♦ ÁKD92
♦ K2
Eins og sést, standa
bæði sjö tíglar og hjörtu,
en þó tókst aðeins örfáum
pörum að komast í hálf-
slemmu. Hín spiluðu fjögur
hjörtu. En hvað gerir spilið
svona erfitt í meldingum?
Mjög víða opnaði norður á
veikum tveimur í hjarta eða
samsvarandi MULTI
tveimur tíglum. Við.
MULTI, spurði suður um
lit og styrk. Þetta var al-
geng sagnröð:
Vestur Norður Austur Suður
Pass 2 tíglar(l) Pass 2 grönd(2)
Pass 3 hjörtu(3) Pass 4 hjörtu
(1) Veikur tveir í hjarta eða spaða.
(2) Spurning.
(3) Lágmark með hjarta.
Suður getur ekki með
góðu móti reynt við slemmu
þegar hann fréttir af lág-
marki hjá opnara. Ef suður
freistast til að segja fjögur
lauf, mun norður telja sig
neyddan til að segja fjóra
spaða með ás eða kóng í
litnum.
Feðgamir Hjalti Elíasson
og Eiríkur Hjaltason fundu
góða leið eftir opnun á
tveimur hjörtum:
Vestur Norður Austur Suður
Pass 2 hjörtu Pass 3 tíglar
Pass 4 spaðar* Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
* Splinter, þ.e. einspil eða
eyða og tígulstuðningur.
Hér er lykilsögnin þrír
tíglár, sem gefur norðri
tækifæri til að vera með í
sögnum.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Eiga
heyrnarskertir
að greiða fullt
afnotagjald af
RUV?
MIG langar að skrifa bréf
fyrir hönd heyrnar-
lausra/skertra. Við heyr-
um t.d. lítið eða ekkert í
sjónvarpi og útvarpi en við
verðum samt sem áður að
greiða fullt afnotagjald.
Það er dregið jafnmikið
af kaupinu okkar ög hjá
heyrandi fólki, þó að fólk
með fulla heyrn geti hlust-
að á sjónvarp og útvarp.
Það er mjög rangt. Við
viljum að þeir peningar
sem frá okkur koma renni
í efni sem kæmi okkur að
einhveijum notum. Er
ekki hægt að nota pening-
ana sem við borgum fyrir
þessa þjónustu í eitthvað
sem gæti glatt okkur, sem
kæmi að einhverju gagni,
svo sem ýmsar Norður-
landaþjóðir gera? í sjón-
varpinu er oft ýmislegt
áhugavert efni, svo sem
fréttir, veður, fræðsla,
sögur o.m.fl., en það vant-
ar bara texta. Það er okk-
ur brýn nauðsyn að hafa
möguleika á að meðtaka
um hvað er verið að fjalla
í sjónvarpinu, ekki bara
okkur til skemmtunar og
fróðleiks, heldur einnig til
þess að við föllum betur
inn í samfélagið. Vitum
oft ekki hvað fólk er að
tala um og fylgjumst því
síður með því hvað er að
gerast í þjóðfélaginu.
Við heyrnarskert, sem
borgum okkar skerf af
afnotagjöldum, viljum
gjama fá eitthvað fyrir
peningana okkar og vilj-
um að þeir renni í betri
þjónustu okkur til handa.
Eg bíð eftir svari.
Kær kveðja.
Jóna Björg Pálsdóttir
Gæludýr
Tómasína er týnd
TÓMASÍNA, brúnbrönd-
ótt fögurra ára læða, tap-
aðist frá heimili sínu,
Mávahlíð 6, Reykjavík,
19. október sl. Hún er
eymamerkt R-3032, ólar-
laus og ákaflega mann-
elsk. Hennar er sárt sakn-
að og er sá sem kann að
vita örlög hennar, vinsam-
lega beðinn að hafa sam-
band í síma 551-3107 eða
láta Kattholt vita.
Kettlingur
UNGUR kettlingur ósk-
ast. Upplýsingar í síma
551-8086.
Kanina
HVIT, mjög gæf kanína í
góðu búri, er í heimilisleit.
Upplýsingar í síma
557-5716.
pantaðan tíma hjá háls-,
nef- og eyrnalækninum.
Með morgunkaffinu
KLUKKAN er 14.45 og
ég handtek þig hér með
fyrir að keyra sláttuvél
undir áhrifum.
VERTU svo væn að velja
eitthvað sem ég get borg-
að.
NÚ hefur þú, ungi maður, greinilega gert eitthvað
af þér.
Víkveiji skrifar...
STERK lýsing fréttaritara Morg-
unblaðsins á ísafírði í blaðinu
á þriðjudag af fundi um snjóflóða-
hættu, varnir og skipulag situr í
huga skrifara. Nagandi óvissa um
framtíðina, minningin um átakan-
lega harmleiki í næsta nágrenni og
verstu mánuðir ársins framundan
komu vel fram í lýsingum fundar-
manna.
Óttinn um líf sitt og sinna nán-
ustu var þó ekki eingöngu til um-
ræðu á þessum fundi heldur einnig
óvissan um hús fólks og híbýli. Einn
fundarmanna sagði ástandið á snjó-
flóðahættusvæðunum óásættan-
legt. „Fólk er á sífelldum flótta ef
veðrabreytingar verða og sumir eru
að missa allar eignir sínar, meðal
annars vegna þess að húsin þeirra
eru ekki lengur veðhæf. Hver tæki
veð í skipi sem væri sokkið úti á
Hala,“ tók þessi fundargestur sem
dæmi.
xxx
FYRIR nokkru ræddi skrifari
við mann sem búsettur er á
„gráu svæði“ í einum af þessum
bæjum þar sem síðastliðinn vetur
var nánast viðvarandi hættu-
ástand. Hann sagðist ekki geta
hugsað þá hugsun til enda ef þessi
vetur verður jafnerfiður og sá síð-
asti. Slíkt væri ekki á nokkurn
mann leggjandi.
Þegar snjóflóðahætta er talin í
bænum eru húsin fyrir ofan hús
mannsins rýmd og íbúarnir flytja
tímabundið í húsnæði annars stað-
ar, gjaman hjá vinum og ættingj-
um. Engum þeirra dettur í hug að
biðja þennan granna sinn um gist-
ingu, fólkið fer neðar í bæinn og
maðurinn hefur marga óveðursnótt-
ina legið andvaka og hugsað um
hættuna úti fyrir.
Þétta ástand hefði verið dag eft-
ir dag, jafnvel viku eftir viku á síð-
asta vetri og einn slíkur vetur væri
einum vetri of mikið.
xxx
IFJÖLMIÐLUM er oft sagt frá
nýjungum og tilraunum til að
skapa Qölbreytni í atvinnulífi. Er
það virðingarvert þegar menn, til
dæmis á smærri stöðum, reyna að
víkka sjóndeildarhringinn og nema
land á sviðum, sem áður hafa verið
óþekkt í héraðinu. Margra og mis-
jafnra grasa gætir í þeirri flóru
hugmynda sem skrifari hefur séð
líta dagsins ljós. Oft eru þessir land-
vinningar aðeins á borði og oft verð-
ur ekkert meira úr en sem nemur
nefndaráliti og nokkrum fréttum,
en það er önnur saga.
I Hafnarfirði eru menn stórhuga
og óhræddir við að brydda upp á
nýjungum. Fjarðarpósturinn sagði
frá því nýlega að til stæði að halda
sérstæða hátíð í Hafnarfirði næsta
sumar að tilhlutan ferðamálanefnd-
ar bæjarins:
„Þá hefur verið ákveðið að í júní-
mánuði á næsta ári verði haldin
stórhátíð, ekki listahátíð eð_a vík-
ingahátíð heldur skophátíð. í heila
viku eiga allir að brosa, hlæja, segja
brandara og vera jákvæðir út í lífið
og tilveruna. Það er þjóðkunnugt
að allir bestu grinarar landsins
tengjast Hafnarfirði á einn eða
annan hátt, enda er Hafnarfjörður
bær brandaranna,“ segir í Fjarðar-
póstinum.