Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 4

Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 4
4 D FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Markvisst unnið að því að „prjóna trefil“ um byggðina á síðustu 15 árum ígildi Vagla- skógar verið gróðursett Á síðustu 15 ámm hefur markvisst veríð unnið eftir stefnu sem miðar að því að prjóna um byggðina á Akureyri eins konar trefíl, þar sem útivist er sett í öndvegi. Ámi Stein- ar Jóhannsson, umhverfísstjóri Akureyrar- bæjar fór í ökuferð með Margréti Þóru Þórsdóttur og sýndi henni svæðin sem mynda „útivistarkragann“ umhverfís bæinn. ARANGURINN er að koma í ljós, en þó má gera ráð fyrir að ára- tugur líði enn áður en almenningur gerir sér að fullu grein fyrir því starfi sem unnið hefur verið í því skyni^ að sveipa bæinn „treflinum". Á þessum árum er búið að gróðursetja um eina milljón tijáplantna í bæjar- landið, eða ígildi Vaglaskógar að flatarmáli. Árni Steinar Jóhannsson um- hverfisstjóri Akureyrarbæjar sem unnið hefur ásamt starfsfólki Umhverfisdeildar röskan áratug að því að framfylgja stefnunni frá 1980 segir að markmið hennar sé að gera Akureyri að fallegum og vistlegum bæ, allt ræktunarstarf taki tíma en þess séu þegar farin að sjást merki að unnið sé mark- visst að því að ná markmiðunum. Stefnan sem mörkuð var fyrir 15 árum nær til aldamóta og felst í megindráttum í stefnumarkandi yfírlýsingum um ræktun nánasta umhverfís bæjarins, það verði gert aðlaðandi til útivistar með skóg- rækt, dýrahaldi; fjárbúskap og hestamennsku og friðuðum lands- svæðum og lögð verði áhersla á að gera umferð almennings um svæðin aðgengilega með því að leggja um þau göngustíga. Á sama tíma var einnig gerð áætlun um uppbyggingu innan bæjarins þar sem verulegt átak var gert í fegr- un og hirðingu, skrúðgörðum kom- ið upp í hverfum bæjarins og opn- um grænum svæðum og áhersla lögð á fegrun í tengslum við gatna- kerfi bæjarins. Tijám og runnum hefur verið plantað umhverfis bíla- stæði og tré standa við stofnbraut- ir. Einstök náttúruperla Friðland og útivistarsvæði í Óshólmum Eyjafjarðarár marka FIVIIM Flutningamiðstöð Norðurlands ehf. Óseyri 1a - 603 Akureyri, s. 462 2624 - Gunnarsbraut 10 - 620 Dalvik, s. 466 1444 Fram að jólum býður FMN viðskiptavinum sínum sérstakt jólaverð á flutningi á öllum jólapökkum til vina og vandamanna á Suður- og Norðurlandi. Verð pr. jólapakka upp að 20 kg. kr. 300 m/vsk. Afgreiðsla FMN í Reykjavík er hjá Landflutningum hf., Skútuvogi 8, sími 568 5400. Þar mun starfsmaður FMN, Hrafn Sigurðsson, sjá um að allir pakkarnir komist á leiðarenda. Ofangreint tilboð á einungis við um jólapakka en ekki almennar sendingar Óskar Jónsson & Co hf., Stefnir hf., Gunnarsbraut 10,620 Dalvík, Óseyri 1a, 603 Akureyri, sími 466 1444. sími 462 2624- ÓSHÓLMAR Eyjafjarðar marka upphaf hins græna trefils umhverfis Akureyrarbæ í suðri. Morgunblaðið/Kristján ÁRNI Steinar Jóhannsson umhverfisstjóri á Akureyri, til hægri á myndinni og Henning Pedersen umhverfisstjóri í Randers vinabæ Akureyrar í Danmörku. upphaf kragans umhverfís Akur- eyri úr suðri. Nú er unnið að form- legri friðun hólmasvæðisins í sam- starfi við Eyjafjarðarsveit og Flug- málastjórn. „Oshólmar Eyjafjarð- arár eru einstök náttúruperla og er svæðið nú þegar vinsælt útivist- arsvæði," sagði Árni Steinar. „Þar er fjölskrúðugt fuglalíf, spennandi gróðurfar og veiði í Eyjafjarðará. Næst tekur Kjarnaskógur við, eitt vinsælasta útivistarsvæði Ak- ureyringa en þangað hafa bæj- arbúar sótt um tæplega hálfrar aldar skeið. Þar eru góðar upplýst- ar gönguleiðir, leiktæki fyrir börn og ákjósanleg aðstaða fyrir fjöl- skyldur og hópa sem vilja eiga góða stund í fögru umhverfi. Ný fjallgirðing hefur verið reist um 1000 hektara lands sunnan Glerár, frá Kjamaskógi, um Nausta- og Hamraborgir og Eyr- arlandsháls. í þetta svæði hefur að stofni til verið plantað skógi, en þær nálgast nú eina milljón plöntumar sem gróðursettar hafa verið, einkum á þessu svæði en Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA Landfrysting á erfitt með að keppa við sjóvinnsluna FYRRI HLUTI þessa árs sem nú er að líða var Kaupfélagi Eyfirðinga erflður. Reksturinn var lakari en árið 1994 og sérstaklega á þetta við um rekstur frystihúsa félagsins, seg- ir Magnús Gauti Gautason, kaupfé- lagsstjóri KEA. Tap fyrstu 8 mánuði ársins Samstæða Kaupfélags Eyfirðinga var rekin með 9 milljóna króna tapi fyrstu átta mánaði ársins en Magnús Gauti treystir sér ekki til að segja til um á þessi stigi hvernig rekstur- inn kemur út þegar iitið er á árið í heild. „Það er ekki hægt að segja til um það nú hvort félagið kemur út með hagnaði eftir árið og þegar við erum svona nálægt núllinu þarf ekki mikið að gerast til að hlutirnir breytist.“ Söluaukning hefur orðið á mat- vöru í verslunum félagsins og er aukningin langmest hjá KEA Nettó sem hefur verið í stöðugri sókn. Einnig hefur orðið mjög góð sölu- aukning á ýmsum iðnaðarvörum hjá félaginu, að sögn Magnúsar Gauta. Hann segir að nokkurrar bjartsýni hafi gætt hjá forsvarsmönnum fyrir- tækja eftir árið 1994 en árið 1995 hafi veist ýmsum erfíðara en menn bjuggust við. „Landfrystingin hefur verið rekin með tapi. Við höfum aðallega verið að selja okkar afurðir í pundum og dollurum en gengisþróunin hefur verið mjög óhagstæð. Minnkandi aflaheimildir og þá sérstaklega í þorski hafa einnig valdið erfiðleik- um. Það er líka alveg ljóst að við eigum erfitt með að keppa við vinnsluna úti á sjó og auðvitað vakna spurningar um hvers konar framtíð landfrystingin eigi. Samdrátturi í landbúnaði haft mikil áhrif Magnús Gauti segir að landfryst- ingin hafi verið rekin með hagnaði fyrir 10 árum. Þá var verðbólgan 30-40%, veiðiheimildir mun meiri en í dag og miklu meira veitt t.d. af þorski. Hann nefnir einnig samdrátt í landbúnaði á þessu 10 ára tíma- bili. Árið 1985 fóru 49.000 fjár í gegnum sláturhús KEA en um 33.000 fjár í ár. Fyrir 10 árum fóru um 22 milljónir lítra í gegnum Mjólk- ursamlag KEA en í ár fara um 20 milljónir lítra þar í gegn. „Samdrátturinn í landbúnaðinum hefur haft mikil áhrif á rekstur okk- ar og á allt samfélagið hér. Mjög margir hafa lifibrauð sitt af landbún- aðinum beint eða óbeint. Það stefnir í enn frekari samdrátt í landbúnaði og því þurfum við að mæta á ein- hvem hátt.“ Magnús Gauti segir mikilvægt að stöðugleikinn haldist enda skipti hann miklu máli í rekstri fyrirtækja og ekki síður heimila. Hann gerir sér jafnframt vonir um betri tíð í fiskveiðum og fiskvinnslu og telur forsendur fyrir aukningu aflaheim- ilda á ný nokkuð góðar. Óttast fólksfækkun vegna framkvæmda fyrir sunnan „Ég óttast nokkuð að þessar miklu framkvæmdir sem eru að fara í gang fyrir sunnan, við álver og fleira eigi eftir að draga fólk í burtu af þessu svæði, nema að gripið verði til einhverra ráðstafana. I framhaldi af því gæti orðið hér fólksfækkun, enn frekari samdráttur í efnahagslíf- inu og minni hagvöxtur. Það er ekki auðvelt að eiga við þetta en ef til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.