Morgunblaðið - 29.12.1995, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 1995 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Á ÁBYRGÐ
RÍKISINS
MEIRA en helmingur starfsmanna Bændasamtaka ís-
lands er í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Greiðsl-
ur úr sjóðnum eru hins vegar miklu hærri en iðgjalda-
greiðslur gefa tilefni til. Mismunurinn er greiddur úr ríkis-
sjóði með framlagi til Bændasamtakanna, sem nemur upp-
hæðinni sem þau Jjyrftu annars að standa undir.
Bændasamtök Islands voru stofnuð við samruna Bún-
aðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda. Starfsmenn
Búnaðarfélagsins, svo og búnaðarsambanda, hafa verið í
LSR en ekki starfsmenn Stéttarsambandsins. Við samein-
ingu bændasamtakanna óskuðu starfsmenn Búnaðarfélags-
ins eftir að vera áfram í LSR og var á það fallist. Nýir
starfsmenn eru það hins vegar ekki. Það, sem er athuga-
vert við þetta fyrirkomulag, er að ríkissjóður, þ.e. skatt-
greiðendur, borgi mismuninn á iðgjöldum og lífeyrisgreiðsl-
um. Slíkt er ekki þeirra hlutverk heldur Bændasamtaka
íslands. Annað er óviðunandi. Fram til 1990 voru starfs-
menn ASÍ í LSR, en Alþýðusambandið greiðir mismuninn
sjálft en veltir honum ekki yfir á ríkissjóð.
Bændasamtökin eru ekki ein félagasamtaka um það að
velta lífeyrisskuldbindingum vegna starfsmanna sinna yfir
á ríkissjóð. Sama gera heildarsamtök opinberra starfs-
manna eins og BSRB, BHM og Kennarsambandið. Slíkt
er fráleitt. Þessi samtök eru og eiga að vera óháð ríkisvald-
inu og hafa enga sérstöðu fram yfir önnur félagasamtök.
í þeim efnum skiptir engu, þótt félagar þeirra séu ríkis-
starfsmenn. Starfsmenn samtakanna sjálfra eru það ekki
fremur en annarra launþegasamtaka..
Milljarðaskuldbindingar, sem engar innistæður eru fyrir,
hlaðast á ríkissjóð á ári hverju vegna opinberra lífeyris-
sjóða. Hallinn á þeim er nú talinn vera 80-100 milljarðar.
Þessum gífurlegu skuldbindingum er vísað til komandi
kynslóða. Ekki er seinna vænna en að taka á vandanum.
Góð byrjun er að tryggja, að samtök óviðkomandi ríkis-
sjóði standi að fullu undir eigin lífeyrisskuldbindingum.
BORGAR SIG AÐ VINNA?
IMORGUNBLAÐINU í gær er haft eftir Hilmari Björg-
vinssyni, deildarstjóra hjá Tryggingastofnun ríkisins,
að það virðist fara í vöxt að aldraðir hætti störfum þegar
þeir átti sig á því að bæði séu tekjur þeirra skattlagðar
og jafnframt lækki þær ellilífeyri þeirra og tekjutryggingu.
„Margir hafa á orði, að það borgi sig ekki lengur að vinna.
Er hér um mjög alvarlegar staðreyndir að ræða,“ er haft
eftir Hilmari.
Þetta eru orð að sönnu. Vandamálið er hins vegar miklu
víðtækara og nær til fleiri hópa en aldraðra. Tekjutenging
í skattkerfinu er nú orðin svo víðtæk — og tekur til tekna,
sem ekki geta talizt meira en meðaltekjur — að jaðarskatt-
ur á íslandi er í ýmsum tilfellum með því hæsta, sem ger-
ist. „Hátekjuskattur" og tekjutenging barna- og vaxtabóta
eykur þannig skattbyrði á ungt fjölskyldufólk ákaflega,
reyni það að auka tekjur sínar. Þannig er það orðið þekkt
vandamál á almennum vinnustöðum að starfsmenn vilji
ekki vinna yfirvinnu, vegna þess að þeir vita að bróðurpart-
urinn af tekjuaukanum fer í skatta eða lækkar bótagreiðsl-
ur. Raunar virkar skattkerfið með þeim hætti, að menn
geta hækkað ráðstöfunartekjur sínar með því að draga úr
vinnunni, eins og Friðrik Sophusson fjármálaráðherra hefur
viðurkennt.
Námsfólk er sömuleiðis latt til að vinna með námi; náms-
lánin lækka fljótt ef fólk reynir að drýgja tekjurnar. Þegar
námi er lokið, eru svo endurgreiðslur námslána tekjutengd-
ar — hækka með auknum tekjum — og það er ekki vinnu-
hvetjandi heldur.
Þegar við þetta bætist að sýnt hefur verið fram á að
meðalfjölskylda geti haft hærri ráðstöfunartekjur með því
að treysta á atvinnuleysisbætur og aðstoð félagsmálastofn-
ana en með því að hjón vinni bæði fyrir meðalkaupi, er
ljóst að þessi mál eru komin í algjört óefni.
Ríkisstjórnin hlýtur að einbeita sér að því á næstu mánuð-
um að ráða bót á þessu vandamáli og koma í veg fyrir að
það verði almenn skoðun í landinu, að það borgi sig ekki
að vinna fyrir sér og fjölskyldu sinni. Sú endurskoðun á
skattkerfinu, sem boðuð hefur verið á næsta ári, verður
að leiða til rækilegrar uppstokkunar. Efnahagsbatinn, sem
nú sjást æ fleiri merki um, ætti að veita svigrúm til að
lækka skattbyrðina.
*
Ymsar breytingar verða á skattalögum
Y
■EIGAMESTU breyting-
arnar, sem Alþingi
gerði á tekjuskattslög-
unum fyrir jólin, voru
að afnema ákvæði um
að persónuafsláttur og
ýmsar bótagreiðslur hækki um
mitt árið í hlutfalli við hækkun
lánskjaravísitölu. Upphæðir per-
sónuafsláttarins og bótagreiðsln-
anna voru því ákveðnar með lögum
nú fyrir jólin og haldast óbreyttar
út næsta ár.
Samkvæmt þessu verður per-
sónuafsláttur 294.528 krónur árið
1996 eða 24.544 krónur á mánuði;
sá sami og hann hefur verið síðari
hluta þessa árs. Þetta þýðir, að
miðað við 41,93% skatthlutfall
verða skattleysismörkin í tekju-
skatti 58.536 krónur.
Lífeyrisiðgjöld skattfijáls
Áætlað er að þessar breytingar
spari ríkinu um 1 milljarð króna á
næsta ári frá því sem almenn verð-
uppfærsla hefði kostað. Þetta á að
mæta hluta þess tekjutaps sem rík-
ið verður fyrir vegna þess að um
mitt næsta ár verða lífeyrisiðgjöld
sem launþegi greiðir, þ.e. 4% af
launum, að fullu undanþegin skatti.
Samkvæmt útreikningum ijármála-
ráðuneytisins svarar það til þess
að tekjuskatthlutfaliið lækki í raun
um 1,5% og það mun í heild kosta
ríkissjóð um 1,6 milljarða króna.
Fýrr á þessu ári var tekjuskatts-
lögunum breytt þannig að helming-
ur iðgjaldsins (2% af 4%) varð skatt-
ftjáls um mitt árið og því voru
skattleysismörkin í raun 59.700
krónur.
Bæta átti 3. prósentinu við um
mitt næsta ár og því 4. um mitt
árið 1997 en í tengslum við endur-
skoðun á kjarasamningum í nóvem-
ber var ákveðið að flýta skattfrels-
inu þannig að 3. prósentið bætist
við nú um áramótin og það 4. um
mitt næsta ár.
Fjármálaráðuneytið metur það
því svo, að skattleysismörkin verði
því rúmlega 60.300 krónur á mán-
uði á fyrri hluta næsta árs og
60.975 krónur síðari hluta ársins.
Barnabótaauki hækkar
Nokkrar breytingar hafa einnig
verið gerðar á barnabótaauka til
að draga úr svonefndum jaðaráhrif-
um í skattkerfinu. En hugtakið jað-
arskattur er notað um það þegar
auknar tekjur hafa það í för með
sér að ýmsar opinberar bætur
lækka á móti vegna tekjutengingar.
Barnabótaaukinn er tekjutengd-
ur og byijar að skerðast hlutfalls-
lega þegar tekjur viðkomandi ná
ákveðnu marki. Þetta mark verður
á næsta ári 1.141.042 króna árs-
laun hjá hjónum (um 95 þúsund
króna mánaðarlaun) og 570.521
króna hjá einstæðum foreldrum
(47.500 króna mánaðarlaun.)
Óskertur barnabótaauki með
hveiju barni nemur 93.164 krónum
á ári (7.764 kr. á mánuði) hjá hjón-
um og 100.990 krónum á ári (8.416
kr. á mánuði) hjá einstæðum for-
eldrum.
Nú hefur reiknireglum um
barnabótaaukann verið breytt
þannig að dregið er nokkuð úr
tekjutengdu skerðingunni. Með
gömlu skerðingarákvæðunum lenti
þriggja manna-fjölskylda ---------
með um 200 þúsund
króna mánaðartekjur í
18% jaðarskatti og fjög-
urra barna fjölskylda í
22% jaðarskatti til viðbót- ”“™““
ar við 42% tekjuskatt og útsvar,
eða í 60-64% jaðaráhrifum alls.
En með nýju reglunum lækkar
jaðarskattur fyrrnefndra fjöl-
skyldna í 57% í báðum tilfellum og
barnabæturnar hækka úr 4.400
krónum í 7.500 krónur á mánuði
með þremur börnum og úr tæplega
8.000 krónur í 15.000 krónur með
fjórum börnum.
Fjármálaráðuneytið áætlar að
þetta þýði um 500 milljóna króna
aukin útgjöld ríkisins á næsta ári.
Barnabótaauki
hækkar
um áramótin
.. . Morgunblaðið/Kristinn
LÖGGJAFINN hefur ákveðið að draga úr jaðarskatti barnafólks með því að hækka
barnabótaauka á næsta ári.
Útreikningar
barnabótaauka
Jaðaráhrif
barnabóta-
auka minnka
Samkvæmt nýju regl-
unum skerðist barna-
bótaaukinn um 6% með
einu barni, 11% með
tveimur börnum og 15%
með þremur börnum og
fleiri þegar tekjur for-
eldra fara upp fyrir áður-
nefnt tekjumark.
Til að finna út barnabótaaukann
þarf nokkra útreikninga.
Taka má dæmi af hjónum með
tvö börn. Hafi þau samtals undir
1.141.042 krónur í árslaun fá þau
fullan barnabótaauka, eða 186.328
krónur á ári. (2 x 93.164 krónur).
------- Hafi þessi hjón hins
vegar hærri laun skerðist
barnabótaaukinn. Ef þau
hafa til dæmis 220 þúsund
króna tekjur að jafnaði á
mánuði, eða 2.640.000
króna árslaun er byijað að draga
1.141.042 krónur frá þeirri upphæð
(tekjumark hjóna). Útkoman er
1.498.958 kr. og hún er síðan marg-
földuð með 11% (skerðingarhlut-
fallið fyrir tvö börn). Þá kemur út
164.885 kr. sem er hin raunveru-
lega skerðing á barnabótaaukan-
um. Þessi hjón fá því 21.443 krón-
ur í barnabótaauka en hefðu fengið
rúmar 3 þúsund krónur að óbreyttu
kerfi.
Hjón með þijú börn fá á næsta
Nokkrar breytingar verða á skattalögnm
um áramótin og má til dæmis nefna að
persónuafsláttur og ýmsar bótagreiðslur
haldast óbreytt út árið. Guðmundur Sv.
Hermannsson tók saman það helsta í
lögunum sem snýr að almenningi.
ári 279.500 kr. í óskertan barna-
bótaauka. Hafi þau 2.640.000 kr.
í árslaun er dæmið reiknað út á
svipaðan hátt og hér að ofan, fyrir
utan að 1.498.958 er nú margfald-
að með 15% (skerðingarhlutfallið
fyrir 3 eða fleiri börn). Útkoman
er tæplega 225 þúsund sem þýðir
að hjónin fá 54.500 í barnabóta-
auka. Samkvæmt gamla kerfinu
hefðu þau fengið um 20 þúsund
krónur.
Óbreyttar barnabætur
Barnabætur eru greiddar óháð
tekjum. Á næsta ári fá hjón 9,272
krónur með fyrsta barni en 28.768
krónur með hveiju barni þar um-
fram. Þá bætast 30.176 krónur við
þessar upphæðir ef börnip eru yngri
en 7 ára.
Einstæðir foreldrar fá 69.624
krónur með fyrsta barni og 74.024
krónur með hveiju barni þar um-
fram. Þessar tölur hækka um
30.176 krónur ef börnin eru yngri
ert 7 ára. Þetta eru sömu
upphæðir og miðað var
við síðari hluta þessa árs.
Vaxtabætur breytast
heldur ekki. Þær verða á
næsta ári 140.903 krón-
ur að hámarki hjá ein-
staklingum, 181.212
krónur að hámarki hjá
einstæðum foreldrum og
233.015 krónur hjá hjón-
um.
Nokkrar orðalagsbreytingar voru
gerðar í reglunum um útreikning
vaxtabóta en þær eiga ekki að hafa
áhrif á útreikning þeirra. Draga á
6% af tékjuskattstofni frá vaxta-
gjöldum til 'að finna út vaxtabæt-
urnar. Vaxtagjöldin geta þó aldrei
verið hærri en 7% af eftir- _______________
stöðvum skulda vegna Heimilt að
íbúðarkaupa og að auki afskrifa bíla
er þak a vaxtagjoldunum,
411.209 krónur hjá ein-
staklingum,
um 10%
539,830 hjá
einstæðum foreldrum og 668.450
krónur hjá hjónum.
Leyft að afskrifa bíla
Hingað til hefur orðið að eign-
færa bíla á upphaflegu kaupverði
í skattaskýrslu þótt markaðsverð
þeirra hafi lækkað ár frá ári. Með
lækkandi verðbólgu varð þessi regla
ósanngjörn og sætti gagnrýni og
hefur nú verið rýmkuð.
Samkvæmt nýjum ákvæðum í
skattalögum verður heimilt að færa
verð einkabíla niður um 10% árlega
í skattaskýrslum frá því verði sem
bílarnir voru skráðir í skattskýrslu
árið áður. Hins vegar má ekki af-
skrifa bíla sem keyptir voru á þessu
ári.
Jafnframt var sett bráðabirgða-
ákvæði í lögin um að á skattfram-
tali næsta árs megi til viðbótar af-
skrifa bíla keypta á árinu 1993 um
5% til viðbótar og bíla keypta árið
1992 og fyrr um 10%.
Þetta þýðir að hafi maður keypt
bíl á 500 þúsund í desember árið
1994 getur hann skráð hann á 450
þúsund krónur í skattframtalinu á
næsta ári og þannig lækkað eignar-
skattstofn sinn um 50 þúsund krón-
ur. Hafi hann hins vegar keypt bíl
á 500 þúsund í janúar á þessu ári
verður hann að telja hann fram á
fullu kaupverði.
Hafi bíllinn verið keyptur árið
1993 má afskrifa hann um 15% eða
í 425 þúsund. Og hafi bíllinn verið
keyptur árið 1992 eða fyrr má af-
skrifa hann um 20% eða í 400 þús-
und.
Allir greiði eignarskatt
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á ákvæðum um eignarskatt.
Það veigamesta er að nú þurfa all-
ir aðilar, sem eiga eignir hér á landi,
að greiða af þeim eignarskatt nái
eignarskattstofninn tilskyldum
mörkum. Hingað til hafa aðilar sem
eiga lögheimili erlendis ekki þurft
að greiða eignarskatt af eignum
hér á landi nema eignirnar gefi af
sér skattskyldar tekjur.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins er ekki víst að
þetta breyti skattlagningu um-
ræddra aðila, þar sem þeir gætu
hafa þurft að greiða eignarskatt
af umræddum eignum í heimalandi
sínu vegna ákvæða í tvísköttunar-
samningum heimalands þeirra við
ísland.
Ekki þarf að greiða eignarskatt
af skattstofni upp að 3.651.749
krónum hjá einstaklingum og tvö-
faldri þeirri upphæð hjá hjónum.
Af eignum umfram þetta greiða
viðkomandi 1,2% eignarskatt.
Umferðaröryggisgjald
Á lokadögum þingsins fyrir jól
var ákveðið að hækka svonefnt sér-
stakt umferðaröryggisgjald úr 100
krónum í 200 krónur. Þetta gjald
á samkvæmt lögum að renna til
Umferðarráðs og greiðast við al-
menna bílaskoðun, skráningu og
eigendaskipti.
Fram kom á þinginu að framlög
ríkisins til Umferðarráðs verða á
næsta ári skert sem nemur þessari
hækkun á sértekjum ráðsins. Þar
með spari ríkið sér u.þ.b. 10 milljón-
ir en í staðinn var ákveðið að draga
úr fyrirhugaðri skerðingu á bótum,
sem ríkið mun greiða þolendum
ofbeldisafbrota frá miðju næsta ári.
Hærra tryggingagjald
Þeir sem stunda atvinnurekstur
þurfa á næsta ári að greiða 0,5%
hærra tryggingagjald af launa-
greiðslum en á þessu ári. Þetta
gjald verður 3,55% í fiskvinnslu,
landbúnaði, framleiðsluiðnaði, hót-
elgistingu, veitingarekstri, bílaleigu
og hugbúnaðarstarfsemi en 6,85%
hjá öðrum atvinnurekstri. Þessi
--------- hækkun skilar ríkissjóði
um milljarði króna og á
að fjármagna áðurnefnt
skattfrelsi lífeyrisiðgjalda
að hluta.
Þá samþykkti Alþingi
fyrir jólin, að breyta lögum um tek-
justofna sveitarfélaga þannig, að
fella sérstakan fasteignaskatt á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði
niður í áföngum til ársins 1999 en
hækka á móti fasteignaskatt á at-
vinnuhúsnæði.
Fyrsti áfangi þessarar breytingar
verður á næsta ári en þá lækkar
sérstaki fasteignaskatturinn úr
1,25% í 0,937% en fasteignaskattur
hækkar úr 1,12% í 1,17%.
Lagt er til að sveitarfélögin taki við lífeyrisskuldbindingum
kennara eftir 1. ágúst 1996
Kostnaður sveitarfé-
laga verður 300-400
milljóniráári
Nefnd, sem bármálaráðherra skipaði á síðasta ári,
leggur til margvíslegar breytingar á skuldbindingum
Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna. M.a. að 95 ára
reglunni verði breytt og ákvæði um að lífeyrir opin-
berra starfsmanna taki mið af launum eftirmanns
verði afnumið.
NEFND um skipan lífeyris-
mála við flutning verk-
efna milli opinberra aðila
leggur til að sveitarfélög-
in beri ábyrgð á lífeyrisskuldbinding-
um vegna kennara og annarra starfs-
manna grunnskólans sem myndast
eftir 1. ágúst 1996. Nefndin leggur
ennfremur til margvíslegar breyting-
ar á réttindareglum Lífeyrissjóðs
opinberra starfsmanna m.a. að 95
ára reglan verði afnumin.
Fjármálaráðherra skipaði nefnd-
ina í nóvember 1994, en í henni áttu
sæti Magnús Pétursson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, Hjörleif-
ur B. Kvaran, skrifstofustjóri hjá
Reykjavíkurborg, og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Nefndinni
var ætlað að leggja fram tillögur um
skipan lífeyrismála þegar verkefni
flytjast milli opinberra aðila svo sem
ríkis og sveitarfélaga. í nefndarálit-
inu segir að fallist stjórnvöld á tillög-
urnar sé hún reiðubúin til að útbúa
nauðsynlegt frumvarp til laga, meta
fjárhagsleg áhrif tillagnanna og
vinna að samningum um lausn upp-
gjörsmála.
Auk þess sem nefndinni var ætlað
að marka almenna stefnu í lífeyris-
málum opinberra starfsmanna við
flutning verkefna frá einum opinber-
um aðila til annars, vár henni ætlað
að taka sérstaklega á réttindum
starfsmanna grunnskólans við flutn-
ing hans til sveitarfélaganna og á
réttindum starfsmanna Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Þegar hefur verið geng-
ið frá samningi milli ríkisins og
Reykjavíkurborgar, í samræmi við
tillögurnar, um að borgin beri ábyrgð
á öilum lífeyrisskuldbindingum sem
myndast vegna starfsemi Sjúkrahúss
Reykjavíkur frá og með næstu ára-
mótum, þar með töldum skuldbind-
ingum starfsmanna sem unnu á
Landakotsspítala.
Kostnaður einstakra
sveitarfélaga mismunandi
Nefndin gerir ráð fyrir að kennar-
ar verði áfram í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins eftir 1. ágúst 1996
nema að um annað verði samið. Þetta
er í samræmi við samkomulag sem
kennarasamtökin gerðu við stjórn-
völd í aðdraganda síðustu kjarasamn-
inga.
Nefndin leggur til að við flutning
grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga
verði sveitarfélögin ábyrg fyrir lífeyr-
isskuldbindingum vegna grunnskóla-
kennara frá og með 1. ágúst 1996
þegar tilflutningurinn á sér stað.
Nefndin áætlar að kostnaður sveitar-
félaganna vegna þessa geti numið
300-400 milljónum króna á ári. Unnt
sé að fullnusta skuldbindingarnar
með árlegri greiðslu eða útgáfu
skuldaskjala. Jöfnunarsjóður sveitar-
félaga sjái um greiðslumiðlun milli
sveitarfélaga og LSR. Eins komi til
álita að Jöfnunarsjóðurinn taki á sig
eins konar bakábyrgð gagnvart LSR
vegna lífeyrisskuldbindinga, sem
sveitarfélag ber ábyrgð á gagnvart
LSR, en getur ekki staðið við vegna
óviðráðanlegra orsaka eins og
byggðaþróunar eða gjaldþrots.
Ljóst er að miðað við núgildandi
reglur og kaupgjaldsþróun verða
þessar greiðslur mjög takmarkaðar
um langt skeið. Nefndin segir að
búast megi við að greiðslubyrðin
verði mjög mismunandi hjá einstök-
um sveitarfélögum, bæði í fjárhæðum
og hlutfallslega og valdi þar mestu
mismunandi aldursskipting kennara.
í nefndarálitinu er lagt til að starf-
semi LSR, Lífeyrissjóðs hjúkrunar-
kvenna og lífeyrissjóða, sem starfa
á ábyrgð sveitarfélaga, verði sam-
ræmd frá 1. janúar 1997 og að regl-
ur standi ekki í vegi fyrir tilflutningi
starfsmanna milli opinberra vinnu-
veitenda, hvort heldur í hlut á ríkið
eða sveitarfélögin. Gerðar verði
nauðsynlegar breytingar á lögum og
reglugerðum um þessa lífeyrissjóði
til samræmingar á réttindareglum.
Tillögur um minni
skuldbindingar
Nefndin bendir á að starfsmaður
sem færi sig frá einum lífeyrissjóði
til annars innan opinbera geirans
hafi lakari lífeyrisréttindi en sá sem
greiði alla sinn starfsaldur í sama
lífeyrissjóð. Lagt er til að þessu verði
breytt, en það leiðir til aukinna skuld-
bindinga lífeyrissjóðanna. Á móti
leggur nefndin til breytingar í sex
liðum sem leiða til minni skuldbind-
inga.
í fyrsta lagi leggur nefndin til ac
svokallaðri 95 ára reglu verði breyti
í almenna reglu um rétt til töku elli-
lífeyris með skertum réttindum fyrii
starfsmann sem er orðinn 60 ára og
hefur greitt í lífeyrissjóð í 30 ár
Sömuleiðis er lagt til að afnumii
verði sú regla að opinberir starfs-
menn hætti iðgjaldagreiðslum í líf
eyrissjóð eftir að hafa greitt í sjóðim
í 32 ár, en hún þýðir að starfsmaðui
sem byijar að greiða í LSR 20 éxt
hættir því 52 ára.
í þriðja lagi er lagt til að sú reglf
að við útreikning á eftirlaunum skul
tekið mið af launum eftirmanns
starfi verði afnumin. í staðinn verð
miðað við launavísitölu eða verðvísi
tölu og lífeyrir verði framreiknaðu
frá töku hans í samræmi við þróui
vísitölu. í íjórða lagi er lagt til ai
örorkulífeyrir verði endurskoðaðu
og færður nær því sem gerist hj;
almennum lífeyrissjóðum. í fimmt;
lagi vill nefndin að ákvæði um heim
ild sjóðsfélaga í stöðum, sem eri
lagðar niður, til áframhaldandi aðild
ar að LSR verði breytt þannig a
stjórn sjóðsins verði að samþykkj
slíkt innan mjög þröngra marka.
í sjötta lagi vill nefndin að ábyrgi
á lífeyrisskuldbindingum verði skip
milli lífeyrissjóðs og vinnuveitenda
ákveðnum hlutföllum. í dag greiði
LSR aðeins upprunalegan lífeyri, e;
vinnuveitendinn síðan allar þæ
hækkanir sem verða á lífeyrinur
vegna verðlags eða annarra þátta
Bent er á Lífeyrissjóð starfsmann
Reykjavíkurborgar sem fyrirmynd a
þessu leyti, en þar skipta sjóðurin
og borgin skuldbindingunum jafnt
milli sín.