Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kaldasta
árið frá
1983
ÁRIÐ 1995 reyndist í kaldara lagi,
meðalhiti í Reykjavík, í Stykkis-
hólmi og á Akureyri var um það
bil hálfri gráðu undir meðallagi ár-
anna 1961-90. Þetta er því kaid-
asta ár frá 1983 um mikinn hluta
landsins. í Reykjavík var þó svipað-
ur hiti 1989. Þetta kemur fram í
stuttu tíðarfarsyfirlit frá Veðurstof-
unni. Þar segir og að staðfestingar
bíði það met, að vindhraði á Gagn-
heiði í snjóflóðalægðinni 16. janúar
mældist 144 hnútar eða 266
km/klst. í snöggri vindhviðu.
Suðvestanlands var mjög þurrt
og lengi vel stefndi í að árið yrði
eitt hið allra þurrasta sem um get-
ur í þeim landshluta, en mikill úr-
komukafli snemma í desember rétti
stöðuna af að nokkru. Heildarúr-
koman í Reykjavík varð svipuð og
1977, en þegar þetta er skrifað var
1995 enn sjónarmun undir og árið
því enn hið þurrasta frá 1965. í
Stykkishólmi var einnig mjög þurrt,
en þó var úrkoman álíka lítil síðast
1982 og allmörg ár má finna tölu-
vert þurrari fyrr á öldinni. Á Akur-
eyri var úrkoman hins vegar mun
meiri en venjulega. Þó var enn
meiri úrkoma þar 1989, enda var
það ár alveg sérlega úrkomusamt
fyrir norðan.
Sólskinsstundir
umfram meðallag
Sólskinsstundir í Reykjavík voru
um 35 stundum umfram meðallag.
Mest munaði um sólríkan síðari
hluta síðastliðins vetrar og sólríkan
júlímánuð, en júní og ágúst voru
hins vegar óvenju sólarlitlir í
Reykjavík, sérstaklega þó ágúst,
en úrkoma var þá fádæma þrálát.
Ágúst og desember voru einu mán-
uðirnir þar sem úrkoma var yfir
meðallagi í Reykjavík.
Þetta ár bar nokkuð annað svip-
mót en árin á undan. Norðlægar
áttir voru þrálátari, eins og sjá má
af úrkomu- og hitatölum, snjór var
mikill um norðanvert landið og á
stöku stað vestanlands. Vorið var
mjög kaldranalegt fyrir norðan þó
vindur væri þó lengst af fremur
hægur, enda sjávarkuldi mikill.
Sumarið þótti heldur dauft. Þó
komu allgóðir kaflar í flestum
landshlutum, en þess á milli var
sumarið hrakviðrasamt í meira lagi.
Á MYNDINNI má sjá Auði Kristjánsdóttur, eiganda GarnbúðáV--
innar Tinnu, afhenda Guðmundi Þorvaldssyni viðurkenninguna
„gullprjóna ársins 1995“. Með þeim á myndinni er Þorvaldur
Arnar í skímarkjólnum sem faðir hans prjónaði.
Gildistaka menning-
aráætlana frestast
AÐILD íslands að menningarmála-
áætlunum Evrópusambandsins verð-
ur ekki virk þegar í stað, vegna þess
að gildistöku áætlananna hefur verið
frestað frá því sem áður var áætlað.
Tvær af þremur áætlunum hefja lík-
ast til göngu sína á næstu mánuðum
og sú þriðja um næstu áramót. ís-
land öðlast þá um leið aðild að þeim,
samkvæmt ákvæðum sem bættust
við samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði nú um áramótin.
Menningarmál urðu sérstakt sam-
starfssvið innan ESB með gildistöku
Maastricht-sáttmálans. í sáttmálan-
um er lögð áherzla á að varðveita
menningarleg sérkenni þjóða aðildar-
ríkjanna og að lögð sé rækt við ólík
menningareinkenni og þróun þeirra.
Ekki er stefnt að samræmingu lög-
gjafar aðildarríkjanna á sviði menn-
ingarmála.
Á grundvelli hinnar nýju greinar
í Maastricht (þeirrar 128.) hefur ver-
ið unnið að þremur samstarfsáætlun-
um á sviði menningarmála. Þær eru
Kaleidoscope, sem er áætlun um
stuðning við meiriháttar listviðburði
með þátttöku margra ríkja, til dæm-
is kynningu á evrópskri list í öðrum
heimshlutum; Raphael, sem miðar
að varðveizlu evrópsks menningar-
arfs; og Ariane, sem á að styrkja
evrópskar bókmenntir.
Fjárframlag ESB til menningar-
mála er nú um 1,5 milljarðar króna
á ári, en gert' er ráð fyrir að það
aukist í 4,5 milljarða árið 2000. Sam-
kvæmt menningarmálaáætlununum
verður styrkjum úthlutað til sam-
starfsverkefna tveggja eða fleiri ríkja
á sviði menningarmála, gagnkvæmar
heimsóknir listamanna verða jafn-
framt studdar, svo og verkefni sem
stuðla að vernd menningareinkenna
og þýðingar, svo dæmi séu nefnd.
Ariane-áætlunin, sem enn hefur
ekki verið samþykkt í ráðherraráði
ESB, gerir ráð fyrir sérstökum
styrkjum til þýðinga á bókmenntum
lítilla málsvæða og gera má ráð fyr-
ir að íslenzkar bókmenntir féllu und-
ir þá skilgreiningu. Bretar hafa hins
vegar staðið í vegi fyrir að þau
ákvæði áætlunarinnar verði sam-
þykkt óbreytt og telja of miklu fé
varið til að styrkja lítt útbreidd
tungumál.
Gért er ráð fyrir að fjárframlag
íslands til áætlana ESB verði ein til
tvær milljónir króna á ári. Að sögn
Árna Gunnarssonar, deildarstjóra
menningarmála í menntamálaráðu-
neytinu, gera menn sér vonir um að
aðild geti á móti haft hagnýta þýð-
ingu fyrir íslenzkt menningarlíf. Hins
vegar sé of snemmt að fullyrða um
það hver sá ávinningur verði ná-
kvæmlega, þar sem gildistöku áætl-
ananna hafi seinkað.
Fékk gull-
prjóna fyrir
skírnarkjólinn
GARNBÚÐIN Tinna hefur
veitt viðurkenninguna „gull-
prjónar ársins 1995“ og að
þessu sinni var það Guðmund-
ur Þorvaldsson, bankamaður
frá Akranesi, sem hlaut viður-
kenninguna en hann prjónaði
síðastliðið vor skírnarkjól á
son sinn, Þorvald Arnar.
í frétt segir, að á Akranesi
sé Guðmundur þekktur sem
mikill prjónamaður en hann
hefur prjónað allt frá 7 ára
aldri.
Viðurkenningin sem hann
hlaut kom frá þýska pijóna-
framleiðandanum ADDI og er
innrammaðir 24 karata gull-
prjónar.
Olíumengunar vart við Álftanes
OLÍUMENGUNAR varð vart út af
Álftanesi sl. laugardag. Mengunin
náði ekki upp í fjöru en a.m.k. tveir
fuglar drápust og fjórir voru færðir
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til
hreinsunar. Að sögn Eyjólfs Magn-
ússonar, sem starfar við mengunar-
varnir sjávar hjá Hollustuvernd rík-
isins er mjög erfitt að henda reiður
á olíunni. „Hún er ekki í það miklu
magni að hægt sé að taka sýni til
að átta sig á því hvaða olía þetta
er. Við vitum ekki hvaðan hún kem-
ur en erum að kanna skipaumferð,
sem hefur verið þarna,“ sagði Eyjólf-
ur í samtali við Morgunblaðið.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
flaug yfir svæðið á gamlársdag og
þá sást olíuflekkur um 200x400
metra átór og nokkrir minni blettir.
Eyjólfur sagði að Hollustuvemd teldi
þetta ekki mikla mengun og engin
viðbrögð yrðu við henni að öðru leyti
en því að reynt yrði að komast að
því hvaðan hún kæmi.
í gær voru fjórir fuglar komnir í
Stærsti
olíuflekkurinn var
rúma 5 km undan Su
Álftanési en nokkrir
smærri flekkir voru
innar á Hafnarfirðí
Hrakliólmar
Mcls-
baffii
.
Hvaleyrarhöffii
Straums-
Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Ey-
jólfur sagði að fuglarnir í garðinum
væru olíublautir en ekki löðrandi í
olíu. Tveir fuglar fundust dauðir
vegna mengunarinnar og á annan
tug fugla, sem grunur lék á að hefðu
Morgunblaöið/Árni Sæberg
OLÍUBLAUTIR fuglar nutu
aðstoðar starfsmanna Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins,
sem hreinsuðu þá.
lent í menguninni sáust en ekki tókst
að ná þeim að sögn Eyjólfs.
Eyjólfur lagði mikla áherslu á að
olíumengun sjávar ætti að tilkynna
Landhelgisgæslunni, sem væri á
vakt allan sólarhringinn.
Ágreiningur sóknarprestsins og organistans í Langholtskirkjusöfnuði
Óháður aðili leiti
lausnar á deilunni
BISKUP íslands, Ólafur Skúlason,
leitar að óháðum aðila til að leysa
ágreining Flóka Kristinssonar,
sóknarprests í Langholtskirkju, og
Jóns Stefánssonar, organista. Séra
Geir Waáge, formaður Prestafélags
Islands, telur að aðeins sé verið að
draga á langinn að úrskurða í deil-
unni. Hann og Sigurður Sigurðsson,
vígslubiskup í Skálholtsstifti, telja
að leysa eigi ágreininginn innan
kirkjunnar.
Ólafur Skúlason, Baldur Krist-
jánsson, biskupsritari, og Ragnhild-
ur Benediktsdóttir, lögfræðingur
embættisins, áttu fund með Þor-
steini Pálssyni, kirkjumálaráðherra,
Þorsteini Geirssyni, ráðuneytis-
stjóra, og Hjalta Zóphóníassuni,
skrifstofustjóra, í gær. „Sameigin-
leg niðurstaða fundarins var að ég
leitaði að valinkunnum manni, sem
væri langt frá átakasviðinu en hefði
sannað sig af góðum verkum, til
að skoða þetta. Honum verður falið
að ræða við deiluaðila, og hafa í
huga lög um preststarfið, organista-
starfið og kirkjustarfið almennt og
skoða hefðir í þjónustu þessara að-
ila við söfnuðinn, og síðan að kanna
hvort eitthvað sérstakt valdi því að
þessir aðilar gætu ekki náð saman,“
sagði Ólafur Skúlasson, biskup.
Hann sagðist hafa einn mann í huga
til verksins en hafði ekki náð í hann
í gærdag.
Biskup sagði að tilgangurinn með
fundinum hefði aldrei verið að ráðu-
neytið tæki að sér að leysa málið.
„Meiningin var aldrei að ráðuneytið
tæki við málinu heldur vildi ég hafa
samráð við ráðherra og ráðuneytið
enda heyrir sumt af þessu undir
ráðherra. Mér þykir því eðlilegt, á
meðan við höfum þjóðkirkju, sem
ég vil vernda sem allra best, að
gott samstarf sé við ráðuneyti og
ráðherra. Það er því aðeins mögu-
legt að skipst sé á skoðunum og
veittar upplýsingar. Því er algjör
misskilningur að ég hafi ætlað að
fela ráðuneytinu einvörðungu að
hafa þessi mál með höndum."
Ólafur Skúlason sagðist verða að
viðurkenna að hann væri ekki of
vongóður um að hægt yrði að leysa
deiluna. Hins vegar sætti hann sig
ekki við annað en að allir möguleik-
ar væru nýttir til að reyna að ná
sáttum. Um messuhætti sagðist
biskupinn aðspurður vera þeirrar
skoðunar að þjóðkirkjan ætti að leit-
ast við að þjóna sem allra flestum.
„Hún má aldrei verða kreddusam-
kunda. Hún verður að virða skoðan-
ir annarra og leitast við að tengja
það kristni og kristinni trú og þjón-
ustu kirkjunnar," sagði hann.“
Ákvörðun dregin
á langinn
Geir Waage, formaður Prestafé-
lags íslands, segir engin rök fyrir
því að ráðuneyti hafí afskipti af
deilunni. „Biskup getur auðvitað,
ef honum sýnist svo, skipað óháðan
aðila til að skoða ágreininginn. Að
mínu mati er hér hins vegar aðeins
verið að draga á langinn að taka
ákvörðun. Prófastur og vígslubiskup
hafa fylgst með deilunni og búa án
efa yfir nægilega mikilli þekkingu
og gögnum fyrir biskup að styðjast
við til að úrskurða í henni. Deilan
er innra mál kirkjunnar og biskupi
ber að styrkja sjálfstæði hennar eins
og gert hefur verið um árabil.“
Geir segir stefnubreytingu bisk-
ups frá því í hádeginu á laugardag
fram á þriðjudag allt að því fyndna.
„Rökstuðningur biskups fyrir því
að óska eftir aðstoð ráðherra í há-
degisfréttunum á laugardaginn kall-
ar ekki síður fram viðbrögð. Hann
tók fram að úr því ráðherra skipaði
presta í embætti hefði hann völd til
að leysa þá frá embætti. Með því
móti beindi hann athygli almennings
að prestinum og gaf í skyn að hann
hefði haft mest áhrif á hvernig kom-
ið væri. Ég get auðvitað ekki unað
því að svona sé hallað á prestinn
og nánast hótað að til þess geti
komið að presturinn yrði settur af,“
sagði Geir og hann lagði áherslu á
að aldrei hefðu verið bornar á prest-
inn sakir er vörðuðu við embættis-
missi.
Sigurður Sigurðarsson, vígslú-
biskup í Skálholtsstifti, sagðist ekki
setja sig upp á móti því að biskup
fengi óháðan aðila til að skoða allar
hliðar málsins. „Hins vegar er ég á
móti afskiptum ráðuneytis af deil-
unni. Presturinn hefur hvorki verið
ásakaður um embættisglöp né sókn-
amefnd um fjármálamisferli og því
er ekki ástæða til að óska aðstoðar
frá því. Ef upp kemur ágreiningur
innan kirkjunnar á að leysa hann
innan hennar," sagði Sigurður.
Sigurður sagðist vænta þess að
ráðning áðumefnds aðila yrði borin
undir hann. Hann myndi svo setja
sig í samband við hann og afhenda
honum ýmis gögn, enda hefði hann
setið fundi með einstaklingum og
hópum vegna málsins áður.