Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýju ári
fagnað í
friði víð-
ast hvar
SKEMMTANAHALD á nýársnótt
fór sómasamlega fram víðast
hvar samkvæmt upplýsingum
lögreglu. Brennur voru margar
og fjölmennti fólk á öllum aldri
að þeim og kvaddi gamla árið.
Veður var með besta móti þótt
kuldaboli nartaði aðeins í menn.
Lögreglumenn í Hafnarfirði
voru þeir einu sem kvörtuðu
undan óspektum á nýársnótt,
enda höfðu í gær fjórar líkams-
árásir verið kærðar til lögreglu
í bænum frá því á nýársnótt.
Að sögn lögreglu í Hafnarfirði
voru árásirnar allar tilefnis-
lausar og ein þeirra sérlega
fólskuleg. Sparkað var í mann á
Strandgötu með þeim afleiðing-
um að sauma þurfti yfir 40 spor
í andlit hans, höfuð og bak. Rann-
sóknarlögreglan í Hafnarfirði
hefur líkamsárásirnar til rann-
sóknar. Tveir menn eru grunaðir
og er annar þeirra grunaður um
aðild að annarri árás. Lögregla
telur líkamsárásir i bænum hafa
verið fleiri á nýársnótt þótt ekki
hafi fleiri kærur verið lagðar
fram, enn sem komið er. Varð-
stjóri í lögreglunni í Hafnarfirði
hafði orð á því að gamlárskvöld
hefði verið sérlega leiðinlegt,
hann myndi ekki eftir öðru eins
í háa herrans tíð.
Aðfaranótt þriðjudags var bif-
reiðinni MT-104, sem er Nissan
Sunny, árgerð 1991, brún að lit,
stolið frá Suðurhöfninni I Hafn-
arfirði. Rannsóknardeild lög-
reglunnar í Hafnarfirði biður þá
sem upplýsingar geta veitt um
ferðir bílsins að gefa sig fram.
Með riffil niðri í fjöru
Mun betra hljóð var í mönnum
í Kópavogi. Þar var mjög stór
brenna í Kópavogsdal á gamlárs-
kvöld og áttu um fimm þúsund
manns ánægjulega samveru-
stund, m.a. undir harmoníkuleik
og flugeldasýningu sem skátar
stóðu fyrir.
Þó þurfti lögregla að hafa af-
skipti af manni á nýársdag sem
sást ganga ölvaður niður að
fjöruborði í nágrenni við Kópa-
vogshæli og var óttast að hann
færi sér að voða. Þegar lögreglu-
menn komu að manninum var
hann með hníf og riffil með sjón-
auka sem reyndist óhlaðinn.
Maðurinn var fluttur á lögreglu-
stöð þar sem hann fékk að sofa
úr sér. Ekki er vitað hvar maður-
inn fékk skotvopnið. Hann var
yfirheyrður af rannsóknarlög-
reglu í gær.
Mikil ölvun í góðu veðri
Á landsbyggðinni höfðu lög-
reglumenn á orði að ölvun hefði
verið mikil, skemmtanir hefðu
staðið fram á morgun en farið
vel fram. Lögreglumaður á
ísafirði sagði að veður á gamlárs-
kvöld hefði verið einmuna gott
og lognið hefði verið svo mikið
að fjörðurinn fylltist af púður-
reyk. Þau ótíðindi bárust þó það-
an að skemmdir hefðu verið unn-
ar i anddyri íslandsbanka tvær
nætur í röð. Ekki er vitað hverj-
ir þar voru að verki.
Bifreið var ekið út af Norður-
landsvegi við Þelamerkurskóla á
laugardagskvöld. Okumaðurinn
forðaði sér frá bifreiðinni og
lagði fótgangandi á fjall. Slóð
hans var rakin og náðist hann
fljótlega. Hann er grunaður um
ölvun við akstur.
Það óhapp varð í Keflavík að
flugeldur lenti í sorpgeymslu við
íþróttahúsið og hlaust nokkurt
tjón af því eldur kom upp í rusla-
geymslunni, hurð skemmdist og
reykur komst inn í húsið. íbúi í
nágrenninu varð óhappsins var
og lét hann slökkvilið vita sem
brást strax við.
Skrautleg áramót
Höfn, Morgunblaðið - Þrátt fyrir að mikið að útgerðarmenn nota tækifærið og nýta upp
púður hafí brunnið um áramót á Hornafirði skotelda sem endurnýjaðir eru í björgunar-
þurftu hvorki lögregla né læknir að hafa bátum um hver áramót. Eins og sjá má var
afskipti af fólki. Margar sólir voru á lofti því mikið um dýrðir.
Morgunblaðið/Ásdís
Hreinsað eftir áramótin
MIKIÐ starf var að hreinsa til eftir áramóta- var tekin við Ægissíðu í Reykjavík í gær,
glauminn. Flugeldaprik og blysleifar voru þar sem starfsmenn hreinsunardeildar borg-
eins og hráviði út um allt og einnig þurfti arinnar tóku til eftir brennuna.
að ganga frá á brennustæðunum. Þessi mynd