Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 61 Frá Sigurði Magnússyni: NÚ í desember er fjallað um það í Morgunblaðinu hvað öryrkj- um hefur fjölgað á síðustu árum og var helst að skilja að um plágu væri að ræða. Þar sem ég hef upplifað það að verða óvinnufær af völdum stjórnsýsluaðgerða, ætla ég að segja frá hverjir eiga stærstan þátt í að atvinnulausu fólki og öryrkjum fjölgar og segi reynslusögu mína því til skýringar. Saga mín! Ég hef sögu mína vorið 1979 er ég var vélstjóri á loðnubát. Þegar við vorum á siglingu á mið- in fékk ég slæmt hjartaáfall og var fluttur í land og á sjúkrahús þar sem ég lá í nokkrar vikur. Svo leið sumarið og um háustið er báturinn sem ég hafði verið á fór á netaveiðar hóf ég störf að nýju um borð. Þessi störf voru mér um megn og varð ég að finna mér aðra vinnu. Vinna á ný! Á næstu árum reyndi ég að sinna ýmsum léttum störfum en flest þeirra voru mér ofviða, en þrekið mitt óx frá ári til árs. Árið 1985 fékk ég starf sem rafmagnseftirlitsmaður hjá raf- veitu úti á landi og tveimur árum seinna var ég ráðinn sem yfirraf- magnseftirlitsmaður til Raf- magnseftirlits ríkisins (RER). Nú var ég kominn í starf sem ég réð vel við jafnt andlega sem Þakkir til kvenna á Borgar- spítaianum Frá Elínu Torfadóttur: ÞAÐ er afar sjaldan að ég skrifa til þessa dálks Morgunblaðsins, en mig langar að koma þakklæti á framfæri. Fyrir nokkru þurfti ég á neyðar- bíl að halda og fara á bráðamóttöku Borgarspítalans til skoðunar. Með í bílnum var ungur læknir, kona, alveg sérlega nærgætin og ljúf en jafnframt ákveðin og örugg í starfí sínu. Piltarnir tveir fóru létt með að bera mig í körfunni, brosmildir, einlægir og starfí sínu vaxnir. Þeg- ar ég kom svo á Borgarspítalann var mér strax sinnt af æfðum hönd- um hjúkrunarfólks - en það sem ég tók samt best eftir fyrir utan frábæra skoðun var að þarna voru að verki einungis konur. Konur sjúkraliðar, konur röntgentæknar, konur hjúkrunarfræðingar og margir læknar, allt konur. Öllum þessum konum vil ég færa bestu þakkir og óska þeim velfarnaðar i ábyrgu starfí sínu. Og það á einnig við bráðamóttöku Landspítala sem ég þurfti fyrir skömmu að leita til og starfsfólks þar. En sem kona og móðir og amma fagna ég að fleiri konur eru komn- ar fram á sjónarsviðið til þessara starfa sem og annarra sem krefjast menntunar og dugnaðar. Látum draum okkar rætast um að við séum öll jafnhæf og fær um að takast á við krefjandi störf í þjóðfélaginu. Þannig fáum við farsæld í störfum og jafnrétti öllum til handa. Kærar þakkir. ELÍN TORFADÓTTIR, Fremristekk 2, Reykjavík. DtSERO EN CERAMICA rTTTTTTTTrrTTTI PBnamis'íu’ii.LliJ ■ '.riuTiiMim i rn i i i i i i i i i i j Stórhöfðo 17 vlð Gulllnbrú, sími 567 4844 BREF TIL BLAÐSIIMS Opið bréf til heilbrigð- is- og félagsmála- ráðuneytis Islands líkamlega og liðu nú nokkur ár þannig að ég gat stundað fulla vinnu. Hrun! Þá er að einhveijum dettur það í hug, að nú þurfi að byggja upp nýtt rafmagnseftirlit vegna EES og ESB skuldbindinga, og skipti engum togum að flestum var sagt upp störfum er hreinsunardeild ráðuneytanna tók til starfa við að fækka fólki sem var fyrir EES- uppbyggingu. I upphafí hreinsunartímabilsins voru höfð uppi fögur og stór orð um að allir fengju vinnu við sitt hæfi og var því trúað. Nú er komin reynsla á loforðin. Þau voru einskis virði, það hefur enginn fengið vinnu að tilhlutan loforðsmannanna. Þetta lagðist mjög þungt á mig þar sem ég hafði verið að beijast áfram við að ná starfskröftum árin áður en þessi ósköp dundu yfir. Það var svo um þennan tíma sem fór að gæta verulegra hjarta- truflana hjá mér vegna þess and- lega álags sem lagðist á mig vegna breytinganna og óvissunnar, og ekki bætti úr þegar uppsagnar- bréfíð kom, og það á þann hátt að mér var sagt upp mánuði fyrr en öðrum, og það án skýringar. Hjartaáfall á ný! Skömmu eftir þetta fékk ég hjartaáfall og var fluttur á spítala og mér bjargað. Nú var ekki um margt að velja þar sem búið var að lama vinnu- þrek mitt til frambúðar. í dag er ég öryrki og fæ bætur samkvæmt vottorðum. En enginn getur bætt það sem hreinsunardeild ráðuneytanna tók frá mér, heilsuna! Grimmlyndi! Ég segi þessa sögu vegna þess áróðurs sem haldið er uppi gegn öryrkjum þessa lands, fólki sem hefur lagt heilsu og líf sitt að veði við að afla gjaldeyris fyrir þjóðar- búið. Það er grimmt og ljótt, að fólk- ið sem við höfum alið önn fyrir og kostað til náms, skuli nánast ganga af okkur dauðum á þann hátt sem raun ber vitni. Ljóst er að forustumenn ýmissa ráðuneyta láta EES-sláttumenn sína höggva á báða bóga til að fækka starfsfólki, sé það fyrir. Flestir þeirra sem verða fyrir þess- um höggum verða fyrir skaða á sál sinni og líkama. Undrandi! Þessir stjórnarherrar eru svo undrandi og spyija, af hveiju fjölg- ar öryrkjum og atvinnulausum. Ég spyr hvaða þroska hafa menn sem ráðast á þá burða- minnstu? Ég spyr hvað hafa marg- ir þessara manna stundað undir- stöðustörf. okkar lands og barist fyrir lífi sínu í bardaga upp á líf og dauða við stríðandi haf? Eru ráðuneytismenn og ríkis- stjórnir síðustu ára algjörlega blinduð af EES- og ESB-glýjunni. „Á að fórna bæði fólki og landi til að þóknast blindri ESB-dýrkun einstakra manna? Varnarsókn! Þar sem ég hef nú skýrt frá framkomu ríkisstofnana við mig, og hvernig heilsa mín hefur brotn- að niður með gjörðum þeirra, þá hef ég ákveðið að höfða skaða- bótamál gegn því valdi sem valdið hefur mér dýpstu sárum lífsins, og með framkomu sinni lítilsvirt vinnuframlag mitt til þjóðarinnar. Ég geri þetta til varnar öllum sem hafa hliðstæða sögu og eru þess ekki megnugir að bera hönd fyrir höfuð sér. SIGURÐUR MAGNÚSSON, Skólavörðustig 16a, Reykjavík. -kjarnl málsins! ÁTAK í FITUBRENNSLU 8 vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við Morgun-, dag- og kvöldtímar. Einfaldar og árangursrikar æfingar. Athugið!!! Námskeiðin hefjast lO.janúar. Skráning og nánari upplýsingar í síma 565 2212 aukakíló. HRFSS IJKAMSRÆKT OG LTÓS BÆJARHRAUNI 4/VIÐ KEFLAVÍKURVEGINN/SÍMI 565 2212
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.