Morgunblaðið - 03.01.1996, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langammma,
INGIGERÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áðurtil heimilis
á Jófríðarstaðayegi 7,
sem lést 26. desember, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Guðrún Helgadóttir,
Ingólfur Helgason, Þórkatla Óskarsdóttir,
Jóhanna Helgadóttir, Hjalti Einarsson,
Gísli Helgason, Theresía Viggósdóttir,
Unnur Helgadóttir, Gunnbjörn Svanbergsson,
Arnar Helgason, Lára Sveinsdóttir,
Bjarni Kristinn Helgason,
Viðar Helgason, Louise La Roux,
Gerður Helgadóttir, Jóhannes S. Kjarval,
Leifur Helgason, Sigrún Kristinsdóttir.
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
KJARTAN GUÐJÓNSSON,
Fossheiði 18,
Selfossi,
sem lést aðfaranótt gamlársdags, verð-
ur jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 5. janúar kl. 10.30.
Blóm vinsamlega afbeðin, en þeim sem
vildu minnast hans, er bent á líknar-
stofnanir.
Matthildur Pálsdóttir,
Halldór Kjartansson, Gyða Ólafsdóttir,
Gunnar Kjartansson, Kristfn Stefánsdóttir,
Hildur, Stefán og Kjartan Gunnarsbörn,
Guðrún og Nanna Pétursdætur.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGFÚS ÓLAFUR SIGURÐSSON,
Jökulgrunni 23,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað-
ir, en þeim, sem vildu minnast hans,
láti hjúkrunarheimilið Skjól njóta þess.
Jóhanna Björnsdóttir,
Sigfrfð Elfn Sigfúsdóttir, Marinó Bóas Karlsson,
Þórunn Jóna Sigfúsdóttir,
Jóhanna Edda Sigfúsdóttir, Sveinn Hafdal,
Sigurður Gylfi Sigfússon, Björg Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
INGÓLFUR ÁRNASON,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
áður Hríseyjargötu 8,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Svan Ingólfsson, Helga Guðmundsdóttir,
Árni Ingólfsson, Björg Sigurjónsdóttir,
Sigríður Ingólfsdóttir, Sigurður Björnsson,
Agnes ingólfsdóttir, Hákon Jónsson,
Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Ólafur Aðalbjörnsson,
Hrefna Ingólfsdóttir, Kristján Sveinsson,
Lára Ingólfsdóttir, Páll Ásgeirsson,
Inga Björk Ingólfsdóttir, Vilhelm Arthúrsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HINRIK GUÐLAUGSSON,
Hólmgaröi 49,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
ídag, miðvikudaginn 3. janúar, kl. 13.30.
Lilja Þórarinsdóttir,
Þórarinn Ingi Ólafsson, Guðný Björnsdóttir,
Erling Ólafsson, Bergþóra Gísladóttir,
Óli Sævar Ólafsson, Gréta Kjartansdóttir,
Oddný Ólafsdóttir, Ingvar U. Skúlason,
Sæmundur Ólafsson, Kristm Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
RÓSA SIG URÐARDÓTTIR
+ Rósa Sigurðardóttir frá Mói
á Dalvík fæddist 17. janúar
1909. Hún lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 5. des-
ember síðastliðinn.
Rósa giftist árið 1938 Vilhjálmi
Kristni Vilhjálmssyni frá Hrís-
ey og sama ár hófu þau búskap
í Hrísey. Vilhjálmur Kristinn
lést árið 1982. Með honum eign-
aðist Rósa dæturnar þijár, þær
Brynhildi, f. 1938, Valdísi Sæ-
unni, f. 1942 og Amýju Björk,
f. 1947.
Útför Rósu fór fram í Hrísey
16. desember.
ÞAU hjónin voru af aldamótakyn-
slóðinni sem byijaði að vinna fulla
vinnu strax í bemsku og tilheyrðu
þeim hljóða hópi alþýðunnar sem
byggði upp þau lífsgæði sem ísland
býður upp á í dag. Hún minntist
oft góðra stunda, en hún átti líka
sínar erfiðu stundir og það er hvern-
ig fólk sigrast á sínum erfiðu stund-
um sem skiptir svo miklu máli. Sem
fyrr segir lærði hún snemma að
vinna og var púlsmanneskja í ára-
tugi. Mörg seinustu árin bjó Krist-
inn maður hennar við erfítt fóta-
mein og að lokum missti hann ann-
an fótinn, þá nokkuð á áttræðis
aldri. Þrátt fyrir það hélt hann
áfram að vera heima og þannig
veitti Rósa honum þá umönnun sem
til þurfti allnokkur seinustu árin
sem hann lifði.
Þau bjuggu í litlu hvítu steinhúsi
við Norðurveginn í Hrísey. Þaðan
var gott útsýni yfír höfnina og aðal
athafnasvæðið. Þau gátu því fylgst
með ýmsum og séð hvernig púls
staðarins sló. Margur vegfarandinn
stoppaði líka við stofugluggann
þeirra og átti við þau orðastað. Það
var þeim mikils virði og þótti frá-
sagnar vert að þessi eða hinn hefði
getað séð aðeins af tíma sínum.
Þeir sem það gerðu geta verið þess
fullvissir að hafa oft skilið við þau
þakklát í huga og að hafa fengið
að launum hlýja hugsun þegar
gengið var á braut að spjalli loknu.
Rósu gat verið þungt í sinni en
hún gat líka leikið á als oddi. Hún
skuldaði ekki og lét lítið eftir sér.
Ef séð varð að hún léti eitthvað
eftir sér var það í því fólgið að
gefa. Gefa sínum nánustu. Það var
henni stolt og gleði að hafa lítið
þurft að kaupa til heimilisins dag
hvern og það var henni gleði að
geta sýnt að hún hafði keypt eitt-
hvað handa litlu barnabarni. Hún
talaði mikið um barnabörnin sín,
hvernig þeim vegnaði, hvað þau
tækju sér fyrir hendur og hvaða
kostum þau væru gædd. Þá gat hún
verið í essinu sínu. Umönnunin sem
hún veitti manni sínum seinustu
árin var henni erfið, en hún var
stolt af því að geta það og það var
henni gefandi.
Rósa var trúuð og hún hafði trú
sína einfalda. Síðustu árin, eða eft-
ir að hún hafði misst mann sinn
og þar áður dótturson, talaði hún
oft um að hún ætti góða heim að
sækja hinumegin þegar þar að
kæmi. Þessi umræða virtist vaxa
að dýpt og meiningu eftir því sem
árin liðu. Síðustu árin var hún full-
viss um að hlutverkinu væri lokið
og ekki varð annað séð en að hún
biði eftir kallinu án minnsta ótta,
jafnvel með eftirvæntingu. Að hafa
náð slíku takmarki segir jú að lífinu
hafí ekki verið lifað til einskis. Það
er að hafa lifað lífinu til þess þroska
sem svo margur óskar sér í hérvist
sinni.
Yið þökkum þér samfylgdina,
Rósa, og tryggðina sem þú sýndir
börnum okkar Valgerði, Kristni og
Rósu. Megir þú njóta þessa að hafa
átt góða heim að sækja fyrir hand-
an þegar kallið kom og finna þar
ný hlutverk í þeim félagsskap sem
þú beiðst eftir og væntir svo mikils
af.
Valdís og Guðjón.
Skilafrest-
ur vegna
minningar
greina
Eigi minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í
miðvikudags-, fímmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dög-
um fyrir birtingardag. Berist
grein eftir að skilafrestur er
útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt
að lofa ákveðnum birtingar-
degi.
+
Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
JÓNÍNA JAKOBSDÓTTIR,
Þinghólsbraut 54,
Kópavogi,
andaðist 23. desember sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Páll Helgason, börn, tengdabörn,
barnabörn og systir.
+
Ástkær eiginmaður minn og fósturfaðir,
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON
frá Höfðahólum,
/ til heimilis
i Fannborg 8,
Kópavogi,
lést í Vífilstaðaspítala 27. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 4. janúar kl. 13.30.
Ásta Strandberg,
Ásta Óla Halldórsdóttir, Marteinn Kristjánsson,
Halldór Jónsson,
Eyvör Halldórsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
+ Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og margvíslegan stuðning
vegna fráfalls eiginmanns míns,
ALFREÐS HAFSTEINS AÐALBJARNARSONAR,
Unaósi.
Guð blessi ykkur öll.
Ólöf Sölvadóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR
frá Strönd,
Vestmannaeyjum.
Fyrir hönd ættingja.
Hulda Lárusdóttir,
Ólafur Lárusson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
HALLDÓRU JÓNU
VALDIMARSDÓTTUR
frá Bjargi,
Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Garð-
vangs.
Guðbjörn Ingvarsson, Sigríður Lúðviksdóttir,
Hafsteinn Ingvarsson, Hjördís Traustadóttir,
Agnes Ingvarsdóttir Khoberger,
Sigurður Ingvarsson, Kristín Guömundsdóttir,
Kristjana Ingvarsdóttir, Jóhannes Ágústsson,
Matthildur Ingvarsdóttir, Magnús Magnússon,
Ingvar Jón Óskarsson, Karen Pétursdóttir,
Einar Jón Pálsson, Hildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.