Morgunblaðið - 03.01.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 11
FRETTIR
Nýr kjarasamningur flugumferðar stj óra og ríkisins
Föst mánaðarlaun frá
107 til 232 þúsund krónum
7.400 kr. launahækkun vegna hagræðingar
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR ræða innanhússtillögu sáttasemjara
sem varð að samningi þeirra og ríkisins.
Föst mánaðarlaun flugumferðarstjóra skv.
nýgerðum kjarasamningum geta numið allt
frá 107 til 232 þús. kr. Einnig var samið
um fastar vaktagreiðslur og í yfírliti Omars
Friðrikssonar kemur fram að flugumferð-
arstjórar fá á árinu 7.400 kr. hækkun mán-
aðarlega vegna hagræðingar.
Fj ár hagsáæt lun
Kópavogsbæjar
fyrir 1996
Tekjur um-
fram gjöld
áætlaðar
112 millj.
ÁÆTLAÐAR skuldir Kópavogsbæj-
ar í árslok 1995 voru rúmar 4.251
milljón kr. en í lok þessa árs er
áætlað að heildarskuldir lækki lítil-
Iega og verði tæpar 4.230 milljónir
króna. Eignir bæjarins voru áætlað-
ar tæpar 1.575 milljónir króna um
áramótin og um 1.615 milljónir
króna um næstu áramót. Samkvæmt
fjárhagsáætlun bæjarins verða tekj-
ur bæjarsjóðs á árinu umfram gjöld
112,8 milljónir kr. Heildartekjur eru
áætlaðar tæpar 2.810 milljónir
króna en heildargjöld um 2.697 millj-
ónir króna. Skatttekjur eru áætlaðar
1.923 milljónir króna á árinu.
Samkvæmt fjárhagsáætluninni
skila útsvör bæjarsjóði 1.556 milljón-
um króna í tekjur, fasteignaskattar
242 milljónum króna, holræsagjöld
80 milljónum króna, sérstakir skatt-
ar 25 milljónum króna og úr jöfnun-
arsjóði koma 20 milljónir króna.
Gjöld vegna yfirstjórnar bæjarfé-
lagsins eru áætluð rúmar 114 millj-
ónir króna, vegna félagsþjónustu
tæpar 540 milljónir króna, vegna
fræðslumála tæpar 306 milljónir
króna, vegna æskulýðs- og íþrótta-
mála um 165 milljónir króna, vegna
hreinlætismála 85 milljónir króna,
vegna götu-, holræsa- og umferðar-
mála 77 milljónir króna, tæpar 60
milljónir króna vegna menningar-
mála og 50 milljónir kr. vegna al-
menningsgarða og útivistar. Áætluð
gjöld vegna málaflokka eru rúmar
1.689 milljónir króna en tekjur af
þeim 496.681 milljón kr.
----♦--------
Dánarbætur
í stað ekkju-
lífeyrisins
HEILBRIGÐIS- og tryggingamála-
ráðherra hefur undirritað reglugerð
um hækkun bóta almannatrygginga
frá og með 1. janúar 1996 um 3,5%.
Samkvæmt reglugerðinni hækka
elli- og örorkulífeyrir, örorkustyrkur,
greiðslur í fæðingarorlofi, tekju-
trygging, sjúkradagpeningar, heim-
ilisuppbót og sérstök heimilisuppbót
og uppbót á lífeyri. Hækkun bóta í
janúarmánuði kemur til útborgunar
10. janúar nk.
1. janúar nk. öðlast jafnframtgildi
aðrar breytingar á greiðslum al-
mannatrygginga, samkvæmt lögum
um ráðstafanir í ríkisfjármálum á
árinu 1996. Mæðra- og feðralaun
lækka en breytingin hefur áhrif til
hækkunar á greiðslu barnabóta-
auka. Þá öðlast gildi reglur um
aukna tekjutryggingu elli- og öror-
kulífeyris sem hafa þau áhrif að
tekjur lífeyrisþega umfram tiltekin
tekjumörk, aðrar en tekjur úr lífeyr-
issjóðum og almannatryggingum,
skerða ellilífeyri um 30% í stað 25%
áður. Ekkjulífeyrir verður ekki
greiddur framvegis nema til þeirra
sem njóta hans en heimildin hefur
verið gagnrýnd í ljósi jafnréttissjón-
armiða og slíkar bætur hafa verið
lagðar niður á öðrum Norðurlöndum.
Til mótvægis eru rýmkaðar heimild-
ir til greiðslu dánarbóta. Dánarbæt-
ur eru greiddar í sex mánuði til
þeirra sem misst hafa maka sína.
Lagabreytingin heimilar Trygginga-
stofnun ríkisins að lengja greiðslu
dánarbóta í 12-48 mánuði til viðbót-
ar fyrir þá sem eru með börn yngri
en 18 ára á framfæri eða við sérstak-
ar aðstæður.
Nánari viðmiðun mun koma fram
í reglugerð, segir í frétt frá heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytinu.
SAMKVÆMT launatöflu flugum-
ferðarstjóra í nýgerðum kjarasamn-
ingi flugumferðarstjóra og ríkisins
nema lægstu mánaðarlaun flugum-
ferðarstjóra í fullu starfi tæpum 107
þús. kr. og hæstu grunnlaun 232.684
kr. Breytast launin umtalsvert innan
töflunnar miðað við starfsaldur og
lífaldur. Þessu til viðbótar hækka
mánaðarlaun flugumferðarstjóra um
7.400 kr. á árinu skv. sérstakri bók-
un þar sem segir að sérstakur ábati
vegna hagræðingar skuli vera 7.400
kr. mánaðarlega miðað við fullt starf.
Felst hagræðingin í breyttu vakta-
fyrirkomulagi og vinnutilhögun í
tengslum við flutning í nýju flug-
stjóraarmiðstöðina. Kemur hún til
greiðslu á tímabilinu frá 1. mars
næstkomandi til 1. október 1996.
Flugumferðarstjórar og samninga-
nefnd ríkisins hafa metið launahækk-
un nýju samninganna til 10,3% út
samningstímann en samningurinn
gildir frá 1. desember sl. og út þetta
ár. Byrjunarhækkunin er metin til
7,5%.
Launataflan skiptist í 8 launaþrep
og 18 launaflokka. Þannig nema t.d.
föst mánaðarlaun fiugumferðarstjóra
með eins árs starfsaldur 122.754 kr.
Mánaðarlaun flugumferðarstjóra
með 3ja ára starfsaldur, sem náð
hefur 32 ára aldri, eru 143.690 kr.
Mánaðarlaun starfsmanns með sex
ára starfsaldur eru um 163 þús. og
varðstjóri með tíu ára starfsaldur er
með 185.569 kr. í föst mánaðarlaun.
í þessum tölum hefur ekki verið
reiknað með föstum vaktagreiðslum
eða áðumefndri 7.400 kr. ábata-
hækkun vegna hagræðingar sem
kemur-til framkvæmda á árinu.
Vinnuvikan skal vera
38 stundir
Vinnuvika flugumferðarstjóra í
fullu starfi skal að jafnaði vera 38
stundir skv. kjarasamningnum, nema
í Vestmannaeyjum, þar sem vinnu-
vikan er að jafnaði 42 stundir frá
september til maí. Dagvinnutíma-
kaup flugumferðarstjóra er 0,615%
af mánaðarlaunum miðað við 6.
launaþrep. Tímakaup fyrir yfirvinnu
í hverjum launaflokki er 1,0385% af
mánaðarlaunum miðað við það launa-
þrep er viðkomandi flugumferðar-
stjóri tekur laun eftir. Öll yfirvinna
á stórhátíðardögum greiðist með
tímakaupi sem nemur 1,375% af
mánaðarlaunum. Vaktaálag fyrir
hverja klukkustund er 33,33% af
dagvinnukaupi og 45% frá miðnætti
til kl. 8.
Flugumferðarstjóri í fullu starfi
skal skv. samningnum fá greidda
persónuuppbót í desember ár hvert
sem nemi 17,05% af desemberlaunum
í 6. þrepi 261. launaflokks, sem í dag
kveður á um 153.918 kr. mánaðar-
laun.
ítarleg ákvæði eru í samningnum
um vinnutíma, útkall, vaktavinnu og
lágmarkshvíld. Flugumferðarstjórar
ganga vaktir skv. vaktakerfi sem
miðast við að vinnutími reglubund-
innar vaktskrár sé 38-42 klst. á viku
að jafnaði. Ber skv. honum að greiða
starfsmönnum, auk fastra mánaðar-
launa í hverjum mánuði, fastar vakta-
greiðslur en þar er annars vegar um
að ræða 33,33% vaktaálag miðað við
32 klst. og 45% álag miðað við 80
klst.
Þá er í samningnum ákvæði.um
orlof, aðbúnað, ítarleg ákvæði um
slysatryggingar og ferðakostnað.
Eiga flugumferðarstjórar t.d. rétt á
þriggja og hálfs dags kynnisferð er-
lendis annað hvert ár með ákveðnum
skilmálum og fá greiddan ferðakostn-
að og dagpeninga.
Flugumferðarstjórar lögðu ríka
áherslu á réttindamál sín í kjaravið-
ræðunum og samkomulag náðist um
skipan nefndar til að meta réttar-
stöðu þeirra.
Heildarlaun hafa verið á fjórða
hundrað þúsund að meðaltali
Flugumferðarstjórar töldu einnig
mjög mikilvægt í viðræðunum að
draga úr mikilli yfirvinnu. Skv. sein-
asta fréttariti Kjararannsóknar-
nefndar opinberra starfsmanna hafa
greiðslur fyrir yfirvinnu flugumferð-
arstjóra numið um 40-45% af föstum
mánaðarlaunum þeirra. í febrúar á
seinasta ári námu t.d. föst mánað-
arlaun flugumferðarstjóra að meðal-
tali 169.578 kr., greidd yfirvinna var
tæp 78 þús. að meðaltali og önnur
laun starfsmanna um 62 þús kr.
Heildarlaun flugumferðarstjóra voru
þannig 309.547 kr. að meðalt.ali. í
maí námu dagvinnulaun þeirra rúm-
um 170 þús. kr., yfirvinnulaun
71.600 og önnur laun 61.275 kr.
Heildarlaun flugumferðarstjóra voru
að meðaltali 303.407 kr. í mánuðin-
QWÁiXATV
saman
Innritun stendur yfir á vornámskeiðin.
Barnadansar, samkvæmisdansar,
Jassleikskólinn, kántrýdansar, stepp, rokk.
Okeypis danstímar 9. & 10. janúar.
...þú kemur - við kennum.
Danssmiðja Hermanns Ragnars
1,105 Reykjavík 5 6 8 - 9 7 9 7 o
Kennslustaðir: Engjateigur 1, Frostaskjól, Geröuberg, Fjörgyn Grafarvogi og Stjörnuheimiliö Garöabæ.