Morgunblaðið - 03.01.1996, Side 15

Morgunblaðið - 03.01.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 15 VIÐSKIPTI Spá minni hækkun á verðbréfa- markaði vestra New York. Reuter. HÆKKANIR hafa sjaldan verið meiri á bandarískum verðbréfa- markaði en á nýliðnu ári. Dow Jo- nes vísitalan hefur sett eitt met á viku að jafnaði, en sérfræðingar búast við minni hækkunum og meiri sveiflum 1996. Dow vísitalan komst hæst í 5266 punkta 14. desember og var 5110 annan dag jóla. Það jafngildir 1276 punkta hækk- un á ári, eða 33%. Dow vísitálan var 3834,44 við lokun 30. desember 1994 eftir 2,14% hækkun 1994. Nasdaq vísitalan hækkaði um 39% á sl. ári samanborið við 3,20% lækk- un 1994. Sérfræðingar búast ekki við svo miklum hækkunum í ár, en telja yfirleitt að Dow hækki í 5500-6000 1996, þótt nokkrar sveiflur muni eiga sér stað. Miklar hækkanir bréfa í tæknifyr- irtækjum ýttu undir hækkun Dow á liðnu ári. Þótt hækkun þeirra stöðv- aðist um mitt sumar tók önnur hækkun við þegar fjárfestar urðu vandfýsnari í vali á hátæknibréfum. Minni hagnaður1996? Ávinningur af endurskipulagn- ingu fyrirtækja hefur þegar skilað sér og útlit er fyrir hægari aukningu á hagnaði fyrirtækja á þessu ári. Peter Canelo, sérfræðingur NatWest Securities, gerir ráð fyrir að hagnaður af S&P 500 aukist um 8% og Dow verði því 5650-5950. Hann gengur einnig út frá að lang- tíma arður af skuldabréfum fari nið- ur fyrir 5,5% og að ekki verði uppi of mikil bölsýni á horfur í efnahags- málum. William LeFevre, sérfræðingur Ehrenkrantz King Nussbaum, telur að í árslok 1996 muni Dow hafa hækkað um 10% miðað við 1995. „Ég er mjög varkár,“ segir hann. Sérfræðingur Gruntals, Joseph Battipaglia, er ekki eins varkár. Hann telur að Dow hækki í 6000 1996 og hagnaður af S&P 500 auk- ist um 10% í 39 dollara úr 36,50 dollurum 1995. Phil Orlando, sérfræðingur Value Line Asset Management, spáir því að Dow hækki í 5700. Hann segir að þar sem búizt sé við að hagnaður af S&P 500 aukist um eða yfir 10% hafi fjárfestar þeim mun meiri ástæðu til að einbeita sér að tækni- bréfum. Elaine Garzárelli, forstjóri Garza- relli Capital Inc, hyggur að Dow fari hæst í 6100 á næstu 12-18 mánuðum. Gail Dudack, sérfræðingur UBS Securities, telur líkur á hóflegum hækkunum. Hann gizkar á að Dow fari í 5500-5800 1996 og að hagn- aður af S&P 500 muni aukast um 11% í 38,50 doliara. Michael Metz frá Oppenheimer telur að Dow muni komast hæst í 5300 í janúar og lækka í 4860 í lok ársins. „Hagnaður fyrirtækja mun valda vonbrigðum,“ segir hann. „Aðstæð- ur benda til að vöxtur verði hægur. Við munum alls ekki ná miklum árangri og síðan tel ég að verðbólgu- hræðsla muni grípa um sig um mitt ár.“ Stjórnmál í fyrirrúmi „Á næsta ári verða stjórnmálin allsráðandi," segir Dudack. „Þótt þróunin stefni í rétta átt má aldrei vanmeta stjórnmálin, sem munu valda markaðssveiflum." Hlutabréf í Bandaríkjunum hækka venjulega í verði á því ári þegar forsetakosn- ingar fara fram. „Það sem raunverulega skiptir mestu máli er hvort repúblikanar halda meirihluta í báðum þingdeild- um, eða hvort demókratar ná aftur meirihluta," segir Canelo. Athygli manna í Wall Street mun einnig beinast að því hvort Alan Greenspan verður aftur kjörinn seðlabankastjóri, þótt hann hafi gegnt því starfi lengur en venja er. „Gagnrýna má Greenspan fyrir að hafa verið of hægfara," segir Battipaglia, „en hann hefur eytt verðbólguþrýstingi og átt þátt í því að iðnaðurinn hefur tekið kipp og samkeppnisstaða hans batnað á heimsmarkaði." Hægari vexti spáð vestra ’96 New York. Reuter. HAGVÖXTUR verður hægur í Bandaríkjunum 1996 og vaxtalækk- anir verða nauðsynlegar til að kom- ast hjá samdrætti samkvæmt könnun Wall Street Journal á viðhorfum 64 hagfræðinga. Flestir hagfræðingar búast ekki við samdrætti vegna væntanlegrar vaxtalækkunar bandaríska seðla- bankans og fyrirætlana um að draga úr ríkishalla að sögn blaðsins. Þær ráðstafanir ættu að vega á móti áhrifum þess að atvinna hefur lítið aukizt og að viðskipti voru treg um hátíðarnar. Heildarframleiðsla í Bandaríkj- unum 1995 jókst um 1,7% á fyrsta ársfjórðungi, 0,7% á öðrum ársfjórð- ungi og 3% á þriðja ársfjórðungi að sögn blaðsins. Tölur frá fjórða árs- fjórðungi 1995 verða birtar síðar i þessum mánuði. Hagfræðingum, sem búast við samdrætti 1997, fjölgaði í um 35% að sögn blaðsins. Um 60% hagfræðinganna búast við að Clinton forset nái endurkjöri. Miklum breytingum þýzkra banka spáð Frankfurt. Reuter. LEIÐTOGAR stærstu banka Þýzka- lands búast við miklum breytingum 1996, meðal annars vegna tölvu- banka og sameginlegs gjaldmiðils, og telja því nauðsynlegt að móta nýja stefnu. Bankastjórarnir sögðu blaðinu Börsen Zeitung að áhrifa aukinnar alþjóðavæðingar vegna afnáms hafta á fleiri fjármálamörkuðum mundi gæta mest í þýzkum bankamálum á þessu ári. Aðalbankastjóri Deutsche Bank AG, Hilmar Kopper, sagði að „sígild- ir viðskiptabankar" ættu í erfiðleik- um. Ör vöxtur rafeindamiðla á síðari árum hefur breytt samkeppnisstöðu þýzka bankakerfisins og neytt banka til að endurskoða hlutverk sitt í tölvuvæddu þjóðfélagi, sagði hann. Yfirmaður Commerzbank AG, Martin Kohlhaussen, sagði að ný samkeppni mundi ekki aðeins koma frá hefðbundnum bönkum heldur fjármálastofnunum, sem mundu reyna að hagnýta sér „upplýsinga- hraðbrautina" í alnetinu til að ná til viðskiptavina. PFAFF GRENSÁSVEGI 13 Sími 533 2222 PFAFF PAR SEM ÞU GENGUR AD HEIMILISTÆKJUNUM VÍSUM Morgret Teilcnari FÍT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.