Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 r Kripalujóga Ný Ásmundur Gunnlaugsson Heiðrún Kristjánsdóttir jógastöð opnuð! Opnum nýja jógastöð í Hátúni 6A kl. 14 nk. laugardag, í nýinnréttuðu og glæsilegu húsnæði. Fullkomin aðstaða til jógaiðkunar, böð, sauna og nudd. Námskeið og opnirtímar í kripalujóga, jógaleikfimi, hathajóga og hugleiðslu. Opið hús laugardaginn 6. janúar nk. kl. 14.00. Kynningar kl. 14.30,16.30 og 20.00. Kynnt verða grundvallaratriði í jóga, léttar teygjur, öndun og slökun. Frlh í jógatíma vikuna 8. janúar til 13. janúar Tilboð á mánaðarkortum á því tímabili. Allir velkomnír. Næstu námskeið: Grunnnámskeið 8. jan. (8 skipti) mán. og mið. kl. 16.30-18.00. Jóga gegn kvíða 9. jan. (8 skipti) þri. og fim. kl. 20.00-22.00. Leiðbeinandi: Ásmundur Gunnlaugsson. Grunnnámskeið 10. jan. (8 skipti) mán. og mið. kl. 20.00-21.30. Grunnnámskeið 16. jan. (8 skipti) þri. og fim. kl. 20.00-21.30. Leiðbeinandi: Einar Bragi ísleifsson. YOGA STU D I O Hátúni 6A, 105 Reykjavík, sími 552 8550, Jógaleikfimi — eitthvað lyi ii' þig? GALLERÍ BORG FL YTUR ÍAÐALSTRÆTI 6 (MOR G UNBLAÐSH ÚSIÐ) NÚ ÞEGAR HEFUR MYNDLISTARGALLERÍIÐ VERIÐ FLUTT OG INNAN SKAMMS MUNUM VIÐ FLYTJA ÚR FAXAFENI OG OPNA STÓRGLÆSILEGA ANTIK-VERSLUN í 350 m2 SAL í HJARTA BORGARmNARAÐALSTRÆTI 6. ÞESS VEGNA HÖLDUM VIÐ NÚ STÓRÚTSÖLU og r___ BJÓÐUM 20—60% AFSLA TTAF HÚSGÖGNUM, POSTULÍNI, LISTMUNUM, LJÓSAKRÓNUM OG FLEIRU. einnig 30% AFSLA TT af handunnum PERSNESKUM TEPPUM. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 10-18. LAUGARDAGA KL. 12-16. VIÐ SENDUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR BESTU KVEÐJUR OG ÓSKUM LANDSMÖNNUM ÁRS OG FRIÐAR. AÐSENDAR GREINAR Heimsmarkaður- inn - ósýnilegur Islendingum HÉR birtist fyrsti hluti af þremur í sam- antekt eftir Steinar Berg ísleifsson. Inngangur í Bandaríkjunum er talað um skemmtana- iðnaðinn (The Enter- tainment Industry) sem atvinnugrein samhliða öðrum at- vinnugreinum s.s. ol- íuiðnaði (The Oil Ind- ustry) og bílaiðnaði (The Car Industry) enda er verðmæta- sköpun þessa iðnaðar með slíkum hætti að hann skipar sér við hlið ofannefndra tveggja atvinnugreina í verðmætasköpun og hvað varðar áherslu og stuðn- ing í hugum þarlendra stjórnvalda. Þegar íslenskir ráðamenn tala um nýsköpun í atvinnugreinum, dettur þeim varla í hug að tæki- færi kunni að leynast innan þess víðfeðma geira, sem skemmtana- iðnaðurinn spannar. Líklega er upptroðsla skemmtikrafts á árshá- tíð nærtækari hugsun almennt fyrir íslendinga en að þeir tengi hugtök eins og verðmætasköpun og útflutningsverðmæti við orðið skemmtanaiðnaður. Reyndar kemur flestum íslend- ingum væntanlega spánskt fyrir sjónir að orðinu iðnaður sé bætt aftan við þær greinar sem þeir nota yfírleitt um menningu og list- ir. Hætt er við að mörgum fínnist það allt að því móðgun og niður- lægjandi fyrir viðkomandi listgrein og því afskaplega sjaldgæft að sjá orð eins og tónlistariðnaður, bóka- iðnaður eða kvikmyndaiðnaður notuð þegar um þessi málefni er rætt eða ritað, nema í neikvæðri merkingu. Hér verður fjallað um tónlistar- iðnaðinn, sem er ein stærsta grein skemmtanaiðnaðarins. Reynt verð- ur að varpa Ijósi á umfang þessar- ar atvinnugreinar hér á landi og erlendis og leitast við að kynna helstu hugtök sem þessum iðnaði tengjast og notuð eru í alþjóðlegri samningsgerð. Spurt er, hvort ekki sé kominn tími til að aðilar tónlist- ariðnaðarins og stjórnvöld taki höndum saman og kanni á hvem hátt þessir aðilar geti unnið saman að því að efla möguleika til þess að íslenskur tónlistariðnaður skapi íslendingum útflutningstekjur sem skipti máli. Til þess að svo verði þarf að eiga sér stað viðhorfsbreyt- ing þannig að aðilar geti metið hvemig slíku markmiði verður náð á raunhæfan hátt. Með það að leiðarljósi vonast undirritaður til þess að lestur þessarar samantektar reynist upplýsandi og gagn- legur. Heimsmarkaðurinn - Sala hljómplatna Þrátt fyrir fjölgun greina í skemmtana- iðnaðinum og aukna innbyrðis sam- keppni hefur tónlistariðnaðurinn verið í ömm vexti. Árið 1994 varð söluaukningin 16,5% frá árinu áður og heildarverðmæti sölunnar 35.537 milljarðar bandaríkjadoll- ara eða 2.450.000 milljarðar ís- lenskra króna sem jafngildir hér um bil 2.000-földum tekjum ís- lenska ríkisins samkvæmt nýfram- lögðum fjárlögum. Afskaplega mikill munur er milli hinna ýmsu markaðssvæða. Þannig er t.d. geislaplatan ráðandi í Evrópu en kassettan í Asíu (utan Japans) og verðmunur verulegur. Neyslan er einnig mismunandi þannig að t.d. keypti hver Bandaríkjamaður að meðaltali 4,6 eintök en Kínveijar voru 5 um hvert eintak. Skipting helstu markaðssvæða er sú að Norður-Ameríka (Bandaríkin og Kanada) eru með 36%, Evrópa 33% og Japan 17%. Telja má víst að áframhaldandi vöxtur verði á sölu hljómplatna á næstu árum í heiminum, bæði hvað varðar verðmæti og einingar og kemur þar helst tvennt til: Vaxandi hlutdeild geislaplötunnar (CD) í heildarsölunni og batnandi réttarstaða rétthafa í ýmsum heimshlutum. Sem dæmi um mik- ilvægi og áherslu á verndun réttar- stöðunnar má nefna hinn gífurlega þrýsting sem Bandaríkin beittu Kína fyrr á þessu ári þegar þeir hótuðu að rifta viðskiptasamning- um nema Kínveijar lokuðu hundr- uðum verksmiðja, sem framleiddu geislaplötur án þess að hafa tilskil- in leyfi frá eigendum útgáfu- og höfundarréttar. Erfítt er að skipta tónlistinni upp samkvæmt tónlistarstefnum en segja má að á bilinu 3-7% sé sin- fónísk eða klassísk tónlist og hinn Steinar Berg Isleifsson IÐNAÐARHURÐIR - BÍLSKÚRSHURÐIR ÞAK- OG VEGGSTÁL ISVAL-30RGA Í-I/F HÖFÐABAKKA9 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 587 8750 - FAX: 587 8751 blabi b - kjarni málsins!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.