Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 9

Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 9 FRÉTTIR Helgar- og næturþjónusta apóteka Utsalan er hafín Allt að 40 % afsláttur Breytingar á opnunar- tíma í vændum APÓTEKARAFÉLAG íslands ræðir þessa dagana breytingar á opnunartíma apóteka sem sinna helgar- og næturþjónustu. „Núver- andi vaktaskema rennur út 3. febr- úar og það er verið að funda um þetta mál hjá félaginu. Það eru breytingar í vændum sem væntan- lega verða neytendum til hags- bóta,“ segir Ingolf Petersen, for- maður Apótekarafélags íslands. Nokkuð hefur borið á gagnrýni á opnunartíma apóteka yfir helg- ar, nætur og helgidaga en aðeins eitt apótek á höfuðborgarsvæðinu er opið á þessum tíma og þurfa neytendur í mörgum tilfellum að fara langan veg til að notfæra sér þjónustu þeirra apóteka sem skipt- ast á um að sinna henni samkvæmt ákveðnu vaktafyrirkomulagi. Kona í Hafnarfirði sem hafði samband við Morgunblaðið lýsti miklum erfiðleikum sem hún lenti í yfir jólin þegar hún þurfti vegna veikinda að komast í apótek. Kon- an er bíllaus og eina apótekið sem opið var þessa daga á höfuðborgar- svæðinu var Apótek Árbæjar. Yfir áramótin annaðist annað apótek í úthverfi Grafarvogs helgarþjón- ustuna fyrir íbúa höfuðborgar- svæðisins. Opnunartími apóteka er bundinn í reglugerð frá árinu 1983. Al- mennur opnunartími apóteka á höfuðborgarsvæðinu er frá kl. 9-18 frá mánudegi til föstudags. Heil- brigðisráðuneytinu er heimilt að veita leyfi til lengri opnunartíma eða til kl. 19 frá mánudegi til fimmtudags, kl. 20 á föstudögum og frá kl. 9 til 16 á laugardögum. Skv. upplýsingum Eggerts Sig- fússonar, lyfjafræðings í heilbrigð- isráðuneytinu, skipta tvö apótek á höfuðborgarsvæðinu með sér kvöld- og helgarþjónustu. Eftir venjulegan lokunartíma eru þau opin til kl. 22 en eftir það annast annað apótekanna helgar- og næt- urþjónustuna. Sömu reglum er fylgt á helgidögum. Apótekin á höfuðborgarsvæðinu skiptast á um að sjá um þessa vaktþjónustu á hvetjum tíma skv. vaktaskrá. Eggert kannaðist ekki við að ein- stakir lyfsalar hefðu sóst sérstak- lega eftir að fá að hafa opið yfir hátíðirnar. Opnunartímar einstakra apóteka eru mislangir og þeir sem hafa sótt um að fá að hafa opið lengur fram kvöldi hafa yfirleitt fengið leyfi til þess að sögn Eggerts. Afgreiðslutíminn hefur rýmkað Jóhann Lenharðsson, hjá Lyfja- eftirliti ríkisins, sagðist ekki hafa orðið var við mikinn þrýsting á að opnunartími apóteka yrði rýmkað- ur en sagði þó að vegalengdir væru talsvert vandamál fyrir neyt- endur, sérstaklega þegar svo stæði á að það apótek sem annaðist helg- ar- og næturþjónustu væri í út- hverfi en ekki miðsvæðis. Leita lyfsalans í ókunnugum úthverfum Hann sagði að til þessa hefði þróun verið sú að menn hefðu frek- ar leitast við að komast hjá þátt- töku í vaktkerfinu. „Á móti kemur svo að apótekin hafa í auknum mæli rýmkað afgreiðslutíma sinn fram eftir kvöldinu," segir Jóhann. Ingolf Petersen, formaður Apó- tekarafélags íslands, segir að breyting á þessari þjónustu sé í aðsigi. Sú breyting tæki þó ekki gildi fyrr en núverandi vaktaáætl- un rynni út um næstu mánaða- mót. „Ég veit að gremja manna er kannski helst sú að þurfa að fara inn í hverfi sem þeir þekkja ekki og eiga í erfiðleikum með að finna apótekið. Meðal annars vegna þessa erum við að íhuga að breyta þessu,“ sagði hann. Ingolf sagði einnig að einstakir lyfsalar sæktust ekki eftir að fá að hafa opið yfir nætur og helgi- daga, enda yrði að taka tillit til starfsfólks apótekanna. Vilt þú verða neta- gerðar- maður? Morgunblaðið/Kristinn GUÐRÚN Þórsdóttir afhendir Birni Bjarnasyni bæklingana um iðnnámið ásamt tösku, sem gerð var í fyrra og var hluti af sama kynningarátaki. LÍSA Björg Lárusdóttir og Gunnur Jónsdóttir nemar í áttunda bekk Foldaskóla voru í starfskynningu í Sandholtsbakaríi í Graf- arvogi í gær, þar sem INN-bæklingarnir voru kynntir. Lísa sést hér reyna sig við bakarastörfin en lengst til vinstri á myndinni er Júlíus Arnarsson bakaranemi, sem kenndi henni handtökin. NEMENDUM í níunda bekk á öllu landinu munu á næstunni verða kynntir bæklingar, þar sem kynntar eru ýmsar iðn- greinar. Tilgangur þessa er að reyna að vekja áhuga ungs fólks á iðngreinum og eru umsjónar- kennarar í skólunum meðal annars fengnir til liðs við átak- ið. Ingi Bogi Bogason upplýs- inga- og fræðslufulltrúi Sam- taka iðnaðarins sagði þegar verkefnið var kynnt í gær að það væri ljóst að mikil þörf væri á því að kynna atvinnulífið fyrir ungu fólki. Fyrirmyndir, sem ungt fólk hefði að heiman, væru ekki alltaf skynsamlegar og fræðsla í skóluin væri enn fábreytt. Benti hann jafnframt á að hér á landi væri hlutfall þeirra, sem lykju iðn- og starfsmenntun á framhaldsskólastigi, um 30% af hverjum árgangi á móti til dæm- is 70% í Þýskalandi. Iðnaður, nemendur, nýsköpun Útgáfa bæklinganna, sem eru litprentaðar fjórar síður í A5 broti, er hluti af iðnfræðsluverk- efni, sem ber nafnið INN. INN stendur fyrir iðnað, nemendur og nýsköpun og varð að lands- verkefni þegar menntamála- ráðuneytið ákvað sl. sumar að styrkja það. Bæklingarnir eru þrettán talsins og dæmi um yfir- skrift þeirra eru: Vilt þú verða netagerðarmaður, vilt þú verða bókbindari, matreiðslumaður, snyrtifræðingur o.s.frv. Þegar Guðrún Þórsdóttir frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur afhenti Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra fyrstu bæklingana, þakkaði hún honum stuðninginn. Björn sagði í ræðu sinni að það væri bæði ávinning- ur fyrir nemendurna sjálfa og þjóðfélagið að nemendur áttuðu sig á því hvaða kostir og leiðir væru til að ná sér í góða mennt- un. Hét hann INN-hópnum stuðningi til að vinna með þess- um hætti í framtíðinni. TESS - Verið velkomin - Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. neðst við Dunhaga, sími 562 2230 83 milljónir Vikuna 28.desember til 3. janúar voru samtals 83.512.235 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Silfurpottar í vikunni: Dags. Staöur Upphæö kr. 28. des. Rauöa Ijónið................. 67.608 29. des. Mónakó...................... 324.782 29. des. Kringlukráin................ 109.066 30. des. Ölver....................... 162.878 30. des. Háspenna, Laugavegi..... 52.423 30. des. Háspenna, Laugavegi..... 52.025 30. des. Háspenna, Hafnarstræti.. 95.295 31. des. Háspenna, Laugavegi..... 91.638 3.jan. Mónakó.................... 375.738 3. jan. Gúlliver..................... 54.016 3. jan. Háspenna, Laugavegi...... 53.336 Staöa Gullpottsins 4. janúar, kl. 11.00 var 6.721.422 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta. Blab allra landsmanna!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.