Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 11

Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 11 FRÉTTIR Happdrætti SÍBS kynnir íslenska rithöfunda Handrit dregin út mánað- arlega MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Happdrætti SÍBS: „Þeir sem skoða vinningaskrá SÍBS hljóta að taka eftir öðrum áherslum en gilt hafa á happdrættis- markaðnum hingað til. Þessar áherslur eru á það sem gefur lífinu gildi — annað og meira en beinharða peninga. Vissulega verða háir vinn- ingar í boði á árinu. Fyrsti vinningur í janúar verður t.d. að verðmæti 7 milljónir króna óskiptar á einn miða. Algjörlega aukalega við skrána verða mánaðarlega dregnar út tvær handunnar möppur. Hver þeirra inniheldur minnst sjö handrit eða handritsbrot ólíkra, íslenskra rithöf- unda. Á tölvuöld skrifa flest skáld verk sín á tölvu. Þess vegna er sjald- gæft að sjá handskrifuð verk þeirra. Nú hafa íslensk skáld sýnt SIBS þá vinsemd að rita eigin hendi ljóð sín eða sögukafla og færa samtökunum að gjöf. Hér er því um handrit að ræða — í orðsins fyllstu merkingu. Þeim sem kunna að meta eru þetta ómetanleg verðmæti. í ágúst fær síðan hver einasti miðaeigandi í happdrættinu bókina „Lífið sjálft". Bókin inniheldur ljós- prentuð, handskrifuð verk 114 skálda. Hringur Jóhannesson mynd- skreytir bókina og Jón Reykdal vinn- ur kápu. Hér er um sérstakt ritverk að ræða sem er aðeins gefið út í þessu tilefni og verður ekki selt á almennum markaði. Þessi nýbreytni er hugsuð til að kynna íslenskar bókmenntir og veita menningarleg- um straumum inn á íslenskan happ- drættismarkað. Árið 1995 var ár myndlistar. Þá var 28 verkum þekktra íslenskra myndlistarmanna bætt aukalega við vinningaskrána. Reykjalundur er ekki ríkissjúkra- hús eins og ótrúlega margt fólk virð- ist halda. SÍBS hefur byggt upp, á og rekur Reykjalund. Brýnasta verk- efni þat' nú er bygging þjálfunarhúss þar sem yrði bæði þjálfunarsalur og þjálfunarlaug. Nú eru rúmlega 500 manns á biðlista eftir plássi á Rey- kjalundi. Slíkt er þjóðhagslega óhag- kvæmt því kostnaður við dvöl hvers sjúklings á sólarhring er aðeins þriðj- ungur þess sem er á öðrum sjúkra- stofnunum. Mikið hefur verið rætt um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Á sama tíma fjölgar þeim sem þarfn- ast endurhæfíngar. Svo er þróun í læknavísindum að þakka að æ fleiri lifa af alvarleg veikindi eða slys. SÍBS gegnir því þýðingarmiklu hlut- verki í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Á Reykjalundi dveljast ekki aðeins sjúklingar af höfuðborgarsvæðinu heldur af landinu öllu. Auk Reykja- lundar á og rekur SÍBS Múlalund, stærsta verndaða vjnnustað lands- ins. Einnig rekur SÍBS í samvinnu við Reykjavíkurdeild Rauða krossins og Félag eldri borgara stofnanirnar Múlabæ, sem er dagvistun fyrir aldr- aða og Hlíðabæ, sem er dagvistun fyrir fólk með heilabilun (alzhei- mer). Ekkert af þessu væri hægt hefði SÍBS ekki happdrættið. Það er undirstaða allrar starfsemi sam- takanna. Happdrættið er áskriftar- happdrætti, dregið verður 12. jan- úar. Þeir sem vilja kaupa miða gegn- um síma geta hringt í síma 552-2150.“ Formaður Kaupmannasamtakanna um lokanir verslana vegna vörutalningar Ekki sömu forsendur til lokana og áður FLESTAR verslanir voru lokaðar vegna vörutalningar síðastliðinn þriðjudag sem og bankar. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Kaup- mannasamtakanna, segir að ekki sé sama þörf á því að loka verslunum til þess að telja vörur og áður var vegna nýrrar tækni. Sigurður segir að ýmsar stærstu verslanirnar séu komnar með mjög fullkomin kassakerfi og birgðahald sé með þeim hætti að vitað sé í lok hvers vinnudags hver birgðastaðan er. Þó eigi þetta aðeins við um stærstu verslanirnar. Meginþorri þeirra hafi þó ekki slíkt kerfi og verði að telja. Lok reikningsársins „Reikningsár margra verslana lýkur um áramótin og þá þurfa þær að gera sín reikningsskil og stað- festa að þær upplýsingar sem eru til staðar, jafnvel í þeim verslunum sem eru með tölvukerfi, séu réttar. Þess vegna telja menn ennþá jafnvel þótt þeir séu með mjög góð kerfi,“ sagði Sigurður. Hann sagði að á milli jóla og ný- árs hefðu margar verslanir einnig verið lokaðar og sú lokun væri hugs- uð sem uppbót fyrir starfsfólk vegna mikillar vinnu um jólin. „Það kann að vera að í sumum tilfellum loki menn fyrsta virkan dag á nýju ári til þess að gefa starfsfólki frí. En ég hygg að í þorra verslana séu menn að telja þennan dag. Ég á því ekki von á því að þessi siður leggist af á næstunni. Það er þó ljóst að þörfin fyrir vörutalningu minnkar stöðugt í takt við aukna tæknivæð- ingu,“ sagði Sigurður. Allir bankar voru lokaðir fyrsta virkan dag í nýju ári nema afgreiðsl- an í flugstöðinni í Keflavík. Friðbert Traustason, formaður Samtaka ís- lenskra bankamanna, segir að lokun banka fyrsta virkan dag á nýju ári sé vegna vörutalningar á ýmsum vörum sem bankarnir selja. „Dagur- inn var á sínum tíma nýttur til þess að færa inn í bækur og annað. Það má segja að dagurinn sé nýttur í yfirferð á öllum reikningum eftir áramótakeyrslur en þeim fylgja ýmsar aukakeyrslur. Þetta er reynd- ar allt vélrænt en mannsaugað verð- ur að fylgjast með því öðru hverju," sagði Friðbert. Fimmfaldur fyrsti vinningur LAUGARDAGINN 6. janúar nk. ingur verði 22 milljónir króna eða verður fyrsti vinningur í Lottóinu hærri. Jafnanþegarfyrsti vinning- fimmfaldur og er það í þriðja sinn ur verður svo hár eykst þátttaka í sögu lottósins hér á landi. landsmanna, því margir vilja Talið er öruggt, að fyrsti vinn- freista gæfunnar. Heldur afram af krafti með FULLT AF NÝJUM UPPATÆKJUM (FERÐUM Q.FL.) TAKIÐ MÖMMU □□ PABBA MEÐ NÝTT B VIKNA NÁMSKEIÐ Þriðjudaginn 9. JANÚAR HEFST NYTT ATAKSNAMSKEIÐ I FITUBRENNSLU Það verður stif keyrsla í HEILAR B VIKUR. M EÐ □ LLU M OG MIKIÐ AÐHALD SVO ARANGURINN VERÐI M.A. VIGTUN, MÆLINGAR MAPPA FULL AF FRDÐLEIK SNAUÐUM UPPSKRIFTUM BARNAPÖSSUNá morganana FrjÁls mæting í aðra TÍMA Kennarar Auður Rafnsdóttir Barnaleikfimi UM HELBAR Glodis Gunnarsddttir Skráning í síma Karl Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.