Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Seðlabankastjóri segir gagnrýni VSÍ á vaxtahækkanir bankans á misskilningi byggða
Vaxtahækkun eina leiðin til að
hamlagegn gjaldeyrisútstreymi
Þróunarfé-
lagið kaupir
11,2% hlut í
Arnesi
ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf. hef-
ur keypt 11,2% hlutafjár í Árnesi
hf. af Þróunarsjóði sjávarútvegs.
Bréfin eru að nafnvirði 29,1 milljón
króna en voru seld miðað við geng-
ið 0,9 þannig að söluverð þeirra er
26,2 milljónir.
Þróunarfélagið er þar með orðið
næst stærsti hluthafi félagsins en
stærstan hlut á Grandi eða 25%. í
röðum stærstu hluthafanna eru
Burðarás með 9,6% hlut, Trygg-
ingamiðstöðin 4,7%, Sjóvá-Almenn-
ar 3,3% og Alþjóðlega viðskipta-
þjónustan hf. með 3,3%.
„Við höfum mikla trú á Ámesi,
bæði sérhæfingu þess og starfs-
mönnum auk þess sem eigendurnir
eru traustir," sagði Hreinn Jakobs-
son, framkvæmdastjóri Þróunarfé-
lagsins í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta fyrirtæki hefur markað sér
ákveðna sérstöðu sem liggur í veið-
um og vinnslu á flatfiski og humri.
Jafnframt liggur sérstaðan ekki síð-
ur í afsetningu vörunnar því Árnes
hefur fjárfest í sölufyrirtæki í Hol-
landi til að koma vörunni á mark-
að. Auk þess var verðið hagstætt
á bréfunum að okkar mati.“
----------»"■»-♦---
Eigendaskipti
á Ferðaskrif-
stofu Hafnarfj.
MAGNÚS Gunnarsson, fyrrum
framkvæmdastjóri SÍF og fyrrver-
andi formaður Vinnuveitendasam-
bandsins, hefur keypt Ferðaskrif-
stofu Hafnarfjarðar. Magnús segir
að hér sé um mjög lítið fyrirtæki
að ræða. Þar starfi aðeins einn
starfsmaður og því sé ekki mikil
fyrirferð í því á markaðnum.
Magnús segir að gengið hafi ver-
ið frá kaupunum skömmu fyrir jól.
„Fyrst um sinn mun ferðaskrifstof-
an einungis sinna umboðssölu, en
ég hef hugsað mér sem langtíma-
markmið að skoða hvaða möguleik-
ar til staðar í sérhæfðum ferðum,
bæði fyrir íslendinga til útjanda og
ejnnig fyrir útlendinga til Islands.“
BIRGIR ísleifur Gunnarsson, Seðla-
bankastjóri, segir að gagnrýni á vaxta-
hækkanir þær sem bankinn hafí grip-
ið til að undanfömu til að spoma við
þenslu í hagkerfínu, sé ekki réttmæt
og að hluta til á misskilningi byggð.
Ekki megi blanda saman vaxtaþróun
á langtíma- og skammtímamörkuðum
en bankinn sé aðeins leiðandi á
skammtímamarkaðnum. Birgir segir
þessar aðgerðir vera nauðsynlegar,
enda sé hér um að ræða eitt helsta
stjómtæki bankans til að ná fram
markmiðum sínum, sem séu að halda
verðlagi og gengi stöðugu.
„I þessari umræðu sem átt hefur
sér stað að undanfomu á opinbemm
vettvangi hefur mismunandi vaxta-
mörkuðum gjaman verið blandað sam-
an. Seðlabankinn gerir hins vegar
skýran greinarmun á þremur mörkuð-
um hvað vexti snertir. í fyrsta lagi
er það peningamarkaðurinn svokall-
aði, þ.e. skammtímakröfur allt upp að
12 mánuðum. Þá er það verðbréfa-
markaðurinn, þar sem um er að ræða
verðbréf til lengri tíma en árs og allt
upp í 25 ár. I þriðja lagi er það síðan
bankamarkaðurinn.
Þó svo að tengsl séu á milli þessara
markaða þá em þau ekki bein. Sá
markaður sem Seðlabankinn starfar
fyrst og fremst á er skammtímamark-
aðurinn. Þar getum við nánast ráðið
vöxtum og okkar aðgerðir á þessum
markaði hafa fyrst og fremst það
markmið að ná fram okkar megin
stefnumiðum sem em að halda stöð-
ugu verðlagi og þá um leið stöðugu
gengi.“
Birgir segir að hækkanir bankans
á skammtímavöxtum á undanfömum
vikum nemi um 30 punktum eða sem
nemur 0,3%. Hann segir að reynsla
bankans sé sú að skammtímavextir
hafí mjög mikil áhrif á gjaldeyris-
strauma í og úr landi. Vextir á þessum
markaði hafi hækkað á fyrri hluta síð-
asta árs og fram á vor og vom hæst-
ir um 7,64. Síðan hafí þeir farið lækk-
andi, bæði þar sem lausafjárstaða
bankastofnana hafí verið góð og sömu-
leiðis hafí verið jafnvægi í gjaldeyri-
sviðskiptum.
„Síðan hefur það hins vegar gerst
að á undanfömum tveimur mánuðum
höfum við orðið fyrir veralegu gjald-
eyrisútstreymi jafnframt því sem mik-
il útlánaaukning hefur orðið í banka-
kerfínu sem hefur leitt til þess að
lausafjárstaða bankanna hefur versn-
að. Þegar svona stendur á hefur Seðla-
bankinn aðeins eina leið færa til þess
að reyna að hamla gegn gjaldeyrisúts-
streymi þ.e. að hækka vexti á peninga-
markaðnum og það gera Seðlabankar
út um allan heim við slíkar aðstæður.11
Seðlabankinn ekki leiðandi á
verðbréfamarkaði
Birgir ísleifur segir að ekki megi
kenna Seðlabankanum um vaxta-
hækkanir á langtímamarkaði, því þar
sé hann ekki leiðandi í vaxtamyndun.
„Okkar hlutverk er að vera viðskipta-
vaki með spariskírteini ríkissjóðs og
við setjum því fram dagleg tilboð í
þessi bréf. Vextir á þessum bréfum
hafa hins vegar fylgt vöxtum hús-
bréfa og þær hækkanir sem orðið
hafa á vöxtum spariskírteina em því
í raun aðeins endurspeglun á vaxta-
þróun húsbréfa."
Birgir segir að þróunin á verðbréfa-
markaðnum á síðasta ári hafí orðið
önnur en menn hafí gert ráð fyrir því
þrátt fyrir að ríkissjóður hafí dregið
sig nokkuð í hlé á innlendum lánsflár-
markaði, þá hafí aðrir aðilar á borð
við sveitarfélög og fyrirtæki komið
mjög sterkt inn og því hafí vaxta-
lækkanir ekki orðið jafn miklar og
ætla mátti.
Þá segir Birgir að þróunin á næst-
unni sé mjög óljós. „Við sjáum að
lánsijárþörf ríkissjóðs verður minni á
þessu ári en hún hefur verið. Þar
skiptir hins vegar vemlegu máli hvort
ríkissjóður heldur áfram að sækja
jafn mikið inn á erlendan lánsfyár-
markað eins og á síðasta ári, eða
hvort hann fer meira inn á innlendan
markað. Þá skiptir einnig veralegu
máli hvernig spamaður verður á
þessu ári.“
Birgir segir það einnig vera athygl-
isvert að þrátt fyrir óhagstæðan sam-
anburð á vöxtum á verðbréfamarkaði
hér á landi og erlendis, þá hafí fýrir-
tækin verið að greiða upp lán sín
erlendis í mjög stóram stíl og leitað
í auknum mæli á innlendan lánsíjár-
markað. „Þetta bendir nú til þess að
innlendi markaðurinn hafí verið að
veita þeim betri kjör en þeim gefst
kostur á erlendis,“ segir Birgir.
Gagnrýni VSÍ óréttmæt
Hvað um þá gagnrýni Vinnuveit-
endasambandsins að vaxtastjóm
bankans leiði til hærra vaxtastigs og
þar með samdráttar í fjárfestingum
fyrirtækja, auk þess að ekki sé enn
ástæða til þess að bregðast sérstak-
lega við þenslu í hagkerfinu.?
„í þeirri umræðu fannst mér þeir
lenda í þeirri gryfju að ragla saman
langtímavöxtum og skammtímavöxt-
um. Við höfum ekki beitt okkur fyrir
hækkun langtímavaxta en hins vegar
höfum við beitt okkur fyrir hækkun
á skammtímamarkaðnum að undan-
förnu, sem hefur alls ekki skilað sér
inn á verðbréfamarkaðinn enn og
ekki inn á bankamarkaðinn heldur.
Sú ásökun að við höfum verið að
beita okkur fyrir hækkun á langtíma-
vöxtum er því alls ekki rétt.“
Birgir segir að ef að bankinn eigi
að ná fram markmiðum sínum um
að halda genginu föstu, þá verði hann
að breyta vöxtum því hann hafí ekki
annað stjórntæki til reiðu. „Við eram
staðráðnir í því að fylgja áfram sam-
eiginlegri stefnu ríkisstjómarinnar og
Seðlabankans um stöðugt gengi. Sú
stefna hefur reynst vel og dijúgan
þátt í uppsveiflu atvinnulífsins. Stöð-
ugt gengi mun og til lengri tíma litið
stuðla að lægri vöxtum á óverð-
tryggðum skuldbindingum hér á landi
þar sem hluti vaxtamunar milli ís-
lands og annarra landa á rætur að
rekja til ótta við gengislækkanir."
mest seldu fólks-
bílategundirnar Br. frá
í jan.- des. 1995 fyrra ári
Fiöldi % %
1. Tovota 1.376 21,3 -1,1
2. Nissan 882 13,7 9,7
3. Volkswaqen 787 12,2 37,3
4. Hyundai 566 8,8 17,7
5. Opel 346 5,4 127,6
6. Mitsubishi 330 5,1 -20,3
7. Subaru 290 4,5 559,1
8. Renault 259 4,0 14,6
9. Volvo 246 3,8 28,1
10. Suzuki 229 3,6 116,0
Aðrar teg. 1.134 17,6 12,5
Samtals 6.445 100,0 19,6
5.391
til d
1994
.FÓLKSBÍLAR,
nýir
VÖRU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
809
578 BB»a
1994 1996 1994
Toyota hélt öruggri forystu 1995
TÆPLEGA fimmtungs aukning varð á sölu nýrra fólksbíla á nýliðnu ári
þegar alls voru seldir 6.445 bílar. Þá varð tæplega 40% söluaukning á
vöru-, sendi- og hópferðabílum. Töluverðar breytingar hafa orðið á
markaðshlutdeild einstakra fólksbílategunda eins og sjá má á töflunni.
Toyota-umboðið hefur haldið sinni öruggu forystu en mátti þola
lítilsháttar samdrátt. Veruleg aukning hefur orðið á sölu ýmissa tegunda.
Þar má nefna að salan á Subaru hefur tæplega sjöfaldast og tvöföldun
orðið á sölu Suzuki og Opel-bíla. Sölutölurnar fyrir einstakar tegundir
segja hins vegar ekki alla söguna því í sumum tilvikum hafa dýrari bílar
selst mjög vel og velta aukist þrátt fyrir samdrátt í fjölda. Þetta á t.d. við
um Mitsubishi.
UTSALAN
*
Urval-Utsýn kaupir Alís og stofnar Plúsferðir
Ödýrar ferðir með
einfaldri þjónustu
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval-Út-
sýn hf., dótturfyrirtæki Flugleiða,
hefur keypt rekstur ferðaskrifstof-
unnar Alís í Hafnarfirði. Jafnframt
hefur verið sett á stofn ný ferða-
skrifstofa, Plúsferðir efh. Þar verð-
ur lögð áhersla á að bjóða ódýrar
utanlandsferðir með einfaldri þjón-
ustu m.a. til Billund í Danmörku í
beinu leiguflugi. Þá er ætlunina
bjóða beint leiguflug til Mallorca,
Portúgals og nýs ákvörðunarstaðar
á meginlandi Spánar ásamt ferðum
til Kanada, Flórída og Skotlands.
Að sögn Harðar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Úrvals-Útsýn-
ar, hefur fyrirtækið um skeið kann-
að möguleika á því að setja á fót
sérstaka ferðaskrifstofu til að ná
til nýs markhóps og nýta þannig
betur farbókunarkerfin. Eigendum
Alís hafi hins vegar þótt ástæða til
að endurskoða sinn rekstur og auka
fjölbreytni. Það hafi farið saman
að leggja rekstur Alís í Plúsferðir
á móti framlagi Úrvals-Útsýnar.
„Plúsferðir munu bjóða svipaðar
ferðir og aðrir á markaðnum en
með takmarkaðri þjónustu þar sem
lögð verður áhersla á einfaldleika
og skýr skilaboð. Við teljum mikla
möguleika á að ná til ungs fólks
sem er tilbúið að fara með skömm-
um fyrirvara og gerir aðrar kröfur
um þjónustu," sagði Hörður.
15-25% verðlækkun
Aðspurður sagði Hörður að verð
á ferðum Plúsferða yrði á bilinu
20-50 þúsund krónur. Þannig yrði
unnt að komast til Billund fyrir allt
að 20 þúsund krónur og sólarlanda-
ferðir yrðu væntanlega 15-25%
ódýrari en hefðbundnar sólarlanda-
ferðir á vegum Úrvals-Útsýnar.
Laufey Jóhannsdóttir, fráfarandi
framkvæmdastjóri Alís, hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Plúsferða
og aðrir starfsmenn munu jafn-
framt hefja þar störf. Laufey var í
hópi stærstu hluthafa Alís ásamt
Austurbakka og David Pitt & Co.
Alís hefur verið til húsa í Hafnar-
firði og verða Plúsferðir þar fyrst
um sinn. Fyrirhugað er að flytja
skrifstofuna til Reykjavíkur og
stendur yfir leit að hentugu hús-
næði.